Morgunblaðið - 22.05.1993, Side 2
2 ‘ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993
Varasöm íþrótt
MIKILVÆGT er að hafa góð-
an búnað við bjargsig.
V estmannaeyjar
Hrapaði í
Hánni við
eggjatöku
Vestmannaeyjum.
TÓLF ára drengur hrapaði
niður 20 metra í Hánni í Vest-
mannaeyjum er band, sem
hann notaði til að síga eftir
eggjum, slitnaði. Drengurinn
var fluttur á Sjúkrahúsið í
Eyjum en siðan til Reykjavík-
ur þar sem hann gekkst und-
ir aðgerð.
Nokkrir drengir voru saman
við eggjatökuna og var einn
þeirra að siga í bergið eftir
eggjum. Bandið sem hann not-
aði slitnaði. Hann hrapaði og
slasaðist illa.
Grímur
Bankaráð og bankastjórn Búnaðarbankans vegna frétta um vopnasölu
Starfsmaðurinn fór óra-
langt út fyrir starfsramma
STJÓRNENDUR Búnaðarbankans segja að það hafi komið
sér í opna skjöldu þegar í ljós kom á haustmánuðum að
sá starfsmaður bankans sem sá um að veita viðskiptamönn-
um bankans þá þjónustu að nýta erlend bankasambönd til
að koma á sambandi milli þeirra og erlendra fyrirtækja,
hafði um tveggja mánaða skeið vorið 1992 tekið upp sam-
skipti við aðila innanlands og erlendis um málefni sem
féllu óralangt utan þess starfsramma sem honum hafði
verið settur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá
bankaráði og bankastjórn Búnaðarbankans sem send var
út eftir fund þessara aðila í gær. Fréttatilkynningin fer
hér á eftir:
„Síðustu daga hefur verið fjallað
opinberlega um málefni sem varða
meintar tilraunir íslenskra aðila til
milligöngu um alþjóðlega vopna-
sölu. í þessari umfjöllun hefur mál-
ið verið tengt nafni Búnaðarbanka
Islands. Búnaðarbankinn hefur
þegar sent frá sér yfirlýsingu af
þessu tilefni en nauðsynlegt er að
bankinn geri viðskiptamönnum sín-
um og öllum almenningi frekari
grein fyrir staðreyndum málsins.
Meginatriði þess sem hér er um
að ræða eru eftirfarandi:
1) Bankinn hefur frá árinu 1985
boðið viðskiptamönnum sínum upp
á þjónustu sem felst í því að nýta
erlend bankasambönd til að koma
á sambandi milli viðskiptamanna
Búnaðarbankans og erlendra fyrir-
tækja. Megintilgangurinn var að
efla útflutning á íslenskum land-
búnaðarafurðum, iðnvarningi og
öðrum íslenskum vörum. Sama gilti
um sölu á hvers konar íslenskri
þjónustu til erlendra aðila, þar á
meðal ferðaþjónustu.
Til þessarar þjónustu var stofnað
að erlendri fyrirmynd en ýmsir er-
iendir bankar höfðu hafíð slíka
starfsemi sem lið í aukinni þjónustu
við viðskiptamenn sína. Lögð skal
áhersla á að hér er ekki um það
að ræða að bankinn hafi verið að
stofna til samkeppni um viðskipti
við verslunar- og þjónustufyrirtæki.
Þvert á móti var Búnaðarbankinn
að greiða fýrir auknum umsvifum
þessará fyrirtækja með því að koma
þeim í samband við erlenda aðila,
ekki síst með því að nýta erlend
bankasambönd sín. Bankinn tók
ekki gjald fyrir þessa nýju þjónustu.
2) I fréttum hefur komið fram
að bankaeftirlitið og viðskiptaráðu-
neytið séu þeirrar skoðunar að með
framangreindri þjónustu hafi Bún-
aðarbankinn farið út fyrir starfs-
heimildir sínar samkvæmt lögum
um viðskiptabanka. Búnaðarbank-
inn hefur gert bankaeftirlitinu grein
fyrir að hann sé á annarri skoðun
í þessu efni. Bankinn hefur skýrar
röksemdir fyrir þeirri afstöðu og
við túlkun á viðkomandi laga-
ákvæði skiptir það máli að mati
Búnaðarbankans að bankar víða um
heim hafa árum saman veitt hlið-
stæða þjónustu og hér um ræðir.
Stjómendur Búnaðarbankans
greinir ekki á við viðskiptaráðu-
neyti og bankaeftirlit um það að í
það skipti sem gerð er grein fyrir
hér á eftir fór þessi starfsemi langt
út fyrir þann ramma sem henni
hafði verið markaður.
3) Þegar framangreind þjónusta
hófst gerði bankinn samning við
mann sem hafði reynslu í erlendum
samskiptum um að taka að sér þessi
störf. Þar sem hér var um tilraun
að ræða gilti starfssamningurinn
aðeins til eins árs í senn en ástæða
þótti til að endumýja hann nokkmm
sinnum.
Það kom stjórnendum bankans í
opna skjöldu þegar í ljós kom á
haustmánuðum 1992 að starfsmað-
urinn hafði um tveggja mánaða
skeið vorið 1992 tekið upp sam-
skipti við aðila innanlands og er-
lendis um málefni sem féllu óra-
langt utan þess starfsramma sem
honum hafði verið settur. Leggja
ber áherslu á að samband starfs-
mannsins við þessa aðila leiddi aldr-
ei til neinna viðskipta. Þessi alvar-
legu mistök u.'ðu til þess að þessi
maður hefur látið af störfum fyrir
bankann.
Stjómendum Búnaðarbankans
þykir mjög miður að það starf sem
hafíð var í góðri trú til eflingar ís-
lenskum útflutningsatvinnuvegum
skyldi þurfa að enda á þennan veg.“
Sjá bls. 29: „Liður í tilraun-
um...“
Forseti Landssambands iðnaðarmanna á Iðnþingi
Markmiðið að skapa
4-5.000 störf í iðnaði
HARALDUR Sumarliðason, forseti Landssambands iðnað-
armanna, benti á það í ræðu sinni á Iðnþingi í gær að á
hveiju ári væru fluttar hingað til lands iðnaðarvörur sem
hægt væri að framleiða hér á landi, fyrir u.þ.b. 20 millj-
arða króna. Ekki væri óraunhæft markmið að færa nægi-
lega mikinn hluta þessarar framleiðslu inn í landið til að
skapa 4-5 þúsund manns atvinnu.
Haraldur nefndi nokkur dæmi
um hvernig hægt væri að ráðast
í atvinnuskapandi aðgerðir. í því
sambandi benti hann á að á sl.
tveimur árum hefðu verið flutt inn
niðurgreidd skip og skipaviðgerð-
arverkefni fyrir um 7 milljarða
króna. „Hér er um að ræða þre-
falda ársveltu allra skipasmíða-
stöðvanna í landinu. Það myndi
ekki kosta ríkissjóð eina krónu
þótt óeðlilegum rekstrargrundvelli
íslenskra skipasmíðastöðva yrði
breytt þannig að þær gætu keppt
á réttlætisgrundvelli og náð veru-
legum hluta þessara verkefna.
Hugsanlega gæti hér íleiðinni orð-
ið um tekjur að ræða fyrir ríkis-
sjóð.“
Lán til nýbygginga hækki
Hann benti einnig á möguleika
í byggingariðnaði. „Það hefur ver-
ið rætt um það að húsbréfaútgáfa
sé óhófleg og þessi lán fari meira
til neyslu en góðu hófí gegnir. Ef
rétt er, ætli það sé þá ekki vegna
þess að of mikið er lánað vegna
viðskipta með notaðar íbúðir? Hér
mætti slá tvær flugur í einu höggi
og lækka útlánshlutfallið til not-
aðra íbúða en hækka til nýbygg-
inga og auka þar með atvinnu.
Hins vegar mætti e.t.v. lækka láns-
hlutfallið á notuðu íbúðunum
minna ef þær þarfnast viðgerða
eða endurbóta, enda yrðu menn
að sýna reikninga fyrir slíku.“
Gagnrýni á skattareglur
Haraldur gagnrýndi í ræðu sinni
reglur um frádrátt frá tekjuskatts-
stofni vegna kaupa einstaklinga á
hlutabréfum. Hann sagði algjör-
lega ótímabært að leggja þennan
frádrátt niður. Þessar reglur hefðu
einvörðungu gilt um kaup á hluta-
bréfum í almenningshlutafélögum
og því í reynd fyrst og fremst kom-
ið stærstu og stöndugustu fyrir-
tækjum landsins til góða. Hér
væri því um að ræða óeðlilega
mismunun í skattmeðferð
áhættufjár eftir stærð og rekstrar-
formi fýrirtækja, smærri atvinnu-
rekstri í óhag. Þá benti hann sömu-
leiðis á misræmi á tekjuskattshlut-
falli félaga og þess atvinnurekstrar
sem menn stunduðu í eigin nafni
og með ótakmarkaðri ábyrgð.
Þau keyptu álfa SÁÁ
GRO Harlem Brundtland og Jón Baldvin Hannibalsson keyptu
álfa í gær af sölumönnum SÁÁ.
Alfasalan byijar vel
ÁRLEG fjáröflun SÁÁ, álfasalan, hófst í gær og hlaut góð-
ar viðtökur almennings. Gro Harlem Brundtland forsætis-
ráðherra Noregs, keypti álf þegar hún kom til að hitta ís-
lenska alþýðuflokksmenn í Reykjavík í gær.
Ýmis fyrirtæki og stofnanir
keyptu í gær álfa í tuga- og
hundraðatali handa starfsfólki
og viðskiptavinum. Forstjóri eins
fyrirtækisins keypti einn álf og
bætti við 100 þúsund krónum til
styrktar SÁÁ. Þá afhenti Rafiðn-
aðarsamband íslands 500 þús-
und krónur til samtakanna á
ársþingi sínu í gær.
Álfasala SÁA heldur áfram í
dag og á sunnudag. Hagnaðinum
af álfasölunni verður að þessu
sinni varið til að efla ráðgjöf og
meðferð fyrir aðstandendur alkó-
hólista í fjölskyldudeild SÁÁ.
í dag
Fjölmiölakönnun
Samkvæmt Félagsvísindastofnun
lesa 64% svarenda Morgunblaðið
sérhvem útgáfudag 4
Tímarítið Economist
Hvetur í forystugrein til að kannað
verði hvort lögleiða eigi eiturlyfja-
notkun 26
Skógrækt
Skeljungur leggur Skógrækt ríkis-
ins lið með 8-10 milljónum kr. 14
Leiöarí
Kjarasamningar 30
Menning/Listir
► Ljósmyndasýning Mary Ellen
Mark á Kjarvalsstöðum - Safna-
skoðun í Evrópu - Tónlist á lista-
hátíð Hafnarfírði - Trompetleik-
arinn Freddie Hubbard
T-EgHflg
M O n CUN0LAD8 I N 8
Lesbók
► Jóhanna Boga á forsíðu - Við-
tal við Grigol Matsjavariani frá
Georgíu - Laufey Helgadóttir um
Matisse í París - Laugarnesið fyrr
og nú - White Star á Laugavegi.
Vatnsflóðið í Vestfj arðagöngunum
Sænskir sérfræðingar
reyna að þétta bergið
ísafirði.
VATNSFLOÐIÐ í Súgandafjarðarhluta Vestfjarðaganga hefur
ekkert minnkað. Fimm sérfræðingar frá Svíþjóð hafa undan-
farna daga gert tilraunir með ýmis efni sem þétt gætu berg-
ið. Enn er ekki séð fyrir endann á þessu máli, en að sögn
Björns Harðarsonar verkfræðings hjá Vegagerðinni er vonast
til að einhver árangur verði farinn að sjást um miðja næstu viku.
Boraðar hafa verið allt að 20 göngin nemur um 130 lítrum á sek-
úndu eða tæp 500 tonn á klukku-
stund. Framkvæmdir ganga vel í
hinum göngunum og byijað er að
keyra efninu á nýjan veg að Hauga-
nesi í botni Skutulsfjarðar yfír að
flugvelli.
Úlfar
metra langar holur í margar áttir
og þéttiefnum sprautað inn í þær
á móti vatnsþrýstingi sem nemur 6
kflóum á fersentimetra, sem jafn-
gildir þeim þrýstingi sem er á 60
metra dýpi í vatni eða sjó. Vatns-
magnið sem streymir þarna inn í
I
\
\
í
I
I
I
I
I
I
i
I
i