Morgunblaðið - 22.02.1997, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1997 53
nú í kærleika. Ég vil tileinka elsku
Siggu minni þessar ljóðlínur úr
Astaróði eftir Jóhannes úr Kötlum.
Blessi þig blómjörð,
blessi þig útsær,
blessi þig heiður himinn!
Elski þig alheimur,
eilífð þig geymi,
signi þig sjálfur guð!
Elsku Hrefnu og öðrum ættingj-
um votta ég einlæga samúð mína.
Friðjón Björgvin
Gunnarsson (Beggi).
í dag er kvödd heiðurskonan Sig-
ríður Magnúsdóttir, fyrrum hús-
freyja í Borgareyrum, Vestur-Eyja-
fjöllum. Minningar frá liðnum dög-
um koma í hugann. Allar eru þær
góðar, frá þeim stundum er við átt-
um með Sigríði, hvort sem það var
í Borgareyrum, eða annars staðar,
þar sem leiðir lágu saman. Hún var
alltaf sama tryggðatröllið, með
hlýja viðmótið. Vel gefin, viðræðu-
góð, og hafði frá mörgu að segja
frá fyrri tímum, sem fróðlegt var,
og lærdómsríkt þeim er yngri voru.
Sigríður var góður málsvari þeirra
sem minnimáttar voru, og var fund-
vís á gullkornin, er gjarnan fundust
hjá þeim, en brosti góðlátlega að
þeim er lögðu ofurmat á hin verald-
legu auðæfi, en vanhagaði um ýmis-
legt, sem henni fannst skipta meiru
máli. Sigríður undi vel sínu lífs-
starfi. Hún var heimavinnandi hús-
móðir, eins og það er kallað í dag.
Hún átti ágætan eiginmann, Mark-
ús Jónsson, söðlasmið og bónda, og
með honum átti hún tíu vel gefin
og góð börn. Engir voru fæðingar-
styrkirnir á þessum tíma, eða barns-
burðarleyfi á fuilum launum. Sigríð-
ur hefur haft nóg að gera um ævina,
og litlum tíma eytt í það að velta
fyrir sér erfiðleikunum, heldur
gengið beint til verks og gert hlut-
ina, og notið þess að sjá barnahóp-
inn sinn vaxa, og leika sér um tún
og móa.
Börnin uxu og hjálpuðu til við
bústörfin eftir bestu getu, fylltu
bæinn gleði og góðum anda. Það
voru launin til góðrar og göfugrar
móður. Eftir 59 ára sambúð missti
Sigríður eiginmann sinn. Hann varð
bráðkvaddur á heimili þeirra 28.
júlí 1988. Þá var Sigríður svo biluð
í fótum að hún átti erfitt með gang,
og þá illa fær að sjá um sig sjálf.
Þá um haustið flutti hún til Hrefnu
dóttur sinnar í Bláhamra 4, Reykja-
vík. Þar naut hún umhyggju og
ástúðar góðrar dóttur til hinstu
stundar. Við heimsóttum Sigríði á
90 ára afmæli hennar, sem hún
hélt uppá í Bláhömrum 30. apríl
1995, með miklum glæsibrag. Þar
voru miklar og góðar veitingar, og
fjölbreytt skemmtiatriði en ekki vín-
veitingar. Það var gott hjá henni.
Hún hefur kunnað betur við að
hafa gesti sína með réttu ráði.
Sigríður hélt fullri andlegri reisn
til síðustu stundar. Við þökkum
henni fyrir góða samfylgd á langri
leið, og sendum afkomendum henn-
ar og tengdafólki innilegar samúð-
arkveðjur.
Blessuð sé minning Sigríðar
Magnúsdóttur.
Ingibjörg og Ingólfur
Jónsson.
Söknuðurinn er mikill, en minn-
inguna um Siggu frænku geymi ég
> hjarta mínu. Efst í huga mínum
er hve mikið geislaði alltaf af henni,
eitthvað í svipnum sem heillaði alla.
Hún hafði alltaf svör við öllum
spurningum, svör sem komu fólki
til að hugsa djúpt.
Þær stundir sem við áttum saman
síðustu ár eru mér ógleymanlegar,
alltaf var hún hress í bragði, þótt
stundum vissi ég að henni liði ekki
vel, en að hún væri að kvarta, nei,
það var ekki Sigga frænka. Hún
sagði mér svo margt sem er mér
svo dýrmætt, sögur úr sveitinni,
lýsti svo vel fólki á sinn sérstaka
hátt, fólki sem bæði er skylt mér
°g nijög tengt eins og Kötu á Arnar-
hóli, sem ég er skírð eftir. Allir sem
þekktu Siggu vita að hún var mjög
vel að sér um ættfræði, stundum
var erfitt að fylgja henni eftir. Það
var hrein unun að hlusta á hana.
Ég gleymi ekki afmælisdeginum
hennar þegar hún var 90 ára. Hún
var svo falleg þennan dag. Allt
þetta fólk laðaði hún að sér eins
og hún gerði alltaf án þess að hafa
neitt fyrir því.
Elsku Sigga frænka. Takk fyrir
allar yndislegu stundirnar sem við
áttum saman eins og bestu vinkon-
ur, þótt „smá“ aldursmunur væri,
en hann skipti aldrei máli hjá okkur.
Katrín (Kata).
Elsku amma Sigga er dáin. Ég
áttaði mig ekki á því fyrr en daginn
eftir að þetta var virkilega satt,
jafnvel þó að það hafi legið í loftinu
í nokkra daga. Ég hafði stundum
velt því fyrir mér hvernig mér liði
þegar þú myndir deyja en ég gat
ekki ímyndað mér að þetta yrði
svona erfitt.
Amma, þú varst alltaf svo kát
og hress og þegar þú varst veik og
fannst til, þá gat maður ekki séð
það því þú faldir það svo vel. Þú
varst ekki sú manngerð sem lætur
vorkenna sér.
Ég gleymi aldrei hvað það var
gott að koma til ykkar Markúsar
afa í sveitina, þú vildir alltaf vera
að gefa manni eitthvað og þá var
aldeilis ekki verið að spara. Þér
fannst lax alltaf svo góður og þú
kenndir mér að borða lax með
bræddu smjöri sem er minn uppá-
haldsmatur og þér þótti verst að
geta ekki komið pabba upp á að
borða brætt smjör með laxinum.
Ég man að það var yndislegt að
skríða smástund upp í rúm til ykk-
ar afa, þá var manni hlýjað og sagð-
ar sögur og af sögunum áttir þú
aldeilis nóg. Þú varst hreinskilin og
sagðir alltaf þína meiningu og einu
sinni sagðir þú mér að það hafi
ekki alltaf verið vel liðið.
Ég sá þig aldrei reiða og ég man
að þegar ég og frænka mín vorum
litlar þá klipptum við blóm sem
voru fýrir utan útidyrnar á húsinu
ykkar afa því við ætluðum að gera
graut. Margar ömmur hefðu
skammað krakka fyrir svona uppá-
tæki en ekki þú amma, þú hlóst
bara.
Þegar ég var 10 ára dvaldir þú
hjá okkur í Reykjavík og einn dag-
inn kom ég heim úr skólanum og
gat varla gengið vegna þess að ég
hafði tognað í frímínútunum. Ég
var dauðhrædd, hélt ég væri
stórslösuð, en þú huggaðir mig og
hughreystir, sagðist skyldu lána
mér hækjurnar þínar. Þú sagðist
bara geta notað stafinn.
Ég mun aldrei gleyma hlátrinum
þínum því að þegar þú hlóst þá
hlóstu með öllum líkamanum og
mér dettur þú alltaf í hug þegar
ég finn lykt af þvotti sem hefur
verið þurrkaður úti. Þá lykt kalla
ég alltaf „ömmu Siggu lykt“.
Amma, þegar þú kvaddir mig
sagðir þú ætíð „Guð geymi þig
blómið mitt“, og ég veit að Guð
mun geyma þig.
Ég er sannfærð um að fagnaðar-
fundirnir eru miklir í himmnaríki
þar sem þú ert núna hjá Markúsi
afa, Ester, Magga og Huldu. En
söknuðurinn er mikill hjá öllum sem
eftir lifa og voru svo lánsöm að
kynnast þér.
Elsku amma Sigga, okkur Árna
bróður langar til að kveðja þið með
vísu sem Markús afi orti þegar þið
stóðuð í varpanum í Álfhólahjáleigu
og honum fannst sem þú myndir
hugsa á þessa leið:
Aldrei verður gengin æska gleymd,
þá glatt skein sól eða máni lýsti hjam.
I minningunum gullin eru geymd,
sem glöddu mig, þá ég var lítið barn.
Kæra amma Sigga, takk fyrir
allt.
Edda Traustadóttir.
Mér fannst hún alltaf svo gáfuð
og skýr í hugsun. Þessi litla knáa
kona, með frán augu. Henni lá allt-
af svo mikið á hjarta, hafði skoðan-
ir á mönnum og málefnum, orð-
heppin með afbrigðum, talaði fal-
legt, fornt alþýðumál, sem mér
fannst svo skemmtilegt og oft
skondið. Allt fas Sigríðar í Borgar-
eyrum bar þess vitni, að þar fór
ákveðin kona og allsendis ókúguð,
þrátt fyrir óblítt aldarfar.
Fyrir rúmum þtjátíu árum kynnti
bróðir hennar hana svo fyrir mér:
„Þetta er hún Sigga systir mín“. í
orðunum fólst mikil hlýja og bróður-
kærleikur. Þar sá ég þau í fyrsta
skipti, hjónin frá Borgareyrum, Sig-
ríði og bónda hennar Markús söðla-
smið. Hún stóð þar á íslenskum
búning, brúneyg og snareyg, hann
dökkklæddur, strokinn og grár fyr-
ir hærum. Ég minnist ekki annarra
veislugesta, svo mikil var reisn
þeirra hjóna og persónuleiki þeirra
sterkur. Þau höfðu þá þegar eign-
ast tíu börn, sjö dætur og þrjá syni.
Komið þeim öllum á legg nema einni
dóttur er þau misstu á bernsku-
skeiði. Mörg önnur börn, sem ég
kann ekki að nefna, ýmist vensluð
eða óvanabundin, ólust upp á heim-
ilinu, auk allra sumarbarnanna, er
þar dvöldust, þeirra á meðal dóttir
mín sem var bróðurdóttir Sigríðar.
Á heimili þeirra Borgareyrahjóna
var ekki vinnuharka. En viðbragðs-
flýtir til verka og áhugi húsmóður-
innar um að verk gengju vel var
slíkur að það varð að orðtaki á heim-
ili mínu ef illa gekk: „Þetta hefði
ekki Siggu í Borgareyrum líkað".
Fljótlega eignaðist ég hlutdeild í
lífi þeirra hjóna. Var það ekki
minnst að þakka frásagnargleði
Sigríðar, sem auk þess var stál-
minnug og ættfróð, auk heldur var
málfar hennar svo skemmtilegt og
óspillt af ítroðslu langskólanáms að
maður hlaut að sperra við eyru.
Hjartkæra æskuvinkonu hennar
fannst mér ég þekkja, þó svo ég
hefði aldrei litið hana augum, svo
var um flest hennar samferðafólk,
aldarfar og búskaparhætti. Ég
minnist þess aldrei að hún hafi sagt
mér sömu söguna tvisvar, þótt kom-
in væri á tíræðis aldur.
Gestrisni þeirra Borgareyrahjóna
var með eindæmum. Sigríður naut
þess að veita gestum mat og drykk
eins og sá einn er reynt hefír það
að hafa lítið á milli handanna, helst
vildi hún nesta mann með nýbökuðu
flatbrauði og heimagerðri kæfu.
Þegar hún var orðin ekkja og hætt
búsforráðum gaf hún af gnótt hjart-
ans með hlýjum og fallegum orðum
á kveðjustund. Það var gott að
koma í Bláhamrana til þeirra Sig-
ríðar og Hrefnu dóttur hennar. Allt-
af fórum við mæðgur glaðari af
þeirra fundi.
Hrefna, dóttir Sigríðar, hefir
annast móður sína af kostgæfni
og fórnfýsi síðasta áratuginn, sem
við ættingjar og vinir höfum dáðst
að og metið mikils. Þó svo að
þjóðfélagið - heilbrigðiskerfið,
kunni ekki að meta slíkt framlag,
sem innt er af hendi af konum inn-
an veggja heimilanna, um leið og
það þó heiðrar þá sem stýrt hafa
fallvöltum stofnunum þessa sama
kerfis.
Ég sé Sigríði fyrir mér skunda á
fund almættisins, ásamt Bjarna
bróður sínum, en lát hans frétti
Sigríður sex dögum áður en hún
sjálf yfirgaf þetta líf. En með þeim
systkinunum öllum frá Álfhólahjá-
leigu í Austur-Landeyjum ríkti mjög
fallegt og kærleiksríkt systkina-
samband þrátt fyrir að hópurinn
tvístraðist við ótímabært fráfall föð-
ur þeirra, er systkinin voru enn á
æskuskeiði. Yngsta systirin, Magn-
þóra, sem ásamt Magnúsi bróður
sínum, var skírð yfir kistu föður
þeirra, er nú ein eftirlifandi af hópi
sjö systkina.
Það vekur mér sífellt ánægju er
ég verð vitni að kynfylgju þessara
góðu systkina hjá afkomendum
mínum, þó ekki sé nema blik í auga
sem minnir á Sigríði vinkonu mína
og mágkonu þegar henni lá mikið
á hjarta.
Ég votta bömum hennar og ást-
vinum öllum innilegustu samúð
mína og barna minna, en samgleðst
þeim um leið að hafa átt svo góða
móður og fengið að njóta hennar
svo lengi án langtímavistunar á
stofnun, sem svo sannarlega ber
að þakka.
Hrönn Jónsdóttir.
EYRÚN BJÖRG
GUÐFINNSDÓTTIR
+ Eyrún Björg
Guðfinnsdóttir
fæddist í Reykjavík
27. mars 1976. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 15.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði
21. febrúar.
Ljós friðarengils leiðir
Eyrúnu Björgu
og vísar henni veginn
í heimi sem henni er búinn.
Hún kveður ömmu og pabba sinn
og þakkar fyrir allt
sem þau best henni gerðu.
Kærleikur guðs vemdi þig
og gefi frið.
Sofðu rótt, góða nótt.
Aðaibjörg ömmusystir.
Eitt sinn verða allir menn að deyja,
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja
að sumarið líður alltof fljótt.
(Vilhj. Vilhj.)
Okkur fannst sumarið hennar
líða allt of fljótt. Við kynntumst
Eyrúnu haustið 1987 þegar hún
kom í okkar fjöruga og fjölmenna
bekk og féll hún strax inn í þennan
samheldna hóp. Þegar við hugsum
til baka koma margar fallegar og
skemmtilegar minningar upp í huga
okkar. Hún var virk í
félagslífinu og tók þátt
í öllum okkar kjána-
legu uppátækjum, þar
á meðal þegar við tók-
um upp á því að vilja
ekki kennarann inn í
stofuna og læstum
hann úti.
Eyrún lét ekki neitt
stöðva sig þegar hún
ætlaði sér eitthvað og
dæmi um það var þegar
við fórum í skíðaferða-
lag. Hafði hún ekki
mikla reynslu af skíða-
iðkun, en engu að síður
fór hún upp á topp og lét sig vaða
niður án þess að kunna að stoppa
o g þar af leiðandi klessti hún á skíða-
skálann og hlógum við mikið að því
og þá sérstaklega hún sjálf.
En þetta er bara lítið brot af öll-
um þeim skemmtilegu minningum
sem við eigum um Eyrúnu. Við
þökkum fyrir stundinar sem við
áttum saman þótt við hefðum óskað
að þær yrðu fleiri. Núna er stórt
skarð komið í okkar samheldna hóp
og það skarð mun aldrei verða fyllt
aftur. Minning Eyrúnar mun alltaf
lifa í hjörtum okkar.
Sviplega voru stöðvuð unglingsár,
eilífðin kom með gíslatöku sína.
(Guðm. I. Kristj.)
Elsku Guðfinnur, Tommi og aðr-
ir aðstandendur, guð gefi ykkur
styrk á þessum erfíða tíma. Við
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Bekkjarfélagar úr
Grunnskóla Bolungarvíkur.
AXEL ÖRN
YCOT
+ Axel Örn Ycot
fæddist í
Reykjavík 25.
október 1996. Hann
lést á Landspítalan-
um 10. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Þórunn
Maggý Jónsdóttir
og Epimaco C. Ycot.
Útför Axels Arn-
ar fór fram frá kap-
ellu Fossvogskirkju
17. febrúar.
Ó, þú fallega sak-
Iausa barn, þú varst
kallaður fyrr en okkur
hafði nokkurntíma grunað, skelli-
hlæjandi eina stundina og svo far-
inn þá næstu. Þessi heimur er mun
harðari en ég hafði nokkurn tímann
grun um.
Axel Örn minn, hvers vegna þú?
Af hveiju ekki ég? Þú hafðir rétt
þtjá og hálfan mánuð til að leyfa
mér að kynnast þér og þú mér. En
núna ert þú kominn yfir í betri og
mýkri heim, og allir heimsins engl-
ar gæta þín. Það er eins og himinn-
inn gráti af söknuði eftir þér með
litlum fallegum snjókornum.
En mundu að mamma elskar þig
og bíður eftir þeirri stundu að fá
að halda utan um þig og kyssa.
Héma er ljóð úr bók Braga
Skúlasonar, Von:
Þú litla barn, sem ég þráði að
faðma,
umvefja elsku, vaxa með þér.
Líf þitt var svo stutt
og hér er ég eftir hugsandi
um það,
sem hefði getað orðið.
Kannski í eilífðinni
fáum við að hlæja og
gráta, faðmast og
vaxa, og vinna upp
þann tíma, sem við
aldrei áttum.
Þín elskandi
mamma,
Þórunn Maggý.
Elsku litla barn, við erum öll
harmi slegin, þú sem fylltir hjörtu
okkar af gleði með tilvist þinni og
fallegu brosi. Það er svo skrýtið að
þú hafir þurft að kveðja okkur
svona skyndilega og án nokkurra
skýringa fyrir okkur hin í þessari
jarðvist. En Guð gaf og Guð tók,
og hver tilgangurinn er fáum við
ekki fullskilið fyrr en síðar.
Elsku litli Axel Örn, þú munt
ávallt eiga stað í hjarta mínu, og
fallegar minningar lifa.
Sjáumst seinna, elsku litli dreng-
urinn minn.
Þín elskandi,
Bylgja amma.
Skilafrestur
minningargreina
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnudags-
blaði ef útför er á mánudegi),
er skilafrestur sem hér segir: I
sunnudags- og þriðjudagsblað
þarf grein að berast fyrir há-
degi á föstudag. í miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags-
og laugardagsblað þarf greinin
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrir birtingar-
dag. Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.