Morgunblaðið - 23.05.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ1997 21
Reuter
ALAIN Juppe forsætisráðherra og Francois Bayrou menntamálaráðherra heilsa upp á barþjón í
Chesnay, skammt frá París. Chesnay er kjördæmi flokkssystur þeirra, Anne-Marie Idrac, fyrir miðju,
og sýndu ráðherrarnir henni stuðning sinn á yfirreið um kjördæmið í gær.
Lokasprettur frönsku kosningabaráttunnar
Sósíalistar setja
skilyrði fyrir EMU
Paris. Reuter.
SÓSÍALISTAR reyna á lokaspretti
kosningabaráttunnar í Frakklandi
að sannfæra almenning um að ekk-
ert sé hæft í ásökunum hægrimanna
um að komist vinstriflokkarnir til
valda, stefni það Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu (EMU) og
utanríkisstefnu Frakka í hættu. Það
hefur verið inntak kosningabaráttu
stjórnarflokkanna síðustu dagana
fyrir fyrri umferð þingkosninganna
sem fram fara á sunnudag. Ekki
má lengur birta skoðanakannanir en
fréttir af leynilegum skoðanakönn-
unum sem bentu til þess að saman
drægi með hægri- og vinstrimönn-
um, urðu til þess að nokkurt verð-
fall varð á frönskum mörkuðum.
Mið- og hægriflokkarnir í ríkis-
stjórn hafa beitt hræðsluáróðri og
sagt að komist vinstriflokkarnir til
valda, muni það koma í veg fyrir
þann efnahagsbata, sem sé í augsýn
eftir strangar aðhaldsaðgerðir
stjórnvalda. Þá hefur stjórnin reynt
að sannfæra almenning um að vinst-
riflokkarnir séu klofnir í afstöðu
sinni til Evrópumála og að komist
þeir til valda, stefni það Evrópusam-
starfi í hættu. Einn stjórnariiða og
formaður Lýðræðissambandsins,
Francois Leotard, lét þau orð falla
að þegar evróið, sameiginleg mynt
aðiidarlanda Evrópska myntsam-
starfsins, væri annars vegar, kynni
sú staða að koma upp að forsetinn
segði ,já“, forsætisráðherra sósíal-
ista „kannski" og samstarfsflokkur
hans, kommúnistar, „nei“.
Delors samþykkir skilyrði
Lionel Jospin, leiðtogi sósíalista,
hefur vísað þessu á bug og segir
vinstriflokkana vera fylgjandi sam-
eiginlegri mynt, með íjórum skilyrð-
um. Þau eru að Ítalía og Spánn verði
með frá upphafi, að sett verði á fót
„efnahagsstjórn" sem mótvægi við
Evrópska seðlabanka, að gerður
verði sáttmáli um samvinnu og að-
gerðir til að auka hagvöxt og berj-
ast gegn atvinnuleysi og að gripið
verði til aðgerða til að komast hjá
því að evróið verði ekki metið of hátt.
Sósíalistinn Jacques Delors, fyrr-
verandi forseti framkvæmdastjórnar
ESB, sagði kröfur Jospins samræm-
ast anda Maastrichtssáttmálans, þar
sem kveðið er á um stofnun EMU
og skilyrðin fyrir henni.
Le Pen hyggst hundsa
sjónvarpið
Leiðtogi hægriöfgamanna í Þjóð-
fylkingunni, Jean-Marie Le Pen,
hótaði því í gær að fulltrúar flokks-
ins myndu ekki mæta á kosninga-
vöku í franska ríkissjónvarpinu, þar
sem það hefði hundsað kosningabar-
áttu flokks hans. Engar fréttir hefðu
birst af fjölmennum kosningafund-
um í ríkissjónvarpinu og að slíkar
vinnureglur tíðkuðust helst hjá ban-
analýðveldum.
Þá ítrekaði Le Pen þá ósk sína
að ynni Þjóðfylkingin ekki sigur í
kosningunum, vonaði hann að
vinstrimenn hefðu sigur, þar sem
það myndi valda Jacques Chirac for-
seta meiri vandræðum en ef stjórnin
sæti áfram.
Ríkisskattsl^ ór i
handtekinn
fyrir skattsvik
Hclsinki. Morgunblaðið.
JUKKA Tammi, skattstjóri Finn-
lands, hefur verið handtekinn og
útilokaður frá starfi sínu þangað til
gengið hefur verið úr skugga um
hvort hann hefur gerst sekur um
lögbrot. Auk Tammi voru fjórir
ónafngreindir menn handteknir
vegna meintra brota á skattalögum.
Er hann grunaður um að hafa mis-
notað embættisstöðu sína og aðstoð-
að við skattsvik. Tammi, sem var
látinn laus á þriðjudag, kvaðst ekki
vita hvers vegna hann var handtek-
inn og yfirheyrður. Sagðist hann að
vísu hafa aðstoðað mága sína í skatt-
málum en neitaði að hafa hvatt þá
til skattsvika.
Málavextir eru þeir að á áttunda
áratugnum eignaðist Tammi 20%
hlut í lyftarafyrirtæki sem mágar
hans hafa rekið. í fyrrahaust kom
í ljós að mágarnir hafa átt Qölda
fyrirtækja sem stunduðu óljós við-
skipti sín á milli. Eru þeir bræður
grunaðir um að hafa svikið nokkrar
milljónir finnskra marka undan virð-
isaukaskatti þegar notaðar vinnuvél-
ar voru seldar milli fyrirtækja og svo
fluttar úr landi.
Aija Alho skattaráðherra til-
kynnti á föstudaginn að Tammi hefði
verið vikið úr embætti um stundar-
sakir. Kvað hún málið dapurlegt þar
sem það yrði til að draga úr trú al-
mennings á hreinskilni æðstu emb-
ættismanna. í haust voru uppi get-
gátur um aðild Tammis að viðskipt-
um mága hans en þá slapp hann
eftir að hafa gefið Alho skýrslu sem
átti að sýna að hann hefði aðeins
verið hluthafí en ekki meðstjórnandi
fyrirtækisins.
Samsæri gegn
skattsljóranum?
Jukka Tammi segist hafa verið
án lögfræðiaðstoðar á meðan yfir-
heyrslur stóðu yfir og því hafi hann
ekki spurst nánar fyrir um ástæður
þeirra. Fullyrðir hann að um sam-
særi sé að ræða gegn honum. Hann
og kona hans eru bæði háttsettir
embættismenn hjá ríkisgjaldheimt-
unni. Bræður frú Tammi hafa hins
vegar verið grunaðir um meiri háttar
skattsvik í viðskiptum með notaða
lyftara.
A fréttamannafundi sagðist
Tammi efast um að hann gæti hald-
ið embætti sínu. En um leið kvaðst
hann vera undrandi á því að hann
skyldi þykja ófær til embættisverka
vegna eignarhlutar í fyrirtæki sem
hann stjórnar ekki.
Jarðskjálfti á Indlandi
38 látnir, þúsundir
heimilislausar
Kosamghat. Reuter
AÐ MINNSTA kosti 38 létust og
allt að 1.000 slösuðust í öflugum
jarðskjálfta á Indlandi í gærmorgun.
Þúsundir misstu heimili sín.
Skjálftinn, sem mældist 6,0 á
Richter og varði í allt að 50 sekúnd-
ur, reið yfir Madhya Pradesh fylki.
Yfirvöld óskuðu eftir aðstoð hers-
ins en tólf tímum eftir skjálftann
höfðu hjálparsveitir enn ekki náð til
allra þorpa á svæðinu.
Samkvæmt opinberum tölum
liggja 188 alvarlega slasaðir á
sjúkrahúsum, flestir með höfuð- og
bakáverka en yfirvöld áttu þó ekki
von á að tala látinna hækkaði mikið.
„Hefði þetta gerst að vetri til
væri ekkert okkar á lífi,“ sagði
Shanti Bal, einn íbúa Kosamghat-
þorps á miðju skjálftasvæðinu. Öll
hús í þorpinu voru jöfnuð við jörðu
og 1.100 íbúar þess, sem sváfu utan-
dyra í sumarhitanum er skjálftinn
varð, misstu heimili sín. íbúar ná-
grannaþorpanna komu með vatn og
matvæli en auk þess sem skjálftinn
rauf síma- og rafmagnslínur, grugg-
aði_ hann vatn í vatnsbólum.
í september á síðasta ári létust
10.000 manns í nágrannafyikinu
Maharashtra í skjálfta sem mældist
6,3 á Richter.
Hernaðaraðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum
Herliðið komið
200 km inn í Irak
Á landamærum Tyrklands og íraks. Reutcr.
HERSYEITIR Tyrkja héldu áfram
sókn sinni lengra inn í Norður-írak
í gær, á níunda degi innrásar þeirra
sem hefur að markmiði að uppræta
bækistöðvar herskárra Kúrda, sem
berjast fyrir aðskilnaði Kúrdahérað-
anna í Austur-Tyrklandi og stofnun
sjálfstæðs ríkis Kúrda. íraska dag-
blaðið el-Thawra, helzta málgagn
stjórnarinnar í Bagdad, kallaði í
gær hernaðaraðgerðir Tyrkja „til-
gangslausan eltingarleik við
drauga".
Að sögn talsmanna Kúrda í írak
hafa tyrknesku hersveitirnar sótt
200 km inn í landið, lengra en
nokkru sinni fyrr í slíkum leiðöngr-
um inn í landssvæðið innan landa-
mæra Iraks norðan 36. breiddar-
baugs, sem frá lokum Persaflóa-
stríðsins hefur verið utan hernað-
arlögsögu íraksstjórnar. Þessar
fréttir fylgja í kjölfar fregna um
liðssöfnuð íraka, Sýrlendinga og
írana í næsta nágrenni við átaka-
svæðið.
Tyrkneska ríkisfréttastofan An-
atolian hefur greint frá því að her-
sveitir ynnu að því að eyða herbúð-
um hins útlæga Verkamannaflokks
Kúrdistans (PKK) nærri austur-
iandamærum íraks við íran og þær
hefðu hafið „viðbúnað" nærri
markalínunni við 36. breiddarbaug
og landamærum íraks við Sýrland.
Frjáls fréttaflutningur
hindraður
Þessar umsvifamiklu hernaðar-
aðgerðir Tyrkja, sem 10.000 her-
menn taka þátt í, hafa farið fram
undir ströngu fréttabanni sem tyrk-
neski herinn hefur framfylgt af
hörku. Því hefur reynzt mjög erfitt
að fá fréttir af atburðum á átaka-
svæðinu staðfestar.
Practical 3ja dyra Hatcback. Verð kr. 1.249.ooo
Kynntu þér einnig hinar 3 gerðirnar ítarlegar upplýsingar um
/ . r , .. i o r* "1 i i j *• MAZDA eru a heimasiðu
I MAZDA 323 ljölskyldunni! okkar: www.raesir.is
Umboðsmenn: Akranes: Bílás s£ • ísafjörður: Bílatangi ehf. • Akureyri: BSA hf. HtÆSílRI HF
Eeilsstaðir. Bílasalan Fell • Selfoss: Beui bílasalan • Vestmannaeviar: Bifreiðaverkstæði Muccs skúuagötu 59. sftvn S61 9550