Morgunblaðið - 25.05.1996, Blaðsíða 2
2 -LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
[
MEIRIHLUTI sjávarútvegsnefndar Alþingis hefur lagt fram breyting-
artillögur við frumvarp um fiskveiðar utan efnahagslögsögu Islands. Er
í tillögunum m.a. gert ráð fyrir að lögfest verði heimild til að innheimta
af viðkomandi útgerðum kostnað vegna eftirlits með veiðum úthafsveiði-
skipa sem nemi 30 aurum á hvert aflakíló metið til þorskígilda.
Umdeild
reglugerð
úrgildi
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur
ákveðið að fella úr gildi reglugerð
um meðferð upplýsinga úr álagn-
ingarskrám og skattskrám, en þessi
reglugerð var gagnrýnd harðlega á
Alþingi og víðar í þjóðfélaginu.
Þess í stað verða beiðnir um út-
gáfu og úrvinnslu upplýsinga úr
skattskrám og virðisaukaskatt-
skrám afgreiddar að undangenginni
umsögn tölvunefndar hveiju sinni,
þar til skýrar lagareglur liggja fyr-
ir um þetta efni.
Reglugerðin, sem nú hefur verið
felld úr gildi, sagði fýrir um að öll
úrvinnsla upplýsinga úr álagningar-
og skattskrám væri óheimil, svo
sem umreikningur álagðra gjalda
yfír í tekjur eða veltuíjárhæð, sam-
anburður milli ára og framreikning-
ur til núvirðis með vísitölureikningi.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra óskaði álits tölvunefndar á
reglugerðinni og taldi nefndin
ákvæði hennar samræma vel reglur
skattalaga um aðgang að skránum
og reglur um friðhelgi einkalífs og
persónuvemd. Hins vegar væri ljóst
að í ljósi umræðna á undanfömum
vikum ríkti ekki fullkomin sátt um
málið og því væri afar þýðingarmik-
ið að löggjafarvaldið tæki af skarið
og setti skýrar reglur í þessum efn-
um.
í skýrslu, sem fjármálaráðherra
lagði fyrir Alþingi í gær, tekur hann
undir þessi sjónarmið og segir rétt
í því sambandi að skoðað verði
hvaða reglur gildi í nágrannalönd-
unum á þessu sviði.
Jafnframt segir hann að ráðu-
neytið hafi ákveðið að endurskoða
núgildandi reglur um álagningar-
og skattskrár samfara heildarend-
urskoðun sem fyrirhuguð er á lög-
um um tekjuskatt og eignarskatt.
í tillögunum er gert ráð fyrir að
veiðieftirlitsgjald vegna hvers ein-
staks skips verði greitt fyrirfram
við útgáfu tilkynningar um afla-
mark er kveði á um heimild til að
veiða tiltekið magn sjávardýra á
viðkomandi fiskveiðiári, vertíð eða
veiðitímabili, og skuli gjaldstofn
miðaður við úthlutað aflamark.
Miðað er við að gjaldið verði ekki
endurkræft þótt veiðiheimildir hafí
ekki verið nýttar.
Sé um að ræða veiðieftirlit á
grundvelli milliríkjasamninga þar
sem eftirlitsmenn þurfa að vera um
borð í einstökum skipum þurfa út-
gerðir að greiða 15 þúsund krónur
á hvern dag sem skipið stundar
veiðar, og greiðist þetta gjald árlega
eftir á. í nefndaráliti sem fylgir
breytingartillögunum kemur fram
að markmiðið með þessum breyt-
ingum sé að kostnaður útgerða
vegna veiðieftirlits verði sem mest
fyrirsjáanlegur.
„ÉG HEF svo sem enga töfra-
formúlu fyrir dúxa, en ég lærði
vel fyrir prófin. Ég tek tarnir
fyrir próf, fremur en að liggja
alltaf yfir bókunum og hef allt-
af verið með góðar einkunnir,“
segir dúxinn í Menntaskólanum
við Sund, Katrín Jakobsdóttir.
Katrín er með 9,70 í aðalein-
kunn, sem er hæsta einkunn
sem stúdent við MS hefur feng-
ið. Hún er ekki eini dúxinn í
fjölskyldunni, því bræður henn-
ar tveir, tvíburarnir Armann og
Sverrir, luku sínum stúdents-
prófum frá MS með láði fyrir
nokkrum árum. Ármann dúxaði
með 9,60 og Sverrir var annar
semidúxa.
Katrín vill ekki viðurkenna
að einkunnir í fjölskyldunni
hækki með hveiju barninu.
„Elsta systir okkar, Bergljót
Njóla, stóð sig líka alltaf mjög
vel. Það má þó vera að einkunn-
imar stígi lítillega, en ég þori
ekki að fullyrða að við systkinin
förum að öllu leyti batnandi
eftir því sem neðar dregur í
aldri,“ segir hún og skellir upp
úr.
Katrín segir að franska sé
eitt af uppáhaldsfögunum. „Ég
hef nú ekki alveg ákveðið hvað
ég ætla að fást við í framtíð-
inni, en núna segi ég öllum að
ég ætli að læra frönsku og rúss-
nesku, hvað sem síðar verður.
Ég byija líklega í Háskólanum
hér heima, en mig langar einnig
að fara til Frakklands."
Ólesin í leikfimipróf?
Lægsta einkunn Katrínar var
8 og þá einkunn fékk hún fyrir
frammistöðuna í leikfimi. „Ég
skil nú bara ekkert í þessu, því
mér fannst mjög gaman í leik-
fiminni, mætti alltaf, kennarinn
var frábær og ég fékk 9 í kenn-
araeinkunn," segir Katrín og
hlær dátt. „Ég hlýt að hafa far-
ið eitthvað óvarlega í prófinu,
enda velti ég því ekkert sérstak-
lega fyrir mér. Það er jú ekki
hægt að lesa fyrir leikfimipróf,
eða hvað?“
Morgunblaðið/Þorkell
KATRÍN Jakobsdóttir, dúx Menntaskólans við Sund, ásamt bræðrum sínum, Ármanni og Sverri,
sem tóku að sér að bera öll verðlaunin, sem hún fékk við skólaslitin.
Útgerðir greiði
veiðieftirlitsgjald
Breytingar á frumvarpi um úthafsveið-
ar gera ráð fyrir 30 aura gjaldi á kíló
Katrín Jakobsdóttir dúxaði í MS
með 9,70 í aðaleinkunn
Hef enga
töfraformúlu
Verðmæti úthafsafla
gæti orðið 8 milljarðar
VERÐMÆTI afla íslenzkra skipa af úthafsmið-
um gæti orðið um átta milljarðar króna, miðað
við að karfa- og sfldarkvóti íslands náist allur,
þorskveiðar í Smugunni verði svipaðar og í
fyrra og rækjuafli á Flæmska hattinum aukist
í samræmi við sóknina, að sögn Péturs Arnar
Sverrissonar, forstöðumanns Aflamiðlunar.
íslandi hefur verið úthlutað 45.000 tonna
karfakvóta á Reykjaneshrygg og er áætlað
aflaverðmæti rúmlega tveir milljarðar króna.
Þá er síldarkvóti íslands, samkvæmt samkomu-
lagi við önnur strandrfki, 190.000 tonn og afla-
verðmætið gæti orðið rúmlega milljarður.
í fyrra og hittifyrra veiddust um 34.000 tonn
í Smugunni í Barentshafi. Verði veiðin svipuð
á þessu ári getur aflaverðmætið orðið um 2,6
milljarðar. Rækjuveiðin á Flæmska hattinum
var um 7.600 tonn í fyrra. Sókn hefur nú mjög
aukizt í veiðamar og segir Pétur sízt of bjart-
Leiguverð kvótans
tæpur 1,5 milljarður
sýnt að gera ráð fyrir 13-14.000 tonna afla.
Verðmæti hans gæti orðið um 2,4 milljarðar.
Verðmæti úthafsafla 13% af
aflaverðmæti á heimamiðum
Samanlagt verðmæti úthafsafla hefur farið
hraðvaxandi frá árinu 1993. Það ár var afla-
verðmæti úr Smugunni, af Reykjaneshrygg og
Flæmingjagrunni rúmlega 2,2 milljarðar. Arið
eftir skiluðu úthafsveiðar um 4,9 milljörðum
króna. í fyrra var mikil veiði á fernum úthafs-
veiðimiðum og samanlagt aflaverðmæti um
6.570 milljónir króna. Það ár var verðmæti
úthafsafla komið í 13% af aflaverðmæti á
heimamiðum.
Mætti leigja úthafskvóta fyrir hálfan
annan milljarð
Á tvennum úthafsmiðum, Reykjaneshrygg
og í Síldarhafinu, veiða íslenzk skip nú sam-
kvæmt alþjóðlegum samningum, sem íslenzka
ríkið hefur gert um veiðiréttindi. Ætla má að
hægt væri að leigja kílóið af úthafskarfakvóta
á um 23 krónur, en leiguverð sfldarkvóta yrði
varla meira en tvær krónur fyrir kílóið, að
sögn viðmælenda Morgunblaðsins.
Þannig mætti leigja úthafskarfakvótann
fyrir 1,1 milljarð króna og síldarkvótann fyrir
380 milljónir, yrði slík ákvörðun tekin. Uthafs-
veiðiréttindin myndu þannig skila ríkissjóði
hátt í hálfum öðrum milljarði króna í leigutekj-
ur.
■ Úr engu í átta/32
Morgunblaðið/Ásdís
Á MYNDINNI sjást Jón Thors
og Áslaug Þórarinsdóttir lög-
fræðingur í dómsmálaráðu-
neytinu yfirfara gögn fram-
bjóðendanna.
Fimm til- i
kynningar I
um fram-
boð bárust
FIMM frambjóðendur til embættis
forseta íslands höfðu skilað tilskild-
um gögnum um framboð sin til dóms-
málaráðuneytisins í gær, en fram-
boðsfrestur rann út á miðnætti. Að
sögn Jóns Thors, skrifstofustjóra í
ráðuneytinu, skiluðu Guðrún Agn-
arsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson
og Pétur Kr. Hafstein tilkynningum
um framboð ásamt tilskildum með-
mælendalistum til ráðuneytisins í
fyrradag, og Guðrún Pétursdóttir og
Astþór Magnússon tilkynntu um
framboð sín og afhentu meðmæ-
lendalista í gær. \
Hálsbrotn- '
aði í sund-
lauginni
ÞRETTÁN ára gömul stúlka háls-
brotnaði er hún stakk sér til sunds
í sundlaugina á Egilsstöðum síðast-
liðið miðvikudagskvöld og höfuð
hennar skall í laugarbotninn. Að
sögn lögreglunnar á Egilsstöðum
brákuðust að auki tveir hálsliðir og
tveir hryggjarliðir í stúlkunni en hún
hefur þó fullan mátt.
Stúlkan var til Tannsóknar á
sjúkrahúsinu á Egilsstöðum aðfara-
nótt fímmtudagsins en þá um morg-
uninn var hún send með Flugleiðavél
á sjúkrahús í Reykjavík til frekari
rannsókna. Þar kom svo í ljós við
sneiðmyndatöku hve meiðsl hennar
voru alvarleg.
-------«-----------
Hannes
Hlífar efstur
HANNES Hlífar Stefánsson er einn
í efsta sæti á Skákþingi íslands með
þrjá vinninga eftir þrjár umferðir,
vinningi á undan næstu mönnum,
sem eru með 2 vinninga, en það eru
fjórir skákmenn.
Hannes Hlífar vann Jón Grétar
Viðarsson og Margeir Pétursson
vann Helga Áss Grétarsson. Jafn-
tefli gerðu Helgi Ólafsson og Jóhann
Hjartarson, Benedikt Jónasson og
Sævar Bjamason og Magnús Öm
Ulfarsson og Jón Viktor Gunnarsson.
■ Hannes/47
■» ♦ ♦------
Fyrirburi sóttur
til Grænlands
i
1IMM daga gamall fyrirburi var sótt-
ur til Scoresby-sunds á Grænlandi í
gærdag og fluttur á Landspítalann.
Drengurinn er tíu merkur og gat
ekki haldið næringu niðri, að sögn
Þórðar Þórkelssonar fyrirbura- og |
gjörgæslulæknis.
Drengurinn er ekki í lífshættu en
fær nú næringu í æð og verður kann-
að hvað amar að honum.