Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 30
ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR Atvinna óskast 35 ára nýsjálenskur stálbræðslusérfræðing- ur óskar erfir atvinnu (ekki endilega í þess- ari atvinnugrein). Hef verið búsettur á ís- landi í tvö ár. Hefur reynslu í rekstri, tölvu- vinnslu, starfsþjálfun, framleiðsluaðferðum o.fl. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma/fax 650337. Skrifstofustjóri Danmörk íslenskt fiskvinnslufyrirtæki staðsett á Jót- landi, Danmörku, óskar að ráða skrifstofu- stjóra til starfa sem fyrst. Viðkomandi þarf að hafa góða undirstöðu- menntun, sfarfsreynslu og þekkingu á bók- haldi og fjárreiðum og sæmilega lipur í dönsku. Umsóknareyðubiöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar. ClJÐNI TÓNSSON RÁÐCJÖF &RÁDNINCARÞJÓNUSTA TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Ert þú metnaðar- gjarn sölumaður? Vilt þú selja lykilinn að stærsta ferðaklúbbi í heimi? Skilyrði: Góð framkoma, góð mannleg samskipti. Mikil sölureynsla. Lágmarksaldur 27 ára. Enskukunnátta. Meðmæli. Vinnutími frá kl. 13.00-21.00. Vantar einnig einkaritara í hlutastarf. Umsóknir, merktar: „FF - 003“, sendist aug- lýsingadeild Mbl. fyrir 3. febrúar 1993. Framtíðarferðir, Faxafeni 19. Sjúkrahús Kefla- víkurlæknishéraðs auglýsir Ljósmóðir óskast til starfa sem fyrst til afleysinga við fæðingadeild Sjúkrahússins til 1. ágúst 1993. Fæðingadeildin er blönduð fæðinga- og kvensjúkdómadeild með 8 rúmum. Deildin er notaleg og virk eining, sem býður upp á fjölbreytt og gefandi starf. Fæðingar sl. ár voru 303. Allar nánari upplýsingar um starf, aðbúnað og launakjörveita Erna Björnsdóttir, hjúkrun- arforstjóri, eða Sólveig Þórðardóttir, deildar- stjóri, í síma 92-14000. Fóstrur Nú er tækifæri til að komast í vinnu úti á landi, því það vantar fóstru til starfa við leik- skólann Barnaból á Þórshöfn. Við leitum að fóstru eða starfsmanni með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu af að starfa með börnum. Um er að ræða afleys- ingastarf vegna barnsburðarleyfis. Allar nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 96-81223 vinnusími og 96-81345 heimasími (Aðalheiður). NÁMSGAGNASTOFNUN Deildarsérfræðingur - námsefnisgerð Námsgagnastofnun óskareftir að ráða deild- arsérfræðing í hálft starf í námsefnisgerð Námsgagnastofnunar. Starfið er fyrst og fremst fólgið í umsjón með gerð og útgáfu handbóka með kennslu- forritum og myndböndum. Leitað er að starfsmanni með kennara- menntun og kennslureynslu ásamt þekkingu og reynslu af tölvunotkun í skólum. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist Karli Jeppesen, deildar- stjóra Fræðslumyndadeildar, Námsgagna- stofnun, Nóatúni 17, 105 Reykjavík, eigi síð- ar en 15. febrúar næstkomandi. Stjórnunarstörf í Kína UNIMARK HF. auglýsir fyrir Scandinavian Guangzhou Candy Company, sem starfrækir sælgætisverksmiðju í Kína, eftirtalin störf. Ráðningartími er mars/apríl. Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Leitað er að einstaklingi með haldgóða menntun og töluverða reynslu í rekstri, helst verksmiðjurekstri. Þarf að hafa góða reynslu í stjórnun, mannahaldi og slíku. Þarf að hafa góða innsýn í bókhald. Þarf að vera tilbúinn að vera í Kína í minnst 2 ár. Ferðir fyrir fjöl- skylduna borgaðar og húsnæði í Kína. Matvælafræðingur Helst einstaklingur, sem hefur unnið að sælgætisframleiðslu eða búinn að starfa við rannsóknir, gæðaeftirlit og vöruþróun. Þarf að vera í Kfna í u.þ.b. 1 ár. Ferðir og hús- næði greitt. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun, fjöl- skyldustærð og fyrri störf, sendist skrif- stofu okkar fyrir 10. febr. nk. (tI TDNT Iónsson RÁÐCJÖF &RÁÐN1NCARÞJÓNLISTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 lllftlllll eBiGiinii iimiist IftlIKKIIftllB Kiiiimiíi liliftllllil Frá Háskóla íslands Lausar stöður Eftirfarandi stöður við Háskóla íslands eru lausar til umsóknar: Við félagsvísindadeild, staða lektors ífélagsfræði. Lektornum er ætlað að kenna undirstöðugreinarfélags- fræði, auk sérsviðs. Æskileg sérsvið eru afbrotafræði, atvinnulífsfélags- fræði eða félagsleg lýðfræði og að- ferðafræði félagsfræðinnar. Ráðið verður í stöðuna til 3 ára. Nánari upplýsingar eru veittar á skrif- stofu félagsvísindadeildar. Við heimspekideild, þrjár sérstakar tímabundnar lektorsstöður í sagn- fræði ★ Einn lektoranna þarf að geta annast kennslu í sögu miðalda og fyrri hluta nýaldar fram um 1800. ★ Annar þarf að geta kennt sögu tímabils- ins frá upphafi nýaldar og fram á fyrri hluta 20. aldar. ★ Þriðji þarf að geta kennt sögu 19. og 20. aldar allt til samtímans. Um stöðurnar gilda reglur um ráðningar í sérstakar kennarastöður við Háskóla ís- lands. Gert er ráð fyrir að ráða í stöðurnar frá 1. ágúst 1993, til þriggja ára. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu heimspekideildar. Við raunvísindadeild, staða prófess- ors í hafefnafræði Prófessornum er ætlað að stunda rannsókn- ir og kennslu á sérsviði sínu innan hafefna- fræðinnar auk þess sem hann þarf að geta tekið að sér kennslu í almennri haffræði og almennum námskeiðum í efnafræði. Enn- fremur er óskað eftir greinargerð um rann- sóknir sem umsækjandi hyggst stunda verði honum veitt staðan. Nánari upplýsingar veitir dr. Kristberg Krist- bergsson, formaður efnafræðiskorar, í síma 620240. Umsækjendur skulu láta fylgja umsóknum sínum rækilega skýrslu um vísindastörf þau, er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Með umsóknunum skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og óprentuðum. Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla- kennara og fjármálaráðuneytis. Umsóknarfrestur er til 1. mars 1993 og skal umsóknum skilað til Starfsmannasviðs Há- skóla íslands, aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.