Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLÁÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 25 KAUPMANNAHAFNARBRÉF Ávöxtun þjóðararfsins - fortíðin í staðfærðum þýðingum Þó hugtakið „þjóðararfur" eigi sér varla hliðstæðu í dönsku, þá spretta þó annað veifið upp umræður og jafnvel deilur um hvernig eigi að ávaxta danska þjóðararf- inn, arfleifð fyrri kynslóða. Arfleifðin danska er reyndar af margvíslegum toga spunnin, ekki aðeins bókmenntir, heldur einnig myndlist, tónlist og byggingarlist, svo eitthvað sé nefnt. Um daginn komu skyndilega upp umræður um veigamikinn þátt menningararfleifðarinnar, nefnilega um Soren Kierkegaard og verk hans. Heimspekingurinn og guðfræðingurinn Soren Kierkegaard fæddist 1813 og dó 1855. í föðurarf fékk hann ekki einungis fé til að framfleyta sér ævina út, heldur einnig guð- fræðiáhuga og þunga lund. Hann byrjaði að skrifa undir dulnefni 1843 og gerði það næstu árin, þar til hann gekkst við því 1846. Hann hélt áfram hvatskeyttum skrifum og lenti í hvínandi ritdeilum, sem ollu honum hugarangri. Hann gagnrýndi kirkjuna harka- lega fyrir að hafa vikið frá réttri leið og trú og trúhneigð eru afgerandi þáttur í verkum hans. Burðarásinn í þeim er sú skoðun að hvorki einber skynsemin né vísindaaðferðir dugi sem undirstaða heimspekikerfa, er skýri út allar hliðar tilverunnar. Hún sé flóknari en svo að röklegar forsendur dugi til. Landi Kierkegaards kom honum síðar inn í alþjóðlegar heimspekiiðkanir. Georg Bran- des, sem var uppi 1842-1927, þótti róttækur menningarfrömuður á sínum tkna og braut blað í danskri bókmenntasögu með skrifum sínum um bókmenntir og iistir. Meðal annars skrifaði hann um Kierkegaard. Brandes, sem bjó í Þýskalandi í mörg ár, var þekktur utan Danmerkur og bók hans um Kierkegaard kom heimspekingnum á framfæri erlendis. Æ síðan hefur Kierkegaard átt sinn fasta sess í heimspekisögunni og um verk hans er fjall- að um allan heim. Þó Kierkegaard vegi þar þungt slíta dönsk skólaböm sér ekki út við lestur rita hans. Kannski eru hugmyndir hans tormeltar, en það eru þó ekki fyrst og fremst þær sem standa í dönskum nútímalesendum að mati skólafólks, heldur málið. Verk hans liggja fýrir í útgáfum, þar sem texti heimspekings- ins er prentaður orðrétt upp. Og dönsk staf- setning hefur breyst á þessari einu og hálfu öld, sem liðin er frá dauða hans og vitaskuld einnig orðaforðinn, hugtök og annað ámóta. Meginbreytingin í þessum efnum er að á tímum Kierkegaards og reyndar vel fram á þessa öld, tíðkaðist að skrifa stóran staf í nafnorðum. Af öðrum breytingum má nefna að þá var ekki notast við á, heldur aa. J var mikið notað, „Kebenhavn" var skrifað „Kjo- benhavn"; „Gæld“ (skuld) var „Gjeld“, i stundum skrifað þar sem nú er j, eins og í „eje“ (eiga), sem var skrifað „eie“. Þeir, sem á annað borð hugsa um hvemig koma eigi höfundum eins og Kierkegaard á framfæri við þjóðina, eru sammála um að ekki sé hægt að ætlast til að fólk lesi svo fomlegan texta, heldur verði að gefa þá út með nútíma- stafsetningu og helst að færa einstaka orð og jafnvel orðasambönd til betri vegar og finna nútímalega hliðstæðu. En þá kemur upp spurningin um hversu langt eigi að ganga í breytingum og staðfærslu. Nýlega skrifaði útgáfustjóri hjá bókafor- lagi nokkm, Per Thielst, grein um hvemig misskilin virðing fyrir frumtextunum gerði það að verkum að grundvallarrit í danskri menningarsögu, til dæmis Kierkegaards, væm ekki til í aðgengilegum útgáfum. Síðan birti hann brot úr bók eftir hugsuðinn, ann- ars vegar uppmnalega textann, hins vegar eigin útgáfu textans, þar sem hann hafði fært stafsetninguna til nútímahorfs og skipt um einstöku orð. Leiðarljós hans var að breyta eins litlu og hægt væri, svo textinn héldi sérkennum sínum, en bara með að- gengilegra yfirbragði. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Lesenda- bréfin streymdu inn og sitt sýndist hveijum. Ýmist fannst mönnum að Thielst gengi of langt, breytti of miklu svo textinn missti sín, eða að hann væri sjálfur alltof lotningarfull- ur gagnvart textanum, þegar nær væri að skrifa hann upp á nútímamál, svo hann skild- ist í raun. Þessi tilvistarkreppa eldri texta á við um miklu fleiri höfunda en Kierkegaard. Og eng- inn skyldi ætla að þetta ætti aðeins við um lestur skólakrakka eða almennings á þessum höfundum. Háskólakennari hér sagði mér að hún hefði lagt texta eftir sjálfan Georg Bran- des fyrir stúdentana. Textinn var í útgáfu frá því um 1920. Stúdentamir spurðu þá hvort hann væri ekki til þýddur, sumsé á nútímadönsku. Spumingin var kannski hálf- vegis borin upp í spaugi, en kennarinn var ekki í vafa um að hún sýndi að fyrir þeim væri textinn næstum eins og útlenska, bæði vegna stafsetningar og orðaforða. Sú var tíðin að stafréttar útgáfur fombók- menntanna, einkum íslendingasagna, vom logandi hitamál á Alþingi, sem tók sér á tíma- bili einkarétt á útgáfu þeirra til að koma í veg fyrir helgispjöll eins og að gefa þær út með nútímastafsetningu. Það vekur því varla undmn þó Danir eyði smá dagblaðshomi í þessar vangaveltur. Hitt er annað mál að með íslenskum augum verður vart séð að dönsk stafsetning frá síðustu öld sé svo frá- bmgðin nútímastafsetningu að það sé eitt- hvert vandamál að skilja textann, né að orða- forðinn sé svo framandlegur að til vandræða horfí. En látum nú stafsetninguna liggja milli hluta. Tíma- og staðfærsla textans sjálfs er meira mál og þá beinist athyglin einu sinni enn að skólakerfinu. Spyija má hvort afstaða til eldri texta væri ekki önnur, ef ekki hefði verið hætt að láta lesa eldri texta. Með því að láta skólakrakkana rýna í dagblöð og auglýsingatexta, í stað þess að vinna sig í gegnum bitastæða en gamla texta, hefur dymnum að fortíðinni verið hallaði í hálfa gátt, ef ekki hreinlega lokað. Þegar bókmenntimar em annars vegar er tímaskyn íslendinga býsna hæggengt. Það hvorki truflar né veldur djúpstæðum áhyggj- um þó til dæmis skólakrakkar skilji hugsan- lega ekki hvert einasta orð þegar þau lesa íslendingasögur í skólanum. I Danmörku virðast hins vegar áhyggjur í þessa áttina hafa orðið til þess að skólafólki fallist hendur við að láta þá lesa texta frá síðustu öld, eða byijun þessarar. í íslenskum skólaútgáfum em orðskýringar og þær, ásamt leiðbeining- um kennaranna, em látnar duga krökkunum sem veganesti við lesturinn. En vissulega krefst lesturinn þess að kennaramir leggi sig alla fram við að gera efnið aðgengilegt. Meðan atorkan er fyrir hendi, er væntan- lega langt í að íslenskir lesendur fombók- mennta rekist á flatneslqu í stíl við eftirliggj- andi, þegar þeir taka lesninguna fram (og geta nú lesendur spreytt sig á að þekkja uppmnalegu setningamar): „Æ, ég var svo lit.il þegar ég giftist honum NjáH að ég nenni ekki að skilja við hann núna.“ „Ég var eigin- lega leiðinlegust við þann sem ég elskaði mest.“ „Maður er alveg allsber á bakinu, ef maður á ekki bróður." „Þó allt drepist í kring- um mann og líka maður sjálfur, drepst aldr- ei það sem er sagt um mann (sérstaklega ef maður kemst í fjölmiðlana ...). Sigrún Davíðsdóttir Miðstöð fyrir fólk í atvinnu- leit tekur til starfa á morgun MIÐSTÖÐ fyrir fólk í atvinnuleit tekur til starfa mánudaginn 1. febrúar nk. í Miðstöðinni verður fjölþætt þjónustustarfsemi sem tekur sérstakt mið af þörfum og aðstæðum fólks sem misst hefur atvinnu sína og er í atvinnuleit. Starfsemin verð- ur til húsa í safnaðarheimili Dómkirkjunnar í Lækjargötu 14a (gamla Iðnskólanum) og verður til að byija með opin alla virka daga á milli 14 og 17. í fréttatilkynningu frá Miðstöð- inni segir! „Bakgrunnur málsins er hið al- varlega ástand sem skapast hefur vegna atvinnuleysis. Nú þegar hefur daglegt líf margra raskast um lengri eða skemmri tíma vegna atvinnuleysis, og útlit er fyrir að atvinnuástandið eigi enn eftir að versna. Þar sem vitað er að marg- víslegur persónulegur vandi fylgir því að missa og vera án vinnu um lengri tíma, er sérstakra aðgerða þörf. Starfsemi Miðstöðvarinnar hef- ur verið undirbúin í samvinnu þjóð- kirkjunnar við aðila vinnumarkað- arins og er kostuð og studd af fjölda félaga og hagsmunasam- taka auk opinberra aðila. Undir- búningsnefnd hefur á síðustu vik- um og mánuðum kannað og undir- búið aðgerðir. Ljóst er að vandi fólks er margvíslegur og að þörf er á fjölbreyttum úrræðum. Jafn- framt er mikilvægt að koma af stað aðgerðum sem ná til breiðs hóps. Til að byija með verður opnuð ein þjónustumiðstöð. Starfsemi Miðstöðvarinnar verður fjórþætt: 1. rekstur félagslegrar aðstöðu þar sem fólk getur komið saman, Höfóar til -fólks í öllum starfsgreinum! ræðst við og þegið veitingar, 2. öflun og miðlun upplýsinga er varða stöðu og réttindi fólks í at- vinnuleit, 3. ráðgjöf og persónuleg viðtöl, og 4. fræðsla. Öll þjónusta Miðstöðvarinnar verður endurgjaldslaus. Þar sem um nýja starfsemi er að ræða verður frekari fram- kvæmd þjónustunnar svo og áherslur í rekstri að fara eftir við- brögðum, en áhersla er lögð á að koma á fót þjónustu sem nýtist sem flestum. Undirbúningsnefndin hefur hvarvetna mætt miklum skilningi, jafnt meðal launþega, vinnuveit- enda, kirkjunnar, sem opinberra aðila, og hafa margir heitið ijárst- uðningi og annarri fyrirgreiðslu. Daglegur rekstur Miðstöðvarinnar verður að hluta í höndum sjálfboð- aliða. Framkvæmdastjóri Mið- stöðvarinnar er Halldór Kr. Júlíus- son sálfræðingur." (Fréttatilkynning) Gaf Samtökiim um kvennaathvarf hálfa milljón ÓLIM. ísaksson færði Samtökum um kvennaathvarf að gjöf 500.000 krónur nýlega. Myndin var tekin við afhendinguna. Á myndinni eru Guðrún Ágústsdóttir, Álfheiður Ingadóttir og Halldóra Halldórs- dóttir frá Samtökum um kvennaathvarf og Óli M. ísaksson. Utsöludagar FRABÆRT VERÐ St. 41-46 Litir: Svart/brúnt Kvenskór.....................trá kr. 900 Karlm.skór...................frá kr. 900 Matinbleu gallar stök númer...kr. 6.900 Moon Boots barna, st. 24-34 ..kr. 1.500 Skíðagallar stök númer........kr. 5.900 Dúnúlpur stök númer.. frá kr. 4.990-7.990 Utsöluverð: 3.500,- Áður: 4.890,- Utsöludæmi . 36-41 Litir: Svart/rauðbrúnt SKÓVERSLUN KÓPAVOGS HAMRABORG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.