Morgunblaðið - 22.02.1997, Side 10
10 LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Keppnislið Menntaskólans á Egilsstöðum lenti í hrakningum á heimleið frá Akureyri
Menntskælingar
sátu næturlangt
í fastri rútunni
Vaðjirekku, Jökuldal. Morgunblaðið.
FJÖRUTÍU nemendur Mennta-
skólans á Egilsstöðum lentu í
erfiðleikum á ferð norðan af
Akureyri til Egilsstaða eftir að
hafa keppt i spurningakeppni
framhaldsskólanna á fimmtu-
dagskvöld. Rúta sem þau ferð-
uðust með fauk útaf veginum
norðan í Grjótgarðshálsi í Jök-
uldalsheiði og sat þar föst i
fimm klukkutíma.
Að sögn Helga Omars Braga-
sonar, skólameistara Mennta-
skólans á Egilsstöðum, sem var
með í ferðinni, lögðu ferðalang-
arnir af stað frá Akureyri um
klukkan 20 á fimmtudagskvöld
og sóttist ferðin þokkalega yfir
Mývatnsöræfi og austur á
Möðrudalsöræfi var þokkaleg
færð, en þegar kom i Austari-
Fjallgarð þyngdist færðin og
þar þurfti að grípa til rekunnar
og moka fyrir rútuna.
Það var svo klukkan fimm á
föstudagsmorgun eftir níu
tíma ferðalag frá Akureyri að
rútan fékk á sig vindhviðu og
fauk afturhluti hennar út í
ruðning og sat hún þar föst.
Þá var hún stödd rétt austan
við Lindará í norðanverðum
Þrívörðuhálsi.
Vigfús Friðriksson og Hrafn-
kell Lárusson, sem voru í rút-
unni, sögðu að krakkarnir
hefðu tekið því misvel þegar
rútan fauk útaf og verið mis-
lengi að róa sig niður en allt
hafi þó fallið í ljúfa löð Ujót-
lega. Fljótlega fór að kólna í
rútunni og Hrafnkell sagði að
tvisvar hefðu komið vindhviður
er nærri hefðu verið búnar að
leggja rútuna á hliðina.
Krakkarnir voru misvel búnir
þótt flestir hafi verið vel búnir,
í göllum eða sambærilegum
fatnaði. Vigfús sagði að nem-
endaráðið hafi staðið sig virki-
lega vel í að miðla fötum til
þeirra er er kuldi fór að ásækja
frá þeim er hlýrra var og skjól-
flíkur væru þar sem þeirra
væri mest þörf.
Fjögurra tíma ferð
Björgunarmenn neðan af
Jökuldai lögðu í hann rétt fyrir
klukkan sex um morguninn á
tveim tólf sæta skólabilum og
fjórum jeppum til móts við rút-
una og sóttist ferðin mjög seint.
Að sögn Benedikts Arnórsson-
ar, bílstjóra á öðrum skólabíln-
um, var alveg snarvitlaust veð-
ur. Ferðin gekk mjög hægt því
bílarnir gengu illa og fennti
inná lofthreinsarana á bílunum.
Einnig var mjög erfitt ef jepp-
arnir lentu útaf veginum að
finna veginn aftur og tók fjóra
tima að komast að rútunni sem
tekur innan við hálfa klukku-
stund í sumarfæri.
Það var síðan um klukkan tíu
á föstudagsmorguninn að veðr-
ið skánaði aðeins og Sveini Sig-
bjarnarsyni bílstjóra tókst þá
að losa rútuna í sama mund og
jeppamir komu neðan úr Jök-
uldal.
Helgi Ómar sagði að krakk-
arnir hefðu verið færðir til í
rútunni og þegar veðrið gekk
aðeins niður gat Sveinn farið
út og mokað frá rútunni og
hægt var að keyra hana upp.
Þegar jepparnir komu að var
krökkunum skipt niður á jepp-
ana og urðu fáir eftir í rút-
unni. Rútan og jepparnir fóru
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
KRAKKARNIR í rútunni eftir að komið var niður í Skjöldólfsstaðaskóla.
VIGFÚS Friðriksson og Hrafnkell
Lámsson eyddu nóttinni í rútunni.
síðan í samfloti áleiðis niður á
Skjöldólfsstaðaskóla á Jökuld-
al. Þar tók Eygló Ormarsdóttir
matráðskona á móti hópnum
um hádegisbil i gær og gaf
ferðalöngunum og björgunar-
mönnunum að borða brauð,
kjöt og heitt kakó. Alls tók þó
ferðin tuttugu tíma frá Akur-
eyri til Egilsstaða, en moka
SESSELJA
Stefánsdóttir.
þurfti snjó á fimm stöðum fyr-
ir rútuna.
Óþarfa hætta
Hrafnkell og Vigfús voru
óánægðir með að farið skyldi
af stað austur í þessu veðurút-
liti og taka hafi átt mið af að
ferðin norður tók sex klukku-
tíma, en með því að fara austur
aðfaranótt föstudags hefði
þeim verið stofnað i óþarfa
hættu.
Sesselja Stefánsdóttir, for-
maður nemendaráðs ME, segir
ferðina verða bráðskemmtilega
i endurminningunni þótt hún
hafi ekki verið eins skemmtileg
meðan á henni stóð.
Sesselja sagði það hafa komið
til greina að fresta ferðinni
austur, en þar sem veðurspá
fyrir daginn í gær hafi verið
mjög slæm hafi sú ákvörðun
verið tekin í samráði bílstjóra,
skólameistara og nemendaráðs
að fara austur í fyrrakvöld og
freista þess að ná austur áður
en versta veðrið skylli á. Ses-
selja segir að þrátt fyrir allt sé
það álit krakkanna að ferðin
hafi borgað sig, þó hægt hafi
gengið á köflum, því sigur
vannst altént í spurningakeppn-
inni. Sesselja vildi að lokum
koma á framfæri þökkum til
Sveins Sigbjarnarsonar bíl-
stjóra fyrir fádæma ósérhlífni
hans i allri ferðinni.
Æsufell 2, 3. hæð — opíð hús
Mikið standsett 3ja herb. 87 fm íb. á 3. hæð í Æsufelli
2. Ásett verð 6,4 millj. Áhv. 3,5 millj.
Opið hús sunnudag kl. 14—17, Bragi.
rrn 11 rn CCO 107Í1 iárust>.vaidimarsson,framkvæmdastjóbi
UUl I I uU'UUL I u/U JáHANNÞÓRBARSQN,HRL.LÖBBiLJUHFASTEI9NASALI.
Ný á fasteignamarkaðnum m.a. eigna:
Á vinsælum stað í Hlíðunum
Rúmgóð 3ja herb. ibúð í kjallara. Nýlegt gler. Nýlegt parket á stofu.
Danfoss-kerfi. Langtímalán. Gjafverð.
Skammt frá Sundlaug Vesturbæjar
Sólrlk 3ja herb. íbúð á 2. hæð rúmir 80 fm. Vel umgengin. Stór og
góð geymsla í kjallara. Ný endurbætt sameign. Tilboð óskast.
Skammt frá Árbæjarskóla
Glæsilegt raðhús með mjög rúmgóðri 6 herb. íbúð á tveimur hæðum.
Mikið og gott vinnu-/föndurhúsnæði í kjallara. Skipti möguleg. Ein
bestu kaup á markaðnum i dag.
Grindavík - einbýlishús - skipti
Gott steinhús ein hæð 130,2 fm. Sólskáli um 30 fm. Góður bílsk. 60
fm. Ræktuð lóð 875 fm. Vinsæll staður I góðu atvinnuplássi.
Margskonar skipti möguleg.
Lítið einbýlishús í gamla bænum
Járnklætt timburhús á steinkjallara með 3ja-4ra herb. íb. Mikið
endurbætt. Langtímalán kr. 4 millj. Eignarlóð. Tilboð óskast.
Útborgun aðeins kr. 500 þús.
Ný endurbyggt 2ja herb. risíb. í reisulegu steinhúsi skammt frá
Sundhöll Reykjavíkur. Nýtt eldhús, nýtt sturtubað með sérþv.aðstöðu.
Allar leiðslur og lagnir i húsinu eru nýjar. Ásett verð kr. 4,2 millj. Tilboð
óskast.
• • •
Opiðídagfrákl. 10-14.
Vestan Elliðaáa óskast
verslunarhúsnæði um 500
fm.fyrir landsþekkt fyrirtæki.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370
Mikil snjóþyngsli og kóf ollu vegfarendum víða vandræðum
Bílarnir sátu fastir og .
snjóflóð tepptu vegina 1
NOKKRIR tugir bfla sátu fastir í
Hvalfirði í fyrrinótt og er talið að
yfir hundrað manns hafi þurft að
hírast í bifreiðunum um nóttina, eða
þangað til hægt var að ryðja veginn
um fjörðinn. Vegfarendur höfðu þá
verið fastir í 5-6 klukkustundir.
Snjóflóð féllu í Súðavíkurhlíð,
Kirkjubólshlíð og Óshlíð í fyrrinótt
og gærmorgun og lokuðu vegum.
Allir vegir sem snjóflóð féllu á
hafa verið lokaðir frá því í fyrri-
nótt, að sögn lögreglunnar á
Isafirði.
Blint en ekki hvasst
í Hvalfirði stóðu bifreiðar fastar
í Hvítanesbrekku og Hlaðhamri
rétt sunnan við Botnsskála og
einnig við líparítnámuna. Lögregl-
an lokaði veginum um Kjalarnes
um kl. 11 í fyrrakvöld. „Bílarnir
voru þarna í kös, um 20-30 í Hvíta-
nesbrekku og víðar í Hvalfirði voru
fleiri bílar, sem björgunarsveitin á
Akranesi aðstoðaði,“ segir Árni
Snorrason, liðsmaður björgunar-
sveitarinnar Kjalar á Kjalarnesi.
„Við huguðum að ökumönnum
og farþegum og fylgdumst með
bílum sem drepist hafði á, auk þess
að tryggja að snjóruðningstæki
kæmust leiðar sinnar. Ég held ekki
að það hafí farið mjög illa um
menn og þeir sem voru í köldum
bílum fengu skjól í þeim bílum þar
sem var hiti. Þegar ruðningstækin
komu var farið að rofa til.“
Ölvaður ökumaður ók jafnframt
bifreið sinni á aðra í Hvalfirði og
voru hjálparsveitir kallaðar til að-
stoðar á meðan lögreglan í Borgar-
nesi gekk frá því máli. Hitastigið
var um frostmark og segir lögregl-
an lán að ekki hafí verið kaldara.
Blint hafi verið en ekki mjög
hvasst.
Lögreglan í Stykkishólmi þurfti
að koma nokkrum ökumönnum til
aðstoðar, meðal annars í Kerl-
ingarskarði og á leiðinni á milli
Stykkishólms og Grundarfjarðar.
Snjór var mikill á þessum slóðum
og kyngdi niður í fyrrinótt að sögn
lögreglu, en veðrið var að öðru
leyti ágætt.
Lögreglan á ísafirði þurfti jafn-
framt að aðstoða ökumann bifreið-
ar sem hélt á sumardekkjum upp
á Steingrímsfjarðarheiði. Lög-
reglumaður á Hólmavík, sem var
á leið þangað frá ísafirði, ók fram
á bílinn og var þá dautt á honum
og ökumanni orðið kalt.
„Hér kyngir niður og margir
lágþekjubílar eru orðnir háþekju-
bílar,“ sagði lögreglumaður á
ísafirði sem rætt var við, „en við
höfum séð það svartara."
Frestuðu að ryðja
Vegagerðarmenn reyndu að •
ryðja Súðavíkurhlíð en þá féll |
snjóspýja skammt fyrir aftan þá ^
og ákváðu þeir þá að freista þess •
að ljúka verkinu síðar.
Víða annars staðar um landið
var mikill snjór og ófærð, en án
þess að kæmi til teljandi vandræða
af þeim sökum.
Lokaði hringveginum
Flutningabíll lagðist á hliðina á |
þjóðvegi eitt skammt frá Kvískeij-
um í Skaftafellssýslu í gærmorgun, |
með þeim afleiðingum að vegurinn ^
lokaðist í nokkrar stundir.
Mikið hvassviðri var á þessum
slóðum og fauk bifreiðin til. í kjöl-
farið lagðist vagn hennar á hlið-
ina, þvert yfir veginn.
Um sex klukkustundir tók að
reisa bílinn við að nýju, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
Höfn í Hornafirði, ekki síst þar sem •
veðrið var svo slæmt að erfitt var
fyrir menn að athafna sig og í ^
raun ekki ferðaveður. Bíllinn •
skemmdist lítið.