Morgunblaðið - 17.11.1994, Side 56
56 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiðar á myndir í Stjörnubíói
Verð kr. 39,90 mínútan.
Framlag íslands til
Óskarsverðlauna
1994.
Kr. 800 f. fullorðna.
Kr. 500 fyrir börn
yngri en 12 ára.
Sýnd kl. 5.
Sýnd kl. 6.45.
Sýnd kl. 11.
Bönnuð innan 16 ára.
FORSÝNING KL. 9. Bönnuð innan 12 ára.
ULFUR
otte f'UY* . ihree pe&tibítifit'*.
threesome
"m w mrnm mmm m*mm%
16500
Sími
ÞAÐ GÆTI
HENT ÞIG
Aðalhlutverk: Nicolas
Cage, Bridget Fonda,
Rosie Perez
og StanleyTucci.
Leikstjóri:
Andrew Bergman
(„The Freshman",
„Honeymoon InVegas").
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
A GXJ1L.T-FR.EB /VlATIVl.S V
A merrity eotneJy, nrtih xex on the hrnin. ’
105 áraí
fullu starfi
►NORÐMAÐURINN Emelank-
ton Aadnesen er 105 ára gamall
og enn í fullri vinnu. Hann stofn-
setti búð á Nærbo í Jæren árið
1915 og hefur rekið hana æ síð-
an. „105 ár eru virðulegur aldur,“
segir hann, dregur djúpt inn and-
ann og blæs vindlareyk út í loftið.
Kötturinn, sem hafði komið sér
hægindalega fyrir á búðarborð-
inu, hóstar og stekkur í burtu.
„Hann þolir ekki reyk. Hér inni
er það ég sem hef níu líf,“ segir
hann kotroskinn.
Emelankton giftist Helenu An-
iksdal árið 1913 og saman eignuð-
ust þau fimm börn. í dag er það
barnabarnið Emton jr. sem á búð-
ina, en Aadnesen annast daglegan
rekstur. Fyrir utan vinnuna er
sagnfræði aðaláhugamál Aadne-
sens og hann er heiðursfélagi
fornminjasafnsins í Stavanger.
Frumsýnd á morgun
MIIIIlllllll.........II....IIIIMMIIIIIII
Nýjar hljómplötur
Safn ólíkra laga
Ljósmynd/Michel Linssen
GUNNAR Bjarni Ragnarsson og Páll Rósinkrans í mikill keyrslu
á sviðinu í Melkweg í Amsterdam.
Rokksveitin Jet Black
Joe hefur ekki látið
mikið á sér kræla
síðustu mánuði, en
á mánudag kom út
með sveitinni þriðja
breiðskífa hennar.
Gimnar Bjarni Ragn-
arsson, gítarleikari
sveitarinnar, segir að
allar tónlistarstefnur
megi fínna á plötunni.
ROKKSVEITIN Jet Black
Joe sló rækilega í gegn
þegar hún sendi frá sér
fyrstu breiðskífuna fyrir tveimur
árum og plata hljómsveitarinnar
ver með söluhæstu plötum ársins.
Síðasta plata sveitarinnar seldist
ekki eins vel, þó gagnrýnendur
hafi valið hana sem eina af bestu
plötum ársins, og á síðasta ári lét
sveitin lítið á sér kræla. Skýring
á því er ekki síst sú að undirtekt-
ir við tónlist hljómsveitarinnar ytra
voru það góðar að hún hefur haft
í ýmsu að snúast við að kynna sig
ytra, veita viðtöl og fara í tónleika-
ferðir. Það aftraði þó sveitarmönn-
um ekki frá því að bregða sér í
hljóðver og taka upp breiðskífuna
Fuzz, sem kom út síðastliðinn
mánudag, en sveitin heldur út-
gáfutónleika í Tveimur vinum í
kvöld.
Reynt að gera eitthvað sem
aðrir hefðu ekki gert
Gunnar Bjarni Ragnarsson gít-
arleikari Jet Black Joe og helsti
lagasmiður sveitarinnar segir að
þeir félagar hafi farið í hljóðverið
með það eitt í huga að reyna að
gera eitthvað sem aðrir hefðu ekki
gert áður, „og hafa það skemmti-
legt“, eins og hann orðar það.
Hann segir þá félaga hafa haft
nokkur lög í farteskinu þegar upp-
tökur byrjuðu og svo nokkrar hug-
myndir sem átti eftir að æfa und-
ir upptökur. „Sum Iögin voru unn-
in þannig að við tókum upp grunn-
inn og skreyttum svo með öllum
hugsanlegum hljóðum og hlutum
sem okkur datt í hug. Það var
sérstaklega gott að vinna þessa
plötu, ekki síst fyrir það að það
var ekki á okkur nein tíma-
pressa,“ segir Gunnar, „en samt
sem áður vorum við mjög fljótir
að vinna plötuna; tókum hana upp
og hljóðblönduðum á mánuði. Við
erum náttúrlega orðnir sjóaðir í
stúdíóinu, fyrst þorði maður ekki
að gera enga vitleysu, en nú erum
við ófeimnari við að prófa nánast
allt og ef það passar er það látið
fara.“
Safn ólíkra laga
Gunnar segir að ólíkt síðustu
plötu þeirra félaga, You Ain’t
Here, sem var samhangandi í text-
um að mestu leyti sé Fuzz safn
ólíkra laga, enda hafi sveitin það
fyrir sið að ef hún sé með gott lag
sé það látið standa. „Ef það er til
lag og það er gott er það sett inn;
við pælum aldrei í því hvort það
falli að okkar músíkstefnu, því að
okkar músíkstefna hefur aldrei
verið á hreinu,“ segir Gunnar og
bætir við að í raun séu þetta mjög
einföld lög með einföldum hljóm-
um, þeir félagar séu hrifnastir af
grunnhljóðfærum rokksins og lítið
fyrir hljóðgervla, þó þeir eigi það
til að grípa til þeirra.
Eins og áður segir var síðasta
plata Jet Black Joe samhangandi
verk að nokkru og allar vangavelt-
ur heldur drungalegar. Að þessu
sinni er öllu léttara yfir textum
og Gunnar segir að þeir félagar
vilji helst kalla andann yfir plöt-
unni „aðgangsharða glaðværð“;
víða í textum séu þeir að draga
upp hálfgerðar skrípamyndir, til
að mynda í lögum eins og Motor
Maniac og Metal Maniac, og ekki
síst sé textinn í Animal dæmigerð-
ur bulltexti. „Það er líka mikill
húmor í tónlistinni," segir Gunnar,
og bætir að þeir félagar kunni því
afskaplega vel að spila þessi lög
á tónleikum, ekki síst fyrir þá sök
að þau gefi meira svigrúm í laga-
vali fyrir tónleika, þó allmörg
þeirra sé nokkuð þung. „Þetta er
langt frá því að vera þungarokk
og við viljum ekki fá þann stimpil
á okkur; þó við séum með sítt
hár,“ segir hann að lokum.