Morgunblaðið - 23.05.1997, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lionsklúbburinn Freyr kynnir árangur af samstarfí við tannfræðinga
Um 25.000 böm þátttakend-
ur í tannvemdarverkefni
Morgunbiaðið/Þorkeii TANNFRÆÐINGARNIR (f.v.) Guðrún Stefánsdóttir, Margrét
LIONSMENNIRNIR Sigurður Tómasson og Þórarinn Kópsson Þórisdóttir, Hrafnhildur Pétursdóttir, Inga Birgisdóttir og
bregða á leik í gervi Tanna og Túbu. Ásthildur Dóra Kristjánsdóttir.
LIONSKLÚBBURINN Freyr
kynnti á fundi sínum sl.
þriðjudagskvöld árangur af
fimm ára átaksverkefni í
tannhirðu barna sem unnið
hefur verið í samstarfí við
Tannfræðingafélag íslands.
Hefur Lionsklúbburinn
Freyr séð um dreifíngu á
sérstöku tannverndarverk-
efni til 6 ára barna í grunn-
skólum landsins og hafa nú
um 25.000 börn notið slíkrar
kennslu með þeirra aðstoð.
Verkefnið hefur fengið góð-
ar undirtektir í skólunum og
var á þessum tímamótum
ákveðið að því skyldi fram
haldið.
Hugmyndin kviknaði I
kjölfar gagnrýni á sölu jóla-
dagatala með sælgæti sem
Lionsklúbburinn Freyr hef-
ur staðið fyrir sl. 25 ár í íjár-
öflunarskyni. Verkefnið var
hannað í samráði við tann-
fræðinga en þeir eru sér-
menntaðir í forvörnum og
starfa innan skóla og á tann-
læknastofum. Fyrstu tann-
fræðingarnir hófu störf um
1980 og hafa um 25 lokið
menntun í fræðunum síðan.
Tannfræðingar fara með
fræðslu á vegum heilbrigðis-
ráðuneytisins til 6 ára barna
og annars hvers árgangs allt
upp í 10. bekk grunnskóla.
Þá hafði tilfínnanlega vantað
gögn til að gera kennsluna
markvissari og gripu því
þetta tækifæri fegins hendi.
Tanni og Túba til höfuðs
Karíusi og Baktusi
í verkefninu eru kynntar
persónurnar Ari og Vala og
er það barnanna að velja
þeim hollt nesti. Þau svara
einnig spurningum um mat-
aræði og hversu oft sé nauð-
synlegt að bursta tennurnar.
Þau eru beðin um að kanna
hvort fyrsti fullorðinsjaxlinn
sé kominn og minnt á að hann
þurfi að passa sérstaklega
þar sem hann þurfí að endast
þeim alla ævi. Átaksverkefn-
ið er einkennt með þeim
Tanna og Túbu, tákni tann-
burstans og tannkremstúb-
unnar sem náð hafa mikilli
hylli meðal yngstu kynslóðar-
innar. Segja Lionsmenn þá
félaga nú vera hveiju barni
kunnuga, ekki síður en höf-
uðóvinina, þá Karíus og Bakt-
us. Með verkefninu fylgir
orðsending til foreldra og
leiðbeiningar með góðum
ráðum við burstun. Colgate
umboðið lætur tannbursta og
tannkrem fylgja með hverju
verkefni.
Yngrien lOára
þurfa aðstoð
Ásthildur Dóra Kristjáns-
dóttir tannfræðingur tók
fram í umQöllun sinni að það
væri mikilvægt að skilaboð
sem þessi bærust inn á heimil-
in og að foreldrar væru með-
vitaðir um ábyrgð sína á
tönnum barnanna. Börn eru
ekki fær um að bursta sjálf
fyrr en um 10 ára aldur.
„Þessu viröist vera mjög
ábótavant og börn á leik-
skólaaldri segjast oft bursta
tennurnar sjálf,“ sagði Ást-
hildur Dóra. Hún tók fram
að það væri sérstaklega
ánægjulegt að geta boðið
börnunum upp á jafn veglega
gjöf og benti á að kennarar
hefðu oft ekki úr miklu að
moða og sérútbúið verkefni
sem þetta hefði getað nýst
þeim í tengslum við skóla-
starfið, t.d. í umfjöllun um
mannslíkamann. Verkefnið
sé litríkt og því skemmtilegt
að vinna.
Sparnaður í heilbrigðiskerfi
með forvörnum
Sveinn Indriðason, formað-
ur Freys, benti í ræðu sinni
á að mestur sparnaður í heil-
brigðiskerfinu fengist með
forvörnum. Árangur verk-
efnis sem þessa mætti því
vafalítið merkja þegar til
lengri tíma væri litið. Guðrún
Stefánsdóttir, formaður
Tannfræðingafélags Islands,
flutti þakkarræðu félagsins
til Lionsmanna og hrósaði
þeim fyrir framtakssemina
og það að þeir skyldu hafa
séð svo langt fram í tímann
og reynt að mæta þeim gagn-
rýnisröddum sem heyrst
hefðu. Hún benti á að tann-
fræðingar ættu mikið starf
fyrir höndum í skólum lands-
ins, á öldrunarheimilum og á
sjúkrahúsum og stuðningur
Lionsmanna væri svo ungu
og lítt þekktu félagi kærkom-
inn. Fram kom einnig að
árangur starfsins væri þegar
merkjanlegur þar sem tann-
fræðingar væru í dag að fá
allt önnur svör en þeir fengu
fyrir nokkrum árum. Brýnt
væri fyrir fólki að það væri
þess hversu mikið það borg-
aði í tannhirðu þegar trygg-
ingarerfínu sleppti við 16 ára
aldur.
Hafa safnað um 70
milljónum á 30 árum
Við lok fundar afhenti
Sveinn Indriðason styrk
Lionsmanna til Tannfræð-
ingafélagsins með ósk um að
þeir gætu leitað sér frekari
menntunar á sínu sviði. Hef-
ur samstarf Lionsmanna við
tannfræðingafélagið verið
með þeim ágætum að þeir
tala nú um að gera tannfræð-
ingana að meðlimum í
klúbbnum. Freysmenn hafa,
frá stofnun klúbbsins 1966,
deilt um 70 milljónum út til
ýmissa félagasamtaka og
sjúkrastofnana sem og ein-
staklinga. Nú í júníbyrjun
munu þeir afhenda þriðja
vistrýmið sem Freysmenn
hafa safnað fyrir á Hrafnistu
og er það gert í samvinnu
við Sjómannadagsráð.
ÁSTHILDUR Dóra gerir fundargestum grein fyrir verkefninu.
Ver dokt-
orsritgerð
viðHá-
skólann
BJARNHEIÐUR K. Guðmunds-
dóttir, líffræðingur ver doktorsrit-
gerð sína við Læknadeild Háskóla
Islands laugardaginn 24. maí. Pró-
fessor Jóhann Ág. Sigurðsson, Há-
skóla Islands, stjórnar athöfninni
sem fer fram í Háskólabíói og hefst
kl 13:00. Andmælendur verða Dr.
Alan Munro forstöðumaður Marine
Laboratory, SOEFD, Aberdeen
Skotiandi og Prófessor Ásgeir Har-
aldsson, Háskóla íslands. Rann-
sóknir þær sem ritgerðin byggir á
voru unnar við Tilraunastöð H.í. í
meinafræði að Keldum. Ritgerðin
er skrifuð á ensku og er titill henn-
ar: Aeromonas salmonicida subsp.
achromogenes : A study of extra-
cellular virulence factors and im-
munity in Atlantic salmon (Salmo
salar L.).
Ritgerðin fjallar um stofna Gram
neikvæðu bakteríunnar Aeromonas
salmonicida af undirtegund achro-
mogenes, sem valda kýlaveikibróð-
ur í laxfiskum og hliðstæðum sjúk-
dómum í öðrum fisktegundum,
bæði villtum og ræktuðum. Kýla-
veikibróðir er landlægur sjúkdómur
á íslandi og sá bakteríusjúkdómur
sem mestum skaða hefur valdið í
íslensku fiskeldi. Sjúkdómurinn hef-
ur einnig verið greindur í villtum
laxfískum og þorski. Til að halda
sjúkdómnum í skefjum þarf að bólu-
setja fiskinn eða meðhöndla með
sýklalyfjum.
I þeim rannsóknum sem ritgerðin
byggir á var lögð áhersla á að skil-
greina sýkingarmátt kýlaveikibróð-
urbakteríunnar í laxi, fínna mótefn-
isvaka sem myndar verndandi
ónæmissvar og að þróa bóluefni
með öfluga virkni gegn kýlaveiki-
bróður í laxi. Helstu niðurstöður
rannsóknanna voru eftirfarandi:
Aðaleitur bakteríunnar var einangr-
að og skilgreint og reyndist það
vera áður óþekkt ensím, sem mynd-
aði verndandi mótefnissvar gegn
kýlaveikibróður. Fleiri prótein, sem
eru virk í sýkingu bakteríunnar
voru einangruð og rannsökuð þar
á meðal önnur óþekkt úteitur teg-
undarinnar.
Bjarnheiður er fædd á Stokks-
eyri 1. maí árið 1948. Foreldrar
hennar eru Anna Bjarnadóttir, hús-
freyja í Kópavogi og Guðmundur
H. Jónsson fyrrverandi forstjóri
BYKO. Eiginmaður Bjarnheiðar er
Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahús-
prestur og eiga þau þijú börn,
Hrefnu Ösp, viðskiptafræðing, Guð-
mund, kennaranema og Stefán Þór,
grunnskólanema.
------»--» ♦---
Miðstjórnarfundur
Alþýðubandalagsins
Sjávarútvegs- o g
Evrópumál
rædd um helgina
MÁLEFNI Evrópu og sjávarútvegs
verða til umræðu á miðstjórnar-
fundi Alþýðubandalagsins sem
haldinn verður um helgina. Fer
fundurinn fram á Þinghóli í Kópa-
vogi.
Stefna flokksins í sjávarútvegs-
málum hefur verið í endurskoðun.
Starfshópur skilar skýrslu um málið
á fundinum. Einnig mun starfshóp-
ur í utanríkismálum greina frá
vinnu siiini. Klukkan 13 á laugar-
dag setur Margrét Frímannsdóttir,
formaður flokksins, ráðstefnu um
Evrópumálin og síðan flytja erindi
þau Þórir Ibsen stjórnmálafræðing-
ur, Björn Friðfinnsson ráðuneytis-
stjóri og Anna Ólafsdóttir Björns-
son fyrrum alþingismaður.
I
l
I
I
I
i
f
t
í
I
I
I
j