Morgunblaðið - 23.05.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 15
AKUREYRI
Ungmenna- og íþróttasamband Ólafsfjarðar
Félagshús tilbúið
um mánaðamót
Nóg af silungi í ósnum
Ólafsfjörður. Morgunblaðið.
UM næstu mánaðamót er gert ráð
fyrir að vinnu við félagshús Ung-
menna- og íþróttasambands Ólafs-
flarðar ljúki.
Húsið, sem er tveggja hæða og
hið glæsilegasta, stendur við knatt-
spymuvöll bæjarins. A efri hæð húss-
ins eru skrifstofur, eldhús, salemi og
fundarsalur. Á neðri hæðinni em
sturtur, búningsklefar, ræstiherbergi
og geymslur. Áætlaður kostnaður við
bygginguna verði 24 milljónir króna.
Ungmenna- og íþróttasamband
Ólafsfjarðar á 28% hlut í húsinu,
íþróttafélagið Leiftur á 64% og Golf-
klúbbur Ólafsfjarðar og Skotfélag
Ólafsfjarðar eiga saman 8%.
Byrjað var að vinna við húsið í
apríl á síðasta ári og eins- og áður
hefur komið fram er áætlað að því
ljúki um næstu mánaðamót þannig
að byggingartíminn er aðeins 13
mánuðir.
Tréver hf. hefur haft veg og vanda
að því að reisa húsið. Mikið af frá-
gangsvinnu hefur verið unnin í sjálf-
boðavinnu og fer sú vinna aðaliega
fram á kvöldin og um helgar.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
ÞAÐ er ekki algengt að venð
sé að krækja í silung á þessum
tínia. Ragnar Axelsson hefur
verið að fá silung í ósum Ólafs-
fjarðarvatns undanfarna daga.
Ragnar sagði að hér væri senni-
lega á ferðinni niðurgöngufisk-
ur og væri hann nokkuð feitur.
Þegar ljósmyndara bar að garði
hafði hann fengið 15 fallega
silunga á innan við klukku-
stund. Daginn áður fékk hann
23 stykki. Ragnar er mikill
áhugamaður um stangveiði og
dorgveiði. Á myndinni má sjá
Ragnar nýbúinn að krækja í
einn.
Nám í
svceðameðferð^
"'víðbragðsfræði
Fyrsti hluti námsins verður
• á Akureyri 28.-31. maí
• á Egilsstöðum 28.-31. maí
• í Reykj avík 4.-7. j úní
snerting
skynjun
þekking
eru kjörorð námsins
I
Nuddkóli Nuddstofu
Reykjavíkur,
sími 557 5000.
Katrín Jónsdóttir,
Akureyri,
sími 462 4517.
. Nýtt
listgallerí
opnað
SNORRI Ásmundsson mynd-
listarmaður á Akureyri opnar
í dag, föstudaginn 23. maí,
nýtt listgallerí að Kaupvangs-
stræti 23, í kjallara vinnustofu
sinnar.
Opnunarsýning verður á
verkum Werners Kalbfleish
eftir gengið Akureyri-USA,
eða þá Ásmund Ásmundsson,
bróður Snorra og Justin Blau-
stein, en um leið verður um-
boðsskrifstofa fyrir Akureyri-
USA opnuð á sama stað. Opn-
un gallerísins ber upp á afmæl-
isdag Jóhanns bróður Snorra
og henni lýkur 19. júní næst-
komandi, á afmælisdegi Vals
bróður hans.
Snorri hefur valið galleríi
sínu hið hógværa nafn „Inter-
national gallery of Snorri Ás-
mundsson,“ en hugmyndin að
því er að opna fyrir skemmti-
lega strauma í listinni og víkka
sjóndeildarhringinn í menning-
arlífi landans með alþjóðlegum
myndlistarsýningum.
Galleríið verður opið dag-
lega frá kl. 14 til 18.
Nám í svæða-
meðferð
NUDDSKÓLI Nuddstofu
Reykjavíkur og Katrín Jóns-
dóttir svæðanuddari á Akur-
eyri standa fyrir námi í svæða-
meðferð, á Egilsstöðum, Akur-
eyri og Reykjavík.
Námið er 415 kennslu-
stundir í formi fyrirlestra,
verklegra æfinga og verkefna-
gerðar. Það spannar yfir 4
annir og er þá sex mánaða
starfsþjálfun meðtalin. Auk
þess er bóklegt nám 30 eining-
ar í heilbrigðisgreinum.
Fyrsti hluti námsins verður
á Ákureyri og Egilsstöðum
28.-31. maí og í Reykjavík
4.-7. júní. Upplýsingar veita
Katrín Jónsdóttir á Akureyri
og Nuddskóli Nuddstofu
Reykjavíkur.
Kórar aldr-
aðra í Akur-
eyrarkirkju
KÓR Félagsstarfs aldraðra,
Vesturgötu 7 í Reykjavík, er
að ljúka vetrarstarfinu. Kórinn
skipa 45 manns, þ.e. blandað-
ur kór, kvennakór og karlakór.
Kórinn fer í sumarferð um
helgina og heldur tónleika í
Akureyrarkirkju sunnudaginn
25. maí klukkan 17 ásamt
kórum aldraðra frá Akureyri,
Húsavík og Dalvík.
„SumarLitarí 97H
hefur varið cireift í grunnskóium 0*g
iíifk«kóIum bofgarínnar.
i PliklíngnMm er að finna ópplýiírtgar um
þau éiimamámakaíð aem í boói eru á
vogwm ÍTR, íþróítafálaga og aamtlka i neykjavik.
Skráning:
Skránlng á námskeíðln hefat é iaugardag
íféipgimlðrnóðvum ki, 13,00117,00.
Um irinríiuri | ffimskelð iþróttáfóiaga og samtaka,
ájá nánerí |ipplý@lngar i bStpgnum.