Morgunblaðið - 22.05.1993, Page 28
NYIR KJARASAMNINGAR UNDIRRITAÐIR
286S-
M0tU};IilNBtíAM}3) IiAUGAHOAGUJi< 02; /MAk X'ðgái >M
Gengisforsendur miða
við óbreyttan afla og
hækkun á afurðaverði
HÉR á eftir fer texti kjarasaraninganna sem undirritaðir
voru aðfaranótt föstudags auk yfirlýsinga sem þeim fylgja
fyrir utan yfirlýsingu ríkissljórnarinnar, sem verður birt
á morgun.
Samningunum lokið
Benedikt Davíðsson forseti ASÍ og Þórarinn Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri VSI takast í hendur að afloknum samningum.
Kjarasamningur milli Múrarafé-
lags Reykjavíkur, Málarafélags
Reykjavíkur, Sveinafélags pípu-
lagningamanna, Veggfóðrarafé-
lags Reykjavíkur og Múrarasam-
bands Islands annars vegar og
Vinnuveitendasambands Islands,
Meistara- og verktakasambands
byggingamanna, Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna og
Reykjavíkurborgar hins vegar.
1. gr.
Allir síðast gildandi kjarasamn-
ingar aðila framlengjast til 31.
desember 1994 með þeim breyting-
um og fyrirvörum, sem í samningi
þessum felast og falla þá úr gildi
án sérstakrar uppsagnar.
2. gr.
Launabætur.
Á árinu 1993 skal greiða sér-
stakar launabætur. Launabætur
ákvarðast af meðaltali heildar-
tekna án orlofs fyrir starf hjá hlut-
aðeigandi vinnuveitanda næstliðna
þijá mánuði fyrir 1. maí og 1.
desember 1993, enda hafi samn-
ingi þá ekki verið sagt upp. Launa-
bætur skv. framanskráðu greiðast
vikukaupsfólki fyrir 15. dag sömu
mánaða en mánaðarkaupsfólki við
næstu launaútborgun þar á eftir.
Launabætur eru sérstakar ein-
greiðslur og greiðast fyrir tímala-
unuð störf þeim sem eru í starfi á
viðmiðunartímabilum og reiknast
hlutfallslega miðað við fast starfs-
hlutfall af 40 stunda vinnuviku (38
stundir hjá skrifstofufólki) og
starfstíma hjá viðmiðunartímabil-
um.
Starfshlutfall þeirra sem vinna
að jafnaði óreglulegan vinnutíma
eða utan dagvinnutíma er fundið
með hlutfalli unninna stunda af
vinnustundafjölda, sem gildir fyrir
fullt starf á viðkomandi starfssviði.
Launabætur reiknast þannig, að
fundið er meðaltal heildartekna á
tímabilunum 1. febrúar - 30. apríl
1993 og 1. september - 30. nóvem-
ber 1993. Sú upphæð sem þannig
er fundin er dregin frá kr. 80.000
miðað við fullt starf allan viðmið-
unartímann. Viðmiðunarupphæðin
lækkar í hlutfalli við starfshlutfall
og starfstíma á tímabilinu. Upp-
hæð launabóta er helmingur þann-
fg fenginnar niðurstöðu. Orlof er
innifalið í launabótum. Framan-
greindar tölur breytast ekki skv.
öðrum ákvæðum samningsins.
Launabætur greiðast þó ekki ef
unnar stundir eru færri en 15 að
meðaltali á viku og ekki þeim sem
taka laun samkvæmt unglinga-
töxtum, yngri en 16 ára.
Launabætur iðnnema.
Launabætur iðnnema, sem eru
í föstu vinnusambandi og fullu
starfi og fá greidjd laun á ársgrund-
velli reiknast þannig, að fundið er
meðaltal heildartekna án orlofs á
tímabilunum 1. febrúar - 30. apríl
og 1. september - 30. nóvember
1993. Sú upphæð sem þannig er
fundin er dregin frá kr. 47.000
miðað við fullt starf allan viðmið-
unartímann. Viðmiðunarupphæðin
lækkar í hlutfalli við starfshlutfall
og starfstíma á tímabilinu. Upp-
hæð launabóta er helmingur þann-
ig fenginnar niðurstöðu. Launa-
bætur að meðtöldu orlofi verða að
hámarki kr. 8.200 í hvert sinn
miðað við fullt starf. Framan-
greindar tölur breytast ekki skv.
öðrum ákvæðum samningsins.
Launabætur iðnnema, sem eru
í föstu vinnusambandi og fullu
starfi og fá greidd laun fyrir unn-
inn tíma reiknast þannig, að fund-
ið er meðaltal heildartekna án or-
lofs á tímabilúnum 1. febrúar -
30. apríl og 1. september - 30.
nóvember 1993. Sú upphæð, sem
er þannig fundin, er dregin frá kr.
68.000 miðað við fullt starf allan
viðmiðunartímann. Viðmiðunar-
upphæðin lækkar í hlutfalli við
starfshlutfall og starfstíma á tíma-
bilinu. Upphæð launabóta er helm-
ingur þannig fenginnar niðurstöðu.
Launabætur að meðtöldu orlofi
verða að hámarki kr. 12.000 í hvert
sinn miðað við fullt starf. Framan-
greindar tölur breytast ekki skv.
öðrum ákvæðum samningsins.
Launabætur greiðast ekki þegar
nemi er launalaus í skóla á viðmið-
unartímabili.
3. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 2.
gr. skulu launabætur greiðast
mánaðarkaupsfólki í fyrsta sinn
skv. samningi þessum með maí-
launum eða næstu launaútborgun
þar á eftir en vikukaupsfólki fyrir
15. júní.
Greiðslur skv. 2. gr. skulu end-
urteknar á árinu 1994 með sama
hætti og þar greinir, enda hafi
samningi þessum þá ekki verið
sagt upp.
4. gr.
Orlofsuppbót.
Starfsfólk, sem hefur áunnið sér
fullan orlofsrétt með starfi hjá
sama vinnuveitenda næstliðið or-
lofsár og er í starfi í síðustu viku
apríl eða í fyrstu viku maí, skal
við upphaf orlofstöku eða eigi síðar
en 15. ágúst fá greidda sérstaka
eingreiðslu, orlofsuppbót, kr. 8.000
miðað við fullt starf, en hlutfalls-
lega miðað við starfshlutfall og
starfstíma. Fullt starf telst í þessu
sambandi 45 unnar vikur eða meira
fyrir utan orlof.
Orlofsuppbót er föst tala og tek-
ur ekki launabreytingum skv. öðr-
um ákvæðum.
Láti starfsmaður af störfum
vegna aldurs eða eftir 20 vikna
starf á orlofsárinu skal hann við
starfslok fá greidda orlofsuppbót
vegna áunnins tíma m.v. starfs-
hlutfall og starfstíma. Sama gildir
þótt starfsmaður sé frá störfum
vegna veikinda eftir að greiðslu-
skyldu vinnuveitenda lýkur eða
vegna fæðingarorlofs allt að 6
mánuðum.
Orlofsuppbót iðnnema er kr.
5.300.
Á orlofsuppbót greiðist ekki or-
lof.
Framangreind ákvæði gilda að-
eins á árinu 1993 komi til uppsagn-
ar samningsins.
Sérákvæði í gildandi kjarasamn-
ingum haldast að öðru leyti
óbreytt.
5. gr.
Desemberuppbót.
Desemberuppbót verði kr.
13.000 og kr. 9.400 hjá iðnnemum,
enda verði samningi þessum ekki
sagt upp á árinu 1993.
6. gr.
Samningsforsendur.
Samningur þessi byggist á eftir-
greindum forsendum:
1. Yfirlýsingu ríkisstjórnar um
vaxtamál, aðgerðir og stefnumörk-
un á sviði atvinnumála, niður-
greiðslur tiltekinna kjöt- og mjólk-
urafurða, lækkun vsk. á matvæl-
um, tímabundna lækkun trygging-
argjalds af útflutningsstarfsemi og
um tímabundna endurgjaldslausa
úthlutun aflaheimilda Hagræðing-
arsjóðs.
2. Að gengi krónunnar verði innan
viðmiðunarmarka Seðlabanka ís-
lands enda standist neðangreindar
forsendur um afla og verðlag sjáv-
arvöruframleiðslunnar.
3. Að áætlað verðlagt sjávaraf-
urða í íslenskum krónum verði að
meðaltali 3% hærra á 3. ársfjórð-
ungi 1993 en var á 1. ársfjórðungi
1993 og haldist a.m.k. jafn hátt
út samningstímann. Miða skal við
þá verðvísitölu sjávarafurða sem
birtist í Hagvísum Þjóðhagsstofn-
unar.
4. Að aflakvótar á fiskveiðiárinu
1993-1994 verði ekki minni en á
yfirstandandi fiskveiðiári.
7. gr.
Endurmat á forsendum. Upp-
sagnarheimild.
A samningstímabilinu skal
starfa sérstök launanefnd skipuð
þremur fulltrúum frá ASÍ og þrem-
ur frá VSÍ og skal hún á samnings-
tímanum fylgjast með framvindu
efnahags,- atvinnu- og verðlags-
mála og gera tillögur um viðbrögð
til samtakanna og stjórnvalda eftir
því sem aðstæður krefjast á hverj-
um tíma.
Launanefndin skal endurmeta
samningsforsendur og hugsanleg
tilefni til uppsagnar samnings
þessa fyrir 10. nóvember 1993.
Heimilt er hvorum hluta launa-
nefndar að segja samningum laus-
um ef marktæk frávik hafa orðið
á samningsforsendum skv. 6. gr.
að mati hlutaðeigandi fulltrúa í
nefndinni. Við mat töluliða 2-4 í
6. gr. skal miða við heildaráhrif
þeirra. Komi til uppsagnar samn-
ingsins skv. framanskráðu tekur
hún gildi 1. janúar 1994.
Með sama hætti er hlutaðeig-
andi fulltrúum í launanefnd heim-
ilt að segja samningum upp með
þriggja mánaða fyrirvara ef gengi
krónunnar víkur umtalsvert frá
viðmiðunarmörkum Seðlabanka
íslands umfram það sem breyting-
ar á forsendum skv. 6. gr. kunna
að gefa tilefni til.
Samningsforsendur skulu á ný
endurmetnar í maímánuði 1994.
Verði horfur um þróun þjóðartekna
á árinu betri en ofangreindar
samningsforsendur leiða til skal
launanefndin taka ákvörðun um
viðbrögð sem miði að því að
tryggja launamönnum eðlilega
hlutdeild. Ákvarðanir launanefnd-
ar skulu taka mið af atvinnustigi
og samkeppnishæfni atvinnulífs-
ins, þannig að heildarávinningur.
allra launamanna verði hafður að
leiðarljósi. Leiði umfjöllun launa-
nefndar til samkomulags um
hækkun launa, þá skal hún koma
til framkvæmda frá l. júní 1994,
enda liggi úrskurður nefndarinnar
fyrir eigi síðar en 20. maí.
8. gr.
Samning þennan skal taka til
afgreiðslu fyrir hádegi miðviku-
daginn 26. maí í einstökum félög-
um, svo og hjá Vinnuveitendasam-
bandi íslands, Meistara- og verk-
takasambandi byggingamanna,
Vinnumálasambandi samvinnufé-
laganna og Reykjavíkurborg.
Vinnuveitendasambandi íslands
og/eða Meistara- og verktakasam-
bandi byggingamanna skal hafa
borist tilkynning um samþykki við-
komandi félags fyrir kl. 12 á há-
degi miðvikudaginn 26. maí nk.,
en viðkomandi félögum um af-
greiðslu vinnuveitenda.
Yfirlýsing ASÍ og
vinnuveitenda um vaxtamál
Samtökin lýsa yfir mikilli
óánægju með þá sjálfheldu sem
umræður um vaxtamál eru og hafa
verið í undanfarin misseri. Allir eru
sammála um að vextir séu of háir
miðað við núverandi aðstæður, en
á fjármagnsmarkaði bendir hver
aðili á annan með þeim afleiðingum
að lítil sem engin hreyfing verður
til lækkunar vaxta. Stjórnvöld hafa
ekki reynst tilbúin til að marka
skýra stefnu til vaxtalækkunar.
Sérstök ástæða er til að lýsa yfir
vonbrigðum með þátt banka og
sparisjóða og efndir þeirra á efni
yfirlýsinga í tengslum við miðlun-
artillögu ríkissáttasemjara sl. vor.
Veruleg og varanleg lækkun
vaxta er ekki aðeins skjótvirk leið
til að stuðla að nýsköpun og at-
vinnuuppbyggingu heldur bætir
hún einnig afkomu atvinnulífsins
og treystir þannig gengi íslensku
krónunnar. Stöðugt gengi krón-
unnar er jafnframt mikilvæg for-
senda stöðugleika í verðlagsmál-
um, en á undanfömum árum hefur
stöðugleiki sannað gildi sitt með
því að samkeppni og hagkvæmni
hefur aukist og leitt til betri kaup-
máttar launa en ella.
Reynsla liðinna ára kennir að
varanleg vaxtalækkun næst ekki
fram með góðum ásetningi og yfir-
lýsingum einum saman. Sam-
ræmdra aðgerða á fjármagnmark-
aði er þörf til að ná árangri, þar
sem bæði er dregið úr eftirspurn
eftir lánsfé og framboð þess aukið,
auk þess sem yfirvöld peningamála
þurfa að beita sér með virkum
hætti fyrir því að vaxtalækkun nái
fram að ganga.
Það er mat samningsaðila að
með eftirtöldum aðgerðum geti
stjórnvöld náð fram verulegri
lækkun vaxta á næstu mánuðum:
1. Dregið verði úr lánsfjáreftir-
spurn ríkissjóðs með aðhaldi að
lántökum almennt og tímabundn-
um takmörkunum á útgáfu hús-
bréfa.
2. Framboð af lánsfé verði aukið
með verulegri lækkun bindiskyldu
innlánsstofnana í Seðlabanka.
Jafnramt verði reglur um lausafj-
árhlutfall innlánsstofnana rýmkað-
ar.
3. Náist ekki yfirlýst markmið um
vaxtalækkun dragi stjómvöld úr
sölu spariskírteina ríkissjóðs og
beini lántökum sínum að hluta á
erlenda lánsfjármarkaði, m.a. með
útgáfu gengistryggðra ríkisverð-
bréfa sem bæði yrðu boðin til sölu
á innlendum og erlendum mörkuð-
um.
I trausti þess að stjórnvöld reyn-
ist viljug til samstarfs um ofan-
greindar aðgerðir og sýni þann
vilja í verki eru samningsaðilar
reiðubúnir til þess að beita áhrifum
sínum til þess að lífeyrissjóðirnir
beini auknum hluta ráðstöfunarfé
sínu til kaupa á ríkisverðbréfum,
einkum til skemmri tima, með það
að markmiði að raunvextir lækki
um a.m.k. 1% á næsta hálfa ári.
Náist ofangreind markmið er brýnt
að annað skref verði tekið til enn
frekari vaxtalækkana. Hafi á hinn
bóginn á þessu sex mánaða tíma-
bili ekki verið gerðar þær ráðstaf-
anir sem nægi til þess að vextir
lækki almennt á fjármagnsmark-
aði, telja aðilar forsendur fyrir
framangreindri aðkomu lífeyris-
sjóða ekki lengur fyrir hendi.
Yfirlýsing Stéttarsambands
bænda
í tilefni af ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar um auknar niðurgreiðslur
á landbúnaðarvörum sem gerð er
í tilefni kjarasamninga mun Stétt-
arsamband bænda beita sér fyrir
því að þessar auknu niðurgreiðslur
skili sér að fullu í lækkuðu verði
til neytenda.