Morgunblaðið - 25.05.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996 11
___________________ÞING ALÞÝÐUSAMBAIMPS ÍSLANDS__________________
Eldfimt ástand á þingi Alþýðusambands íslands í gærmorgun vegna kosningaátaka
Útganga og
klofningxir
vofði yfir
Gífurleg spenna var við upphaf þingstarfa
á ASÍ-þingi í gærmorgun vegna deilna um
kosningu til sambandsstjómar kvöldið áður,
þegar tæplega 70% fulltrúa skiluðu auðu. í
frásögn Ómars Friðríkssonar kemur fram
að þinghaldið lamaðist um tíma og fulltrúar
*
Dagsbrúnar og fleiri VMSI-félaga voru
reiðubúnir að ganga á dyr.
MARGIR forystumenn töldu klofn-
ing ASÍ yfirvofandi og var ástandið
eldfimt. Þingfulltrúar skiptust í
fylkingar, sem réðu ráðum sínum
hver í sínu lagi. Á seinustu stundu
náðist málamiðlun og féllust versl-
unarmenn á að kosningin teldist
gild þótt þeir fengju hvorki aðal-
né varamenn í sambandsstjórn.
Sættirnar héldu til loka þingsins
síðdegis.
Teljast auð atkvæði
greidd atkvæði?
Flestir voru þeirrar skoðunar á
fimmtudagskvöld að endurtaka
þyrfti kosningu til sambandsstjórn-
ar þar sem um 70% fulltrúa skiluðu
auðu í kosningu um 18 fulltrúa í
sambandsstjórn. Mjög skiptar skoð-
anir voru um það á þinginu hvort
túlka bæri að tæplega 70% skiluðu
auðu, sem eindreginn stuðning við
viðhorf verslunarmanna. Magnús
L. Sveinsson, formaður VR, lýsti
þvi yfir að markvisst hefði verið
unnið að því að fella verslunarmenn
í kosningum á þinginu. Það sem
fyllti mælinn hjá verslunarmönnum
var, að Valur M. Valtýsson, fulltrúi
VR, féll í kosningu sem varamaður
í miðstjórn fyrir Signý Jóhannes-
dóttur, formanni Vöku á Siglufirði.
í lögum ASÍ er skýrt kveðið á
um að enginn sé löglega kosinn í
sambandsstjórn, nema hann fái
a.m.k. helming greiddra atkvæða.
í þingsköpum segir hins vegar að
auðir atkvæðaseðlar teljist ekki til
greiddra. Forystumenn, starfs-
menn og lögfræðingar lögðust yfir
málið fram eftir nóttu en engin
niðurstaða lá fyrir þegar hefja átti
þingstörf í gærmorgun. Mikil
spenna ríkti í þingsal og skiptist
þingið í fylkingar. Fulltrúar
margra Verkamannasambandsfé-
laga voru reiðubúnir að ganga á
dyr.
Halldór Björnsson, formaður
Dagsbrúnar, krafðist þess þegar
hefja átti þingstörf kl. 9 að úrskurð-
að yrði hvort atkvæðagreiðslan
væri gild. Hélt hann því fram að
það hefðu verið samanteknin ráð
að ógilda atkvæðagreiðsluna. Jón
Karlsson þingforseti sagði að úr-
skurður lægi ekki fyrir. „Við stönd-
um frammi fyrir miklum vandamál-
um og nú þarf að lægja þær öldur
sem hér hafa risið,“ sagði hann.
Sigurður T. Sigurðsson, formaður
Hlífar, sagðist víta vinnubrögðin og
gagnrýndi harðlega að fréttir hefðu
birst í Morgunblaðinu um niðurstöð-
una áður en hún væri kynnt þing-
fulltrúum.
VMSÍ boðaðtil
skyndifundar
Var þinghaldið nú komið í mikið
uppnám. Björn _ Grétar Sveinsson,
formaður VMSÍ, boðaði í skyndi
alla sína fulltrúa inn á fund í mat-
sal og fulltrúar verslunarmanna
funduðu fyrir luktum dyrum. Full-
trúar minni sambanda og félaga
báru saman bækur sínar um hvað
gera skyldi.
’ Grétar Þorsteinsson, formaður
ASÍ, og fleiri forystumenn fóru á
milli manna og reyndu að ná sam-
komulagi og var boðum komið á
milli herbergja. Skv. heimildum
minum voru einnig þau sjónarmið
uppi meðal iðnaðarmanna og versl-
unarmanna að ganga af þingi en
niðurstaðan varð hins vegar sú að
verslunarmenn féllust á að kosn-
ingin teldist gild, þótt það þýddi
að þeir fengju enga fulltrúa í sam-
bandsstjórn. Þessum boðum var
komið til forystu VMSÍ og virtust
þá sættir geta náðst, „á elleftu
Morgunblaðið/Þorkell
BJÖRN Grétar Sveinsson boðaði í skyndi alla fulltrúa VMSÍ á lokaðan fund til að Ieggja á ráðin
á tiunda tímanum í gærmorgun. Öll þingstörf lágu niðri vegna ágreinings um
kosningar til sambandsstjórnar.
þessa hluti og honum fylgdi fjöldi
fulltrúa af einhveijum ástæðum,"
sagði Halldór Björnsson, formaður
Dagsbrúnar um atburðarásina.
Hann sagði að síðan hefði komið í
ljós að kosningarnar voru gildar og
verslunarmenn hefðu fallist á það.
„Ég, sem var kannski upphafsmað-
ur að uppþotinu í morgun, taldi
ekki ástæðu til að flytja þá ræðu
sem ég ætlaði að flytja hér þegar
málin þróuðust svona. Eg sá ekki
tilgang í að skapa óeiningu. Ég
átti sjálfur þátt í að sameina þessi
öfl hér í upphafi og vil gjarnan að
það haldist. Ég tel að þetta hafi
verið skólabókardæmi sem menn
verði að reyna að læra af. Við vor-
um ákveðnir í að ganga út og ég
tel að Verkamannasambandið hefði
allt farið með. Það hefði ekki bara
þýtt klofning sambandsins, það
hefði lamast,“ sagði Halldór. Hann
sagði að ekki yrðu eftirmál vegna
málsins af sinni hálfu.
Skipst á félagafánum í
friðarskyni
Samkomulag hélst milli fylkinga
það sem eftir lifði þingstarfa og
undir lok þingsins mátti sjá fulltrúa
VR og Dagsbrúnar skiptast á fé-
lagsfánum, sem menn túlkuðu sem
tákn um frið og sættir.
„Á þessu þingi hefur verið tekist
á um menn og málefni, reyndar á
stundum svo að hrikt hefur í. Það
er ekkert eðlilegra í fjöldahreyf-
ingu eins og Alþýðusambandinu
að tekist sé á,“ sagði Grétar Þor-
steinsson í þingslitaræðu sirini á
fimmta tímanum í gær. „Það er
min skoðun og vonandi okkar allra
að þingið hafi leitt í ljós að við
höfum þrek og burði til að takast
á við erfiðan ágreining og leysa
hann. Ég leyfi mér að líta svo á
að við séum sterkari á eftir, þó
mér sé fullljóst að við eigum okkar
heimavinnu fyrir höndum,“ sagði
Grétar.
Morgunblaðið/Halldór
SÆTTIR hafa náðst á elleftu stundu og Jón Karlsson þingfor-
seti (fyrir miðju) býr sig undir að kveða upp
úrskurð um lögmæti kosninganna.
stundu,“ eins og einn af helstu
fprystumönnum ASÍ orðaði það.
Þingfulltrúar söfnuðust aftur
saman í þingsal og úrskurðaði þing-
forseti að kosningin væri gild með
vísan til þingskapa. Sagði hann að
þessir atburðir hefðu sett ASI í
hættu en hvatti þingfulltrúa til að
taka nú höndum saman, þrátt fyrir
að þung orð hefðu fallið í hita leiks-
ins. Var niðurstaða kosninganna
þvínæst kynnt og tillögur kjör-
nefndar um varamenn í sambands-
stjórn samþykkt með lófataki.
„Skýr skilaboð til
minnihlutans"
„Okkar sjónarmið urðu í raun
ofan á. Það voru auðvitað skýr
skilaboð, sem minnihluti þingsins
fékk, þegar 70% þingfulltrúa skil-
uðu auðu. Þau skilaboð, þar sem
vinnubrögðum þingsins er mót-
mælt, standa áfram, hvernig sem
úrslit kosninganna eru metin. Það
er aðalatriðið. Þingsköpin eru þann-
ig, að kosningarnar teljast gildar
og það verða menn að sætta sig
við, enda hafa þeir sjálfir samþykkt
þingsköpin. En meirihlutinn hefur
komið skoðun sinni á vinnubrögðum
minnihlutans á framfæri," sagði
Magnús L. Sveinsson, í samtali við
Morgunblaðið.
„Eg lít á þetta sem fyrir fram
ákveðið skemmdarverk, tilraun til
að eyðileggja atkvæðagreiðsluna.
Formaður VR hafði forgöngu um
Stefna ASÍ í launamálum samþykkt á þingi sambandsins
Beinar taxtahækk-
anir höfuðmarkmið
í LAUNASTEFNU Alþýðusam-
bandsins sem_ samþykkt var undir
lok þings ASÍ í gær segir m.a. að
verkalýðshreyfingin geri kröfu til
þess að höfuðmarkmiðið verði að
rétta hlut almenns launafólks með
beinum hækkunum á launatöxtum.
Tillögu miðstjórnar sem lögð var
fyrir þingið var breytt í ýmsum atrið-
um.
í tillögu miðstjórnar var lagt til
að launastefna næstu ára byggðist
á áætlun um að ná kaupmætti ná-
grannaþjóðanna á fimm árum. Þessu
var breytt á ASÍ-þinginu og engin
tímamörk sett í þeirri tillögu sem
samþykkt var á þinginu. „ASI telur
að með skipulagsbreytingum í upp-
byggingu atvinnulífsins megi skapa
mikið svigrúm til bættra kjara án
þess að það hafi áhrif á verðiagið.
ASÍ leggur megináherslu á heil-
steypta atvinnustefnu þar sem rækt
er lögð við aukna verðmætasköpun
með meiri menntun og starfsþjálf-
un,“ segír í endanlegri samþykkt
þingsins.
Talsverðar deilur urðu um kjara-
málaályktunina við umræður í gær.
Að tillögu nokkurra Dagsbrúnar-
manna var eftirfarandi setning um
launamál felld út: „ASÍ telur að með
styttingu vinnutíma megi skapa
raunhæfar forsendur fyrir hækkun
grunnlauna því afköst og framleiðni
muni aukast samhliða og gæði fram-
leiðslunnar fara vaxandi." I hennar
stað var samþykkt að setja fram þá
kröfu, að tillögu Dagsbrúnarmanna,
að dagvinnulaun nægi til framfærslu.
í launastefnunni segir einnig að
mikilvægt sé að samningsaðilar á
vinnumarkaði geri með sér ramma-
samning um skipulagsreglur með
það að meginmarkmiði að skapa
formiegt og raunhæft svigrúm til
sérkjaraviðræðna og vinnustaða-
samninga.
Á þinginu var einnig samþykkt
að beina því til aðildarfélaga að
framvegis verði þess gætt að við
frágang kjarasamninga sé tryggt,
að með gerð kjarasamninga sé
vinnudeilu þeirri sem samningum er
ætlað að binda enda á, endanlega
lokið. „í þessu felst að aðilar skuld-
bindi sig til að standa ekki að dóms-
málum hvor á hendur öðrum um
deilumál sem upp kunna að hafa
komið í þeirri vinnudeilu sem ljúka
á með undirskrift kjarasamnings-
ins,“ segir í ályktuninni.
Fram kom við umræður að tilefni
þessarar tillögu var nýleg breyting
sem gerð var á lögum VSI um að
óheimilt sé fyrir þá sem aðild eiga
að VSÍ að falla frá rétti til að bera
ágreiningsmál vegna vinnudeilna
undir dómstóla.