Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 10
eeui flAúHAt .if; >rjOAuuMMU8 aiaAJanuoaoM MORGUNBLAÐIÐ SUNNlJDAGUR-31; JANUARr-t99? UEKFLÉTTUR lll SEflLABAHKASTOL eftir Agnesi Brogodóttur SEGJA má að afar flókin staða sé komin upp, bæði í banka- og stjórnmála- heiminum, við þá ákvörð- un dr. Jóhannesar Nor- dals seðlabankastjóra að láta af störfum á miðju þessu ári, eða hálfu öðru ári áður en hann hefði í raun og veru þurft að standa upp úr stól seðla- bankastjóra. Eflaust hefur Jón Sigurðsson bankaráð- herra gert sér vonir um að Jóhannes gegndi starfi lengur, því þar með hefði Jón ekki þurft að leita millileikja til þess að brúa bilið þar til hann er reiðu- búinn að hætta afskiptum af stjórnmálum, láta af ráðherraembætti og taka við þessari virðingarstöðu, sem ávallt hefur legið í loftinu að hann myndi á endanum gera. Flestir virðast telja að Jón Sig- urðsson sé hæfasti ein- staklingurinn til þess að taka við af Jóhannesi. Hann hafi mikla þekk- ingu á hagfræði og efna- hagsmálum, en hann mun þó síður en svo óumdeild- ur. Jafnframt búast menn við að hans seðlabanka- stjórastörf yrðu lituð sterkari pólitískum litum en störf Jóhannesar hafa verið í rúm 30 ár. Jóhann- es hefur jafnan gætt þess vandlega að vera ekki bundinn á klafa hjá nein- um stjórnmálaflokkanna, en Jón, sem fyrrverandi þingmaður og ráðherra Alþýðuflokksins, yrði sjálfsagt í mörg ár að þvo af sér kratastimpilinn, hefði hann á annað borð áhuga á slíkum þvotti. Ekki er endilega þar með sagt aðþótt Jón Sigurðsson vilji bæði eiga kökuna og eta hana, að hann fái að komast upp meðþað, einfaldlega vegnaþess aðpersónulegirhagsmunir hans verðiað víkja fyrirmeirihagsmunumþjóðarinnar. Nú er rætt um að banka- ráðherrann eigi í raun aðeins tvo kosti. Annar sé sá, að flýta ákvörðun sinni um brotthvarf úr pólitík og taka við af Jóhannesi um mitt þetta ár. Þannig tæki Guð- mundur Arni Stefáns- son, bæjarstjóri í Hafnarfirði og varaþingmaður Jóns í Reykjanes- kjördæmi, sæti hans á þingi. Eng- um blöðum er um það að fletta, að Guðmundur Árni væri að sönnu reiðubúinn til þess að taka sæti Jóns í ríkisstjóm einnig, ef svo bæri undir. En honum mun ekki verða að þeirri ósk sinni. Guðmund- ur Ámi hefur verið í harðri flokks- legri andstöðu við þá Jóna Hanni- bals og Sigurðar á fjölmörgum svið- um og ólíklegt er að flokksforystan muni launa honum þá andstöðu með ráðherrastól á silfurfati. Mikil gerjun hjá krötum Raunar er vandfundinn kandídat í þingflokki Alþýðuflokksins, sem væri sjálfsagt ráðherrakandídats- efni. Ekki verður það Gunnlaugur Heydalaklerkur, bróðir Guðmundar Árna, ekki verður það Sigurbjörn frá Akureyri og ólíklegt er að það verði Össur þingflokksformaður. Þá eru eftir tveir kandídatar, og ég hallast að því að þau eigi nokkuð jafna möguleika á að hreppa hnoss- ið. Það em Reykjanesþingmennirnir Rannveig Guðmundsdóttir, prúður og vel látinn þingmaður, samvisku- söm og svo er hún líka kona, og Karl Steinar Guðnason, verkalýðs- tengdur vel, formannshollur með afbrigðum, og sætti sig auk þess við það að Jóhanna Sigurðardóttir hafði af honum félagsmálaráð- herrastól við stjórnarmyndunina fyrir tæpum tveimur árum, án þess að gera allt vitlaust. Karl Steinar mun að vísu ekki hafa gert upp hug sinn um það hvort hann getur hugs- að sér að taka boði Eggerts Þor- steinssonar um að taka við af hon- um sem forstjóri Tryggingastofn- unar ríkisins. Þá kann að koma upp alveg ný staða með vorinu, því samkvæmt upplýsingum mínum mun Eiður Guðnason umhverfisráðherra hafa látið í veðri vaka að hann gæti vel hugsað sér að hætta afskiptum af stjómmálum og þiggja að launum sendiherraembætti. Þannig gætu tvö ráðherraembætti orðið á lausu meðal krata með vorinu, og ef Karl Steinar fer í Tryggingastofnun, þá liggur iíklegast beinast við að álykta sem svo að þau Rannveig og Össur séu líklegust til þess að hljóta ráðherratitil. Biðleikssamsæri Vilji Jón á hinn bóginn fá að sitja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.