Morgunblaðið - 25.05.1996, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
LM
BEKKJARMYNDI N
A Iþjóáastjórnmél
menningarinnar má nefna að árið
sem ég var í nemendamótsnefnd tók
kórinn fyrir lög úr Hárinu. I þeirri
uppfærslu gegndi ég hlutverki
ljósameistara.“
HIN alræmda ritnefnd Viljans, sem gerði allt vitlaust með fyrsta
tölublaðinu. Steingrímur Þormóðsson, Björn Valdimarsson, Guðlaugur
Guðmundsson, Jóhann Páll Valdimarsson ritstjóri, Albert Jónsson.
ALBERT Jónsson gluggar í bók fjórða bekkjar í Versló frá skólaárinu 1970 til 1971.
vel úr hendi. „Sögukennsla var með
miklum ágætum og efldi áhuga
minn á sagnfræði. Einnig eru mér
minnisstæðir nafnarnir Gísli As-
mundsson þýskukennari og Gísli
Guðmundsson, sem kenndi vöru-
fræði, vegna sérstæðs persónuleika
beggja þótt gjörólíkir væru.“
Hippamenningin
Þegar Albert var í Verslunar-
skólanum var hippamenningin að
ryðja sér til rúms og segir hann að
það hafi vissulega haft áhrif á lífs-
skoðanir og tísku Verslunarskóla-
nema sem og annarra ungmenna á
þeim árum. „Samt held ég að við
höfum verið seinteknari en flestir
aðrir jafnaldrar okkar hvað þetta
varðar," segir hann.
„Ég man þó eftir því að það varð
allt vitlaust þegar fyrsta tölublað
Viljans, undir stjórn þeirrar rit-
nefndar sem ég sat í, kom út. Blaðið
þótti verulega „fríkað“ bæði hvað
varðaði útlit og efnistök. Það varð
talsvert uppistand út af þessu og
Mánudagsblaðið tók málið fyrir
undir fyrirsögninni „Stóðlífí og has-
sreykingar grassera í Verslunar-
skólanum".
Sem annað dæmi um áhrif hippa-
Að loknu stúdentsprófi 1973
kenndi Albert um skeið ensku og
landafræði í Alftamýrarskóla, en hóf
síðan nám í sagnfræði og stjórn-
málafræði við Háskóla Islands og
lauk þaðan BA-prófí. Leiðin lá síðan
til Englands þar sem hann lauk
mastersgráðu í alþjóðastjórnmálum
frá „The London School of Econo-
mics and Political Science“ árið
1979. Hann stundaði síðan frekara
nám og rannsóknir í alþjóðastjórn-
málum í London næstu tvö árin.
„Þegar ég kom heim
1981 fór ég að vinna við
rannsóknir og útgáfu hjá
öryggismálanefnd, sem
þá var nýstofnuð og auk
þess fór ég að kenna
alþjóðastjórnmál í
stundakennslu við há-
skólann og geri enn. Ég
var einmitt að sækja
áðan 57 próf sem ég þarf
að fara yfir á næstu
dögum og verð að taka
mér frí frá vinnu til að
ljúka því í tæka tíð. Auk
þess er ég að vinna með
einum nemanda í BA-rit-
gerð.“
Albert var um skeið
fréttamaður á ríkisút-
varpinu og síðar Sjón-
varpinu, en var síðan
ráðinn framkvæmda-
stjóri öryggismálanefnd-
ar. „Þegar nefndin var
lögð niður ákvað for-
sætisráðherra, Davíð
Oddson, að ráða utanrík-
ismálaráðgjafa við ráðuneytið og
tók ég við því starfí í ársbyrjun
1992,“ segir hann um tildrög þess að
hann tók við núverandi starfí sínu í
forsætisráðuneytinu.
16 ára áhugamái
Aðspurður um tómstundir og
áhugamál kveðst Albert hafa haft
eitt áhugamál um langt skeið, sem
hafí yfirskyggt öll önnur, og hann
verður sposkur á svip þegar hann
afhjúpar leyndarmálið:
„Mitt „hobbý“ undanfarin 16 ár er
doktorsritgerð, sem ég hef verið að
vinna að síðan ég lauk námi í
ÞEGAR ég lít
til baka, til
námsáranna
í Versló, koma
aðeins skemmtilegar
minningar upp í
hugann. Hafi ég átt
þar daprar stundir
eru þær gleymdar,"
segir Albert Jónsson
þegar hann skoðar
gömlu bekkjarmynd-
ina af 4. bekk A frá
1970 til 1971. „Það
má orða það svo að
mér hafí sjaldan
leiðst í skólanum.
Félagslíf var með
miklum blóma og
það styrkti sam-
heldnina í árgang-
inum. Við þurftum í
rauninni lítið að
sækja út fyrir skól-
ann hvað varðar
uppfyllingu félags-
legra þarfa. í Versló var bæði mikið
skemmtanalíf ogfjölskrúðug félags-
málastarfsemi. Ég starfaði meðal
annars í ritnefnd Viljans og Nem-
endamótsnefnd og hafði bæði gam-
an og gagn af,“ segir Albert
ennfremur.
„Við strákamir í bekknum héld-
um nokkuð vel saman í skemmt-
analífínu og brugðum okkur oft á
dansleiki utan skólans, til dæmis í
Glaumbæ, þar sem við þurftum
stundum að beita brögðum til að
komast inn þar sem við vorum undir
lögaldri. Við höfðum til umráða
gamalt og velkt nafnskírteini ein-
hvers manns úti í bæ og þegar sá
Fyrir réttum 25
árum sat Albert
Jónsson, deild-
arstjóri í forsætis-
ráðuneytinu, í
fjórða bekk A í
Verslunarskóla
Islands. Hann
kveðst eiga ljúfar
minningar frá nám-
sárum sínum í
skólanum og segir
námið hafa að
mörffli leyti reynst
hagnýtt.
fyrsti var kominn inn
út á skírteinið, fór
hann upp á loft og
kastaði því út til hins
næsta og þannig
komumst við stund-
um fimm eða sex inn
á skírteinið."
Hagngtt
nám
„Námið í skól-
anum hefur að
mörgu leyti reynst
hagnýtt. Ég hef til
dæmis oft þakkað
mínum sæla fyrir að
hafa lært vélritun,
þótt mér hafi leiðst
það fag ákaflega
mikið í skólanum. Eg
hafði heldur ekki
sérlega mikinn
áhuga á hagfræði og
bókfærslu, kennslan
í þessum fögum hefur þó borið þann
árangur að maður þekkir helstu
grundvallarhugtök þessara færði-
greina og það hefur komið sér vel.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
sögu, íslensku og bókmenntum og
íslenskukennslan í Verslunar-
skólanum var mjög góð að mínu
mati. Einkum stóðum við framar-
lega í íslenskum nútímabókmennt-
um og skákuðum oft mennt-
skælingum á því sviði ef ég man
rétt.“
Albert kvaðst ekki vilja gera upp
á milli kennaranna í Verslunar-
skólanum. Kennaraliðið hefði allt
verið sómafólk og farist kennslan
Hvað er geðhvarfasýki ?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR FJALLAR UM FURÐUR SÁLARLÍFSINS
Spurning: í kjölfar pistils um
sorg og þunglyndi fyrir hálfum
mánuði óskaði lesandi eftir að
fjallað yrði um geðhvarfasýki.
Svar: Þunglyndi hefur verið
flokkað annars vegar í útlægt
þunglyndi, þar sem orsakanna er
einkum að leita í sálrænum þátt-
um og áhrifúm frá umhverfinu, og
hins vegar í innlægt þunglyndi,
þar sem orsakimar eru af arf-
gengum og líkamlegum toga. Hið
síðamefnda þunglyndi telst til
alvarlegri geðsjúkdóma og hefur
verið nefnt geðhvarfasýki (manio-
depressive psychosis), en hið
fyrmefnda flokkast með hugsýki
(neuroses). Skilin á milli þessara
tveggja flokka eru þó óljós, auk
þess sem þunglyndi getur verið
eitt af megineinkennum annarra
geðsjúkdóma. Þunglyndi er nú
fremur flokkað eftir því hvort það
birtist eingöngu sem þunglyndi án
tillits til þess hversu einkennin
eru alvarleg, og nefnist þá ein-
hverflyndi, eða hvort það kemur
fram í sama einstaklingi sem
sveiflur á milli þunglyndis og
örlyndis, og nefriist þá tvíhverf-
lyndi.
Ég kýs hér að halda mig við
hina eldri og hefðbundu skil-
greiningu og líta á geðhvarfasýki
eingöngu sem meiri háttar geð-
sjúkdóm eða geðveiki (psychosis),
þunglyndi sem getur hvort heldur
sem er verið einhverft eða, með
örlyndi, tvíhverft.
Einkenni þunglyndis eru m.a.
neikvæðar hugsanir, sektarkennd
og sjálfsásakanir, lágt sjálfsmat,
jafnvel sjálfsvígshugmyndir. I
alvarlegu þunglyndi geta auk
djúpstæðra þunglyndiseinkenna
einnig komið fram einkenni sem
heyra til geðveiki, rofín tengsl við
raunveruleikann, ranghugmyndir
og ofskynjanir. Oft er erfitt að
greina á þessu stigi hvort um geð-
klofa eða geðhvarfasýki er að
ræða og ræðst það af framvindu
sjúkdómsins eftir fyrstu meðferð.
Þegar geðhvarfasjúklingurinn er
kominn út úr bráðaástandi sínu
kemst hann venjulega í eðlileg
raunveruleikatengsl og einkum
sýnir hann eðlileg tilfinninga-
tengsl við aðra, þar sem geðklofa-
sjúklingurinn býr fremur enn yfir
sínum ranghugmyndum og tengsl
hans við aðra eru skert. Batahorf-
ur einstaklings með geðhvarfa-
sýki eru að jafnaði mun betri en
geðklofasjúklings og hann getur
náð fullri heilsu á tiltölulega
skömmum tíma og verið laus við
sjúkdómseinkennin í ár eða ára-
tugi. Alltaf er þó hætta á að sjúk-
dómurinn taki sig upp og er mikil-
vægt að vel sé fylgst með honum
og haft eftirlit með lyfjagjöf.
Þegar um tvíhverfa geðhvarfa-
sýki er að ræða getur sjúkdóm-
urinn byrjað hvort heldur sem er
með þunglyndi eða örlyndi. Þegar
sjúklingurinn verður örlyndur
(manískur) byrjar það oft með
ofvirkni og athafnasemi. Hann
getur ekki sofið, hugsunin fer á
flug og hann er fljótur að taka
ákvarðanir. Hann fer kannski að
taka íbúðina í gegn, þrífa og þvo
eða henda öllu út úr geymslunum.
Hann þarf að vera mikið á ferð-
inni, tala við marga, er hávær og
jafnvel ofsakátur. Oft fylgir þessu
ruglingsleg hugsun og ranghug-
myndir. Eftir nokkum tíma er
hann útkeyrður. í kjölíárið fylgir
síðan gjarnan djúpt þunglyndi
með fyrrgreindum einkennum.
Sumir vilja líta svo á að örlyndið
sé nokkurs konar vörn gegn
þunglyndi, andhverfing á því, og
við sálfræðilegar prófanir á sjúk-
lingum í örlyndisástandi kemur
þunglyndið oft skýrt fram undir
niðri. Hins vegar eru flestir þeirr-
ar skoðunar að orsaka geðhvarfa-
sýki sé að leita í líkamlegu ójafn-
vægi og að arfbundnir þættir leiki
þar stórt hlutverk. Oft hefur ver-
ið deilt um það hvort geðsjúk-
dómar séu arfgengir eða orsakist
af uppeldi og umhverfisáhrifum.
Vísast á hvort tveggja sinn þátt í
meira eða minna mæli, en rann-
sóknir hafa sýnt að í geðhvarfa-
sýki er erfðaþátturinn mjög áber-
andi, meira en í öðrum geðsjúk-
dómum.
Meðferð við geðhvarfasýki er
fyrst og fremst í höndum lækna
og þá aðallega lyfjameðferð. Fyr-
ir nokkrum áratugum var ekki
margra kosta völ í þeim efnum.
Dr. Helgi Tómasson yfirlæknir á
Kleppsspítala leit svo á að geð-
hvarfasýki stafaði af röskun á
efnajafnvægi í líkamanum og
gerði merkar rannsóknir á
árunum fyrir seinna stríð á blóð-
söltum hjá geðhvarfasjúklingum.
Síðar kom í ljós að frumefnið
lithium, sem er náskylt matar-
salti, var mjög áhrifaríkt í að
koma á jafnvægi og draga úr
sveiflum, hvort heldur til þung-
lyndis eða örlyndis. Segja má að
þetta hafi valdið straumhvörfum í
fyrirbyggjandi meðferð á geð-
hvarfasýki. Stöðugar framfarir
hafa verið í gerð þunglyndislyfja
og hefur árangur af lækningum
með þeim stöðugt farið batnandi.
Oðrum tegundum meðferðar hef-
ur einnig verið beitt við geð-
hvarfasýki. Við þrálátu þunglyndi
hefur töluvert verið beitt raflost-
meðferð, oft með góðum árangri,
en þessi meðferð hefur verið
umdeild, þar sem hætta er á
minnistruflunum. Við vægara
þunglyndi er sálfræðilegri við-
talsmeðferð oft beitt og hún getur
einnig átt rétt á sér í meiri háttar
þunglyndi eða geðhvarfasýki
samhliða annarri læknisfræði-
legri meðferð.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
sálfræðinginn uni það sem þeim liggur
á hjarta, tekið er á nióti spumingum á
virkuni dögum milli klukkan 10 og 17 í
sínm 569 1100 og bréfum eða símbróf-
um merkt: Vikulok, Fax 5691222.