Morgunblaðið - 22.05.1993, Blaðsíða 20
20____________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993_
Fæðingarslys gera oft
ekki boð á undan sér
eftirAuðólf
Gunnarsson
Að undanfömu hefur mikil um-
ræða farið fram um málefni fæð-
andi kvenna á íslandi. í þeirri um-
ræðu hefur verið látið að því liggja,
að konum kunni að vera úthýst af
kvennadeild Landspítalans, og ef
þær komist þar inn, megi þær eiga
von á því að fæða á göngum án
nægjanlegs eftirlits. Þannig sé
hættuminni og heppilegri kostur að
fæða í heimahúsi eða á öðrum stofn-
unum, þar sem nútíma læknisþjón-
usta og „hátæknibúnaður“ sé ekki
fyrir hendi til að trufla og jafnvel
auka áhættu fæðingarinnar. Þetta
væri betur skiljanlegt, ef vanþekk-
ingu þeirra, sem um fjalla, væri
fyrir að fara, en svo er þó ekki.
Þeir íslendingar, sem komnir eru
yfir miðjan aldur, muna flestir eftir
heimafæðingum og mér er enn í
fersku minni sá beygur, sem bjó í
hugum fólks um, að eitthvað kynni
að fara úrskeiðis varðandi móður
eða bam í fæðingu. Sá ótti var
ekki ástæðulaus, því um 1950 lét-
ust 2-3 konur af hverjum 1000,
sem fæddu á ísiandi, og burðar-
málsdauði var hár. Ég minnist úr
bemsku vetrarkvölds, þegar hér-
aðslæknirinn var sóttur til konu í
bamsnauð á næsta bæ, þar sem
ljósmóðir stóð ráðþrota yfir konu,
sem ekki gat fætt. Læknirinn dró
út bamið með töngum við erfið
skilyrði og maður getur ímyndað
sér þær kvalir og þann sársauka,
sem konan hefur mátt þola. Barnið
lifði, en er bæklað frá fæðingu.
Auðvitað vom aðstæður aðrar í
heimahúsum uppi í sveit í þá daga
en nú á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Það breytir þó ekki þeirri stað-
reynd, að erfið fæðing verður oft
ekki séð fyrir. Því til staðfestingar
vitna ég til þess, að á tveimur und-
anfömum vöktum mínum á kvenna-
deild Landspítalans strandaði fæð-
ing vegna þess að stóð á öxlum
bamsins án þess að fyrir væri séð,
að til vandræða myndi koma í fæð-
ingunni. í slíkum tilfellum eru góð
ráð dýr og stuttur tími til athafna.
Það sama gildir, þegar naflastreng-
ur fellur fram, eða fylgja losnar.
Þá skipta nokkrar mínútur og góð
aðstaða sköpum um það, hvort
bamið næst út nógu fljótt, svo unnt
sé að bjarga því frá skaða eða jafn-
vel dauða. Sjá má fyrir vissa
áhættuþætti í mæðraeftirliti og
minnka áhættu í fæðingu með því
að vísa þeim konum, sem til áhættu-
hóps teljast, á svokallaða „hátækni-
spítala". Stundum er vísað til þess,
að burðarmálsdauði sé ekki hærri
á stofnunum, þar sem nútíma
tæknibúnaði er ekki beitt en á há-
tæknispítölum. Sá samanburður
sýnir þó aðeins, að ekki er alltaf
unnt að sjá hættuna fyrir, þar sem
áfram verða fæðingarslys á slíkum
stofnunum, enda þótt þeim konum,
sem teljast til áhættuhópa sé vísað
á hátæknisjúkrahús.
Nútímatækni, einkum hjartslátt-
ar- og samdráttarsíritar auðvelda
nákvæmt eftirlit með móður og
barni í fæðingu. Tækin sjálf gera
þó ekki annað en afla upplýsinga.
Túlkun þeirra og réttar ákvarðanir
eru óhjákvæmilega háðar þekkingu
og reynslu þeirra, sem fylgjast með
fæðingunni. Ef hætta steðjar að,
er nauðsynlegt að reynt starfsfólk
og aðstaða sé fyrir hendi svo unnt
sé að forða slysi. Ef ekki er brugð-
ist rétt við hættumerkjum í tíma,
getur verið um seinan að grípa inn
í, þegar í óefni er komið. Frá því
að menntaðir læknar og ljósmæður
hófu störf á íslandi með tilkomu
fyrsta landlæknisins, Bjarna Páls-
sonar, og ljósmæðra, sem hann
kenndi, hafa fæðingar hérlendis
verið í sameiginlegri forsjá þessara
tveggja stétta í góðri samvinnu.
Ljósmæður hafa vakað yfir hinni
fæðandi konu og kallað til lækni,
þegar hætta steðjaði að. I því sam-
bandi gildir það sama og um sam-
vinnu lækna og hjúkrunarfræðinga.
Þessi samvinna verður að byggjast
á gagnkvæmu trausti. Læknir, sem
ábyrgð ber á fæðingu, hefur rétt
til þess að fylgjast með konunni frá
upphafi fæðingarinnar og fá að vita
um allan afbrigðileika og hættu-
merki, sem upp koma og leggja dóm
á það, hvemig við skuli brugðist.
Enginn læknir á að þurfa að standa
frammi fyrir þeim vanda að vera
tilkallaður, þegar í óefni er komið.
Mikið er rætt um rétt kvenna til
að velja sér fæðingarstað og stell-
ingar. Ég veit ekki til þess, að í
nútímafæðingaraðstoð séu neinar
hömlur á stellingar kvenna í fæð-
ingu svo framarlega, að það bijóti
ekki í bága við nauðsynlega aðstoð,
t.d. við tangar- eða sogklukku-
ádrátt. Ekki er ágreiningur um að
æskilegt væri, að konur ættu val-
möguleika um fæðingarstað á
Reykjavíkursvæðinu, t.d. á Fæðing-
arheimili Reykjavíkur, svo framar-
lega sem þar sé full mönnun bæði
ljósmæðra og lækna. Ákvörðunar-
rétt kvenna til að fæða barn við
aðstæður, sem útiloka nauðsynlega
aðstoð, ef út af bregður, tel ég hins
vegar mjög umdeilanlegan. Að
mínu áliti á öryggi hinnar fæðandi
móður og hins ófædda bams að
sitja í fyrirrúmi. Auðvitað má deila
um, hve mikils öryggis á að krefj-
ast og fæðingarslys verða jafnvel á
hinum svokölluðu hátæknisjúkra-
húsum. Það breytir þó ekki þeirri
staðreynd, að með því að flytja
fæðingar úr heimahúsum og inn á
sérhæfðar sjúkrastofnanir og með
bættu mæðraeftirliti og umönnun,
hefur mæðradauði vegna með-
göngu og fæðinga ekki komið fyrir
á síðustu árum á íslandi og nýbura-
dauði er með því lægsta, sem þekk-
ist í heiminum. Að sjálfsögðu er
lækkun burðarmáls- og mæðra-
dauða ekki aðeins árangur aukinnar
tæknivæðingar. Nútímatækni og
góð samvinna sérhæfðs starfsfólks,
Auðólfur Gunnarsson
„Það hlýtur að vera
aðalatriði í huga allra
verðandi foreldra, að
þeir eignist heilbrigt
barn og móðurinni
heilsist vel eftir fæðing-
una.“
þ.e. ljósmæðra, fæðingarlækna og
bamalækna, sem vinna við bestu
skilyrði eru þó forsenda þess, að
ísland verði áfram í tölu þeirra
þjóða, sem náð hafa bestum árangri
á þessu sviði. Ég held, að það sé
ótvíræður réttur hvers ófædds
barns, að fyllsta öryggis sé gætt
við ferð þess inn í þennan heim, sem
talinn er ein sú áhættusamasta, sem
einstaklingur tekst á hendur á lífs-
leiðinni. Það hlýtur að vera aðalat-
riði í huga allra verðandi foreldra,
að þeir eignist heilbrigt bam og
móðurinni heilsist vel eftir fæðing-
una.
í þessu sambandi leyfi ég mér
að vísa á bug þeirri fullyrðingu 4ra
ljósmæðra í nýlegri blaðagrein, að
umhyggja lækna fyrir velferð
ófæddra bama komi ekki heim við
viðhorf þeirra til fóstureyðinga og
valfrelsis kvenna, hvað það varðar.
Hér er um tvennskonar óskyldar
aðstæður að ræða. Ég starfaði við
líffæraflutninga á árdögum þeirrar
sérgreinar í Bandaríkjunum, þegar
læknar urðu að gera upp við sig,
hvenær líf byijaði og endaði. Þeir
komust að þeirri niðurstöðu í sam-
ráði við veraldlega og andlega
fræðimenn, að líf einstaklingsins
sé háð starfhæfu miðtaugakerfi, og
án þess geti ekki verið um neitt
andlegt líf að ræða. Þetta viðhorf
hefur nú verið viðurkennt hérlendis.
Eins og blóm vex upp af fræi, verð-
ur bam til úr eggfrumu og sæðis-
fmmu. Þau renna saman og mynda
frumumassa, sem síðan breytist í
fóstur og það þroskast áfram til
þess að verða bam, ef eðli þess og
aðstæður leyfa. Þótt fræið sé lif-
andi í líffræðilegu tilliti, er það
ekki blóm, heldur vísir að slíku.
Eins em frumurnar, sem em forver-
ar fósturs og ólífvænlegt fóstur líf-
fræðilega lifandi, en án þroskaðs
miðtaugakerfis og ákveðins þroska
annarra líffæra, getur ekki orðið
um sjálfstætt líf að ræða á fyrstu
skeiðum meðgöngunnar. Að eyða
fóstri er þannig að koma í veg fyr-
ir að líf kvikni, en aðstoð við fæð-
andi konu er hjálp til þess, að heil-
brigt barn megi fæðast og lifa eðli-
legu lífi í þessum heimi. Þeir sem
oft hafa orðið vitni að því að líf
kvikni við fyrsta andkaf barns og
að líf slokkni við dauða, þótt ein-
stök líffæri kunni að starfa áfram,
blandast vart hugur um, að andlegt
líf er annað og æðra en starfsemi
einstakra fmmna eða líffæra. Því
ber öllum, sem að fæðingum standa,
þ.e. foreldmm, stjórnvöldum og
þeim sem annast fæðingarhjálp, að
gera allt, sem unnt er til þess að
heilbrigð sál megi verða til í heil-
brigðum líkama við fæðingu sér-
hvers barns á íslandi.
Góð samvinna vel menntaðs fag-
fólks, þ.e. ljósmæðra, fæðingar- og
bamalækna, sem vinna við góð skil-
yrði, er megin forsenda þess, að svo
megi verða.
Höfundur er læknir.
YKKAR HEIMUR - OKKAR VERÐ! - I>ú getur sparað þér veðsamanburö!
SÝNINGIN ER OPIN DAGANA 20. - 31. MAÍ
OPNUWARTÍMAR: VIRKA DAGA KL. 13-88, LAUGARDAGA 11-17, SUNNUDAGA 13-17.
OESBSU O
Tjaldhýsi m/f ortjaldi
Kynningarverö ....299.900,- stgr.
Rétt verö..345.000,- stgr.
Án fortjjalds .278.000,-stgr.
0OSS3 O
Coleman Roanoke f ellihýsi
Kynningarverö frá.. 398.000,- stgr
Rétt verð ..490.000,- stgr.
PALOMINO
T-20,20 feta hjólliýsi m/öllu
Kynningarverö....... 980.000,-stgr.
Rétt verö..........1.299.000,-stgr.
PALOMINO
B-500, 7,4 feta pallhýsi
Verö frá 420.000,-