Morgunblaðið - 22.05.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993
29
Markaðsfulltrúi Búnaðarbankans um samskipti við Rússnesku viðskiptaskrifstofuna
Liður í tilraunum til að selja
íslenskar vörur til Rússlands
HEIMIR Hannesson, fyrrverandi markaðsfulltrúi í erlendum viðskipt-
um hjá Búnaðarbankanum, segir að samskiptin við íslensk-rússnesku
viðskiptaskrifstofuna hf. (IRBA hf.) hafi verið vegna tilraunar til
að reyna að selja íslensk matvæli og ullarvörur, ekki sist saltsíld,
til Rússlands. Annar eigandi IRBA telur sig hafa verið búinn að ná
samningi við Búnaðarbankann um sölu á 500 þúsund tonnum af járni
en Heimir segir að samningar hafði aldrei náðst.
Bankaeftirlit Seðlabanka ís-
lands lýsti því áliti sínu, að lokinni
ítarlegri athugun, að Búnaðar-
bankinn hefði með samskiptum við
Islensk-rússnesku viðskiptaskrif-
stofuna hf. farið út fyrir starfs-
heimildir sínar samkvæmt lögum.
í áliti sínu, sem dagsett er 2. apríl
sl., segir bankaeftirlitið að umrædd
starfsemi bankans geti ekki talist
til viðskiptabankastarfsemi eða
þjónustustarfsemi í eðlilegum
tengslum við hana.
Ófáanlegir að ljúka samningi
Tilefni athugunar bankaeftirlits-
ins er bréf Sverris Arnar Sigur-
jónssonar, viðskiptafræðings og
annars aðaleiganda fyrirtækisins,
sem hann skrifaði eftirlitinu í nóv-
ember til að vekja athygli á vinnu-
brögðum bankans. Sverrir vekur
einkum athygli á viðskiptum um
óunnið járn. Fullyrðir hann að
samningar hefðu tekist við selj-
anda um 500 þúsund tonn á 38
dollara tonnið. Bankinn hafi stað-
fest þessi viðskipti en verið ófáan-
legur til að ljúka samningi þrátt
fyrir margendurteknar ítrekanir.
Sverrir Örn sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa átt þessi við-
skipti við Búnaðarbankann, eina
virtustu stofnun landsins, og það
hefði því komið honum mjög á
óvart að ekki hefði tekist að fá
bankann til að standa við skuld-
bindingar sínar. IRBA er nú að
undirbúa málaferli á hendur bank-
anum vegna tjóns sem fyrirtækið
telur sig hafa orðið fyrir vegna
samningsrofa bankans. í vetur
krafðist fyrirtækið tæplega 8 millj-
óna kr. en Sverrir Örn sagði að
sú fjárhæð væri nú til endurskoð-
unar. Guðni Ágústsson, formaður
bankaráðs Búnaðarbankans, hefur
talað um að fyrirtækið hafi reynt
að beita bankann fjárkúgun, kraf-
ist peninga fyrir að þegja um mál-
ið. Sverrir Örn sagðist vísa slíkum
ummælum til föðurhúsanna,
krafan hefði verið sett fram vegna
tjóns fyrirtækisins en aldrei hefði
verið talað um að bankinn gæti
keypt þögnina. „Það er alvarlegt
mál að vera sakaður uni fjárkúgun
af svo virtri stofnun. Eg mun ekki
sitja undir því,“ sagði hann.
Samningar tókust ekki
Heimir Hannesson lýsir járnvið-
skiptunum á annan hátt: Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið
að í nóvember 1991 hefði Vladimir
Verbenko, fyrrverandi yfirmaður
kynningardeildar sovésku áróðurs-
deildar APN/Novosti, kynnt fyrir
Búnaðarbankanum áhuga aðila í
Moskvu á að kaupa héðan verulegt
magn matvæla, ekki síst saltsíld
og ullarvöru, vegna þeirra erfiðu
aðstæðna sem voru í fyrrverandi
Sovétríkjum þennan vetur. Þeir
hefðu engan gjaldeyri haft en boð-
ið vörur sem þriðji aðili teldi sér
fært að kaupa. Hann sagði að hlut-
verk Búnaðarbankans hefði ein-
ungis átt að vera í því fólgið að
koma upplýsingum á milli eftir því
sem þörf krefði og varðveita hugs-
anlegt söluandvirði samkvæmt,
bankalegri venju.
Heimir sagði að málið hefði ver-
ið kynnt bankastjórn sem talið
hefði rétt að láta á þetta reyna,
ekki síst með tilliti til erfiðeika í
saltsíldarsölu. Samráð hafi verið
haft við sendiráð Islands í Moskvu
og fulltrúa helstu útflytjenda. Öll-
um hafi verið ljós aðild og hlutverk
bankans.
Heimir sagðist hafa talið að
Verbenko kynni að hafa- einhver
þau sambönd í kerfinu þarna
eystra sem hann hefði sagst hafa.
Hann sagðist þó fljótlega hafa far-
ið að efast um það svo og þekk-
ingu hans á viðskiptamálum.
Smám saman hefði komið í ljós
að hinir rússnesku viðræðuaðilar
hefðu ekkert að bjóða sem líklegt
hafi verið til -að skapa áhuga vest-
rænna kaupenda. Helst hafi komið
tii greina óunnið járn sem víða
væri eftirsótt til endurvinnslu.
Heimir sagði að það mál hefði ver-
ið komið á áhugavert stig og hefði
getað gagnast íslenskum hags-
munum þar sem um hefði verið
að ræða milljarða kr. Kaupandi
hefði verið fundinn í gegn um miðl-
ara, en það hafi að sögn verið
bandarískur aðili sem gat selt þetta
til vinnslu í Egyptalandi. Hann
hefði samþykkt verð og aðra skil-
mála, með því mikilvæga fráviki
að hann vildi kaupa cif, það er
járnið að meðtöldum flutningi á
áfangastað, en seljandinn hefði
engin önnur tök haft en fob, það
er að afhenda járnið í skip í rúss-
neskri höfn. Sagði Heimir að þar
kæmi fram sá vandi Rússa í alþjóð-
legum viðskiptum að þeir hefðu
hvorki skipulag né skip. Vegna
þessa hafi ekki getað orðið úr við-
skiptunum.
Heimir sagði að eftir að menn
slitu stórviðskiptunum í sambandi
við saltsíldarsöluna hafi IRBA allt-
af verið að reyna að opna ein-
hveija nýja viðskiptamöguleika en
allt hefði verið á sömu bókina lært,
láust og óákveðið. Hann tók það
fram að allar hugmyndir sem fram
hefðu komið, meðal annars um
timbur, olíu, varahluti, hefðu verið
að frumkvæði IRBU-manna.
Aðspurður að því hvernig hann
mæti nú samskiptin við Islensk-
rússnesku viðsldptaskrifstofuna
sagði Heimir: „Ég sé ekki eftir
neinu í öllum þessum samskiptum,
nema að hafa sýnt þeim fullmikla
þolinmæði og langlundargeð, í
þeim tilgangi að gefa þeim tæki-
færi til að sanna sig, vegna þess
að ég vildi þeim vel.“
Fyrirtæki án viðskipta
Sverrir Örn sagði að Búnaðar-
bankinn hefði óskað eftir ýmsum
varningi, eins og fram hefur kom-
ið. Nefndi hann í því sambandi
úran, varahluti í sovéskar orrustu-
þotur, herþyrlur og skriðdreka fyr-
ir herinn í Perú, riffla, þijár teg-
undir af flugskeytum og margt
fleira.
IRBA var stofnuð í ársbyijun
1992 til að hafa milligöngu um
vörusölu frá Rússum, og hafa
Verbenko og Sverrir Örn báðir
verið í fullu starfi hjá fyrirtækinu
allan þann tíma, að sögn Sverris
Arnar. Hann sagði að í upphafi
hefði Búnaðarbankinn verið aðal-
viðsemjandi fyrirtækisins og vegna
þess hvernig farið hefði með þau
viðskipti hefði fyrirtækinu ekki
tekist að selja neitt allan þennan
tíma. Fyrirtækið hefði nú stokkað
upp spilin og væri að koma með
ýmsar vörur frá lýðveldum fyrrver-
andi Sovétríkjanna á íslenskan
markað.
Aðstoð við útflutning
Heimir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að á hveijum einasta degi
hefði hann unnið að fjölmörgum
úrlausnarefnum á sínu verksviði
sem var að liðsinna viðskiptavinum
bankans við útflutning. Áf stærri
málum nefnir hann frumkvæði við
að koma á verulegum útflutningi
á hugviti með nýrri starfsemi í
Austur-Evrópu, meðal annars í
hitaveituverkefnum í Ungveija-
landi. Hann nefnir ný tengsl í
Austurlöndum, meðal annars Ta-
iwan, samninga um sölu á bleikju
til Frakklands og vörukaupasamn-
inga í Spvétríkjunum á síðasta
starfsári Álafoss eldra.
r iIL IIB © IIR ®
Matseðill
Heitur aspas með estragon-sinnepssósu 850
Bláskelsúpa með saffranþráðum 790
Salat með heitum huniar og cous-cous 920
Ofnbökuð laxasneið með engjasúrusósu 940
Tagliatelli með reyktum laxi og graslauk 980
Steiktur skötuselur
með kremaðri steinselju 1590
Ferskasti fiskur dagsins
Grilluð sinnepsmarineruð kjúklingabringa
með hrísgrjónum 1390
Steinseljusteiktur lambahryggur
með basilikumtertu 1690
Grilluð nautalund
með morella og svepparagout 2590
Risahumar frá Maine 3800
Sími 11440
Heit eplaskífa með vanilluís 510
Súkkulaðimousse með kardimommusósu 470
Creme Brulé með ferskum berjum 490
Heitar fíkjur
með hungagsrjóma og hnetum 510
Smjördeig með hunangsis og ávaxtasósu 430
fíorcfið d Borginni — Búicf d Borginni
Njótið Líf<*in<t d Borginni
Velkomin á Hótel Borg
\