Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 17 í ljós þá ósk að Sunnlendingar fjöl- menni á fundinn og láti skoðanir sínar í ljós. - Sig. Jóns. Rætt um atvinmimál á Suðurlandi Verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur boða til opins fundar Selfossi. OPINN fundur um atvinnumál verður haldinn á Hótel Sel- fossi þriðjudaginn 2. febrúar klukkan 20.30. Það eru Alþýðu- samband Suðurlands og Atorka, félag atvinnurekenda á Suð- urlandi, sem boða til fundarins. Þingmenn kjördæmisins og sveitarstjóraarmenn eru sérstaklega boðaðir. Þessi fundur er sá fyrsti sem Verkalýðsfélagsins Þórs. verkalýðshreyfingin og atvinnurek- í fundarboði láta fundarboðendur endur boða til sameiginlega um atvinnumál og því má segja að viss tímamót séu mörkuð með honum. Frummælendur á fundinum verða: Hansína Á. Stefánsdóttir formaður Alþýðusambands Suður- lands, Pétur Reimarsson fram- kvæmdastjóri Ámess hf., Þorsteinr. S. Ásmundsson formaður Atorku, félags atvinnurekenda á Suður- landi, og Þórður Ólafsson formaður Verkalýðsfélagsins Boðans. Fund- arstjórar verða Birgir Guðmunds- son mjólkurbústjóri MBF og Ingi- björg Sigtryggsdóttir formaður Jass á Sólon Islandus JASSTRÍÓ Óla Steph. kem- ur fram á kaffihúsinu Sólon Islandus mánudaginn 1. febrúar nk. Þeir félagar munu leika jass frá kl. 22 til miðnættis. Fyrirhugað er að mánudagskvöld verði föst jasskvöld á Sólon Islandus í vetur og mun jasstríó Óla Steph. leggja línumar og verá þar út febr- úar. í jasstríói Óla Steph. leika Ólaf- ur Stephensen á píanó, Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Guð- mundur R. Einarsson á trommur. Þriðjudagskvöldið 2. febrúar held- ur Ása Lísbet Björgvinsdóttir, mezzósópransöngkona, einsöngstón- leika við undirleik Davids Knowles. Tónleikamir hefjast kl. 20.30 og verða á 2. hæð í Gallerí Sólon Island- GUDMUNDUR MARKÚSSON HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR Túngötu 5 - Pósthólf 319-121 Reykajvík - Sími (91)11711 - Fax: (91)11730 Hef opnað lögmannsstofu, Tek að mér öll almenn lögfræðistörf, svo sem innheimtu skulda og skaðabóta, búskipti, eignaumsýslu, ráðgjöf, skulda og skattskil fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Einnig er boðið upp á tímabundna ráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki á föstu verði. » ♦ Ljóðleikhús- ið í Þjóðleik- húskjallaranum FJÓRÐA ljóðakvöld Ljóðleik- hússins á þessum vetri verður haldið í Þjóleikhúskjallaranum mánudaginn 1. febrúar kl. 20.30. Rétt er að benda gestum á að koma tímanlega til þess að unnt verði að koma öllum i sæti, en síðast var fullt hús. Heiðursgestur að þessu sinni verður Jón úr Vör. Leikaramir Baldvin Halldórsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir lesa úr bókum skáldsins og Jón frá Pálmholti mun fjalla um skáldskap þess. Síðast en ekki síst mun Jón úr Vör lesa upp. Einnig koma fram og lesa úr verkum sínum þau Unnur S. Braga- dóttir, Óskar Árni Óskarsson, Bragi Ólafsson, Birgir Svan Símonarson og Böðvar Guðmundsson. Ljóðabókamarkaður verður á staðnum sem fyrr. (Fréttatilkynning) -----» ♦ ♦...— Fyrirlestur um afleiðing'- ar bakverkja EIRÍKUR Líndal sálfræðingur held- ur fyrirlestur á vegum námsbrautar í sjúkraþjálfun miðvikudaginn 3. febrúar klukkan 15. Fyrirlesturinn fjallar um afleiðingar bakverkja og sálarástand og verður fluttur í Læknagarði við Vatnsmýrarveg, 3. EUROCLASS EUROCLASS EUROCLASS Tylltu þér áður en þú skoðar þetta tilboð! SAS Euroclass þægindin byrja heima I stofu! Þið eruð flutt með ímósínu frá útidyrum út á flugvöll. 90% afeláttur fyrir maka. Tilboðið gildir til allra áfangastaða SAS í Skandinavíu. Að auki eru í fullu gildi önnur hlunnindi á Euroclass. MiSAS EuroClass SAS á íslandi - vaHtelsi í flugi! Laugavegi 172 - Sími 62 22 11 "Gildir fyrir Stór-Reykjavíkursvæöiö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.