Morgunblaðið - 25.05.1996, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF • FORSETAKJÖR
Til stuðnings Ólafi
Ragnari og Guðrúnu
Þorbergsdóttur
Frá Ólafi Sverríssyni:
NÚ ÞEGAR nær dregur forseta-
kosningum, verður mér eins og
sjálfsagt flestum öðrum íslending-
um, hugsað til þess, hversu vand-
fyllt embætti forsetans er, eftir
veru frú Vigdísar Finnbogadóttur
á Bessastöðum, svo ástsæll forseti
sem hún hefur verið. Það er því
deginum ljósara, að næsti forseti,
þarf að vera fær um að taka upp
þráðinn þar sem Vigdís skilur við
hann. Hann þarf að vera því
vandasama verki vaxinn, að halda
áfram að byggja upp og auka enn
frekar samheldni, veg og virðingu
íslensku þjóðarinnar bæði hér á
landi jafnt og á erlendri grund.
Þeir eru ekki margir, sem eru
færir um að taka við þessu vanda-
sama verki úr hendi Vigdísar.
Þeir frambjóðendur sem nú hafa
gefið kost á sér, eru flestir hið
mesta mannkostafólk. Það kann
því í fljótu bragði, að vera úr vöndu
að ráða fyrir kjósendur. Ef betur
er að gáð, er þó einn frambjóð-
enda, sem er búinn slíkum yfír-
burða hæfileikum til þess að gegna
stöðu forseta, að aðrir standast
þar ekki samanburð. Þessi maður
er Ólafur Ragnar Grímsson. Ólaf-
ur er einstaklega víðsýnn maður
og hinn mesti dugnaðarforkur.
Hann er bráðgreindur, vel mennt-
aður og skemmtilegur. Ólafur hef-
ur víðtækari reynslu í samskiptum
á erlendum vettvangi, en nokkur
núlifandi íslendingur, sem ég tel
vera frumskilyrði fyrir forseta Is-
lands. Þessi reynsla Ólafs hefur
nú þegar borið ríkulegan ávöxt
fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki og
menningarsamskipti. Ólafur hefur
staðgóða þekkingu og ódrepandi
áhuga á íslenskri menningu og
listum, en það er annað frumskil-
yrði sem ég tel að forseti íslands
þurfi að uppfylla. Ólafur hefur í
gegnum störf sín að stjómmálum,
bæði sem þingmaður, ráðherra og
sem formaður alþjóðlegra samtaka
þingmanna, öðlast viðurkenningu
og virðingu margra áhrifamestu
manna í heiminum. Þá er Ólafur
búinn þeim fágæta eiginleika, að
eiga sérstaklega auðvelt með að
vinna með fólki, án tillits til einka-
skoðana sinna á viðkomandi. Hann
er vel máli farinn og virðulegur í
öllu fasi og framkomu. Hann hefur
einstaklega ríka réttlætiskennd og
hefur alltaf verið ötull málsvari
lítilmagnans og lætur sér hag
þeirra sem minna mega sín miklu
varða. Ólafur er sérstaklega hlýr
og elskulegur maður þeim sem
þekkja hann og einlægur vinur
vina sinna. Við hlið sér hefur Ólaf-
ur eiginkonu sína, Guðrúnu Þor-
bergsdóttur. Guðrún er kvenna
glæsilegust, en um leið skarp-
greind. Hún hefur líkt og eigin-
maður hennar, mikinn áhuga á
menningarmálum og öllu sem
mannlegri velferð tengist. Guðrún
er sérstaklega vel máli farin og
hefur fágaða framkomu. Hún er
bráðskemmtileg og á sérstaklega
auðvelt með að umgangast fólk á
jafnréttisgrundvelli, sem gerir
hana enn meira aðlaðandi. Það er
ekki ofsagt, að þau hjón yrðu
glæsilegustu fulltrúar íslands, sem
við eigum völ á. Ólafur Ragnar,
ef kjörinn yrði, yrði góður, rétt-
sýnn og gagnlegur forseti, sem
öll þjóðin getur verið stolt af. Því
lýsi ég eindregnum stuðningi mín-
um við framboð hans til forseta
íslands.
ÓLAFUR SVERRISSON
Hverfísgötu 55, Hafnarfirði.
Hvernig á forsetinn
að vera og hvemig
má hann ekki vera?
Frá Jóni Hafsteini Jónssyni:
HVAÐA kostum þurfa forseti Is-
lands og maki hans að vera búin?
Þetta er mikið rætt í blöðum, þjóð-
arsál og manna á meðal, en mig
undrar, að spurningunni skuli aldr-
ei vera snúið við og spurt: Hvaða
bresti forsetinn og maki hans megi
ekki hafa? Það er auðvelt að
rökstyðja að sérhver frambjóðandi
hafi næga menntun, gáfur og
hæfni til að koma fram, til að geta
á sinn hátt sinnt þeim störfum, sem
forsetinn á að vinna, og allir hafa
forsetamir hingað til komist frá
því með sóma. Hins vegar má eftir-
farandi vera ljóst. Sé minnsta
ástæða til að ætla að forsetaefni
eða maki þess ráði ekki fullkom-
lega við eigin áfengisnotkun við
allar kringumstæður, er viðkom-
andi óhæfur til að taka við húsforr-
áðum á Bessastöðum. Prestar þjóð-
kirkjunnar hafa fengið að reyna,
- kjarni málsins!
hvert það getur leitt að fela sitt
æðsta vald og virðingartákn í
hendur manni, sem þeir vissu að
hafði (með réttu eða röngu) verið
vændur um bresti, sem ekki var
til siðs að tala upphátt um.
Kristján Eldjám er sá forseti
okkar, sem með mestri reisn og
fyrirmannlegast hefur gegnt starfi
sínu. Ekki man ég eftir að hann
fjölyrti um hlutverk sitt sem menn-
ingarberi, en framganga hans öll
- alúðlegt viðmót með hæversku
og virðuleik án kumpánlegheita -
bar honum órækt vitni sem menn-
ingarbera. Ég vil stuðla að því að
forsetaembættið fái það yfirbragð
sem það hafði í tíð Kristjáns Eld-
járn, og mér sýnist Guðrún Agn-
arsdóttir líklegust til að gefa því
það.
JÓN HAFSTEINN JÓNSSON,
fyrrverandi menntaskólakennari,
Stangarholti 7, Reykjavík.
Forsetaframboð
Vísa þessi var ort í tilefni framboðs
Ólafs Ragnars Grímssonar:
í fyrstu var hann með framsóknardyggð
en frelsaðist bráðlega úr þeirra röðum
og nú sækir hugsjónin, hamar og sigð
um húsbóndavaldið á Bessastöðum.
SVEINBJÖRNINGIMUNDARSON,
Ysta-bæli undir Eyjafjöllum.
ÍDAG
SKÁK
Umsjún Margcir
Pétursson
HVÍTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á stór-
mótinu í Madrid sem lauk
um síðustu helgi. Aleksei
Shirov (2.690) var með
hvítt og átti leik, en Rúss-
inn Aleksander Morosje-
vitsj (2.625) hafði svart.
Shirov lék nú óná-
kvæmt:
37. a7? - He8 38. Dd2 -
Ha8 39. Bc7 - Hxa7 40.
d6 - Hal+ 41. Kh2 og
staðan er ekki fyllilega ljós.
Shirov vann að vísu eftir
41. - Ha2 42.
Del - Rd5 43.
De4 - Rxc7 44.
dxc7 - Dd7 45.
Db7 - Dd6+ 46.
Khl - Hal+ 47.
Rgl - Ddl 48.
c8=D+ - Kg7
49. Kh2 -
Dxgl+ 50. Kg3
- h4+ 51. Kg4 -
Hfl 52. Dba8 og
svartur gaf. En
hann átti miklu
sterkari leik í
stöðunni: 37.
Bf8! - Kxf8 38. Dh8+ -
Ke7 39. a7 og svartur get-
ur gefíst upp, því hann á
enga vörn við því að hvítur
veki upp nýja drottningu.
Skákþing íslands,
Eimskipsmótið.
Fjórða umferð hefst í dag
kl. 17 í Fjölbrautaskólan-
um í Garðabæ.
BRIDS
limsjón Guúmundur l’áll
Arnarsun
NORÐMAÐURINN ungi,
Geir Helgemo, er eitur-
snjall spilari. Þegar spilað
er gegn honum fær maður
fljótlega þá óþægilegu til-
fínningu að „skrattakollur-
inn geri aldrei nein mi-
stök.“ Jafnvel einföld spil
verða erfíð þegar hann er
í vörninni. Hann fínnur
alltaf einhvem veikan
blett. Helgemo hefur um
nokkurt skeið tilheyrt
spekingahópi í breska
bridstímaritinu „Popular
Bridge International".
Hann greiddi sératkvæði í
eftirfarandi útspilsþraut,
en rök hans eru góð.
Suður gefur og það er
enginn á hættu. Vestur
horfir á þessi spil:
Vestur
♦ G82
▼ 74
♦ KD85
♦ K963
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði
Pass 4 tíglar* Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
♦ „Splinter", þ.e. slemmuáskorun í spada með
stuttum tígli.
Spurt en Hvert er besta
útspil vesturs gegn fjórum
spöðum? Langflestir kusu
að trompa út. Á bak við það
val liggur sú grundvallar-
hugsun að oftast sé best
að trompa út þegar vitað
er um stuttlit í borði. Ekki
voru menn þó bjartsýnir á
að hnekkja geiminu.
Helgmo hafði meiri
metnað. Hann vildi spila út
hjartasjöu. Tilgangur hans
var að sækja hjartastungu.
Hann teiknaði upp hjarta-
kóng í borði og ÁD hjá
makker. Fjórði slagurinn
átti að koma á laufkóng.
Hugmynd hans um spilið
var í þessum dúr:
Norður ♦ ÁD74 V K93 ♦ 2 ♦ DG1042
Vestur Austur
♦ G82 ♦ 6
V 74 llllll VÁD862
♦ KD85 111111 ♦ 109764
♦ K963 ♦ 87
Suður ♦ K10953 V G105 ♦ ÁG3 ♦ Á5
Rök hans voru þessi:
Vestur horfir sjálfur á hjón-
in í tígli. Suður hafnar því
ekki slemmuboðinu vegna
þess hversu illa tígulstuttlit-
ur hans kemur við hans
spil. Ástæðan er önnur og
kannski tvöföld: Lágmark í
punktum og skorutr á
hjartafyrirstöðuy. Að þessu
athuguðu verður hjartaút-
spil óneitanlega freistandi.
Og eitt í viðbót: Gegn sterk-
um samningi, er oftast
nauðsynlegt að spila hvassa
vöm.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Ódýr fargjöld
ÉG VAR svo heppin að
sjá auglýsingu í Morg-
unblaðinu frá þýska
flugfélaginu LTU um
ódýrar ferðir til Ham-
borgar. Mér til mikillar
ánægju gat ég keypt
miða hjá þessu félagi
fyrir börnin mín tvö á
tæpar 35 þúsund krón-
ur fram og til baka, en
hjá Flugleiðum hefði ég
þurft að borga rúmlega
92 þúsund krónum með
öllum kostnaði.
Ekki gátu Flugleiðir
aðstoðað börnin við að
fara á milli véla, en það
var vegna þess að þau
voru orðin of gömul.
Þetta var hins vegar
ekkert vandamál hjá
LTU.
Vigdís Ágústsdóttir.
Posi er týndur
POSI hvarf að heiman frá
sér, Hjallavegi 29, í
Reykjavík, fyrir rúmri
viku. Hann er eins árs,
grábröndóttur norskur
skógarköttur, mjög loðinn
og ákaflega kelinn. Þeir
sem hafa orðið hans varir
eru vinsamlega beðnir að
hafa samband við Lárus í
síma 553-5552 eða
560-8934.
Hlutaveltur
ÞESSIR duglegu krakkar héldu hlutaveltu nýlega og
færðu átakinu „Börnin heim“ ágóðann sem varð 5.000
krónur. Þau heita frá vinstri Sigurður Sigurðsson,
Svanhvít Sif Sigurðardóttir, Hildur Sigurðardóttir,
Matthildur Ingadóttir og Álfheiður Björgvinsdóttir.
ÞESSIR duglegu strákar héldu hlutaveltu nýlega
og færðu Rauða krossi íslands ágóðann sem
varð kr. 823 krónur. Þeir heita Helgi
Rafn, Kristján Ari og Gunnar Atli.
Víkverji skrifar...
EFTIR að nefnd um endurskoð-
un útvarpslaga skilaði af sér
tiliögum um breytingar á rekstri
Ríkisútvarpsins hafa stjórnendur
RÚV látið talsvert að sér kveða á
opinberum vettvangi og varið nú-
verandi ástand mála hjá stofnun-
inni. Það er ekki nema af hinu
góða að skoðanaskipti fari fram
um tillögur nefndarinnar, enda var
viðbúið að þær yrðu umdeildar.
Hins vegar finnst Víkverja að sjón-
varpsauglýsingar RÚV, þar sem
augljóslega er vísað til tillagna um
breytingar á rekstrinum, orki tví-
mælis. Er það hlutverk ríkisstofn-
unar að eyða peningum okkar
skattgreiðendanna (því að afnota-
gjaldið er ekkert annað en skattur)
til þess að verja ríkjandi ástand
og óbreytta tilveru sína? Verða rík-
isstofnanir og starfsmenn þeirra
ekki að sætta sig við þær breyting-
ar, sem kjörnir fulltrúar almenn-
ings ákveða?
SUMIR velunnarar Þjóðminja-
safnsins hafa látið í ljós furðu
sína á því að félagið Minjar og saga
skyldi eingöngu treysta sér til að
bjóða í annað af tveimur fornum
íslenzkum drykkjarhornum, sem
seld voru á uppboði í Danmörku.
Einn viðmælandi Víkveija benti á
að ekki hefði umfangsmikil söfnun
þurft að fara fram meðal áhuga-
manna um fornminjar til þess að
safnið hefði getað eignazt bæði
homin.
xxx
LÍTT dulbúin auglýsing fyrir Ice-
bjór hefur birzt tvisvar í Morg-
unblaðinu undanfarið, án þess þó
að fram komi nafn vörunnar eða
að um áfengan drykk sé að ræða.
Þannig brýtur auglýsingin ekki í
bága við bann við áfengisauglýsing-
um. Auglýsingar af þessu tagi eru
um allan bæ á bjórbílum, skiltum
veitingahúsa og víðar. Af hverju í
ósköpunum hætta yfirvöld ekki að
reyna að framfylgja banni, sem er
óframkvæmanlegt hvort sem er og
í raun hjákátlegt? Til landsins
streyma erlend blöð með áfengis-
auglýsingum, áfengi er auglýst á
þeim íjölmörgu gervihnattarásum,
sem landinn horfir á og þar fram
eftir götunum. Auglýsingabannið
er tímaskekkja og tími kominn til
að Alþingi afnemi það.
xxx
LESANDI sendi Víkveija bréf
vegna pistils hans á laugardag
í fyrri viku, þar sem rætt var um
skort í reykvískum verzlunum á
áhaldi til að stytta kveik eða skar
á kertum. Lesandinn, sem segist
alinn upp um miðja öldina, segir
afa sinn hafa kennt sér að þetta
áhald væri kallað skarbítur. Vík-
veija finnst það miklu betra orð en
kertaskæri og mun nota það hér
eftir.