Morgunblaðið - 23.05.1997, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 31
Reynt að fela aukna
skuldasöfnun
Það sem vekur athygli og er
augljóslega ástæðan fyrir því að
tillagan um stofnun hlutafélags um
rekstur leiguíbúða borgarinnar var
sett fram í miklum flýti í des. sl.
er sú ákvörðun R-listans að hlutafé-
lagið kaupi á þessu ári rúmlega 200
leiguíbúðir af borgarsjóði fyrir 800
milljónir króna. Það kom nefnilega
í ljós í desember þegar verið var
að ljúka vinnu við fjárhagsáætlun
borgarinnar fyrir árið ’97 að það
vantaði 800 milljónir króna til að
hægt væri að ná endum saman. í
stað þess að viðurkenna þá stað-
reynd greip R-listinn til þeirra sjón-
hverfinga að láta hlutafélag að fullu
í eigu borgarinnar kaupa leiguíbúð-
ir af borginni fyrir 800 m.kr. til að
koma í veg fyrir að raunveruleg
skuldasöfnun kæmi fram í reikning-
um borgarsjóðs.
Heildarskuldir borgarsjóðs og
fyrirtækja/hlutafélaga borgarinnar
hækka hins vegar um 800 millj. kr.
á þessu ári auk annarrar skulda-
aukningar, sem nemur 300-400
millj. kr. eða samtals um 1,1-1,2
milljörðum króna.
I starfsleyfi fyrir Félagsbústaði
hf. kemur fram að Reykjavíkurborg
skuli eiga öll hlutabréfin og megi
ekki selja þau nema með samþykki
félagsmálaráðuneytisins. í 7. gr.
samþykkta félagsins segir ennfrem-
ur að „við gerð rekstraráætlana
vegna ákvörðunar á leigugjaldi er
við það miðað að reksturinn verði
sjálfbær“.
Húsaleiga hækkar
Það er því nýtt hlutafélag um
rekstur leiguíbúða borgarinnar sem
verður að greiða vexti og afborgan-
ir af þessari skuld á næstu árum.
Helstu tekjur hlutafélagsins eru
leigugreiðslur. Til að hlutafélagið
geti staðið við skuldbindingar sínar
verður því að hækka húsaleigu í
leiguhúsnæði borgarinnar töluvert
á næstu misserum.
Sjálfstæðismenn eru sammála
því að stofna sérstakt rekstrarfélag
sem tekur að sér rekstur, viðhald
og þjónustu vegna leiguhúsnæðis
borgarinnar. Þeir eru hins vegar
algjörlega ósammála þeim blekk-
ingaleik R-listans sem felst í því
að Reykjavíkurborg selji sjálfri sér
leiguíbúðir í eigu borgarinnar fyrir
800 milljónir króna í þeim tilgangi
að fela aukna skuldasöfnun borgar-
sjóðs.
Höfundur er borgarfulltrúi.
ÞEGAR R-listinn
hlaut meirihluta við
síðustu borgar-
stjórnarkosningar,
sagðist hann vera
„kominn til að breyta“.
Nú, þegar eitt ár er til
kosninga, er ljóst að
breytingarnar eru að-
allega fólgnar í svikn-
um loforðum. Sjálf-
stæðismenn birtu jafn-
an loforðalista í kosn-
ingum. Borgarbúar
veittu okkur braut-
argengi. í lok kjör-
tímabilsins birtum við
loforðalistann að nýju
svo allir gætu borið
saman loforð og efndir. Við efndum
loforðin! R-listinn hefur nú að baki
fimmtán falsloforð. í því eru helstu
„breytingarnar" fólgnar.
1. Loforð um að skattar hækki
ekki.
Við þetta loforð hefur R-listinn
ekki staðið. Fasteignagjöld hafa
hækkað um þriðjung. Holræsa-
skattur var settur á öll heimili og
fyrirtæki, vatnsgjald hefur hækkað
um 11%. Heilbrigðiseftirlitsgjald er
komið á atvinnurekstur og gatna-
gerðargjöld á heimili og atvinnu-
húsnæði hækka verulega í mörgum
tilvikum. Gatnagerðargjöld vegna
eftirsóttustu byggingarlóða fyrir
fjölskyldur í Staðahverfi hafa t.d.
hækkað um 150 þúsund kr. að
meðaltali.
2. Loforð um að greiða niður
skuldir.
Við þetta loforð hefur R-listinn
ekki staðið Skuldir Reykjavíkur
hækkuðu um 1,1 milljarð kr. á síð-
asta ári. Skuldir borgarsjóðs hafa
hækkað um 2,6 milljarða kr. á kjör-
tímabili R-listans, þrátt fyrir að
hann hafi selt eigur borgarinnar,
aukið kröfur um arðgreiðslur fyrir-
tækja borgarinnar í borgarsjóð og
hækkað skatta.
3. Loforð um að sinna öldruðum
hjúkrunarsjúklingum sér-
staklega.
Við þetta loforð hefur R-listinn
ekki staðið. R-listinn gagnrýndi
sjálfstæðismenn harkalega fyrir að
byggja „aðeins" 130 rými á síðasta
kjörtímabili. Biðlistarnir hrannast
nú upp og aðeins bætast við 68
rými á kjörtímabilinu.
4. „Uppbygging á tónlistarhúsi
verði forgangsverk-
efni.“
Þetta mátti lesa á
loforðalista R-listans -
Við þetta loforð hefur
hann ekki staðið. Nú,
þegar ár er til kosn-
inga, hefur þessu „for-
gangsverkefni" í engu
verið sinnt. Skyldu þau
hefjast handa hálfu ári
fyrir kosningar?
5. „Hús sem rúmar
knattspy rnu völl. “
Þetta var eitt af lof-
orðum R-listans í
íþróttamálum. Þessu
lofaði R-listinn, kæm-
ist hann í meirihuta-
aðstöðu. Hvar er húsið? Kemur það
fullskapað á síðasta ári R-listans?
6. Loforð um að einfalda stjórn-
kerfi borgarinnar.
Við þetta loforð hefur R-Iistinn
ekki staðið. Embættismannakerfið
í ráðhúsinu kostar nú 40 milljónum
kr. meira á hveiju ári en það gerði
þegar R-listinn tók við. Embættis-
mönnum hefur verið fjölgað og
boðleiðir hafa lengst í mörgum til-
vikum. Skýrslugerðir eru í morgun-
mat og hádegismat, fundir eru þar
í milli.
7. „Útrýma biðlistum á leikskóla
fyrir börn á aldrinum 1-5
ára, á kjörtímabilinu".
Við þetta loforð hefur R-listinn
ekki staðið. Þrátt fyrir öfluga upp-
byggingu 10 leikskóla á síðasta
kjörtímabili, gagnrýndi R-listinn
„hægaganginn“ og yfirbauð sjálf-
stæðismenn. Hann lofaði að útrýma
biðlistunum á þessu kjörtímabili.
Nýlega viðurkenndi R-listinn að
þetta gæti alls ekki tekist, enda
vantar 15 leikskóla til að hægt sé
að útrýma biðlistum miðað við að-
ferðir R-listans.
8. Loforð um að leysa atvinnu-
vandann.
Við þetta loforð hefur R-listinn
ekki staðið. „Við stöndum og föllum
með atvinnumálunum," sagði R-
listinn. Stóryrði R-listans og ásak-
anir á sjálfstæðismenn um að hafa
ekkert gert til að auka atvinnu
koma nú í andlitið á forsvarsmönn-
um hans. Staðreyndin er sú að at-
vinnuleysi í „góðærinu“ hefur und-
anfarin 3 ár verið meira en það var
1994. Á þessum tíma 1994 voru
jafn margir atvinnulausir og eru
Vegur R-listans er,
að mati Árna Sigfús-
sonar, varðaður
sviknum loforðum.
það í dag. Enn alvarlegra er að
fjöldi þeirra sem hafa verið at-
vinnulausir lengur en 6 mánuði,
hefur nánast tvöfaldast frá 1994.
Atvinnuleysisdagar árið 1994 voru
661.000. Á síðasta ári voru þeir
770.000. Atvinnuleysi kvenna hef-
ur aldrei verið meira.
9. „Borgarbókasafnið í Aðal-
stræti“ (Morgunblaðshúsið).
Við þetta loforð hefur R-listinn
ekki staðið. Hann segist vera hætt-
ur við þetta loforð. Forseti borgar-
stjórnar hefur hreiðrað um sig í
salnum sem áður var fundarher-
bergi blaðamanna. Hún fær þá að
vera þar áfram!
10. „Hætta við einkavæðingu
þjónustustofnana“.
R-listinn hefur gjarnan gagnrýnt
sjálfstæðismenn fyrir hugmyndir
um einkavæðingu. Kjósendur R-
listans töldu sig því ekki þurfa að
hafa sérstakar áhyggjur af áhuga
hans á þessu sviði. En hugsjónirnar
eru fáar og horfnar. Svo myndar-
lega vill R-listinn einkavæða að nú
vill hann selja félagslegar leigu-
íbúðir borgarinnar til hlutafélags.
Þetta eru íbúðirnar sem fólk leigir
ódýrt vegna erfiðra aðstæðna. Tal-
ið er víst að leiguverðið muni
hækka í kjölfar þessarar einkavæð-
ingar. Þá fara leigjendurnir inn á
biðstofur Félagsmálastofnunar til
að afla sér styrkja á móti.
11. „Borgarleikhúsið fái nægi-
legt fjármagn til að fullnýta
megi húsið.“
Þessu lofaði R-listinn og minnti
sérstaklega á 100 ára afmæli Leik-
félags Reykjavíkur í því sambandi.
Ekki er að heyra á forsvarsmönn-
um Leikfélags Reykjavíkur að þetta
loforð hafi verið efnt.
12. Allar stöður skyldu auglýst-
ar.
Við þetta loforð hefur R-listinn
ekki staðið. Á sama tíma og út kom
jafnréttisáætlun sem sagði til um
að allar stöður skyldu auglýstar,
hafa læðst inn á vegum R-listans
stöður án auglýsinga. Nýr mót-
tökustjóri í Höfða og ráðningar hjá
Hitaveitunni eru dæmi um slíkt.
13. Umboðsmaður Reykvíkinga.
Þetta var stórt loforð R-listans
til að tryggja ,jafna stöðu borg-
arbúa gagnvart borgaryfirvöldum“
og „auka virkt eftirlit og lýðræði
í stjórnsýslu borgarinnar". Margir
féllu fyrir þessum fögru orðum.
En efndirnar eru engar.
14. „Borgarbúar komi tiltölu-
lega snemma að ákvörðun-
um“.
Þessa loforðs sakna þeir borg-
arbúar sem hafa átt eitthvað að
sækja til borgarinnar. Á þá er ekki
hlustað. Það vita t.d. þeir 11 þús-
und borgarbúar sem mótmæltu
hækkun gjalda strætisvagna og
þeir sem mótmæltu nýbyggingum
við Hæðargarð og Miðleiti. Borg-
arbúar hafa ekki fengið að vera
með í ákvörðunum sem hafa hækk-
að gjaldskrár borgarinnar meira
en önnur sveitarfélög. Fargjöld
strætisvagna, gjöld á bílastæði,
hita, vatn, rafmagn, sundstaði og
þjónustu aldraða eru dæmi um
miklar hækkanir.
15. „Umhverfis- skipulags- og
umferðarmál með mikilvæg-
ustu verkefna í borginni".
Þetta mátti lesa í loforðalista
R-listans. Við þetta loforð hefur
R-listinn ekki staðið. Staðreyndin
er sú að árleg framlög til um-
hverfismála, gatna, holræsa og
umferðarmála hafa verið dregin
saman um sem samsvarar 22% á
ári, eða um 383 milljónir króna.
Þetta er skýringin á að vanhirða
gatnakerfisins eykst, sláttur gróð-
ursvæða dregst saman og viðhaldi
gangstíga í eldri bæjarhlutum er
ábótarvant.
Er þetta ekkert sem
skiptir máli?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri tjáði sig um árangur
R-listans á kjörtímabilinu í Dags-
ljósi á Ríkissjónvarpinu þann 1.
apríl sl. Hún sagði: „Ég held að
margt hafi tekist afskaplega vel
hjá okkur í þeim málum sem við
lögðum áherslu á, mjög fátt hafi
farið aflaga og ekkert sem skiptir
máli.“
Höfundur er oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjóm
Reykjavíkur.
________AÐSENDAR GREINAR___________
Fimmtán falsloforð R-listans
Árni
Sigfússon
erum
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
cfli flieít símasending...
Bjóðum nú GSM síma á verði sem ekki hefur þekkst
hingað til...
250 g~- \
r.'.o.
250 |
2 klst:l
ta\t«rn»1
66 k»st;
byn9”
atogr-
2 k'st:
taltíO'1
70 k\st:
taltírn*
33 klst.
biðtími
70 n'3 •
biðtím*
66 .
biötírm
RflFTíEKMPERZLUIÍ ÍSLflMDS If
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776