Morgunblaðið - 22.05.1993, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993
Öflug milliríkjaverslun er
lykill að bættum lífskjörum
eftir Birgi Rafn
Jónsson
Félag íslenskra stórkaupmanna er
65 ára á þessu ári. í fundargerðum
félagsins segir frá því að hinn 7.
febrúar 1927 hafi 15 stórsöluverslan-
ir ákveðið að stofna með sér félag
sem síðan leiddi til stofnunar Félags
íslenskra stórkaupmanna mánudag-
inn 21. maí 1928. í undirbúnings-
nefnd og fyrstu stjórn félagsins áttu
síðan sæti þeir Bjöm Ólafsson, Hall-
grímur Benediktsson, Magnús Th.
Blöndal, Ingimar Brynjólfsson, John
Fenger, Kristján Skagfjörð og Arent
Claessen sem var kjörinn formaður.
Hér á landi var stofnun Félags
íslenskra stórkaupmanna liður í
þeirri þróun atvinnulífsins til aukins
ftjálsræðis sem hófst með fríhöndl-
uninni, þegar verslun var heimiluð
við alla þegna Danakonungs, og svo
fullu verslunarfrelsi 1855. Frá upp-
hafi var aðalviðfangsefnið að andæfa
hvers konar höftum og hindrunum í
verslun milli landa.
Verslunin lagði grunninn
Danir vom snemma meðvitaðir um
gildi milliríkjaverslunar og þá stað-
reynd að jákvæður viðskiptajöfnuður
við önnur lönd eykur hraðar auð
þjóða og einstaklinga en innanríkis-
verslun. Til að treysta greinina enn
frekari í sessi, stofnaði Kristján VI.
félag danskra stórkaupmanna með
lögum 1742. Þeir sem stunduðu milli-
ríkjaverslun voru skyldaðir til aðildar
og féll sú aðildarskylda ekki niður
fyrr en 1970. Verslunarauðurinn,
sem safnaðist í Danmörku vegna
nýlenduverslunar og - ekki síður -
með stóraukinni milliríkjaverslun í
kjölfar iðnbyltingarinnar í Englandi,
varð síðan undirstaða danskrar iðn-
byltingar, sem átti sér stað á árunum
1870 og fram til aldamótanna. Þá
vom það danskir stórkaupmenn sem
stofnuðu fyrirtæki eins og Tuborg,
Dansukker, Dansk Smör, Bing og
Gröndahl o.fl. Hér á landi voru það
einnig oftast stórkaupmenn sem
settu á stofn ýmis grónustu iðnfyr-
irtæki þjóðarinnar, svo sem Vífilfell,
Nóa-Hrein og Síríus, Kaffibrennslu
Kaaber, Kexverksmiðjuna Frón og
fleiri.
Útflytjendur
að uppruna
Þegar íslenskir kaupsýslumenn
hófu milliríkjaviðskipti, vom þeir
kallaðir stórkaupmenn til aðgrein-
ingar frá þeim kaupmönnum sem
stunduðu smásöludreifingu. Ekki var
auðæfum eða fjárfestingarsjóðum
fyrir að fara á þeim tíma. Því hófu
stórkaupmenn að flytja út afurðir
íslenskra bænda og útgerðarmanna
og notuðu andvirðið til kaupa á inn-
fluttum vörum. íslenskir stórkaup-
menn em þannig að uppmna útflytj-
endur. Vegna ýmiss konar hafta og
einokunar á útflutningsvömm þjóð-
arinnar hafa hins vegar kraftar
þeirra í ríkari mæli beinst að inn-
flutningi. Félagar í Félagi íslenskra
stórkaupmanna standa þó í dag fyrir
20-25% af útflutningi sjávarafurða
landsmanna. í nýlegri könnun meðal
félagsmanna kemur fram að 15%
þeirra sem oft era skilgreindir sem
innflytjendur, flytja einnig út eða
selja beint milli landa ýmsar vörar,
t.d. dún og áfengi. Til landsins flytja
svo íslenskir stórkaupmenn allt frá
toguram og tölvum til lyíja og mat-
vara eða selja beint milli landa t.d.
plastkassa og timbur.
Efnahagslíf okkar og velmegun
byggist á viðskiptum við aðrar þjóð-
ir. Við seljum meira en %
hluta af framleiðslu okkar til annarra
landa, enda em íslendingar meðal
10 stærstu útflytjenda heims miðað
við íbúafjölda. Við kaupum í staðinn
þær nauðsynjar, tækni og þekkingu
sem leggja undirstöðu að þeim lífs-
kjömm sem við búm við í dag.
Útverðir íslenskrar
verslunarstéttar
Félag íslenskra stórkaupmanna er
eina hagsmunafélag atvinnurekenda
hér á landi þar sem meginviðfangs-
efni aðildarfélaganna er milliríkja-
verslun. Margir hafa á þessu skilning
og má í því sambandi minnast orða
Geirs Hallgrímssonar forsætisráð-
herra í ávarpi til félagsins á 50 ára-
afmæli þess er hann sagði: „Stór-
kaupmenn eru útverðir íslenskrar
verslunarstéttar og oft ekki síður
erindrekar þjóðar sinnar á erlendum
vettvangi en stjórnskipaðir fulltrú-
ar.“
Fyrstu 25 árin í sögu félagsins,
frá 1928 til 1953, voru tími mikilla
breytinga í umhverfi verslunar.
Kreppan mikla gekk yfir með miklu
atvinnuleysi og höftum í inn- og út-
flutningi, heimsstytjöldin síðari með
auknum viðskiptum við Norður-
Ameríku, flutningabylting eftir-
stríðsáranna í lofti, á sjó og á landi,
og fyrstu sjálfsafgreiðsluverslanimar
vora opnaðar hérlendis.
Spennandi framtíð
Næstu 25 ár, fram til 2018, eru
spennandi og ljóst að stórkostlegar
breytingar eru í vændum. Framtíð-
arsýn margra er að á þessum tíma
verði Evrópa orðin einn markaður
án allra hindrana með 20-25 aðild-
arlöndum. Þar verði einn gjaldmiðill,
seðiar og mynt heyri sögunni til og
greiðslukortin tekin við. Það verður
jafneinfalt að selja vöm til Mílanó
og Mosfellsbæjar. Þetta mun tvö-
falda verslun milli landa, enda hug-
takið heimamarkaður þá búið að fá
víðtækari merkingu. í heimsverslun-
inni mun samkeppnin aukast, þijú
markaðssvæði verða ráðandi - Evr-
ópa, Japan og Norður-Ameríka og
hart barist um efnahagslega og
tæknilega forystu.
Sameiginlegir hagsmunir
Hvar ísland stendur í þessari
mynd ræðst að miklu leyti af því
umhverfi sem versluninni verður
búið á næstu ámm og möguleikum
til að laga sig að breyttum aðstæðum
og afla aukinnar reynslu í alþjóðavið-
skiptum fyrir upprennandi kynslóð.
Sameiginlegir hagsmunir allra fé-
lagsmanna í Félagi íslenskra stór-
kaupmanna em að hámarka þau
verðmæti sem myndast í viðskiptum
við aðrar þjóðir. Um leið eru það
sameiginlegir hagsmunir þjóðarinnar
allrar.
Félag stórkaupmaijna er félag lí-
tilla og meðalstórra fyrirtækja. Kost-
ir smærri fyrirtækja fyrir viðskiptalíf
þjóðarinnar felast m.a. í dreifðri
áhættu á viðskiptalönd, vöru- og
gjaldeyristegundir, uppsprettu hug-
Birgir Rafn Jónsson
„Félag- íslenskra stór-
kaupmanna er eina
hagsmunafélag at-
vinnurekenda hér á
landi þar sem meginvið-
fangsefni aðildarfélag-
anna er milliríkjaversl-
un.“
mynda til nýrra útflutningstækifæra
og innflutnings nýrrar tækni. Það
er sannfæring mín að rétt eins og
stofnendur FIS gegndu lykilhlutverki
í að leggja gmnninn að þeim góðu
lífskjöram sem íslendingar sam-
tímans þekkja, þá sé öflug ísiensk
milliríkjaverslun ein meginundir-
staða þess að hægt verði að yfirstíga
þá erfiðleika og þær hindranir sem
við búum við í dag. Þá mun eflast
hér blómleg byggð og fjölþætt mann-
líf á komandi árum.
Höfundur er formaður Félags
íslenskra stórkaupmanna.
Brúardalir
Fagridalur, Grágæsadalur
í Grágæsadal. Ljósm.: Bjöm Ingvarsson
eftir Björn
Ingvarsson
Það er sumar, við emm stödd
á móts við Álftadalsdrög á Brúa-
röræfum og ferðinni er heitið inn
í Grágæsadal. Framundan til suð-
urs er röð lágra ávalra hnjúka úr
móbergi sem liggja í sömu stefnu
og aðrar hnjúkaraðir hér, þ.e. í
suðvestur norðaustur, þetta er
Hatthryggur. Fagradalsíjall blasir
við í suðvestri mikið um sig og
gróðurvana og samanstendur af
mörgum hnjúkum og bungum.
Hæst ber það 1022 metra yfir sjó.
Slóðin stefnir í há suður og við
nálgumst Fagradalinn smátt og
smátt, en hann liggur norðaustan
undir Fagradalsfjalli vel gróinn
hið neðra. Lónhnjúkur lokar daln-
um til norðvesturs og rennur
Kreppa austur um þröngt skarð
milli Fagradalsfjalls og Lónhnjúks
og sveigir inn í mynni Fagradals
áður en hún tekur strikið til norð-
urs og hverfur sjónum okkar.
Kreppa er mikið vatnsfall og hleð-
ur hún stöðugt aur undir sig, þetta
veldur því að Fagradalsáin sem í
hana rennur er lygn og grann-
vatnsstaðan í dalnum er há. Það
er þessari vætu að þakka og skjóT-
góðu umhverfi, að í Fagradal er
einstaklega gróskumikil gróður-
vin sem ekki er { neinu samræmi
við hæð dalsins yfir sjó. Hér halda
til flokkar heiðagæsa er líða tekur
á sumar einnig era hé? oft álftir
og endur. Fagridalur sveigir til
suðurs austan við Fagradalsfjall
og þar hækkar hann og verður
þurrari og gróðurminni. Við skul-
um staldra svolítið við þar sem
slóðin liggur einna næst dalnum
og ganga niður í dalinn. Hér hef-
ur leysingavatn grafið talsvert gil
í móbergið í austurhlíð dalsins og
er þar vindsorfinn sandsteinn í
ýmsum kynjamyndum. Innan við
þetta gildrag er lágur hóll vaxinn
kyrkingslegum þurrlendisgróðri,
uppi á há hólnum eru leifar af
leitarmannaskýli sem Fjalla Bensi
hefur eflaust gist í á sinum tíma.
Norðvestan í hólnum er tófugreni
grafið í sendinn jarðveginn og
sjást margir munnar, sennilega
hafa hér oft verið gæsir á matseðl-
inum. Það er freistandi að ganga
niður með ánni þar sem hún lið-
ast lygn og tær út dalinn -en við
höidum áfram suður á vit öræf-
anna. Leiðin liggur um skarð í
Hatthrygg sem Markúsarskarð
heitir þaðan er gott útsýni yfir
Fagradalinn.
Skammt sunnan skarðsins eru
vegamót og til austurs liggur
Brúardalaleið í átt að Sauðárfossi
en við ökum áfram til suðurs um
gróðursnauða sanda þar til við
komum að skilti sem vísar á Brú-
aijökul. Héðan era 8 km að jöklin-
um en við tökum slóðina sem hér
liggur til vesturs og stefnum á
Grágæsadal.
Grágæsadalur
Eftir um þriggja km akstur frá
vegamótunum förum við yfir
Fagradalsdrögin og brátt opnast
dalverpi til suðvesturs með all
stóm jökullituðu lóni í, þetta er
Grágæsadalur. Hann liggur suð-
austan undir Fagradalsfjaih en
austan að dalnum liggur Grá-
gæsahryggur og syðst á honum
er Grágæsahnjúkur. Fyrir mynni
dalsins era jökulaurar Kverkár og
þar suður af Kverkárnes og Kver-
kárrani. í litlu grónu nesi norð-
vestan vatnsins stendur snotur
fjallaskáli sem er í eigu nokkurra
ferðamanna á Egilsstöðum. Héð-
an er fagurt útsýni til Kverkfjalla
sem blasa við í suðvestri.
Á vatninu em oft gæsir og
aðrir vatnafuglar en hér er einnig
bleikja, austan vatnsins gegnt
skálanum er gil grafið í sandstein
og smástuðlað basalt. Hægt er
að ganga uppeftir gilinu og er það
ómaksins vert. Eins og fyrr segir
rennur Kverká til norðvesturs fyr-
ir mynni dalsins hún, er viðsjár-
verð með lúmskum sandbleytum
og mörgum síbreytilegum kvíslum
og í hana koma tíðum jökulhlaup
sem flennast þá út í vatnið í Grá-
gæsadal og viðhalda gmgginu í
því. Kverká sameinast Kreppu
suður af Fagradalsfjalli en rétt
ofan ármótanna er þokkalegt vað
á Kreppu sem ókunnugir ættu
samt ekki að reyna við. Hér er
loftið tært á haustdegi og kyrrðin
aðeins rofin við og við af köllum
lómsins á köldu vatninu. Við höld-
um til baka sömu leið að vegamót-
unum við Markúsarskarð en í
næsta áfanga föram við Brúard-
alaleið austur að Sauðárfossi og
síðan út Skógarháls og komum
meðal annars í Laugarvalladal.
NÆSTA LAUGARDAG:
Sauðárdalur, Skógarháls.
Höfundur er áhugamaður um
útivist og ferðaíög.