Morgunblaðið - 22.05.1993, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993
Með
morgunkaffinu
Ég er ekki að baktala hana
Ólöfu eða segja að hún
kunni ekkert til heimilis-
verka, en þegar hún var að
sópa stéttina í morgun_______
Ast er...
i
II-
. . . að fara saman með
borðbæn
Ég skil ekki orð af því sem
þú segir, þú verður að taka
af þér klútinn.
HÖGNI HREKKVfSI
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691329 - Símbréf 681811
Opið bréf til Hrafns
Gunnlaugssonar
Frá Hólmsteini Brekkan:
Kæri Hrafn.
Tilefni þessa bréfs míns til þín eru
þær ofsóknir sem þú hefur orðið
fyrir undanfarið. Nánast linnulaust
í fjölmiðlum sem og eflaust á kaffi-
stofum flestra vinnustaða á ís-
landi. Þegar ofsóknir á hendur þér
hófust inni á hinu háa Alþingi með
hamförum og offorsi vissra þing-
manna og fyrrverandi ráðherra
þótti mér taka steininn úr.
Það má vel vera að menn sam-
tímans séu umdeildir og að póli-
tískar stöðuveitingar séu ekki öll-
um að skapi. En að einstaklingur
í hinu íslenska þjóðfélagi hafi hlot-
ið viðlíka meðferð í sölum Alþingis
er einsdæmi í sögu þings og lýð-
veldisins.
Fyrir hönd einhvers hluta af
þeim kjósendum sem með atkvæði
Frá Einari Vilhjálmssyni:
Bandaríkjamenn leystu okkur
undan oki Englendinga og tóku
að sér varnir landsins. Þeir hafa
ætíð reynst íslendingum hollvinir
og stuttu lýðveldisstofnunina
1944. Ekki er að efa að þeir hafa
verið okkur haukar í horni við
útfærslu landhelginnar og haldið
aftur af Englendingum í þorska-
stríðunum. Vonandi fáum við enn
um sinn að njóta vemdar Banda-
ríkjamanna. Þeir hafa í öllu komið
fram sem sannir vinir. Með komu
Bandaríkjamanna, 7. júlí 1941,
breyttust ýmsir verklegir þættir
til hins betra. Þeir fluttu með sér
stórvirkar vinnuvélar og þjálfuðu
Islendinga í meðferð þeirra. Jarð-
sínu komu þessum stormsveitar-
mönnum siðgæðis inn á þing bið
ég þig afsökunar á framferði þeirra
í þinn garð.
Vissulega þarf að gera úttekt á
pólitískri spillingu á Islandi en að
það sé gert af sjálfskipaðri þing-
mannanefnd gegn einstaklingi er
fáránlegt. Eflaust sætu í þeirri
nefnd einhveijir þeir siðgæðis-
blindustu úr hópi siðspilltustu
stjórnmálamanna þessa lýðveldis.
Varnarleysi einstaklingsins gegn
ofsóknum innan veggja Alþingis
virðist vera algert.
Greinilegt er að einhver hópur
þingmanna hefur áhyggjur af ferli
sínum vegna óróleika og væringa
í þjóðfélaginu. Þegar svo þessir
þingmenn sjá sér færi á að kross-
festa einstakling sem samnefnara
fyrir pólitíska spillingu á íslandi
er það tækifæri gripið.
ýtur, gröfur, lyftarar, dráttarvélar
og jeppar ollu byltingu í landbún-
aði, vegagerð og byggingariðnaði.
Ekki má gleyma kraftblökkinni,
sem hafði svipuð áhrif á fiskveið-
arnar, en þá tækni þróuðu Banda-
ríkjamenn við nótaveiðar á Kyrra-
hafi.
Þeir lögu einnig grundvöllinn,
sem millilandafiug okkar er byggt
á. Vonandi verður ekki klaufaleg
framganga embættismanna og
stjórnmálamanna til þess að spilla
góðu vinfengi þjóðanna, vegna
tímabundins ágreinings.
EINAR VILHJÁLMSSON,
Smáraflöt 10,
Garðabæ.
Sem borgari og þjóðfélagsþegn
í lýðveldinu íslandi get ég ekki
verið sáttur við að slíkt gerist inn-
an löggjafarsamkundu Islands.
Þeir sem Iáta hæst og hafa sig
mest í frammi við að kreista fram
skrattann eru þeir sömu sem
undanfarin ár og áratugi hafa sóað
hundruðum milljarða af almannafé
í glapræðislegar framkvæmdir auk
annars. Það er mín persónulega
skoðun að þingmenn og ráðherrar
ættu að sæta refsiábyrgð fyrir
þátttöku sína í glæpum sem framd-
ir eru innan veggja stjórnkerfisins
gegn betri vitund og til höfuðs al-
menningi.
Menn eiga ekki sökum hefðar
eða þinghelgi að komast upp með
hvað sem er. Hvort sem um er að
ræða ofsóknir gegn einstaklingum
eða aðra glæpi ættu einstakir þing-
menn og ráðherrar að vera ábyrg-
ir fyrir gerðum sínum.
Engan Islending veit ég sem
hlotið hefur jafn neikvæða umfjöll-
un í ijölmiðlum og þú. Bersýnilegt
er að fjölmilar þessa lands leggja
sig sérstaklega fram við að hafa
umfjöllun um þig og verk þín sem
neikvæðasta og vissulega er slíkt
skoðanamyndandi úti í þjóðfélag-
inu. Fremst í þessum flokki er viku-
sorpritið Pressan. Á þeim bænum
virðast menn hafa sérstaka unun
af neikvæðri umfjöllun um Hrafn
Gunnlaugsson enda kannski ekki
nema von. Samkvæmt því sem
sjoppueigandi í Reykjavík sagði
mér þá selst Pressan alltaf betur
þegar mynd af Hrafni er á forsíð-
unni.
Mörgum fellur það betur að fár-
ast yfir snjónum á þekju nágrann-
ans en moka frá sínum eigin dyr-
um.
í þessu stormveðri skítkasts
veiti ég þér minn móralska stuðn-
ing.
Bestu kveðjur,
HÓLMSTEINN BREKKAN,
Mímisvegi 6,
/Reykjavík.
Hernámspunktar
Víkverji skrifar
Isíðustu viku birtist eftirfarandi
bréf í tveimur vikublöð á Suður-
nesjum, Víkurfréttum og Suður-
nesjafréttum. Höfundur bréfsins er
Páll Jónsson sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðsins í Keflavík:
Að undanförnu hafa átt sér stað
bréfaskriftir milli Vatnsleysu-
strandarhrepps og Sparisjóðsins í
Keflavík þar sem hreppurinn hefur
lagt mikla áherslu á að Sparisjóður-
inn opni útibú eða afgreiðslu í Vog-
um.
Opnun á útibúi frá Sparisjóðnum
í Vogum hefur lengi verið til um-
ræðu innan Sparisjóðsins en eins
og öllum er kunnugt hefur mikil
breyting orðið í efnahagsmálum
þjóðarinnar síðustu ár. Þessi breyt-
ing hefur orðið til hins verra og
hefur ekki síst komið niður á bönk-
um og sparisjóðum. Breytingin hef-
ur meðal annars orðið til þess að
miklu aðhaldi er nú beitt í rekstri
og fjárfestingum banka og spari-
sjóða og svo á einnig við um Spari-
sjóðinn í Keflavík. Vegna þessa tel-
ur stjórn Sparisjóðsins litlar líkur á
því að Sparisjóðurinn opni fleiri
útibú á næstunni.
Þessi niðurstaða stjórnar Spari-
sjóðsins var tilkynnt hreppsnefnd
Vatnsleysustrandarhrepps með
bréfi 29. mars sl. Skömmu síðar
birtist í Morgunblaðinu frétt um
þessi mál sem var orðrétt tekin úr
bréfí sveitarstjórnar til Sparisjóðs-
ins. Daginn eftir þá frétt hringdi
til mín blaðamaður Mbl. og rabbaði
við mig um bréf sveitarstjórnar.
Blaðamaður Mbl. bar ekkert undir
mig áður en hann birti svokallað
viðtal, enda vissi ég ekki fyrr en
ég sá þetta í Mbl. að um viðtal
hefði verið að ræða. Blaðamaðurinn
gat þess aldrei við mig að hann
ætlaði að skrifa um málið.
Mér þykir mjög leitt hvernig
umrætt rabb birtist í Mbl. og bið
Vogamenn velvirðingar, þótt ég
telji að mjög fijálsmannlega hafi
verið farið með ummæli mín í þess-
ari grein í Mbl.
xxx
Vegna þessa bréfs frá Páli er
ástæða til að árétta það á
þessum vettvangi að það er hlut-
verk blaðamanna að afla frétta og
leita viðbragða við fréttum. í þessu
tilfelli hafði birst frétt um synjun
Sparisjóðsins í Keflavík á því að
opna útibú í Vogum. Það voru eðli-
leg viðbrögð Morgunblaðsins að
leita eftir sjónarmiðum Sparisjóðs-
ins í málinu. Páli Jónssyni hlaut að
vera það ljóst þegar blaðamaðurinn
hringdi til hans að um viðtal var
að ræða en ekki rabb.
xxx
Ekkert lát virðist vera á ráð-
stefnuhaldi íslendinga þrátt
fyrir að harðnað hafi á dalnum.
Ráðstefnur um hin margvíslegustu
málefni eru auglýstar í blöðunum
og væntanlega flykkist fólk á þess-
ar ráðstefnur því annars væru þær
ekki haldnar.
Víkveiji er þeirrar skoðunar að
í þessu eins og svo mörgu öðru
skjóti íslendingar yfir markið. Eng-
inn vafí er á því að upplýsingum
má miðla til viðkomandi manna án
þess að hóa þeim saman alls staðar
af landinu. Nýlega var auglýst ráð-
stefna um gæðastjómun í bygging-
ariðnaði, sem án efa er hið þarfasta
mál. Ráðstefnan átti að standa tvo
eftirmiðdaga og fyrirlesarar og
þátttakendur í umræðum voru aug-
lýstir 19 talsins.
í auglýsingunni er þess sérstak-
lega getið að í þátttökugjaldinu,
sem var 8.800 krónur, hafi verið
innifalin innbundin bók með öllum
fyrirlestrunum. Og að lokum var
öllum boðið upp á veitingar í boði
iðnaðar- og umhverfisráðuneytis.
Það er auðvitað hneyksli að skatt-
greiðendur skuli látnir borga fyrir
áfengisveitingar á ráðstefnum sem
aðilar úti í bæ halda.