Morgunblaðið - 22.05.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993
25
Hæstiréttur staðfesti dóm yfír Steini Armanni Stefánssyni
Rannsóknaraðferðir
innan eðlilegra marka
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur um sjö ára fangelsi yfir Steini Ármanni Stefánssyni,
26 ára gömlum manni. Hann var handtekinn aðfaranótt
18. ágúst sl., eftir að hafa ekið á lögreglubíl sem reyndi
að hefta flótta hans undan lögreglu með 1,201 kg af kóka-
íni, sem hann hafði flutt inn til landsins frá Kólumbíu. Við
áreksturinn á Vesturlandsvegi slösuðust tveir lögreglu-
menn, annar lífshættulega og varanlega. Hæstiréttur telur
að rannsóknaraðferðir Björns Halldórssonar, lögreglufull-
trúa fíkniefnadeildar, sem egndi meðal annars tálbeitu til
að lokka fram fíkniefnið sem Steinn Ármann hafði flutt
til landsins, hafi verið innan þeirra marka sem rannsóknar-
aðferðir lögreglu við svo sérstakar aðstæður verða að vera.
Hæstiréttur telur að Birni hafi
verið heimilt að koma hlerunarbún-
aði fyrir í bíl þeim þar sem viðskipti
með efnið áttu að fara fram. í Hér-
aðsdómi hafði ekki verið tekin af-
staða til rannsóknaraðferðanna.
Ásetningur um sölu
í dómi Hæstaréttar er Steinn
Ármann sakfelldur fyrir að hafa flutt
inn fíkniefnin þann 4. febrúar 1992.
Samkvæmt framburði Steins hafði
hann upphaflega verið fenginn til
þess af mönnum í Kólumbíu að flytja
efnið til Kaupmannahafnar en þar
fór hann á mis við viðtakanda. Því
er ekki slegið föstu að fyrir ákærða
hafi vakað við komu til Islands þann
4. febrúar á síðasta ári að selja efnin
hér á landi en Hæstiréttur telur ljóst
að eftir símtal við Kólumbíumann
nokkrum dögum eftir heimkomuna
hafi verið vakinn hjá ákærða
ásetningur um að selja efnið.
Þá er hann sakfelldur fyrir að
raska almennu umferðaröryggi með
flóttaakstri sínum undan lögreglu
og fyrir að stofna lífi fólks í hættu
á ófyrirleitinn hátt og fyrir ýmis
umferðarlagabrot. Einnig er hann
sakfelldur fyrir stórfelldar líkams-
meiðingar af gáleysi vegna afleið-
inga árekstursins, sem hann olli, og
fyrir stórfellda líkamsárás fyrir að
hafa ráðist með skærum að lögreglu-
mönnum sem hugðust handtaka
hann eftir áreksturinn.
Skorti á samráð
Ólíkt Héraðsdómi fjallar Hæsti-
réttur um atriði þau sem varða
rannsóknaraðferðir fíkniefnalög-
reglu í málinu fram að handtöku
ákærða, en eftir handtökuna flutti
ríkissaksóknari forræði rannsókn-
arinnar frá fíkniefnalögreglu og til
RLR. Hæstiréttur finnur að því einu
við rannsóknaraðferðir Björns Hall-
dórssonar að á það hafi skort að
hann hafi haft nægilegt samráð við
yfirmenn sína hjá lögreglunni í
Reykjavík. „Er slíks jafnan þörf til
að öruggt eftirlit sé með þessari
rannsóknaraðferð og þess var sér-
stök þörf í þessu máli, þar sem
[uppljóstrari lögreglunnar] hafði
verið ákærður sem fyrr greinir,"
segir í dómi Hæstaréttar, eftir að
kynnt hefur verið sú niðurstaða
réttarins að rannsóknaraðferðir
lögreglunnar hafí verið innan eðli-
legra marka en slíkar rannsóknir
verði að meta eftir almennum rétta-
röryggisreglum þar sem ekki séu til
um þær lagareglur hér á landi. Vísað
er til þess að uppljóstrarinn átti þá
yfír höfði sér dóm fyrir fíkni-
nefnabrot. Síðar í dóminum segir
að þó að skort hafi á þetta samráð
Björns við yfirmenn sína leiði það
hvorki til þess að Steini Ármanni
verði dæmd sýkna né refsilækkun.
Ekki lokkaður til brots
í dómi Hæstaréttar segir einnig
um þátt uppljóstrarans að þegar að
því kom að hann fékk ákærða til
athafna fyrir hvatningu Björns hafi
verið kominn upp sterkur grunur um
að ákærði hefði framið ávana- og
fíkniefnabrot. Síðan segir: „Ekki
verður talið að [uppljóstrarinn] hafí
lokkað ákærða til brota sem hann
hafði ekki ásetning ella til að fremja
eða breytt eðli þess.“
Dóm Hæstaréttar kváðu upp
hæstaréttardómararnir Þór Vil-
hjálmsson, Gunnar M. Guðmunds-
son, Hrafn Bragason, Pétur Kr.
Hafstein og Guðmundur Jónsson,
fyrrverandi hæstaréttardómari.
miTSUSHIBR
ÖGOLF
Mikið úrval
Hagstætt verð
mmuTiuFPmiA.
GLÆSIBÆ. SÍMI 812922
6t
fttúúnn
sutná/ tii
et,M
Höfn 468
Þú ert frjáls ferða þinna á eigin úíl.
Ferðin hefst heima á hlaði og
þú getur tekið allt með sem á þarf að halda, grillið, hústjaldið eða
húsvagninn. Engar áhyggjur af yfirvigt, hvorki heiman né heim.
Þrjár ferðir íeinni: - ferð innanlands - sigling
- efiið um Evrópu
Þið njótið ferðarinnar frá upphafi tii enda og komið endurnærð
heim úr fríinu. Norræna er nýlegt og vel búið skip þar sem allt er
til staðar sem sigling hefur upp á að bjóða. Afslöppun og hvíld
eða glaumur og gleði. Veislumatur eða skyndibitar. Fríhöfn,
sóldekk og kvöldvökur. Tveir áhyggjulausir sólarhringar á
siglingu gefa ykkur tækifæri á að Ijúka við ferðaáætlunina
og njóta þess að vera í fríi.
Akureyri 432
Mosfellsbær 1 5
1j >
T 1 Esbjerg 732 (um Seyöisfjörö) ^
Á eigin bíl til Evrópu með Norrænu er einstakur og ódýr
ferðamáti. Verð er breytilegt, meðal annars eftirtíma sumars,
fjölda í bíl, aðbúnaði um borð og afsláttarkjörum. Þeir sem eru
yngri en 15 ára fá farið á hálfvirði og yngri en 3 ára frítt!
Hafðu samband og við setjum saman hagstœtt verð
á úíltúr fyrir þig og fjölsftylduna um Evrópu í
sumar. Nýja bæfdinginn færðu fijá flestum
ferðaskrifstofum.
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTOFAN
Smyril Line. Laugavegi 3. Reykjavík. Sími 91-626362
AUSTFAR HF.
Seyðisfirði. Sími 97-21111