Morgunblaðið - 22.05.1993, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993
KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNl HM
Ládeyða
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu lék einn sinn lélegasta leik í
langan tíma, þegar það mætti landsliði Lúxemborgar í undan-
keppni HM á fimmtudaginn. Liðið mátti þakka fyrir að fara með
annað stigið heim eftir 1:1 jaf ntefli. Það var ekki heil brú í leik
liðsins að undanskildum fimm mínútna kafla í lokfyrri hálfleiks.
Baráttan sem lengi hefur einkennt leik liðsins var vfðsfjarri. Það
var eins og leikmenn héldu að það væri nánast formsatriði að
vinna Lúxemborgara, sem fyrir leikinn höfðu ekki fengið stig í
keppninni. Vonir okkar íslendinga um að hækka um styrkleika-
flokk, eins og að var stefnt, eru nánast úr sögunni og þá má
teljast gott ef við höldum okkur í fjórða styrkleikaf lokki af fimm.
Valur B.
Jónatansson
skrifar frá
Lúxemborg
Lúxemborgarar byijuðu leikinn af
miklum krafti og voru greini-
lega staðráðnir í að gefa hlut sinn
ekki átakalaust. Þeir
náðu að skapa sér
nokkur ágæt mark-
tækifæri og fóru þá
oftast upp hægri
vænginn sem var brothættur hjá ís-
lenska liðinu, en sáu sjálfir um að
klúðra færunum eða þá að Birkir var
á réttum stað.
Þegar fimm mínútur voru eftir af
fyrri hálfleik var fyrst lífsmark með
íslensku strákunum. Þeir fóru að
vinna boltann framar á vellinum,
sóttu hratt og þá skapaðist hætta.
Rúnar átti gott skot frá vítateig sem
fór rétt framhjá og tveimur mínútum
-síðar kom markið. Þorvaldur sendi
boltann inn í teiginn og Amór sá um
að skila honum í netið með skalla
eftir að hafa fengið smá aðstoð frá
varnarmanni Lúxemborgara. „Ég
var tilbúinn við fjærstöngina, en bjóst
samt ekki við að fá boltann, sem
breytti um stefnu við að fara í vam-
armann. Ég átti auðvelt með að setja
hann í netið því það var allt opið,“
sagði Arnór sem gerði þar með 10.
landsliðsmark sitt.
Það byrjaði ekki gæfulega hjá ís-
lenska liðinu í síðari hálfleik því Þor-
valdur var rekinn af leikvelli á 59.
mínútu. Og fyrir hvað? Jú, fyrir að
brosa er hann var að undirbúa sig
fyrir innkast. Hann var að vísu áður
búinn að fá gula spjaldið og var full
lengi að undirbúa innkastið en það
á ekki að þýða áminningu á þessum
tímapunkti í leiknum. Eftir þetta var
um algera einstefnu Lúxemborgara
að ræða og þeir uppskám mark á
70. mínútu og var það afar slysa-
legt. Hlynur Birgisson ætlaði að
bjarga fyrirgjöf í horn en boltinn fór
óvart í markhomið. íslendingar
fengu ekki eitt einasta marktækifæri
í seinni hálfleiknum.
íslenska liðið virkaði áhugalaust
og spilaði ekki sem ein heild. Menn
vom að puða þetta allt of mikið hver
í sínu homi. Hraðabreytingar vom
ekki nægilegar í leiknum og kantarn-
ir nýttust illa', sérstaklega hægra
megin. Eins vantaði meiri tengingu
milli vamar og miðju annars vegar
og miðju og sóknar hins vegar. En
fyrst og fremst vantaði baráttuvilj-
ann sem þarf að vera til staðar svo
sigur náist gegn þjóð eins og Lúxem-
borg sem hefur ekki verið hátt skrif-
uð í knattspyrnuheiminum hingað til.
íslenska vömin gerði í sjálfum sér
fá mistök, en ein þeirra kostuðu
mark. Birkir var traustur í markinu
og besti leikmaður liðsins. Miðju-
mennimir náðu sér ekki á strik. Það
var helst Rúnar sem var að skapa
eitthvað. Amór og Amar Gunnlaugs-
son náðu ekki að stilla sig saman í
sókninni.
Arnór Guðjohnsen gerir mark íslands með skalla. Router
Kannski ósjáK-
rátt vanmat
sagði Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari
sgeir Elíasson, landsliðsþjálf-
ari, var að sjálfsögðu ekki
ánægður með leikinn. „Seinni
hálfleikur var mjög eðlilegur mið-
að við að missa Þorvald útaf og
vera einum færri. Þá var ekkert
annað að gera í stöðunni en að
verjast og reyna að halda fengn-
um hlut. En ég viðurkenni að fyrri
hálfleikur var mjög slakur. Menn
spiluðu ekki nógu einfalda knatt-
spyrnu og unnu ekki saman.
Við náðum sjaldan að vinna
boltann á miðjunni eins og við
ætluðum okkur í upphafi og í þau
fáu skipti sem það gerðist sköpuðu
við okkur færi. Það vantaði líka
Getraunadeildin 1 • deild
KR-völlur:
- ÞÓR A.
sunnudaginn 23. maí kl. 20.00
KR-klúbburinn hittist kl. 18.00. Léttar veitingar og skírteini afhent.
Vígsla stúkunnar verður kl. 18.30. Allir velkomnir sem styrkt hafa stúkusjóð.
Knattspyrnuskóli KR byrjar 1. júní. Skráning alla virka daga í síma 27181.
Leikmenn KR afgreiða bensín á bensínstöð Skeljungs v/Birkimel frá kl.
16.00-18.00 í dag, laugardag, og gefa barnamiða á leikinn.
Illl FORMPRENT
Hverfisgötu 78, simar 25960 - 25566
að sækja meira úr öftustu línu.
Menn voru of linir að halda boltan-
um þegar hann vannst. í stað
þess að gefa á næst mann var
verið að reyna eitthavð upp á eig-
in sýtur. Þegar við komum knett-
inum fram var hann oftar en ekki
sendur öfugumeginn við framlínu-
mennina. Lúxemborarnir voru
meira með boltann en voru samt
ekki að skapa sér nein umtalsverð
færi. Þeir voru fljótari en við og
ákveðnari í aðgerðum sínum.“
Eru strákamir ekki í nægilega
góðri æfíngu?
„Jú, það held ég. Það vantaði
bara alla baráttu og stemmningu
í liðið. Kannski er skýringin ósjalf-
rátt vanmat á andstæðingnum.
Það var óneitanlega slæmt að
vinna ekki þennan leik eins og við
gerðum okkur vonir um,“ sagði
Asgeir.
0:1
Þorvaldur Örlygsson
tók innkast á móts
við vítateiginn á hægri vængnum.
Hann kastaði inn á Amar Gunn-
laugsson sem gaf aftur á Þor-
vald, sem sendi síðan fyrir mark-
ið. Boltinn fór í vamarmann Lúx-
emborgara og breytti um stefnu
og þaðan til Arnórs Guðjohnsen
sem skallaði í netið frá vinstra
markteigshorni á 43. mínútu.
1m Rody Langers komst
■ 1 upp að endamörkum
hægra meginn á 70. mínútu eftir
laglega sókn heimamanna. Hann
sendi boltann inn að marki ís-
lands og þar var Hlynur Birg-
isson fyrir því óláni að setja
knöttinn í eigið mark er hann
ætla bjarga.
Betra hár og
sterkari neglur
Torfl Geirmundsson Nýju hárstofunni, Laugavegi 45 segir: jm
„Ég hef selt og sjálfur notað Prof. Kervran's Original Silica töflur í mörg ár og fengið
margstaðfest áhrif þess á hár og neglur. Ef þú ert með húðvandamál, brothættar
neglur, fíngert og þurrt hár, er ííklegt að það sé af skorti á Silica.
Þá hafia raimsóknir sýnt að menn, sem verða sköllóttir hafa líiið magn af Silica í
húðinni. (Silica leysir samt ekki skallavandamál, heldur getur það hjálpað).
Vísindamenn hafa bent á, að Silica byggir upp slagæðakerfið
og að þeir, sem eiga ekki við nein hjartavandamái að stríða,
hafi allt að því 14 sinnum meira af Silica í slagæðum
heldur en þeir, sem eru hjartveikir. | 1|
Ég mæli eindregið með Prof. Kervrans Silica. I |
Það eykur ekki aðeins vöxt hárs og nagla, LbbbJ I l'CZl
heldur bætir það útlit húðarinnar og heilsu mannsins." Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966
Fœst á hárgreiðsliistofum,
í apótekum og heilsubúðum
leilsuhúsið
Hvað sögðu þeir?
Þessi leikur var mjög slakur hjá
okkur,“ sagði Eyjólfur Sverr-
isson. „í fyrri hálfleik vorum við af-
spyrnu lélegir. Við vorum búnir að
vera slakari áður en Þorvaldur var
rekinn útaf, en það kom upp barátta
eftir það. En það er alltaf erfitt að
vera einum færri og veijast. Við
unnum ekki boltann nógu oft á miðj-
unni til að sækja hratt. Þeir voru
reyndar mjög „passívir" í fyrri hálf-
ieik og voru þá yfirleitt með fímm
menn í vörn og það var erfitt að
komast í gegn.
Ég er á því að við hefðum unnið
leikinn ef Þorvaldur hefði ekki verið
rekinn útaf. Annars er ég mjög
óánægður með mig, ég var nánast á
hælunum allan leikinn. Einhvern
veginn komst ég aldrei inní spilið og
í takt við leikinn og var að hlaupa
vitlaust hvað eftir annað. Við náðum
mjög illa saman hveiju svo sem um
er að kenna. Ég held að við þurfum
að breyta hugarfarinu fyrir næsta
leik,_og fá meiri grimmd í leikmenn."
„Ég ætlaði að setja boltann í hom,
en því miður fór hann í netið," sagði
Hlynur Birgisson um sjálfsmarkið.
„Það var maður í bakinu á mér, ég
hélt mig geta sett boltann útaf. Þetta
var föst fyrirgjöf og gerðist því allt
mjög hratt og erfítt við þetta að eiga.
Leikurinn var slakur af okkar hálfu,
sérstaklega í fyrri hálfleik. Við tók-
um aðeins við okkur þegar Þorvaldur
var rekinn útaf, en það var ekki
nóg. Þeir voru yfir í allri baráttu og
tæklingum,“ sagði Hlynur.
„Þetta var mjög lélegt hjá okkur.
Það vantaði alla baráttu í liðið,
kannski hefur verið um ákveðið van-
mat að ræða. Við getum ekki leyft
okkur að vanmeta neinn andstæðing.
Við gerðum ekkert í fyrri hálfleik
af því sem Asgeir var búinn að leggja
upp. Þeir höfðu baráttuna umfram
okkur. Það er ljóst að við verðum
að taka okkur á fyrir næsta leik,“
sagði Rúnar Kristinsson, sem var
einn besti leikmaður íslands.
„Ég er mest undrandi á þessari
slöku frammistöðu okkar. Við erum
vanir að vinna flest nágvígi og bar-
áttan hefur oftast verið til staðar þó
við höfum ekki spilað besta fótbolta
í heimi. Það var ekkert spil, menn
voru að gera sér þetta of erfítt. Við
verðum að spila einfaldan fótbolta í
stað þess að vera að reyna of mikið
sjálfir. Það þarf miklu meiri frekju
í leik okkar. Þetta kennir okkur að
við þurfum að hafa jafnmikið fyrir
leikjum á móti Lúxemborg eins og
gegn öðrum liðum. Það er enginn
leikur auðveldur fyrir okkur," sagði
Arnór Guðjohnsen.
„Því miður varð þessi tímamóta-
leikur hjá mér að hálfgerðri mar-
tröð,“ sagði Guðni Bergsson, fýrirliði
sem lék 50. landsleik sinn. „Við ætl-
uðum okkur að vinna og það stefndi
í það því við vorum ákveðnir í að
taka okkur á í seinni hálfleik eftir
dapran fyrri hálfleik. En þá gerðist
þetta skrýtna atvik að dómarinn rak
Þorvald útaf fyrir að brosa til Arn-
órs, félaga síns. Við vorum óheppnir
að fá þetta mark á okkur. Við viður-
kennum það að við ætluðum að spila
betri leik og við verðum að bæta
okkur. Menn eru allir af vilja gerðir
en það vantaði einhvern neista hveiju
svo sem er um að kenna.“
Lúxemborg - Island 1:1
Municipal-leikvangurinn í Lúxemborg, 5.
riðill undankeppni HM í knattspyrnu,
fimmtudaginn 20. maí 1993.
Mark fslands: Arnór Guðjohnsen (43.).
Mark Lúxemborgar: Hlynur Birgisson -
sjálfsmark (70.).
Gult spjald: Þorvaldur Örlygsson (36.) fyr-
ir brot, Kristján Jónsson (40.) fyrir brot,
Arnar Grétarsson (59.) fyrir mótmæli.
Rautt spjald: Þorvaldur Örlygsson (59.).
Dómari: M. Monteiro Coroado frá Portúg-
al. Var mjög slakur og á bandi heimamanna.
Áhorfendur: 1.965.
Lið íslands: Birkir Kristinsson; Hlynur
Birgisson, Guðni Bergsson, Kristján Jóns-
son; Þorvaldur Örlygsson, Arnar Grétars-
son, Eyjólfur Sverrisson, Rúnar Kristinsson,
Haraldur Ingólfsson (Andri Marteinsson
85.); Arnór Guðjohnsen, Arnar Gunnlaugs-
son (Ólafur Þórðarson 61.).
Lið Lúxemborgar: John van Rijswijck;
Ralph Ferron, (Manuel Cardoni 67.), Thom-
as Wolf, Pierre Petry, Marc Birsens, Luc
Holtz, Guy Hellers, Jeff Saibene, Theo
Malget, Roby Ijangers, Joel Groff (Denis
Scuto 53.).