Morgunblaðið - 23.05.1997, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
íslensku Everestfararnir þrír eru væntanlegir í grunnbúðirnar upp úr hádegi í dag
Harðfiskurinn
á toppnum
ÍSLENSKU leiðangnrsmennirnir fara í dag yfir Khumbu-ísfallið þar sem notast er við stiga
yfir sprungur. Myndina tóku þeir félagar fyrr í leiðangrinum.
Tómir súrefniskútar
og stíflaðar grímur
EVERESTFARARNIR, Björn Ól-
afsson, Einar Stefánsson og Hall-
grímur Magnússon voru í nótt í
þriðju búðum eftir um sex tíma
ferð úr Suðurskarði þar sem þeir
höfðu hvílst nokkuð eftir förina á
tindinn. í dag fikra þeir sig niður
í grunnbúðir, sem eru um 1.700
metrum neðar. Það er erfið ferð
yfir ísfallið og gæti tekið fimm
tíma ef vel gengur.
„Það er alveg ljóst á þeim tal-
stöðvarsamskiptum sem við höf-
um átt við okkar menn að löng
og flókin saga er ósögð af þeim
19 klukkustundum sem það tók
að ná hæsta tindi jarðar og að
tjöldum aftur. Þar koma við sögu
stormur, stíflaðar súrefnisgrímur,
illt göngufæri, tafír og bið í 8.700
m hæð, erfið og löng niðurferð
og margt fleira,“ segir Hörður
Magnússon, annar aðstoðarmaður
þremenninganna, og sagði að
kokkarnir í þriðju búðum hefðu
tekið á móti piltunum með heitu
tei. Hörður hafði það eftir fjalla-
mönnum í bandarískum leiðangri
sem er á uppleið að þeir hefðu
mætt afskaplega þreyttum mönn-
um í fjallinu.
Fimmtu búðir eru í nærri 8
þúsund metra hæð og náði Hörður
talstöðvarsambandi við íslensku
leiðangursmennina í þriðju búðum
síðdegis í gær. Björn var fyrstur
niður og sagði hann hina væntan-
lega um klukkustund síðar. Hörð-
ur hafði eftir honum að þeir hefðu
lítið hvílst í fimmtu búðum, feng-
ið svolítið súrefni til að ná því að
sofna en um leið og áhrif þess
fjöruðu út vöknuðu menn aftur
ískaldir, hvíldin væri lítil en hægt
að viðhalda kröftum.
Aldrei verið
eins hræddur
Hörður sagði að fleiri stefndu
nú á tindinn eftir að svo vel tókst
hjá íslensku piltunum, bæði úr
þeirra leiðangri og öðrum. „Þeir
félagar Chris Brown og Watts,
sem dvöldu með strákunum í Suð-
urskarði og reyndu með þeim
þann 19. en treystu sér ekki dag-
inn eftir, komu niður í grunnbúð-
ir í dag. Þeir sögðu svolítið aðra
sögu af fyrstu tilrauninni til að
komast á tindinn en strákarnir.
Þeir hafa aldrei lent í svona slæmu
veðri og hefur Chris Watts nærri
20 ára reynslu af klifri í Himalaja-
Qöllum. Chris Brown hefur aldrei
verið eins hræddur á ævinni og
átökin að koma niður aftur drógu
úr þeim mátt.
Þeir segja svo að verið hafi
ákaflega hvasst þegar lagt var
upp í annað sinn og þeim hafi
ekki komið til hugar að leggja af
stað þótt þeir hefðu haft krafta
til. Það er ljóst að strákarnir eru
veðurvanari af íslandi en þeir og
finnst minna til veðurhæðarinnar
koma. Chrisarnir tveir segjast
hafa gert sitt besta en það hafi
bara ekki verið nóg. Þeir eru þó
svekktir yfir því að þeir telja ann-
an hópinn okkar fá betri aðstæður
og að þeir hefðu átt góðan mögu-
leika með honum. Kraftar þeirra
eru hins vegar á þrotum og þeir
munu ekki reyna aftur.“
Annar hópurinn með þeim Jon
Tinker leiðangursstjóra, Mark,
Eric og Chris Brown ásamt
Lakpageilo sherpa, DarTensi
sherpa og Danuru sherpa fór upp
Flateyri. Morgunblaðið
EINS og fram hef-
ur komið í fréttum
höfðu Everestfar-
arnir með sér
harðfisk úr Ön-
undarfirði. Fram
kom á heimasíðu
þeirra að harðfisk-
urinn væri eina
fæðan sem þeir
gætu haldið niðri.
Harðfiskurinn
góði reyndist eiga
rætur sínar að
rekja í Neðri-
Breiðadal þar sem
hjónin Halldór
Mikaelsson og
Guðrún Oskars-
dóttir reka harð-
fiskverkun ásamt
fjórum börnum
sínum.
Halldór segir að
þau hafi verkað
harðfisk í nær 10
ár. „Vinsælust er ýsan, þá
steinbítur og þar á eftir kemur
þorskur. Háannatíminn í fram-
leiðslu er í kringum þorrablót-
in, þá er mest að gera,“ segir
Halldór.
Guðrún var spurð um tildrög
þess að harðfiskurinn lenti
ofan í bakpokum þeirra Ever-
estfara. Hún sagði að systir sín
sem byggi í Reykjavík og væri
mikil útivistarkona og um leið
félagi í íslenska Alpaklúbbnum
hefði oft haft í för með sér
harðfisk frá sér í ferðum sín-
um. Everestfararnir og þá
aðallega Hallgrímur Magnús-
í Suðurskarð í dag og reynir við
tindinn í nótt að sögn Harðar. „Nú
er besta veðurspá í margar vikur
fyrir morgundaginn og þeir njóta
þess að búið er að ryðja slóðina
og leggja línur á erfiðustu stað-
ina,“ sagði Hörður í gær. Þeim
fylgir reyndar einnig talstöðva-
búnaður íslendinganna því hann
reyndist óaðfinnanlega sem er
annað en segja má um aðrar tal-
stöðvar.
„Við þurfum því að standa
vaktina í' nótt aftur til að þeir
hafi samband við umheiminn. Við
höfum af því fregnir að í nótt
muni að minnsta kosti Malaysíu-
menn og Nova leiðangurinn
bandaríski reyna. Það var öllum
hér mjög létt að sálfræðilegi múr-
inn var brotinn með árangri okkar
manna í gær og það er allt annað
að heyra í mönnum hér nú og
mun meiri bjartsýni á góðan
árangur en áður.“
Veisla ráðgerð í
grunnbúðumá sunnudag
Jón Þór Víglundsson sagði í
samtali við Morgunblaðið úr
grunnbúðum laust eftir hádegi í
son, hefðu smakkað harðfisk-
inn og líkað vel og farið að
grennslast fyrir um hvaðan
hann kom.
Þeir ákváðu síðan að kaupa
töluvert magn af þeim hjónum
til að nota í baráttu sinni við
að klífa hæsta tind jarðarinn-
ar. Það hefði gengið eftir og
því ekki annað hægt en að sam-
gleðjast þeim félögum fyrir
þennan frækilega árangur.
Hér skaut Halldór inn í að vest-
firska „alpaloftið" hefði gert
gæfumuninn hvað varðar
bragð og gæði harðfisksins af
þessu svæði landsins.
gær að ætlun þremenninganna
væri að fara um sexleytið í morg-
un að þeirra tíma úr þriðju búðum
til að komast yfir ísfallið áður én
sól næði að skína á það sem ger-
ist nokkru fyrir hádegi þegar hún
nær framhjá tindi Everest þar sem
bæði getur orðið þar óbærilega
heitt og varasamt ef ísinn fer að
hreyfast. Sagði hann þremenning-
ana reikna með að komast í
grunnbúðir um hádegið og þar
myndu kaldar veitingar bíða
þeirra.
„Þeir verða hér um það leyti
sem vænta má frétta af seinni
hópnum, hvort honum hafí tekist
að ná tindinum ef hann heldur
áfram í nótt eins og ráðgert er,“
sagði Jón Þór. „Síðan hinkrum
við hér nokkra daga í viðbót þar
til hópurinn kemur niður aftur og
mikil veisla er ráðgerð á sunnu-
daginn til að fagna því sem þegar
hefur náðst og jafnvel meiru. A
mánudag höldum við svo af stað
til Katmandu sem tekur líklega
þrjá daga ef við fáum þyrluferð
síðast spölinn." Heimferð er síðan
ráðgerð 1. júní til London og
áfram til Islands 3. júní.
Everestfararnir
höfundar greina
ÞAÐ láðist að geta þess í
Morgunblaðinu í gær að greinar
um frumheijana á Everest og
Sherpana sem birtust á
miðopnu blaðsins í gær eru eft-
ir íslensku leiðangursmennina á
Everest, þá Björn Ólafsson,
Einar Stefánsson og Hallgrím
Magnússon en þar voru birtir
kaflar úr fyrri greinum eftir þá.
Fjallgarparnir eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Morgunblaðið/Valdimar Kriatinsson
FARSÆLL frá Arnarholti og Ásgeir Svan fóru mikinn
í forkeppni B-flokks gæðinga í gær og hafa öruggt forskot.
Gæðingakeppni Fáks hófst í gær
Farsæll með gott forskot
FARSÆLL frá Arnarholti hefur
gott forskot eftir forkeppni B-
flokks gæðinga á Gæðingamóti
Fáks sem hófst í gær. Er hann
með 8,75 í einkunn en Ásgeir Svan
Herbertsson knapi hans er jafn-
framt eigandi. Annar er Valiant frá
Heggsstöðum sem Hafliði Hall-
dórsson sýndi með 8,59 en jafn
honum er Snillingur frá Austvaðs-
holti sem Gunnar Arnarsson sýndi.
I fjórða sæti varð Logi frá Skarði,
sem Sigurbjörn Bárðarson sýndi,
með 8,55 og Erill frá Kópavogi er
fímmti með 8,46. Daníel Jónsson
sýndi Eril. Alls komast sextán hest-
ar áfram í fullnaðardóm sem fram
fer í dag og hefst sú keppni klukk-
an sextán.
Þá fór fram forkeppni ungmenna
í gær og varð þar í efsta sæti Erró
frá Langholti, knapi Alma Olsen,
með 8,38, Ögri frá Vindási varð
annar, knapi Hraínhildur Guð-'
mundsdóttir með 8,23, Kolskeggur
frá Barkarstöðum þriðji, knapi
Gunnhildur Sveinbjarnardóttir með
8,20, Snúður frá Götu fjórði, knapi
Bjarni Nicolaison með 8,16 og
Skrúður frá Glæsibæ fimmti með
8,08, knapi Davíð Jónsson. Dag-
skrá mótsins hefst klukkan 15 í
dag með B-flokkskeppni áhuga-
manna. Yfirlitssýning kynbóta-
hrossa verður á laugardag klukkan
15.