Morgunblaðið - 22.02.1997, Page 34
34 LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
_______________AÐSENPAR GREINAR______
Lágt útsvar samsvarar
tugþúsunda skattaafslætti
og fasteignagjaldagreiðslur hjóna til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Selij.nes Reykjavík Garðabær Mosf.bær Bessast.hr. Hafnarfjörður Kópavogur
IE3 Útsvar og fasteignagjöld
Samanburöur á veröhækkunum á ýmsri vöru og þjónustu 1991-1996.
Dagvisí barna Mnvara Rafmagn, taxti Vísitala Hljó-Jv. Sjónv. Kvikmkúf ofl. Hitavcita Stöa 2 án auka Dagblöi og
A1 ncysluvcrií RÚV. Rcykjavíkur ítöiva áskrift
ÞAÐ hefur verið
markmið núverandi
borgaryfirvalda að
halda áiögum á borg-
arbúa í lágmarki og
við það hefur verið
staðið það sem af er
þessu kjörtímabili.
Samanlögð skattbyrði
vegna útsvars og fast-
eignagjalda í Reykja-
vík er með því lægsta
sem þekkist á landinu
og hækkunum á gjald-
skrám hefur verið
haldið í lágmarki.
Fullyrðingar um
„skattahækkanir R-
listans“ sem haldið
hefur verið fram á opinberum vett-
vangi eru bæði villandi og úr lausu
lofti gripnar. Samanburður annars
vegar á verðhækkunum á vöru og
þjónustu og hins vegar á útsvari
og fasteignagjöldum í nokkrum
sveitarfélögum hér á höfuðborgar-
svæðinu sýnir að Reykjavíkurborg
stenst allan samanburð og vel það.
Mikilvægasti skattstofn hvers
sveitarfélags er útsvarið og sá
skattaafsláttur sem Reykvíkingar
njóta í formi lágs útsvars nemur
tugum þúsunda á hvert heimili í
borginni.
Hvað greiða
íbúar?
í dæmi því sem hér er sýnt á
mynd 1 er borið saman hversu
mikið íbúar á höfuðborgarsvæðinu
greiða í útsvar og fasteignagjöld,
þ.m.t. holræsagjald, vatnsskatt,
lóðaleigu og sorphirðugjald. Tekið
er dæmi af hjónum með 2.850.000
kr. árslaun, sem eiga íbúð sem
metin er á 7 milljónir króna sam-
kvæmt fasteignamati. í ljós kemur
að það kostar um 30.000 kr. minna
að búa í Reykjavík en því sveitarfé-
lagi sem innheimtir hæstu gjöldin.
Þar munar mest um að í Reykja-
vík er innheimt lágmarksútsvar,
11,19% en hámarksútsvar er
11,99%. Fyrir hjón með umrædd
árslaun samsvarar þessi munur á
álagningarhlutfalli útsvars 23.000
kr. lægri skattbyrði. Þar við bætist
að aðeins í einu sveitarfélagi eru
fasteignagjöld þau er hér um ræð-
ir lægri en í borginni.
Almennings-
samgöngur
Það er nærtækt að
bera saman sveitarfé-
lög á sama svæði og
líta má til fieiri þátta.
Fyrir margar fjöl-
skyldur skipta fargjöld
almenningsvagna og
dagvistargjöld miklu
máli. Gjaldskrá SVR
er talsvert lægri en
gjaldskrá Almenn-
ingsvagna hvort held-
ur um er að ræða verð
á einstökum farmiðum
eða farmiðaspjöldum.
Miðað við verð á far-
miðaspjöldum kostar fullorðinsfar-
gjald 100 krónur hjá SVR en 110
hjá AV, unglingafargjaldið 50 hjá
SVR en unglingar greiða fullt gjald
hjá AV eða 110 krónur. Hjá AV
greiða allir fullorðnir sama verð
eða 110 krónur. Hins vegar greiða
Mest munar um, segir
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, að í
Reykjavík er innheimt
lágmarksútsvar,
sum aðildarsveitarfélaga AV niður
farmiða fýrir aldraða og öryrkja.
Það er þó Ijóst að aldraðir og ör-
yrkjar njóta mun betri kjara hjá
SVR en þar greiða öryrkjar kr. 25
og aldraðir kr. 50. Einstakt barnaf-
argjaid er 25 krónur hjá SVR en
55 hjá AV.
Hvað dagvistargjöld varðar hefur
Reykjavíkurborg þá sérstöðu að
Dagvist er með lægri gjaldskrá fyr-
ir námsmenn og hefur auk þess
lagt á það áherslu á þessu kjörtíma-
bili að mæta þörf fyrir lengri vist-
un. Onnur sveitarfélög en Reykja-
vík veita ekki námsmannaafslátt
nema báðir foreldrar séu í námi.
Samanburður sem Stúdentaráð
Háskóla íslands gerði á síðasta ári
á kostnaði námsmanna með eitt
barn vegna leikskóla og húsaleigu
leiddi í ljós að fyrir ungt bamafólk
í námi getur kostnaður vegna þess-
ara þátta verið ríflega 300.000 kr.
lægri í Reykjavík en í næsta sveitar-
félagi. Þarna vegur þungt að húsa-
leigubætur eru greiddar í Reykjavík
en ekki í því sveitarfélagi sem sam-
anburðurinn tók til.
Áskriftargjöld fjölmiðla
En víkjum nú að samanburði á
verði vöru og þjónustu. Eins og
fram kemur á Mynd 2 hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um
11,76% á síðustu fimm árum og
matvara um 8,81%. Til samanburð-
ar vil ég sérstaklega benda á gjald-
skrá Dagvistar barna sem hækkaði
um 7% og á sama tíma og ýmis
önnur þjónusta hækkaði margfald-
lega. Þjónusta Ríkisútvarpsins um
18,55%, Stöð 2 hækkaði í áskrift
um 29,34% og dagblöð um 37,15%.
Hækkun á gjaldskrá Dagvistar
barna kom til framkvæmda á síð-
asta ári þegar öll þjónusta stofnun-
arinnar hafði verið aukin og bætt
stórlega og hafði þá gjaldskráin
staðið í stað síðan 1991 þrátt fyrir
að laun hafi hækkað umtalsvert
og ýmis aðföng sem leikskólar
þurfa að nýta sér í daglegum
rekstri.
Gjaldskrá Hitaveitu og Raf-
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
magnsveitu var hækkuð á síðasta
kjörtímabili, í tíð núverandi minni-
hluta, og aftur á síðasta ári. Þær
hækkanir voru afgreiddar sam-
hljóða í stjórn veitustofnana og í
borgarráði og jafnframt að þessar
gjaldskrár skyldu taka hækkunum
í samræmi við hækkanir á bygg-
ingarvísitölu.
Skuldasöfnun
sjálfstæðismanna
Að lokum vil ég aðeins gera að
umtalsefni holræsagjaldið sem
sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa
lofað „að sturta niður“ ef tækifæri
gefst. Úrbætur í umhverfismálum
eru afar kostnaðarsamar og við
flestum sveitarfélögum blasa viða-
mikil verkefni á því sviði. Sveitarfé-
lögum er í lögum ætlaður sérstakur
tekjustofn til þess að standa undir
holræsaframkvæmdum og allflest
þeirra hafa um árabil nýtt sér heim-
ild til álagningar holræsagjalds.
Holræsagjaldið hér í Reykjavík er
tilkomið vegna þeirra miklu fram-
kvæmda sem staðið hafa yfir á síð-
ustu misserum við hreinsun strand-
lengjunnar.
Að mati núverandi borgaryfir-
valda varð ekki lengur við það
unað að skólp og úrgangur frá
heimilum og fyrirtækjum mengaði
Qörur og grynningar meðfram
strönd borgarinnar en fyrirsjáan-
legt var að ekki yrði unnt að ráð-
ast í nauðsynlegar framkvæmdir
vegna fjárskorts. Þeim merka
áfanga verður náð í haust að fyrsta
hreinsistöðin sinnar tegundar fyrir
skólp hér á landi verði tekin í notk-
un við Ánanaust.
Á síðasta kjörtímabili var stór
hluti framkvæmda borgarinnar
fjármagnaður með lánsfé. Loforð
um að lækka skatta og gjaldskrár
hljóma hvorki trúverðug né ábyrg
úr munni manna sem á síðustu
árum hafa steypt Reykjavíkurborg
í slíkar skuldir að það mun taka
langan tíma enn að rétta borgar-
sjóð af. Að mínu mati er fyrst
hægt að lofa borgarbúum að fella
niður holræsagjaldið þegar viðun-
andi markmiðum er náð og stærstu
framkvæmdum er lokið sem hol-
ræsagjaldinu er ætlað að standa
undir. En eins og nú háttar eru
borgarbúar enn að súpa seyðið af
fjármálastjórn sjálfstæðismanna í
borgarstjórn Reykjavíkur á liðnum
árum og ekki svigrúm til slíks.
Afborganir af skuldunum sem
sjálfstæðismenn hlóðu upp á síð-
asta kjörtímabili er þyngsti skatt-
urinn sem Reykvíkingar greiða í
dag og hann er því miður ekki
hægt að fella niður.
Höfundur er borgmstjóri.
Heilbrigðistækni
HEILBRIGÐIS-
TÆKNI fæst við tækni
í líf- og læknisfræði.
Markmiðið er að bæta
líðan og heilsu manna,
og stundum dýra, með
aðstoð tækninnar. I
þröngum skilningi
snýst heilbrigðistækn-
in um að beita verk-
fræðilegum aðferðum í
líf- og læknisfræði og
þannig öðlast meiri
skilning og grípa inn í
líffræðileg ferli. í raun
er sviðið víðtækara og
að því koma fleiri fag-
svið, s.s. lyfya-, eðlis-
og tölvufræði.
Heilbrigðistæknin fæst að veru-
legu leyti við uppbyggingu og notk-
un lækningatækja sem nútíma
læknisfræði styðst mikið við. Það
má skigta lækningatækjum í þijá
flokka. í fyrsta flokknum eru lækn-
ingatæki sem aðstoða við að greina
sjúkdóma. Meðal þeirra má nefna
hlustunarpípu, ómsjá og röntgen-
tæki. í öðrum flokknum eru með-
ferðartæki. Þar má nefna raförva,
vökvadælur og stein-
brjót. Þar eru einnig
tæki sem koma í stað
líffæra til lengri eða
skemmri tíma: blóð-
skilunartæki (gervi-
nýra), öndunarvélar og
gervifótur eru dæmi
um slíkt. í þriðja
flokknum eru ýmsir
efnagreinar á rann-
sóknarstofum sem
aldrei snerta sjúkling-
inn heldur einungis
rannsaka sýni úr hon-
um. Það er því ljóst að
lækningatæki eru af
ýmsum gerðum.
Gerðar eru mjög
strangar kröfur til öryggis læknin-
gatækja, mun strangari en t.d. til
venjulegra heimilistækja. Tæki sem
heldur lífi í sjúklingi verður að láta
vita á ótvíræðan hátt ef það er að
gefa sig. Eins geta rangar niður-
stöður greiningatækja valdið rangri
meðferð sjúklinga. Mörg lækninga-
tæki eru notuð við mjög sérstakar
aðstæður. ígræddur hjartagangráð-
ur þarf að starfa rétt í mörg ár inni
í vessum og vefjum líkamans án
þess að líkaminn hafni honum. Nú
eru í gildi á EES-svæðinu sérstakar
tilskipanir um lækningatæki sem
samræma kröfurnar til þeirra.
Lækningatækin geta bætt vinnu-
brögð í heilbrigðisgeiranum og auk-
ið afköst. í heilbrigðisþjónustunni
standa menn frammi fyrir niður-
skurði. Hinsvégar er ekki líklegt
að fólk sætti sig við minni þjónustu
eða gæði. Skynsamleg tækjavæðing
er ef til vill ein lausnin.
En vegna þess hve lækningatæki
þurfa að vera vönduð og örugg eru
þau dýr og verulegum fjármunum
er varið til lækningatækjakaupa á
ári hveiju. í skýrslum Hagstofunnar
um utanríkisverslun má finna
flokka sem lækningatæki falla und-
ir (9018 til 9022). Þó ber að athuga
að mörg nútíma lækningatæki
styðjast við einmenningstölvur og
hugbúnað og falla því undir aðra
flokka. Verðmæti innflutnings
lækningatækja hefur aukist úr um
492 milljónum árið 1990 í um 887
milljónir árið 1995.
En það er gleðiefni að á sama
tíma hefur íslenskum heilbrigðis-
Baldur
Þorgilsson
tækniiðnaði vaxið fiskur um hrygg.
Á árunum 1990 til 1995 hefur út-
flutningsverðmæti lækningatækja
aukist úr um 4% af innflutnings-
verðmætum í um 30%. Um 110
manns starfa í fyrirtækjum hérlend-
is sem fást við framleiðslu lækn-
ingatækja. Flest fyrirtækjanna eru
smá og það er nauðsynlegt að nýta
kraftana vel, t.d. að hjálpast að í
markaðsmálum og til að uppfylla
hinar ströngu kröfur sem til tækj-
anna eru gerðar.
Á íslandi eru góðar forsendur
fyrir starfsemi innan heilbrigðis-
tækni. í fyrsta lagi koma að henni
mörg fagsvið sem þegar eru starf-
Heilbrigðistæknin, segir
Baldur Þorgilsson,
getur bætt vinnubrögð
í heilbrigðisgeiranum og
aukið afköst.
andi hérlendis. í öðru lagi sækja
margir læknar og raunvísindafólk
menntun sína erlendis og flytja
heim með sér þekkingu um nýjustu
aðferðir og tækni. í þriðja lagi er
hér stutt á milli manna og það
ætti að vera auðvelt að koma á
samstarfi á milli sérfræðinga innan
ólíkra sviða. Þetta er góður grunnur
og nokkur sérstaða fyrir starfsemi
á heilbrigðistæknisviðinu.
Heilbrigðisstofnanirnar geta
skipt íslenskan heilbrigðistækiiðnað
miklu máli - og öfugt. Eftir því sem
menn læra betur að þekkja sjúk-
dóma koma upp nýjar eða breyttar
kröfur til lækningatækjanna. Þessi
þróun gerist inni á sjúkrahúsunum
þar sem fagfólk er að fást við sjúk-
dómana - oft á tíðum í samstarfi
við erlenda kollega sína. Góð þekk-
ing á starfsemi íslenskra heilbrigð-
isstofnana og þörfum þeirra er því
verðmæt þegar þróa á ný lækninga-
tæki fyrri íslenskan og erlendan
markað. íslensk fyrirtæki hafa sýnt
getu til þess að koma auga á þarf-
ir fyrir lækningatæki og koma með
lausnir sem uppfylla þær. Það er
því mikilvægt að góð tengsl séu á
milli iðnaðarins og heilbrigðisstofn-
ananna þannig að iðnaðurinn skilji
þarfirnar og heilbrigðisstofnanirnar
fái hentug tæki.
Heilbrigðistæknin er áhugavert
hátæknisvið sem við íslendingar
ættum að nýta okkur betur til þess
að bæta þjónustu í heilbrigðisgeir-
anum og til nýsköpunar í iðnaði.
Höfundur er fornmður
Heilbrigðistæknifélags íslands.