Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 29 Bj örgrmarsveitum falin vitavarsla Styrkir fj árhagsgrundvöllinn ísafirði. NÝGERÐUR samningur milli slysavarnadeildarinnar Skutuls á ísafirði og Vita- og hafnamálaskrifstofunnar inn þjónustu við þijá vita á Hornströndum treystir nyög fjárhagsgrundvöll út- gerðar björgunarbátsins Daníels Sigmundssonar og styrkir starf- semina við bátinn að sögn talsmanna björgunarsveitarinnar sem sér um útgerð bátsins. Fyrsta ferðin var farin mánudaginn 25. janúar, en áætlað er að farnar verði um tvær ferðir í mánuði að jafnaði. Aðalverkefnið er þjónustan við Hornbjargsvita, þar sem fólk er allt árið, en auk þess þarf að þjóna vitun- um á Sléttu í mynni Jökulij'arða og á Straumnesi við norðanverða Aðal- vík. Einar Már Gunnarsson einn af skipstjórum bátsins, sagði að samn- ingurinn væri þeim afar mikilvægur. Með honum væri rekstrargrundvöllur bátsins tryggður, auk þess sem verk- efnin efldu mjög þjálfun áhafna. Þijár fjögurra manna áhafnir eru sérþjálfaðar til björgunar- og hjálp- arstarfa á bátnum. í neyðartilfellum er báturinn venjulega kominn úr höfn innan 10 mínútna frá því að boð berast til lögreglunnar á ísafirði, sem sér um útkall með svokölluðum friðþjófi, sem áhöfn á vakt hefur á sér. Báturinn er búinn þrýstivatnsdrifi og á þess vegna hægara með að sigla á grunnu vatni og lenda í fjörum en bátar með skrúfubúnað. Þeir hafa við leitarstörf iðulega ient í fjörum Björgunarbáturinn Daníel Sigmundsson er 14 metra álbátur með yfirbyggingu úr tvöföldu trefjaplasti og knúinn tveim 300 hestafla Volvo Penta diselvélum. Læknafélagið lýsir áhyggjum vegna deilu hjúkrunarfræðinga STJÓRN Læknafélags íslands lýsir áhyggjum sínum vegna yfirvofandi útgöngu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á Land- spítalanum 1. febrúar nk. í kjölfar uppsagna þeirra með samn- ingsbundnum fyrirvara. I ályktun félagsins af þessu tilefni segir: „Stjóm Læknafélags íslands lýsir undrun sinni á því ábyrgðar- leysi sem fram hefur komið í seina- gangi þeim sem verið hefur á raun- hæfum aðgerðum til þess að leysa þann ágreining sem er hin raunveru- lega ástæða fyrir ákvörðunum hjúkr- unarfræðinganna og ljósmæðranna. Þá harmar stjórn félagsins að í stað þess að leitað sé tímanlega raun- hæfra lausna skuli treyst á ákvæði laga til þess að vinna að gálga- fresti. Slíkar vinnuaðferðir eru að verða einum of algengar. Þær eru ekki til þess fallnar að leysa nokkum vanda og skapa þvert á móti slæmt vinnuumhverfi. Stjóm Læknafélags íslands verður þó enn að treysta því að stjómendur ríkisspítala og samtök hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra nái saman svo að ekki komi til neins af því sem hlotist gæti af útgöngu nefndra stétta á Landspítalanum 1. febrúar. Stjóm Læknafélags íslands telur að þessi deila og erfiðleikamir við lausn hennar árétti þá staðreynd að stjómkerfí ríkisspítalanna er ónýtt. í kerfi þar sem ekki fara saman í stjómun siðferðislegar-, faglegar- og fjárhagslegar skyldur og ábyrgð er hætt við að upp komi illleysanlegur ágreiningur af því tagi sem nú er til úrlausnar. Hið alvarlegasta er þó að án hinnar þríþættu stjómunarlegu ábyrgðar er rétti sjúklinganna stefnt í hættu með því að ekki em tryggð skilyrði þess að hægt sé að rækja við þá ótvíræðar siðferðislegar skyld- ur.“ Biskup vísiterar Útskálaprestakall r_x: Garði. BISKUPINN yfir íslandi hr. ólafur Skúlason mun vísitera Út- skála- og H valsnessöf nuði i næstu viku ásamt prófastinum sr. Barða Friðriks- syni. Heimsóknin hefst nk. þriðjudag með því að tekið verður hús á Gerðaskóla kl. 9,30 og grunnskól- anum í Sandgerði kl. 11. Þá mun biskup skoða Hvalsnes- og Út- skálakirkju og heimsækja vinnu- staði. Miðdegis, nánar tiltekið kl. 15,30, mun biskup annast helgi- stund á Garðvangi, dvalarheimili aldraðra í Garði, og kl. 17.30 mun hann sitja sameiginlegan fund með sóknamefndum Útskála- og Hvals- nessókna. Um næstu helgi messar biskup í Útskálakirkju fyrir hádegi og eftir hádegi í Hvalsneskirkju. Arnór og sett í land menn og búnað þar á meðal vélsleða. Því sagði Einar Már að ef ekki væri hægt að lenda við Hombjargsvita vegna langvarandi hafáttar og brims gætu þeir farið með vélsleða í botn Lónafjarðar, en þangað inn nær hafaldan ekki. Þaðan er rúmlega hálftíma sleðaferða að vitanum. Bátnum hefur verið beitt í misjöfnu veðri síðan hann kom og er komin góð reynsla á getu hans að sögn Einars Más þannig að ef á annað borð er lendandi við vitana þá er meira en nógu gott ferðaveður fyrir bátinn auk þess sem ekki tekur nema um fjóra tíma að komast á áfangastað þegar lengst er og því hægara að bregðast við þegar lag gerir en hjá varðskipi sem gæti ver- ið víðs fjarri vegna afar umfangsmik- ils þjónustusvæðis. - Úlfar. Þar em vitar á Sléttu í mynni Jökulfjarðar og á Straumnesi sem báðir em búnir sólarorkuspeglum og rafhlöðum og i Látravík austan Hombjargs þar sem er vitavörður ásamt aðstoðarmanni. Þangað er áætlað að fara eina ferð í mánuði en í hina vitana eftir þörfum. Reynslan sýnir að oft er ekki hægt að komast að Hombjargsvita langtímum saman vegna brims en björgunar- sveitarmennimir hyggjast fara þá á vélsleða upp úr Lónsfirði í Jökulfjörðum að Homi en það er rúmlega hálftíma ferð í skaplegu veðri. Hæstiréttur vítir saksóknara fyrir drátt í fíkniefnamáli 16 mánaða fangelsi breytt í skilorðsdóm HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt í máli ákæruvaldsins gegn 34 ára gömlum manni sem dæmdur var til 16 mánaða fang- elsisvistar í undirrétti vegna fíkniefnamisferlis. Um var að ræða alvarlegt brot því við húsleit hjá manninum fund- ust 50 grömm af kókaíni og 143 grömm af amfetamíni i nóvember 1988. Hæstiréttur breytir fangelsisdómi undir- réttar í skilorð til fjögurra ára og jafnframt vítir Hæstrétt- ur þann drátt sem varð á afgreiðslu málsins í dómskerf- inu, en alls liðu tvö ár og þrír mánuðir frá því málið var sent ríkissaksóknara og þar til ákæra var gefin út í því. í dómi Hæstaréttar kemur m.a. fram að sá dráttur sem varð á rekstri málsins hjá embætti ríkissaksóknara sé vítaverður og bijóti í bága við lög um meðferð opinberra mála og einn- ig í andstöðu við ákvæði í mannrétt- indasáttmála Evrópu. í dómnum seg- ir: „Rekstur þessa máls hefur dregist úr hömlu. Ákærði var uppvís að brot- um sínum í nóvember 1988. Málið var fullrannsakað af hálfu lögreglu- stjórans í Reykjavík 20. janúar 1989 „Sorg og trú“ í Seltjarnar- neskirkju STARF fyrir syrgjendur í Sel- tjarnarneskirkju hefst enn á ný þriðjudaginn 2. febrúar með opn- um kynningarfundi sem haldinn verður í safnaðarheimili Sel- tjarnarneskirkju kl. 20.30. Fyrirlesari á kynningarkvöldinu verður sr. Bragi Skúlason, sjúkra- húsprestur á Landspítalanum. í áframhaldi af kynningarkvöldinu hefst hópstarf. Hópstarfíð stendur yfir í tíu vikur, eitt kvöld í viku, og fjöldi í hópnum takmarkast við tíu þátttakendur. Starfshópar um „Sorg og trú“ hafa verið starfræktir við Seltjarn- arneskirkju frá áramótum 1991. Markmið með „Sorg og trú“ er að aðstoða þá einstaklinga sem hafa orðið fýrir missi að vinna sig í gegn- um sorgina. í hveijum hópi eru þrír leiðbein- endur þannig að tryggt sé að hveij- um þátttakanda sé sinnt sem best. og sent ríkissaksóknara til ákvörðun- ar þann dag. Ríkissaksóknari gaf ekki út ákæru í málinu fyrr en tveim- ur árum og rúmlega þremur mánuð- um síðar, hinn 2. maí 1991. Við flutn- ing málsins fyrir Hæstarétti var því lýst yfir af hálfu ákæruvalds að þessi dráttur réttlættist ekki af dvöl ákærða í Bandaríkjunum á þessum tírna." Fram kemur í dómi Hæstaréttar að eftir að mál þetta kom upp hér- lendis fluttist hinn ákærði til Banda- ríkjanna og dvaldi þar um tveggja ára skeið. Þar fór hann í átta vikna vímuefnameðferð í byijun árs 1989 og hefur síðan starfað hjá byggingar- fyrirtækjum þar í landi og stundað tækninám að einhveiju marki. Hér býr hann nú með konu sinni og tveim- ur bömum og hefur góða atvinnu. Hæstiréttur felst á sakarmat hér- aðsdómara og að refsing sé hæfilega ákveðin 16 mánaða fangelsi. Síðan segir í dómnum: „Þegar virtir eru persónulegir hagir ákærða, sakarfer- ill hans og hinn óhæfilegi dráttur á rekstri málsins þykir hins vegar rétt eins og hér stendur sérstaklega á að fresta fullnustu refsingar og láta hana falla niður að liðnum fiórum árum frá uppsögu dóms þessa ef ákærði heldur almennt skilorð." í dómsorðum segir síðan að ákvæði héraðsdóms um sakarkostn- að og upptöku eigi að vera óröskuð og ákærða er gert að greiða allan áfrýjunarkostnað sakarinnar, þar með talin saksóknaralaun í ríkissjóð og laun veijanda síns. F EIGNAMIÐUMN" Sínú 67-90-90 - Síðumúla 21 Húseign við miðborgina til leigu Glæsileg eign, hæð og ris, u.þ.b. 170 fm í virðulegu steinhúsi í hjarta borgarinnar, ertil leigu. í eignarhlutan- um eru m.a. 2 saml. stofur og 5 herbergi. Fallegur stað- ur. Stór garður. Langtímaleiga kemur til greina. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson og Stefán H. Stefánsson. Sérverslun í miðborginni Lítil sérverslun í miðbænum til sölu. Kjörið tækifæri fyrir konu sem vill skapa sér eigin atvinnu. Hagst. verð. Frekari upplýsingar veitir: Fasteignamarkaðurinn hf., Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700. Faxafen - verslunarhúsnæði Til leigu 114 fm glæsilegt verslunarhúsnæði í nýju húsi. Húsnæðið er fullbúið. Til afhendingar strax. Upplýsingar veitir: <f ÁSBYRGIif Su&urlandsbraut 54, 108 Reykjavik, simi: 682444, fax: 682446. INGILÐFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali. SÖLUMENN: Örn Stefánsson og Þórður Ingvarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.