Morgunblaðið - 25.05.1996, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ESA hindr-
arekki
samning um
langbylgju-
sendi
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA,
ESA, hyggst ekki hindra það
að Ríkiskaup gangi til samn-
inga við bandaríska fyrirtækið
Harris um kaup á langbylgjus-
endum fyrir Ríkisútvarpið.
Málinu er þó ekki lokið af hálfu
stofnunarinnar.
Franska fyrirtækið Thomc-
ast, sem einnig lagði fram til-
boð, kærði framkvæmd út-
boðsins til ESA á þeirri for-
sendu að samkeppnisreglur
Evrópska efnahagssvæðisins
hefðu ekki verið virtar.
Andvirði samningsins við
Harris er um 300 milljónir
króna. Thomcast og banda-
ríska fyrirtækið Continental
lögðu einnig fram tilboð.
í bréfi ESA til fjármála-
ráðuneytisins segir að með til-
liti til staðreynda málsins og
þeirra hagsmuna, sem séu i
veði, sjái stofnunin ekki
ástæðu til að hindra það að
samningur náist. Hins vegar
sé ekki útilokað að frekari
rannsókn á málinu leiði í ljós
að reglum um opinber útboð
hafi ekki verið fylgt. ESA
boðar því annað bréf um út-
boðsreglur almennt. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur ESA einkum
hina tæknilegu hlið útboðsins
til skoðunar.
Thomcast hefur einnig kært
framkvæmd útboðsins til fjár-
málaráðuneytisins. Að sögn
Indriða Þorlákssonar, skrif-
stofustjóra í ráðuneytinu, er
málið þar til meðferðar.
Umræðu um frumvarp um opinbera starfsmenn lokið
Lokaatkvæðagreiðsla
um málið á þríðjudag
ÞRIÐJU og síðustu umræðu lauk á
Alþingi í gær um umdeilt frumvarp
um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins og er gert ráð fyrir at-
kvæðagreiðslu um málið á þriðju-
dag.
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar
hafa lagt fram nýja frávísunartil-
lögu við frumvarpið, en svipuð til-
laga var felld við aðra umræðu.
Segja þeir í tillögunni að samtök
launafólks leggist algerlega gegn
málinu og afgreiðsla þess muni
stórspilla andrúmsloftinu í aðdrag-
anda komandi kjarasamninga. Þá
sé málið enn langt frá því að vera
fullunnið og á því séu fjölmargir
tæknilegir og efnislegir ágallar.
Efnahags- og viðskiptanefnd
þingsins fjallaði um frumvarpið
milli annarrar og þriðju umræðu
um málið, og lagði fram breyting-
artillögur í 16 liðum. Var breyting-
unum m.a. ætlað að koma til móts
við athugasemdir sem lagðar voru
fyrir nefndina í vikunni frá þremur
lögmönnum og samtökum opin-
berra starfsmanna.
En einnig voru tillögur um breyt-
ingar vegna þess að fylgifrumvarp
um breytingar á sérákvæðum í lög-
um um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna, verður ekki flutt
á þessu þingi. Því var talið óhjá-
kvæmilegt að telja embættismenn
upp með tæmandi hætti í frumvarp-
inu nú.
Samkvæmt því verða embættis-
menn æðstu stjórnendur ríkiskerfís-
ins, forstjórar ríkisfyrirtækja, auk
presta, lögreglumanna og tollvarða.
Til greina kom að hafa háskólapró-
Opið hús - sýning - Austurströnd 6
2ja herb. íb. með stæði í bílgeymslu
Til sölu góð íbúð á hagstæðu verði.
Til sýnis laugardag og sunnudag milli kl. 14 og 16.
Bjalla 303. Upplýsingar í síma 561 1827.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALAf
Borgartúni 31,105 Rvík, s. 562 4250.
Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl.
Upplýsinge
Ú
5521150-5521370
LARUS Þ. VALDIMARSSDN, FRAMKVÆMDASl JORI
ÞDRDUR H. SI/EINSSUN HDL, LOGGILTUR FflSIEIGNASflLI
Nýjar eignir á söluskránni - margskonar skipti:
í lyftuhúsi við Æsufell
Sólrík og rúmg. 3ja-4ra herb. íb., 95,9 fm nettó, á 4. hæö. Mikið stofu-
rými. Sér þvottaaðstaða. Skipti æskileg á lítilli 2ja herb. íb. Verð að-
eins kr. 6,1 millj.
Ein bestu kaup á markaðinum í dag
Góð 3ja herb. íb., 84,4 fm, á 1. hæð við Leirubakka. Sér þvotta- og
vinnuherb. Gott herb. í kj. Snyrting í kj. Ágæt sameign. Langtímalán
kr. 3,7 millj. Verð aðeins kr. 6,1 millj.
Óvenju hagstæð greiðslukjör
Sólrík 2ja herb. íb. við Rofabæ. Langtímalán kr. 3,0 millj. Verð kr. 4,9
millj. Tilboð óskast.
Góð 2ja herb. íbúð óskast
í lyftuhúsi við Sólheima, fleira kemur til greina. Skiptamöguleiki á
mjög rúmg. 4ra herb. íb. í lyftuh. m. fráb. útsýni og stórum bílskúr.
Á póstsvæði 108 eða 103
Góð 3ja-4ra herb. íb. óskast á 1. eða 2. hæð eða í lyftuhúsi. Rétt eign
staðgreidd. Ennfremur möguleg skipti á úrvals góðu sérbýlí á einum
vinsælasta stað borgarinnar. Nánari uppl. aðeins á skrifst.
• • •
Opið ídag kl. 10-14.
Góð 3ja herb. íb.
óskast á 1. hæð í
Laugarneshverfi/Álftamýri.
ALMENNA
FASTEIGNASALAM
LIU6IVE6IIIS. 5SZ 1150 552 1376
fessora á þessum lista en var horf-
ið frá því, m.a. vegna þess að sett
hefur verið á stofn nefnd á vegum
HÍ sem er ætlað að samræma við-
horf háskólans og háskólakennara
til þess hvort prófessorar eigi fram-
vegis að vera embættismenn.
Prestar æviráðnir?
Frumvarpið gerir ráð fyrir því
að æviráðning embættismanna
verði afnumin og þeir ráðnir til 5
ára í senn. Einar Oddur Kristjáns-
son talsmaður meirihluta efnahags-
og viðskiptanefndar sagði að í þessu
ljósi gæti staða presta og prófasta
orkað mjög tvímælis og nefndin
hefði velt því fyrir sér hvort rétt
væri að hafa þá í hópi embættis-
manna. Hins vegar væri í vinnslu
frumvarp um stjórn og starfshætti
kirkjunnar og eðlilegt væri að sér-
ákvæði um presta og ráðningu
þeirra væru í þeim lögum.
Ráðgert er að hæstaréttardómar-
ar, héraðsdómarar og ríkissaksókn-
ari verði eftir sem áður æviráðnir.
Meirihluti efnahags- og viðskipta-
nefndar leggur til bráðabirgða-
ákvæði um þessa skipan mála þar
til sérákvæðum um þessa embættis-
menn í öðrum lögum hefur verið
breytt.
„Stuðla að“ fellt út
Nefndarmeirihlutinn lagði einnig
til að breyta ákvæði um að embætt-
ismönnum sé óheimilt að efna til,
stuðla að eða taka þátt í verkfalli.
Lögmenn, sem fjölluðu um frum-
varpið, töldu að orðalagið „stuðla
að“ væri það rúmt, að það leiddi
Morgunblaðið/Kristinn
Fylgst með vinnuvélum
LÖGREGLUMENN á Suðvestur-
landi eru þessa dagana að huga
sérstaklega að búnaði og ástandi
vinnu- og dráttarvéla ásamt
starfsmönnum Vinnueftirlits rík-
isins. Þar á meðal er fylgst með
því hvort ökumenn slíkra tækja
hafi þau réttindi sem krafist er
og að þeir virði gildandi tak-
markanir á umferð vinnuvéla um
helstu umferðargötur þéttbýlis-
staða á höfuðborgarsvæðinu.
Myndin var tekin þegar lög-
regla og vinnueftirlit könnuðu
réttindi vinnuvélstjóra og ástand
tækis hans í Reykjavík.
til of mikillar takmörkunar á tján-
ingarfrelsi embættismanna, og
leggur nefndin til að þessi orð verði
felld úr frumvarpinu.
Þá var lagt til að á biðlaunatíma
haldi embættismaður ekki aðeins
föstum launum fyrir dagvinnu held-
ur einnig öðrum launakjörum sem
fylgt hafa embættinu. I nokkrum
fleiri atriðum eru réttindi launþega
aukin nokkuð.
Einnig var lagt til að fellt verði
brott ákvæði um að ríkisstarfs-
menn, sem kjósi að standa utan
stéttarfélaga, njóti sömu launa og
launakjara og samið hefur verið um
í kjarasamningum um sambærileg
störf. Segir nefndarmeirihlutinn að
ákvæði svipaðs efnis sé að finna í
lögum um kjarasamninga opinberra
starfsmanna.
Ólafur
Raguar með
mest fylgi
ÓLAFUR Ragnar Grímsson fær
mest fylgi í skoðanakönnun Fijálsr-
ar verslunar sem gerð var 22. og
23. maí. Samkvæmt könnuninni
velur 51% Óiaf Ragnar sem forseta
nú. í síðustu könnun Fijálsrar versl-
unar, sem gerð var fyrir mánuði,
hlaut Ólafur Ragnar 67% fylgi.
Miðað er við þá sem afstöðu tóku.
Úrtakið var 350 manns, minna
en í síðustu könnun, og eykur það
óvissu um 1%. Óvissum hefur fjölg-
að í 34% úr 25%.
Pétur Kr. Hafstein fær 17% fylgi,
Guðrún Pétursdóttir 16% og Guðrún
Agnarsdóttir 13%. Fylgi við Guð-
mund Rafn Geirdal mælist 1% og
2% við Ástþór Magnússon.
Þá var spurt hver frambjóðenda
væri næstbesti kosturinn og mæld-
ist fylgi Guðrúnar Pétursdóttur þá
20%, en Guðrúnar Agnarsdóttur
13%, ef miðað er við þá sem tóku
afstöðu. Fylgi Péturs Kr. Hafstein
mældist 11%.
Ibúðir fyrir fólk 60 ára og eldra
Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi
Íbúðirnar verða til sýnis kl. 13 til 16
laugardaginn 25. maí
íbúðirnar eru afhentar fullfrágengnar með
parketi á gólfum.
Innibílastæðj.
Nýjungar í öryggismálum.
Stutt í verslanir t.d. Hagkaup og Bónus.
Þjónustusalur sem Seltjarnarneskaup-
staður á.
Allar frekari upplýsingar gef-
ur Ágúst ísfeld í byggjnga-
deild Félags eldri borgara,
Borgartúni 31, sími 562 1477
milli kl. 9 og 12 og 1 heima-
síma 567 1454.
6
Byggingafélag
Gylfa og Gunnars
F-E-B
Félag eldri borgara