Morgunblaðið - 23.05.1997, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERIIMU
Morgunblaðið/Ármann
BEITIR NK frá Neskaupstað fékk um 600 tonna kast í færeysku
lögsögunni á dögunum og eru skipverjar að vonum ánægðir.
Dræm síldveiði
síðustu daga
VEIÐI er ennþá dræm á síldarmið-
unum en þó fréttist af þokkalegum
köstum hjá nokkrum skipum í fyrri-
nótt. Skipin eru nú að veiðum í
Síldarsmugunni, nokkru norðar en
þau hafa áður verið. Samtals hafa
íslensku skipin nú borið um 106.000
tonn af síld á land frá upphafi ver-
tíðar.
Veiði hefur verið sérlega dræm
síðustu daga og skipin hafa komið
í land með slatta eftir allt að fimm
daga á miðunum. Lítil áta er ennþá
í síldinni, hún liggur djúpt en sjó-
menn segja að hún lyfti sér ekki
fyrr en hún fer að éta. Rannsóknar-
skipið Ámi Friðriksson er nú statt
á síldarmiðum nokkru austan við
íslenska skipaflotann og hefur orðið
vart við mikið af átu á svæðinu.
Eins og stendur gefur síldin helst
færi á sér í örfáa klukkutíma undir
lágnættið. Þá segja sjómenn það
ekki bæta úr skák að nú em fjöl-
mörg trollskip af ýmsu þjóðemi að
veiðum i Síldarsmugunni. Segja
þeir trollin tvístra torfunum og gera
þær enn erfiðari viðureignar.
Kvótinn að verða hálfnaður
í gær hafði verið landað um
111.000 tonnum af síld hér á landi
frá upphafi vertíðarinnar, þar af
um 106.000 tonnum úr íslenskum
skipum, samkvæmt upplýsingum
frá Samtökum fiskvinnslustöðva.
Heildarkvóti íslendinga úr norsk-
íslenska síldarstofninum á þessu ári
er 233.000 tonn og kvótinn því að
verða hálfnaður. Fá skip voru á
landleið í gær að sögn Tilkynninga-
skyldunnar.
Langmestu hefur verið landað
hjá loðnuverksmiðju SR-mjöls á
Seyðisfírði, alls um 24.000 tonnum.
Tæpum 14.000 þúsund tonnum
hefur verið landað hjá bæði Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar hf. og Loðnu-
vinnslunni hf. á Fáskrúðsfirði og
um 12.500 tonnum hefur nú verið
landað hjá Síldarvinnslunni hf. í
Neskaupstað.
Ráðherra stefnt vegna
kvótaúthlutunar
Siglufírði. Morgunblaðið.
SIGLFIRÐINGUR hf, útgerðarfé-
lag Siglis SI, hefur stefnt sjávarút-
vegsráðherra vegna kvótaúthlutun-
ar til skipsins á úthafskarfa á
Reykjaneshrygg. Voru forráða-
menn útgerðarinnar ósáttir við að
ekki skyldi tekið tillit til allra af-
urða, sem að landi höfðu borist,
heldur miðaðist kvótaúthlutunin
eingöngu við frosinn físk.
Á Sigli SI er verksmiðja um
borð sem nýtir haus, bein, innyfli
og ónýtan karfa í mjöl og lýsi, en
engum kvóta var úthlutað út á þær
afurðir. Að sögn Runólfs Birgisson-
ar, framkvæmdastjóra Siglfirðings
hf, hefur það verið stefnan að
nýta allt það hráefni, sem kemur
inn fyrir borðstokkinn, „en þessi
kvótaúthlutun nú sýnir að það er
ekki metið, er til kastanna kemur,
að við höfum unnið úr því hráefni,
sem aðrir henda því enginn kvóti
fékkst út á bræðsluna."
Siglir fékk úthlutað 1.850 tonna
úthafskarfakvóta á Reykjanes-
hrygg, en sjálfir höfðu forráða-
menn fyrirtækisins reiknað með
2.500 tonna kvóta. Málflutningur
í þessu máli fór fram í gær og mun
dómur að öllum líkindum verða
kveðinn upp innan mánaðar þar
sem málið mun fá flýtimeðferð.
Siglir er nú á karfaveiðum á
Reykjaneshrygg. Runólfur kvað
veiðarnar hafa verið óvenju rólegar
miðað við árstíma, en skipið er
komið með um 240 tonn af frosnum
fiski og um 100 tonn af lýsi og
mjöli frá síðastliðnum mánaðamót-
um er það hóf veiðar á Hryggnum.
Siglfirðingur SI, sem einnig er
í eigu sama fyrirtækis, er sem
stendur á lýsingsveiðum við strend-
ur Namibíu og hefur aflast þokka-
lega, en reyndar mun verð á afurð-
um vera fremur lágt. Mannskapn-
um líkar vel í suðurhöfum, en að
sjálfsögðu eru fjarverurnar erfíðar
íjölskyldumönnum um borð.
Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda
Aðalfundur haldinn í dag
AÐALFUNDUR Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda verður hald-
inn í dag, föstudaginn 23. maí, og
hefst kl. 14.00 á Hótel Sögu, B-sal.
Dagskrá fundarins hefst með ræðu
formanns, Lárusar Ægis Guðmunds-
sonar. Að því búnu ávarpar Þorsteinn
Pálsson, sjávarútvegsráðherra, fund-
inn og síðan flytur Pétur Bjarnason,
framkvæmdastjóri, ræðu.
Að afloknu kaffíhléi, verður geng-
ið til hefðbundinna aðalfundarstarfa
og að þeim loknum munu tveir ge-
stafyrirlestrar flytja erindi. Guðrún
Ásta Sigurðardóttir frá Ríkistoll-
stjóra ræðir um nýjar upprunareglur
og aukið eftirlit og Snorri Rúnar
Pálmason frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu talar um umhverfisverndarsam-
tök og aðgerðir stjórnvalda.
í
_____________ERLEIUT___________
Borís Jeltsín þykir endurskipulagning hersins ganga hægt J
Y fírmönnum varn-
armála skípt út i
Igor Viktor Igor
Rodionov Samsonov Sergejev
Spilling í hern-
um enn mikið
vandamál
Moskvu. Reuter.
ÍGOR Rodionov, sem Borís Jeltsín
Rússlandsforseti rak úr embætti
varnarmálaráðherra í gær, fékk
með brottrekstrinum að súpa seyð-
ið af því að hafa ekki tekizt að
ná tilætluðum árangri í því erfiða
verkefni að uppræta spillingu í
rússneska hernum og hrinda rót-
tækum skipulagsendurbótum á
heraflanum í framkvæmd.
Rodionov hlaut frægð á sínum
tíma sem hershöfðingi rússneska
innrásarliðsins í Afganistan, en
honum fól Jeltsín hið vandasama
hlutverk varnarmálaráðherra fyrir
10 mánuðum. Hann var hæst setti
maðurinn, sem Jeltsín svipti emb-
ætti í gær, en ásamt honum fauk
Viktor Samsonov, forseti herráðs-
ins. í embætti Prímakovs var skip-
aður Igor Sergejev, sem um langt
skeið hafði þjónað sem yfirmaður
kjarnorkuheraflans. Í stað Sam-
sonovs kom Viktor Tsjetsjevatov
hershöfðingi.
Hershöfðingi
handtekinn
í fyrradag var Konstantín Kob-
ets, einn hæst setti hershöfðing-
inn og aðstoðarvarnarmálaráð-
herra, handtekinn vegna spilling-
arákæra. Hann naut áður hylli
sem hetja fyrir þá einörðu vörn
sem hann veitti Jeltsín þegar
kommúnistar reyndu að ræna
völdum árið 1991.
í síðasta mánuði var yfirmaður
landhersins, Vladimir Semjonov
hershöfðingi, rekinn vegna ásak-
ana um spillingu, sem hann eins
og Kobets vísar staðfastlega á
bug.
Að sögn saksóknara hersins
liggja nú 20 hershöfðingjar og
100 ofurstar undir grun um spill-
ingu sem verið er að rannsaka.
Sögur ganga fjöllunum hærra af
viðskiptum með eignir hersins, frá
matarskömmtum til eldflauga,
sem þeir sem í aðstöðu til þess
séu noti til að maka krókinn.
Verktakar, sem framleiða her-
gögn og byggja glæsisumarhús
handa helztu yfirmönnum hersins
í skiptum fyrir gróðavænlega
verkefnissamninga fyrir herinn,
eru annað dæmi um slíkar spill-
ingarsögur.
Enn stefnt á atvinnumanna-
her árið 2000
Erfiðasta verkefnið, sem Rodi-
onov hafði verið fengið og að
mati Jeltsíns gekk of hægt að
leysa, var að fækka í liði hins
áður stolta hers og breyta honum
í samræmi við þá ákvörðun að
breyta honum úr herskyldu- í at-
vinnumannaher. Takmarkið er að
þessi umbylting á uppbyggingu
heraflans verði komin til fram-
kvæmda árið 2.000, en hún krefst
þess að hundruð þúsunda áður
herskyldra hermanna yfirgefi
raðir hersins, þar með taldir
margir yfirmenn, sem ekki verður
þörf fyrir í hinum nýja strang-
skipulagða atvinnumannaher,
sem ætlað er að vera mun sveigj-
anlegri og hæfari til að takast á
við verkefni 21. aldarinnar.
Rodionov hafði varað við því að
þessi áform myndu reynast dýr,
ekki sízt vegna þess að atvinnu-
hermenn yrðu að fá laun sem fag-
menn. Hann hefur lýst sig vantrú-
aðan á að takmarkið náist árið
2.000.
Þegar Jeltsín gerði síðast alls-
herjaruppstokkun á ríkisstjórn-
inni í marz síðastliðnum hélt Rodi-
onov sæti sínu. Jeltsín hafði hælt |
hreinskilni Rodionovs, er hann *
gagnrýndi ráðamenn og yfirmenn
í hernum fyrir hættulega bágt
ástand heraflans. Þegar Rodionov
tók upp á því að gagnrýna líka
einn af trúnaðarráðgjöfum Jelts-
íns fyrir að gera lítið úr vandamál-
um hersins, og að Iíta á nýtt
samkomulag Rússa um samstarf
við NATO allt öðrum augum en
forsetinn mun Jeltsín hafa þótt «
vera fokið í flest skjól fyrir varn-
armálaráðherranum, og tíma-
bært að skipta um mann í emb-
ættinu.
Umbótasinnar
í öryggisráðið
Jeltsín lét ekki sitja við út-
skipti æðstu yfirmanna rúss- '
neskra varnarmála í gær. Hann
gaf út tilskipun um að þrír frjáls- |j
lyndir samherjar sínir - varafor-
sætisráðherrarnir Anatolí *
Tsjúbajs og Boris Nemtsov, auk
starfsmannastjórans í Kreml,
Valentíns Júmashevs - skyldu
hljóta sæti í öryggisráðinu, sem
formlega er til ráðgjafar forsetan-
um en er vettvangur þar sem
stefnumótun í mikilvægustu mál-
um ríkisins fer fram.
Þetta skref Jeltsíns þykir merki
um aukin áhrif fijálslyndra um- t
bótasinna í rússneskum stjórnmál-
um.
Stoltenberg for-
maður umhverf-
ismálanefndar
THORVALD Stoltenberg, sendi-
herra Noregs í Danmörku og fyrr-
verandi utanríkisráðherra, hefur
verið útnefndur
formaður nýrr-
ar 32 manna
nefndar, sem á
að vera fram-
kvæmdastjórn
Evrópusam-
bandsins til
ráðuneytis í
umhverfismál-
um. Meirihluti
fulltrúa í nefndinni er frá ríkjum
ESB, en einnig eiga EFTA-ríkin
og Austur-Evrópuríki, sem sótt
hafa um aðild að ESB, fulltrúa í
nefndinni.
Stoltenberg er eini fulltrúi
EFTA-ríkjanna í nefndinni. Henni
er ætlað að verða umræðuvett-
vangur um umhverfismál og sjálf-
bæra þróun og uppspretta nýrra
hugmynda, sem framkvæmda-
stjórnin kann að geta nýtt sér.
í nefndinni sitja m.a. einstakl-
ingar úr röðum kaupsýslumanna,
verkalýðsleiðtoga, fræðimanna og
stjórnmálamanna.
Þriðjungur
baðstaða i
mengaður «
ÞRIÐJUNGUR oplnberra bað-
staða í ám og stöðuvötnum í ríkj-
um Evrópusambandsins stenzt
ekki lágmarkskröfur um hrein-
læti og eftirlit. Þetta er niður-
staða skýrslu, sem Ritt Bjerrega-
ard, umhveríísmálasljóri ESB,
hefur látið vinna.
I skýrslunni kemur fram að af
6.000 baðstöðum í ferskvatni er
þriðjungur mengaður. Hins veg- %
ar standast 90% baðstranda við
sjó, sem eru alls 13.000, kröfur
ESB.
Bjerregaard gaf út fréttatil-
kynningu, þar sem hún skoraði á
helztu sökudólgana — Þýzkaland,
Frakkland, Holland, Spán og
Portúgal — að sýna að þeir gætu
tekið á vandanum strax í sumar. í
Þessi ríki hefðu sýnt að þau gætu ,
hreinsað baðstrendur við sjó og
ættu eins að geta lagfært fersk- 1
vatnsbaðstaðina.
Stoltenberg