Morgunblaðið - 23.05.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 41
SIGURÐURH.
GÍSLASON
+ Signrður Halldór Gíslason
fæddist á Hóli í Ólafsfirði
25. desember 1923. Hann lést
á heimili sínu, Reynihvammi
43, Kópavog-i, 13. maí síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Digraneskirkju 21. maí.
Er við litum um öxl
til ljúfustu daga
liðinnar ævi
þá voru þar stundir
í vina hópi
sem veittu okkur
mesta gleði.
(mico)
Kæri bróðir og mágur.
Stórt skarð er höggvið i systk-
inahópinn þegar þú ert horfinn frá
okkur. Við vissum að hveiju stefndi
+ Þórður Einarsson fæddist
í Reylqavík 19. júní 1923.
Hann lést á heimili sínu í
Reykjavík 12. maí síðastliðinn
og fór útför hans fram frá
Neskirkju 21. maí.
Við skyndilegt fráfall Þórðar
koma upp í hugann margar og
góðar minningar frá veru minni á
heimili þeirra Þórðar og Nítíar. Það
stóð mér alltaf opið hvar sem þau
voru og komu þau fram við mig
eins og ég væri ein af fjölskyld-
unni. Fyrst var ég hjá þeim sem
unglingur einn vetur á Fornhagan-
um meðan ég var í skóla og átti
frænka mín að sjá til þess að ég
héldi mig að náminu. Hún lagði
sig alla fram en með misjöfnum
árangri, en Þórður sagði lítið og
kímdi í laumi, sem var gott fyrir
mig. Síðar þegar mig langaði að
og Guð ræður. Þér var ekki ætlað
að vera með okkur á Hóli í júní
næstkomandi til að minnast eitt
hundrað ára afmælis foreldra
þinna. Við vissum að hugur þinn
lá norður og þér var mikið í mun
að af þessari hátíð yrði. Þín verður
því sárt saknað.
Þið Fjóla komuð að Hóli á hveiju
ári og þá var ekki slegið slöku við.
Það var góður hópur sem oft vann
frá morgni til kvölds, enda ber
staðurinn þess merki, glæsilegur á
að líta. Það var líka slegið á létta
strengi, sungið og dansað í gamla
fjósinu, ballstaðnum okkar. Og
ekki undu litlu bömin sér síður vel
en við fullorðna fólkið.
Við áttum saman yndislegar
stundir í mars síðastliðnum. Þið
Pjóla tókuð á móti okkur hjónunum
fara í enskunám var það Þórður
sem greiddi götu mína, útvegaði
mér meira að segja fylgdarmann.
Að því loknu dvaldi ég um tíma á
heimili þeirra í London. Einnig
sóttum við móðir mín þau heim til
Brussel og dvöldum þar í góðu
yfírlæti. Seinna þegar ég fór til
Svíþjóðar varð Stokkhólmur fyrir
valinu. Það var svo notalegt að
hafa Nítí og Þórð þar en helst vildu
þau að ég byggi inni á heimilinu
hjá þeim, sem ég og gerði hluta
af tímanum. Eins og svo oft áður
veitti hann mér frábæra aðstoð.
Hann tók alltaf þátt í því sem ég
tók mér fyrir hendur og studdi
mig heilshugar. Þegar hann tók
eitthvað að sér var það gert sam-
stundis og alltaf fann hann lausn
á málunum. Þetta kunni ég svo
vel að meta í fari hans og hve
hann vann vel og skipulega án
með þeirri sömu hlýju og alltaf
einkenndi ykkur. Frændum og
frænkum var smalað saman og
haldin veisla. Þrátt fyrir að vera
þá orðinn mjög veikur tókstu fullan
þátt í gleði okkar. Elsku Siggi, þú
gafst okkur þá ógleymanlegan
dag, sem við viljum geyma í hjört-
um okkar um ókomin ár.
Nú heyrum við ekki oftar söngl-
ið í þér eða sjáum þig sitja með
litlu bamabörnin í kjöltu þér og
hossa þeim en minningin um þig
dvelur áfram með okkur.
Við vottum bömum og tengda-
bömum samúð okkar og biðjum
afabömunum blessunar Guðs.
Elsku Fjóla. Allar þær stundir
sem við hjónin áttum með þér og
Sigga eru þakkaðar af alhug. Þær
em okkur mikils virði. Megi góðar
minningar vera þér vörn og skjól
á sorgarstundu.
Vertu Guði falinn, kæri bróðir
og mágur.
Guðmundur og Ingibjörg.
nokkurs fyrirgangs. Hann gat séð
spaugilegu hliðamar á hlutunum,
gjarnan með stríðnisglampa í aug-
um. Mér fannst alltaf aðdáunar-
vert hvað Nítí og Þórður vom sam-
hent og bám mikla virðingu hvort
fyrir öðm og oftar en ekki sá
maður glettnina í augum hans ef
einhvað bar á góma sem þau vom
ekki sammála um. Þórður var ljúf-
ur í framkomu og áberandi var
hvað böm hændust að honum.
Með þessum fátæklegu línum
kveð ég þig með söknuð í hjarta
en fyrst og fremst er ég þakklát
forsjóninni fyrir að mega njóta
minninganna um góðar stundir
með þér sem vini og velgjörðar-
manni.
Elsku Nítí, Sigríður, Þorri, Jó-
hannes, tengdaböm og bamaböm,
ég og fjölskylda mín biðjum Guð
að styrkja ykkur og styðja. Megi
minningin um góðan eiginmann,
föður, tengdaföður og afa ylja
ykkur um ókomin ár.
Elsku Þórður. Hafðu þökk fyrir
alit og Guð geymi þig.
Elín.
ÞÓRÐUR
EINARSSON
JÓNAS EGGERT
TÓMASSON
+ Jónas Eggert
Tómasson fædd-
ist í Sólheimatungu
í Stafholtstungum
9. janúar 1928.
Hann andaðist á
heimili sínu í Sól-
heimatungu 12. maí
siðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Stafholtskirkju 21.
maí.
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott
geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjðfum skipta,
fara að finna oft
(Úr Hávamálum)
Ég var svo lánsamur að eignast
vináttu mágs míns, Jónasar Tómas-
sonar. Við áttum margar góðar
stundir saman og ævinlega hlakkaði
ég til að fara einn í Sólheimatungu
og eiga við hann löng samtöl, þá var
oft hlegið því Jónas gat sagt mjög
skemmtilega frá.
Jónas var mikill öðlingur, vel les-
inn og sérstaklega minnugur og gat
maður haldið að hann væri háskóla-
menntaður í heimspeki eða sagn-
fræði, svo fróður var hann.
Ég kveð hann með söknuði og er
þakklátur fyrir okkur góðu kynni.
Björn Stefánsson.
Okkur bræður langar til að minn-
ast Jónasar móðurbróður okkar í
Sólheimatungu. Alit frá því við vor-
um litlir guttar höfum við oft farið
í sveitina eins við köllum Sólheima-
tungu. Vorum við þar sem kaupa-
menn hjá þeim bræðrum Jónasi og
Sigga á sumrin. Þótti það bæði
gagn og gaman hjá ungum mönnum
og höfum við búið að því æ síðan
að hafa tekið þátt í sveitastörfunum.
Einnig komum við þar á veturna
og var þá einnig mikið um að vera
t.d. keyrt á ísilagðri Norðurá og
dorgað.
Alltaf höfum við haldið góðum
tengslum við sveitina
og gistum þá í gamla
húsinu hjá þeim Jónasi
og Bósa. Gaman var
að tala við Jónas enda
var hann einkar
skemmtilegur, vel les-
inn, víðsýnn, fullur af
fróðleik og mikill heim-
spekingur. Einnig var
ávallt stutt í hlátur hjá
Jónasi og velti hann oft
upp þvi spaugilega í líf-
inu. Bósi lét sér það
hinsvegar nægja að
horfa á okkur bænar-
augum og bíða eftir
einhveiju matarkyns.
Jónas var mikill bókamaður,
keypti mikið af bókum og las allt á
milli himins og jarðar og var aldrei
komið að tómum kofunum hjá hon-
um. Jónas fylgdist vel með þjóð-
málaumræðunni með bóka- og dag-
blaðalestri ásamt útvarpshlustun.
Var því oft vakað Iangt fram á kvöld
í gamla húsinu, spjallað, hlegið og
hlustað, enda hafði Jónas ætíð næg-
an tíma.
Gaman var að hitta Jónas í góðra
vina hópi er hann kom í brúðkaup
Þóris og Óskar 1. maí sl. Nokkrum
dögum fyrir brúðkaupið var haft
samband við Jónas og hann beðinn
um að taka þátt í smá glensi gagn-
vart brúðhjónunum tilvonandi. Var
hann beðinn um að koma með gaml-
ar sauðaklippur fyrir grófrakstur á
brúðgumanum, en hann hafði safn-
að skeggi um nokkum tíma. Jónas
tók heilshugar þátt í þessu glensi
með bros á vör. Kom hann til
Reykjavíkur prakkaralegur á svip,
vopnaður ryðguðum sauðaklippum
og bætti óbeðinn við brýni svo brúð-
guminn gæti litið sómasamlega út.
I sömu bæjarferð hitti hann nýjasta
fjölskyldumeðliminn, son þeirra
Stefáns og Önnu.
Tómlegt verður nú í gamla hús-
inu, en minning um góðan vin og
frænda verður ávallt til staðar.
Þínir frændur,
Stefán Jóhann, Þórir og
Gunnar Björnssynir
og fjölskyldur.
GYÐA
RUNÓLFS-
DÓTTIR
+ Gyða Runólfsdóttir fæddist
í Reykjavík 9. júlí 1909. Hún
lést á Landspítaianum 30. apríl
síðastliðinn og fór útför hennar
fram í kyrrþey.
Einstaklega góðar minningar
safnast fyrir í huga manns þegar
hugsað er til ömmu Gyðu sem lifði
langa og farsæla ævi. Amma hefði
orðið 88 ára gömul í sumar hefði
hún verið á meðal okkar.
Minnist ég þess hve hún sá alltaf
vel um litla strákinn sinn þegar við
bjuggum í Skeiðarvoginum og alltaf
vissi amma hvenær hún gat trakter-
að mig með hunangsbrauðinu með
rabarbarasultunni sem mér þótti svo
ómótstæðilega gott og fékk hvergi
nema hjá henni. Svo fannst mér
mjög minnisstætt eitt sumar fyrir
mörgum árum að þegar ég var búinn
að bera út Moggann buðu amma og
afi mér til sín í morgunmat og eftir
hann fékk ég mér yfirleitt lúr í rúm-
inu þeirra fram að hádegi ef við
vorum ekki að spjalla, en þá var
kominn tími til að bera út Dagblaðið.
Nú er ég ekki í vafa um að henni
líður vel og það hefur verið tekið
vel á móti henni í þeim heimi sem
hún er nú.
í hjarta mínu lifir minningin um
þig, amma mín. Ég bið Guð um að
geyma þig og styrkja afa Júlíus.
Blessuð sé minning Gyðu Runólfs-
dóttur.
Iljalti Þór Heiðarsson.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
JÓN ZOPHONÍAS SIGRÍKSSON,
Hjarðarholti 18,
Akranesi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 21. maí.
Hrönn Jónsdóttir, Halldór Jóhannsson,
Börkur Jónsson, Valgerður S. Sigurðardóttir,
Þorsteinn Jónsson, Hrefna W. Steinþórsdóttir,
bamabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÞÓRA JÓHANNA JÓNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt þriðju-
'dagsins 20. maí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánu-
daginn 26. maí nk. kl. 10.30
Páll Hróar Jónasson,
Jónas Pálsson,
Lilja Pálsdóttir,
Sigríður Pálsdóttir,
Hróar Pálsson,
Heiðbjört Pálsdóttir,
Hallfríður M. Pálsdóttir, Árni Þórður Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þórunn Skaftadóttir,
Pétur Ársælsson,
Reynir Sigurðsson,
Kristín Guðmundsdóttir,
+
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SVEINN EIRÍKSSON,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að morgni
21. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Thea Þórðardóttir,
Gunnar Sveinsson, Katrín Baldvinsdóttir,
Erik Sveinsson,
Þórir Sveinsson, Jónína Hjaltadóttir,
Birgir A. Sveinsson, Karin Larsen
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
VALGERÐUR BJARNADÓTTIR,
Aðalgötu 5
(Vinaminni),
Keflavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 6. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Guðmundur Guðmundsson,
Þuríður Hrefna Sigurjónsdóttir, Magnús Sverrisson,
Ingibjörg G. Sigurjónsdóttir, William Henry,
Guðlaug Guðmundsdóttir, Gísli ívar Jóhannesson,
Guðmundur Th. Ólafsson, Þórey Brynja Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.