Morgunblaðið - 22.05.1993, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993
39
Sigríður Halldóra
Loftsdóttir - Minning
j Fædd 26. mars 1925
Dáin 16. maí 1993
Nú er elsku amma okkar Sigríð-
ur Loftsdóttir fallin frá og með
djúpri sorg og söknuði í hjarta
langar okkur systkinin að þakka
Guði fyrir þau indælu kynni sem
við höfðum af henni.
Það er okkur sérstaklega
Norrænir
nýrnadagar
haldnir hér
minnisstætt hversu gott var að
heimsækja ömmu og afa í Hafnar-
firði og fá að eyða öðru hveiju
helgum með þeim. Þá dekraði hún
við okkur og var afar elskuleg á
allan hátt svo að við urðum endur-
nærð eftir helgardvöl hjá þeim.
Elsku amma, minningin um þig
lifir í hjörtum okkar um aldur og
ævi. Við þökkum Guði fyrir yndis-
legar samverustundir með þér.
Elsku afi, megi Guð vera með
þér og styrkja þig í gegnum þess-
ar erfiðu stundir.
Friðrik, Sigríður, Sigrún
og Ragnar.
Oftast finnst okkur mönnunum
sem yfir skyggi þegar dauðinn
bregður sinni beittu banasigð.
Fjölskyldan vissi að skammt var
í ferðina miklu sem eitt sinn bíður
okkar allra.
Mér finnst þó sorgarský beri
yfir við vinamissi, sem sólin skíni
skært í skýjarofi, þegar minninga-
myndir liðinna samverustunda
hrannast upp í huga mínum.
Það var alltaf svo bjart í kring-
um tengdamóður mína Sigríði
Loftsdóttur, hvar sem hún fór, sá
sterki eiginleiki hennar að breiða
birtu og yl yfir umhverfi sitt, af
ást og umhyggju fyrir fjölskyldu
sinni.
Fjölskyldan mun minnast henn-
ar og þakka Guði fyrir samfylgd-
ina í öll þau ár sem við fengum
að njóta hennar ástar, umhyggju
og kærleika, þar sem heiðríkjan
mun verma minningarnar um
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu.
Eg veit að vinkona mín og
tengdamóðir vill þakka þér, kæri
tengdafaðir, fyrir alla þínu eilífif
ást og umhyggju, trúfesti allt til
hinstu stundar.
Ég sé hana í anda þar sem hún
gengur á bjartri geislabrú — burt
frá dauðanum til lífsins eilífa með
Guði sínum, sem hún nú þráði svo
heitt samfundi við.
Hún er horfin þangað sem ríkir
eilíft sumar, eilíft ljós og eilífur
friður.
Blessuð sé minning tengdamóð-
ur minnar.
<
Þórunn Friðriksdóttir.
I
t
I
*
I
I
í
í
i
RÁÐSTEFNAN Norrænir
nýrnadagar verður haldin í
Háskólabíói í Reykjavík dagana
22. til 25. maí. Norrænir nýrna-
dagar er ráðstefna um nýrna-
sjúkdóma og meðferð þeirra
þar sem norrænir nýrnasér-
fræðingar hittast til að kynna
vísindastörf sín og hlýða á fag-
lega fyrirlestra.
Ráðstefnan er haldin annað
hvert ár, að þessu sinni í fyrsta
skipti á íslandi. Eftir að enskan
varð opinbert tungumál ráðstefn-
unnar hefur hún fengið alþjóðlegri
blæ og gert sérfræðingum frá fleiri
löndum mögulegt að taka þátt.
Að þessu sinni verða fluttir merk-
ir fyrirlestrar og meðal fyrirlesara
eru prófessor E. Slatopolsky frá
St. Louis í Bandaríkjunum, pró-
fessor Karl Tryggvason frá Oulu
í Finnlandi og dr. J.W. Adamsson
frá New York í Bandaríkjunum.
Búist er við að um 200 manns
komi á ráðstefnuna sem öllum ís-
lenskum læknum er auk þess
fijálst að sækja. Verndari ráð-
stefnuimar er Markús Öm Antons-
son borgarstjóri.
(Fréttatílkynning)
Opið hús
í FB í dag
OPIÐ hús í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti er í dag, laug-
ardaginn 22. maí. Öll svið skól-
ans verða kynnt og kennarar
munu skýra frá námsframboði
og sýna aðstöðu til náms.
Kynningin stendur frá kl.
10.30 til 13.30 og eru allir vel-
komnir.
Sama dag kl. 14 verður 255
nemendum afhent lokaprófsskír-
teini og er það metíjöldi. Af þess-
um hópi eru 146 stúdentar en af
tæknisviðum útskrifast 52, af
sjúkraliðabraut 15 og almennt
verslunarpróf tóku 25.
Athyglisvert er að nemendum
er aftur að fjölga á tæknisviðum
og nú útskrifast t.d. 22 af húsa-
smíðabraut, 18 af rafvirkjabraut
og 11 af vélsmíðabraut. Athöfnin
fer fram í hinu nýja íþróttahúsi
skólans.
(Fréttatílkynning)
-------»--»-♦------
Fuglaskoð-
< unarferðá
t Hafnarberg
FUGLASKOÐUNARFERÐ Útivist-
i ar sem féll niður vegna veðurs sl.
fimmtudag yerður farin á morgun,
sunnudag. Arni Waage, fuglafræð-
ingur, verður leiðbeinandi. Farið
með rútu frá Umferðarmiðstöðinni
J kl. 10.30.
Nú getur þú
bobib í vextina
til næstu 12 mánaba
Nýjung á
fj ármagnsmarkaði
Meö nýjum óverðtryggðum ríkisbréfum með 12 mánaða lánstíma getur
þú aukið fjölbreytni í fjárfestingum þínum og sparnaði enn frekar.
Fram til þessa hafa verið gefin út ríkisbréf með 6 mánaða lánstíma en
nú getur þú tryggt þér góða vexti í öruggum verðbréfum til enn lengri
tíma.
Allir geta tekið þátt í þessari nýju fjárfestingarleið. Ríkisbréfin eru seld
með útboðsfyrirkomulagi eins og áður þar sem þú gerir tilboö í vextina
næstu 12 mánuði.
Þú hefur samband við verðbréfamiðlarann þinn eða við starfsfólk
Lánasýslu ríkisins sem aðstoöar þig við tilboðsgerðina og veitir þér
nánari upplýsingar. Fyrsta útboðið með þessum hætti fer fram
miðvikudaginn 26. maí næstkomandi og þá verða boðnir út
tveir flokkar ríkisbréfa.
Flokkur Lánstími Gjalddagi
S.fl. 1993 A 6 mánuðir 26. nóv. 1993
5.fl. 1993 B 12 mánuðir 27. maí 1994
Ríkisbréfin eru óverðtryggb og án nafnvaxta og verða þau gefin út í þremur verðgildum,
1.000.000, 10.000.000 og 50.000.000 kr. að nafnviröi.
Taktu þátt í tilboðum á nýjum ríkisbréfum til 12 mánaða og tryggðu þér
góða ávöxtun. Um leið eflir þú þá þróun að vextir ráðist af
markaðsaðstæðum hverju sinni.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40