Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 Út úr búrinu _________Leiklist_____________ Jóhann Hjálmarsson Þíbilja: Brúðuheimili eftir Henrik Ibsen. Þýðing: Sveinn Einarsson. Leikstjóri: Asa Hlín Svavarsdóttir. Leikmynd: Guð- rún Sigríður Haraldsdóttir. Lýsing: Árni Baldvinsson. Að- stoðarleikstjóri: Helga Braga Jónsdóttir. Brúðuheimili Henriks Ibsens er meðal þekktari verka norrænna leikbókmennta og hafa áhrif þess náð langt út fýrir Norðurlönd. Það er nú orðið meira en hundrað ára gamalt, en er enn leikið og rætt. Meginþema þess, frelsi eða ófrelsi kvenna, er enn til umræðu, en list- rænir kosti verksins gera gæfu- muninn. Við hlið Augusts Strind- bergs er Henrik Ibsen kunnasta og að flestra dómi 'mesta leikrita- skáld Norðurlanda. Sýning Þíbilju á Brúðuheimili í áheyrilegri þýðingu Sveins Ein- arssonar rifjar upp að Ibsen er samur við sig. Grundvallaratriði leikritsins haggast ekki þótt heim- Urinn breytist. Uppreisn Nóru í lokin var vissulega afdrifarík á tímum Ibsens, nú þætti afstaða hennar ekki sæta tíðindum. En allar þær þjáningar sem liggja að baki ákvörðun hennar að yfirgefa eiginmann og börn, leggja út í óvissuna, skipta máli og verða að drama og skáldskap í höndum Ibsens, lifna á sviðinu. Þegar eiginmaður Nóru, Þor- valdur Helmer lögfræðingur, er skipaður bankastjóri fer það ekki fram átakalaust. Nóra hefur gerst sek um skjalafals vegna láns sem undirmaður manns hennar í bank- anum, Krogstad málafærslumað- ur, hefur útvegað henni. Lánið var tekið til að greiða götu þeirra hjóna, en án vitundar Helmers. Þetta veldur því að tilveru heimil- isins er ógnað, einkum frama bankastjórans nýja. Gömul vin- kona Nóru, ekkjan Kristín Linde, kemur til bæjarins í atvinnuleit og á með hjálp Nóru að fá starf hins brottræka Krogstads. Koma Kristínar Linde raskar jafnvægi þess lífs sem Helmer hefur búið Nóru. Heimilisvinurinn Dr. Rank er trúnaðarvinur hjónanna. Hann er helsjúkur, en reynir að færa birtu inn í fjölskyldulífið, þó ekki án eigingirni eins og síðar kemur í ljós. Helmer kallar Nóru söngfugl- inn sinn og ýmsum öðrum gælu- nöfnum. Hann telur sig eiga hana og hamingju hennar og þeirra beggja fólgna í því. Þegar vand- ræðin leysast vegna óvæntrar lið- veislu, gamalla kynna þeirra Kristínar og Krogstads, er honum fyrst og fremst borgið, kona hans er aðeins aukapersóna, brúða í leiknum um peninga, álit og völd. Þjóðfélagið sem Helmer er hluti af, dettur ekki í hug að breyta, er Nóru framandi. Hún lítur á sig sem skipbrotsmann á reki og reyndar eru þau hjón bæði skip- reika að hennar mati. Hún vill horfast í augu við líf sitt og fórna öllu til að átta sig á tilverunni, leita nýrra leiða til að verða sátt, hamingjusöm í alvöru. Sviðið í Tjarnarbíói býður upp á að horft sé á það í nokkrum verkinu. Leikritið er í lengra lagi, en erfitt að koma auga á hvernig ætti að stytta það. Ég fylgdist að minnsta kosti með af áhuga allan tímann og hugur minnn hvarflaði ekki frá því sem gerðist á sviðinu eins og ég játa að stund- um vill verða. Rósa Guðný Þórsdóttir náði góðum tökum frá upphafi á hlut- verki Nóru. Blíða og ofsi fóru saman í túlkun hennar. Henni var það einkar lagið að birta áhorf- endum þá mynd Nóru sem er í senn bamsleg og einlæg og kon- una sem veit sínu viti, heldur reisn sinni þrátt fyrir undirokun fjöl- skyldulífsins. Eggert Þorleifsson lék með ýmsum blæbrigðum og kannski ekki nógu festulega þegar jafn voldugur maður og Helmer á í hlut. Eggert átti auðvelt mneð að túlka veikleika Helmers, en var á köflum of farsakenndur. í heild sinni komst hann þó vel frá hlut- verkinu. Það sambland af kaldhæðni og uppgjöf sem persóna Ranks lækn- is lýsir komst vel til skila hjá Kjartani Bjargmundssyni. Krist- ínu Linde lék Inga Hildur Haralds- dóttir af öryggi og gæddi hlut- verkið lífi. Ari Matthíasson lék líka vel, en framsögn hans er nokkuð eintóna. Bamfóstra Ingrid Jónsdóttur er ekki veigamikið hlutverk. Henni tókst þó afar vel að spegla auðmýkt þessarar konu sem á engra annarra kosta völ en vera hlýðin húsbændum sínum. Það er ánægjulegt, ekki síst samhengis leikbókmenntanna vegna, að fá að sjá Ibsen öðm hveiju í sinni upprunalegu mynd. Ekki sakaði þó að freista þess að færa hann í nýjan búning þótt í ljós kæmi að ekkert annað hefði breyst. Við emm líklega alveg eða næstum eins og þegar Henrik Ibsen lagði til atlögu við vanann og hefðina. Morgunblaðið/Kristinn Eggert Þorleifsson og Rósa Guðný Þórsdóttir í hlutverkum sínum í Brúðuheimili Henriks Ibsens. fjarska og persónur leikritsins með því móti gerðar fjarlægar, jafnvel óviðkomandi áhorfendum. Þetta leysir leikstjórinn, Ása Hlín Svavarsdóttir, meðal annars á þann hátt að leikendur em allan tímann viðstaddir þótt þeir séu ekki að leika, en koma ekki og fara eins og í hefðbundnum leik- ritum. Leikmynd Guðrúnar Sig- ríðar Haraldsdóttur og lýsing Árna Baldvinssonar em í anda stofuleikrita þar sem orðið ríkir fyrst og fremst, ekkert á að draga athyglina frá samtölunum. Það eru fáein atriði í sýningu Þíbilju á Brúðuheimili sem em daufari en önnur og ekki beint eftirtektarverð. En sýningin glat- ar ekki þeirri spennu sem felst í Breiðuvíkurhreppur Otíð til lands og sjávar Laugarbrekku. TÍÐARFAR hefur verið rysjótt, mikill snjór er nú kominn og illa hefur gengið að flytja börnin til og frá skóla. Sjaldan hefur gefið á sjó. Síðan í nóvember hefur tíðarfar verið slæmt, sífelldir stormar og rok af öllum áttum. Tjón hefur ekki orð- ið hér í sveit af völdum veðurs. Frá áramótum hefur snjóað og sífellt vefið að bætast við snjóinn og em nú snjóþyngsli orðin mikil. Skafið hefur í stóra skafla og hefur snjó- mokstur oft ekki komið að gagni nema samdægurs vegna sífelldrar snjókomu. Erfitt hefur verið með flutning skólabama til og frá skóla. Sem dæmi má nefna að í síðustu viku komust börnin ekki nema einn dag í skóla. Einn bátur rær nú frá Arnarstapa með línu, Bárður SH 81. Formaður og eigandi bátsins er Pétur Péturs- son, Malarrifi, en með honum rær Geir Högnason, Bjargi, Arnarstapa. Síðan á áramótum hafa þeir róið sex róðra og aflinn í sex róðmm er 18 tonn. Þeir fá fólk frá Hellnum og Arnarstapa til að beita. Fiskurinn fer allur á Breiðafjarðarmarkað. Vegna ónógra hafnarskilyrða verða þeir að setja bátinn upp þegar illa lítur út með veður. - Finnbogi. SÉRÚTGÁFA Á SUNNUDEGI PENINGAR og Qármál Qölskyldunnar 7. FEBRÚAR Askorun til stgórnarnefnd- ar Ríkisspítala og ráðherra ALMENNUR kennarafundur námsbrautar í hjúkrunarfræði Háskóla Islands skorar á sljórnarnefnd Ríkisspítala, heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra og fjármálaráðherra að beita sér fyrir því að lausn fáist á þeim vandamálum sem fyrirsjáanleg eru vegna uppsagna hjúkrunar- fræðinga og ljósmæðra á Ríkisspítölum 1. febrúar nk., segir í fréttatil- kynningu frá kennarafundi námsbrautar í hjúkrunarfræðum. 1. febrúar verða 67 hjúkmnar- fræðinemar í klínísku námi á Ríkis- spítölum. Ljóst er að þessir nemend- ur verða fyrir mikilli röskun í námi og að námslokum þeirra seinki komi fyrrgreindar uppsagnir til fram- kvæmda. Útboð ríkisbréfa Meðalávöxtun sam- þykktra tilboða 12,47% MEÐALÁVÖXTUN samþykktra tilboða í sex mánaða ríkisbréf í útboði sem fram fór á miðvikudag var 12,47%, sem svarar til 11,41% for- vaxta. Lægsta ávöxtun tilboða var Með útboðinu á ríkisbréfum skuld- batt ríkissjóður sig til að taka tilboð- um á bilinu 100 til um 600 milljónir króna. Alls bárust 66 gild tilboð í ríkisvíxla að fjárhæð 758 milljónir. 11,97% og hæsta 12,59%. Samþykkt var að taka við tilboðum frá 46 aðilum og var heildarupphæð þeirra 518 milljónir kr. Lánasýsla ríkisins hyggst halda næsta útboð á ríkisbréfum 24. febrúar. Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 7. febrúar nk. fylgir sérútgáfa sem á erindi til þeirra sem vilja hafa fjármálin í lagi og fá sem mest fyrir peningana. Sparnaður í heimilisrekstri, heimilisbókhald.áætlanagerð og endurskipulagning fjármála, möguleikar á að lækka skatta og tryggja sér betri afkomu í framtíðinni eru umfjöllunarefni þessa blaðs. Þeim, seni úhuga liafa á að auglýsa í þessu blaði er benl á að tekið crvið auglýsingapöntununi til kl. 16.00 inánudaginn 1. febrúar. Nánari upplýsingar veiía Petrína Ólafsdóttir og Helga Guðmundsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar í síma 691111/símbréf 691110 JHvrjöiwWíitHÍ* 8 I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.