Morgunblaðið - 03.07.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐyiKUDAGUR; JÚf4,1996,, 17
ERLENT
BILASALAN HÖFÐAHÖLLIN • VAGNHÖFÐA 9, SÍMI 567 4840
HÖFÐAHÖLLIN • LÁN TIL ALLT AÐ 60 MÁNAÐA MIKIL SALA - MIKIL SALA. • HÖFÐAHÖLLIN
Subaru Legacy 1800, árg.
‘90, ek. 120 þús km.
Verð 1.050.000.
Ath. skipti á ódýrari.
Hundai Elantra, árg. ‘96,
ek. 7.000 km.
Verð 1.390.000.
Ath. skipti á ódýrari.
VW Golf, árg. ‘92, ek. 71
þús. km. Verð 880.000.
Stgr 780.000.
Toyota Corolla GL Sedan,
árg. ‘92,4ra dyra.
Verð 840.000.
Ath. skipti á ódýrari.
Veið 1.700.000. Ðnnig
‘88. Atti. skipti á ódýrari.
AMC Cherokee, árg. ‘91, ek.
80 þús. km.
Verð 1.950.000.
Ath. skipti á ódýrari.
Flokksmenn
Ciller reiðir
Ankara. The Daily Telegraph. Reuter.
SAMKOMULAG Tansu Ciller, leið-
toga Sannleiksstígsins, við heittrú-
armenn í Velferðarflokknum um
stjómarmyndun hefur vakið mjög
blendin viðbrögð i Tyrklandi. Ekki
síst á meðal kvenna, sem margar
hveijar eru Ciller ævareiðar og hefur
rignt skömmum og mótmælum yfir
forsætisráðherrann fyrrverandi frá
því að hún ákvað að ganga að tii-
boði Velferðarflokksins í síðustu viku.
Þúsundir kvenna hafa haft sam-
band við skrifstofu Ciller og krafist
þess að hún falli þegar í stað frá
samkomulagi sínu við heittrúar-
menn. Sagt er að konur í flokki Cill-
er hafí sent henni svarta chador,
höfuðföt múslimskra kvenna, í pósti
og að þær hyggi á mótmæli í hafnar-
borginni Izmir á morgun, fimmtu-
dag. Þá sagði Edip Safter Gaydali,
þingmaður Sannleiksstígsins, sig úr
flokknum á mánudag, og er hann
sjöundi flokksmaðurinn sem það
gerir í mótmælaskyni við stjórnar-
myndun með heittrúarmönnum.
í gær efndu hundruð fijálslyndra
alevi-múslima, sem eru alls um 10
milljónir i Tyrklandi, til mótmæla í
tilefni þess að þijú ár eru liðin frá
íkveikju heittrúaðra múslima sem
varð 37 manns að bana. Söng fólkið
andíslömsk slagorð og gerði hróp
að nýskipuðum dómsmálaráðherra
landsins, sem er úr Velferðarflokkn-
um, og var veijandi þeirra sem stóðu
að íkveikjunni.
Stjórn Necmettins Erbakans, leið-
toga Velferðarflokksins, og Ciller
hefur tíu sæta þingmeirihluta. Um
þijátíu þingmenn flokks Ciller hafa
hótað því að undirrita yfirlýsingu
þar sem segi að þeir muni greiða
atkvæði gegn traustsyfirlýsingu við
stjórnina sem fram á að fara næst-
komandi mánudag. Láti þeir af því
verða, er eins víst að hagkvæmnis-
hjónaband Ciller og Erbakan endi
með skilnaði. Og það ætti ekki að
koma Ciller, sem byggt hefur stjóm-
málaferil sinn á hernaðar- og verald-
legu stjómarfari, á óvart.
Hringsnúningur kemur sér illa
í kosningabaráttunni fyrir þing-
kosningarnar í desember sl. hamraði
Ciller á því að hún væri sú eina sem
gæti stemmt stigu við íslömskum
heittrúarmönnum sem hótuðu því
að „færa Tyrkland aftur til hinna
myrku miðalda“. Talsmenn flokks
hennar segja það fyrst og fremst
konum í hópi kjósenda að þakka að
flokkurinn varð næstur á eftir Vel-
Reuter
FLOKKSMENN og -konur Tansu Ciller hafa ekki tekið stjórnar-
myndun hennar og Necmettin Erbakan, leiðtoga heittrúarmanna,
þegjandi.
ferðarflokknum í kosningunum, þær
hafi lagt trúnað á þessi orð Ciller.
Hringsnúningur Ciller hefur einn-
ig komið við stjórnvöld á Vesturlönd-
um þó að þau hafí lítið látið hafa
eftir sér um hina nýju stjóm. Það
var ekki síst fyrir orð Ciller sem
Evrópusambandið ákvað að ganga
að samkomulagi við Tyrki um tolla-
mál, þar sem hún hafði varað við
því að ella kynnu íslamskir öfga-
menn að ná undirtökunum í Tyrk-
landi. Sedat Ergin, dálkahöfundur
hins víðlesna dagblaðs Hurríyet spá-
ir því að hinn nýi utanríkisráðherra
Tyrklands, Ciller, muni eiga mjög
erfitt með að ávinna sér traust í
samskiptum sínum við Vesturlönd
eftir það sem á undan er gengið.
En það mál sem mestar deilur
hefur vakið, er tilboð Erbakan um
að draga til baka ásakanir á hendur
Ciller um spillingu sem flokkur hans
hóf á þingi fyrir um mánuði, gengi
hún til stjórnarsamstarfs. Ásakan-
irnar eru af ýmsu tagi, allt frá því
að hafa notfært sér aðstöðu sína og
opinbera sjóði í eigin þágu, til þess
að hafa keypt mat handa kettinum
Charlie, fyrir ríkisfé.
Lát konsúlsins
Danir vilja
þvinganir
gegn Búrma
Kaupmannahöfn. Reuter.
NIELS Helveg Petersen,
utanríkisráðherra Danmerk-
ur, sagði í gær að í næstu
viku mundi hann leggja að
evrópskum ráðherrum og
Bandaríkjastjórn að Búrma
yrði beitt viðskiptaþving-
unum.
Sagði Petersen, að yfirvöld
í Búrma hefðu ekki gefið
viðunandi skýringar á dauða
danska konsúlsins í landinu,
Leo Nichols, sem lést í fang-
elsi í Búrma fyrir tíu dögum.
Danir, Finnar, Norðmenn
og Svisslendingar hafa krafið
herstjórnina í Búrma um
skriflega skýrslu um lát Nic-
hols, sem var fulltrúi ríkjanna
í Búrma.
Sagði Petersen að einungis
hefðu fengist munnlegar
fregnir af heilsufari Nichols á
meðan hann var í haldi.
Petersen sagði að Danir
mundu stinga upp á ýmsum
leiðum til þess að refsa yfír-
völdum í Búrma.
bílasölur á Höfða
Jeep Pioneer, arg. 1984, 4,3
lítravél. Verð: Tilboð.
Mazda E2000, arg. 1988.
Verð: Tilboð.
Midnight Express, árg.
1976. Verð: Tilboð.
Jeep Grand Cherokee, árg.
1993. Verð: 3,4 millj.
Wagoneer, árg. 1986.
Verð: Tilboð.
________________________y
jr jr
NYJA BILASALAN. Bíldshöfða 8. sími 567 3766.