Morgunblaðið - 23.05.1997, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Litli drengurinn okkar,
SIGURÐUR INGI,
lést sunnudaginn 18. maí.
Sigurður Helgi Hallvarðsson, Inga María Friðriksdóttir.
t
Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HALLDÓRU JÓSEFSDÓTTUR
frá Arnarholti,
Biskupstungum,
ferfram frá Skálholtsdómkirkju laugardaginn 24. maí kl. 14.00.
Jarðsett verður að Torfastöðum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bömin.
+
Bróðir okkar, mágur og frændi,
PÉTUR ÓLAFUR MAGNÚSSON
frá Siglufirði,
Baðsvöilum 16,
Grindavík,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju
laugardaginn 24. maí kl. 14.00.
Vigdís V. Magnúsdóttir,
Hólmfríður Magnúsdóttir, Benedikt Sigurðsson,
Bragi Magnússon,
Emst Kobbelt
og fjölskyldur.
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON,
bifreiðastjóri,
Dynskógum 26,
Hveragerði,
verður jarðsettur frá Hveragerðiskirkju laugar-
daginn 24. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Helga Baldursdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför konu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
URSULU BUSK.
Eyjólfur Þór Busk,
Henning Busk, Sandra Busk,
Jens Busk,
Alexander Busk
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar
JÓNATANS ÓLAFSSONAR
hljómlistarmanns,
Skólavörðustíg 24.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
starfsfólki Vífilsstaðaspítala og deild 11a á
Landspítalanum.
Erla Jónatansdóttir, Garðar Sigurðsson,
Gígja Jónatansdóttir, Guðmundur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Lokað verður föstudaginn 23. maífrákl. 13—16 vegna jarðarfar-
ar ÁRNA ÞORVALDSSONAR, fyrrv. framkvæmdastjóra.
Trygging hf.
ARNI
ÞOR VALDSSON
+ Árni Þorvalds-
son var fæddur
í Hafnarfirði 30.
apríl 1925. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 16.
mai siðastliðinn.
Hann var sonur
hjónanna Þorvald-
ar Arnasonar,
skattstjóra í Hafn-
arfirði, f. 5.1. 1895,
d. 15.4. 1957 og
konu hans Margrét-
ar Sigurgeirsdótt-
ur, f. 27.9. 1897, d.
14.9. 1937. Systkini
Árna voru Sigurgeir, f. 1923,
Þorvaldur, f. 1929, d. 1985,
Þóra, f. 1927, Jón Már, f. 1933,
og hálfsystir, Ester, f. 1944.
Árni kvæntist Huldu Ágústs-
dóttur 17.6. 1948. Þeirra börn:
1) Þorvaldur, f. 1948, hans kona
er Eva Ákerman og börn hans
eru Árni, f. 1974, Valgeir, f.
1976, og Jakob, f. 1988. 2) Hjör-
dís, f. 1952, hennar maður Sig-
urður Kristófersson, dóttir
Brynhildur, f. 1972. 3) Mar-
grét, f. 1953, sambýlismaður
Arnar Jónsson, hennar börn
Andrea, fædd 1975 og Kristján
Mikael, f. 1981. 4) Ingibjörg
Hildur, f. 1957, hennar börn
Jóhann Davíð, f. 1977, Helga
Valgerður, f. 1985, og Sigur-
björn, f. 1993. 5) Gerður, f.
1962, hennar börn
eru Árni, f. 1983,
Haukur Ingi, f.
1989, og Ragnheið-
ur Hulda, f. 1992.
Áður átti Árni son,
Þorvald Örn, f.
1947, hans kona er
Ragnheiður Elísa-
bet Jónsdóttir, börn
hans eru Haraldur
Darri, f. 1973, og
Eyþrúður, f. 1994.
Stjúpsonur Árna er
Friðrik Ágúst
Helgason, f. 1939.
Hann er kvæntur
Margréti Guðmundsdóttur.
Börn þeirra eru Guðmundur
Viðar, f. 1960, Helgi Valur, f.
1962, og Árný Hulda, f. 1970.
Árni lauk prófi frá Verslun-
arskóla Islands árið 1944 og
byrjaði að vinna hjá Tryggingu
hf. um haustið 1951. Hann
starfaði þar til ársins 1990,
lengst af sem skrifstofusljóri
og framkvæmdastjóri og sat í
stjórn félagsins til dauðadags.
Hann starfaði með Rotary-
klúbbi Hafnaríjarðar og var
einn af stofnendum Bridgefé-
lags HafnarQarðar og alla tíð
virkur félagi þar.
Útför Árna fer fram frá Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Ég man eftir þeim orðum
er sagðir þú forðum
það besta er
í heimi hér
að gefa af sjálfum sér.
Þín dóttir
Gerður.
Elsku afi, okkur langar að kveðja
þig og þakka þér fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman. Við
hlökkuðum alltaf til að fara í sumar-
bústaðinn til þín, þar áttum við
ánægjulegar stundir saman í sundi
og flöskuleiknum sem þú fannst upp
á, það var alltaf notalegt að vera
nálægt þér. Alltaf varst þú tilbúinn
að passa okkur, líka þegar við vorum
veik og mamma þurfti að vinna. Þín
verður sárt saknað, en minningin
um þig lifir í hjörtum okkar. Við
vitum að núna líður þér vel hjá
Guði og englunum, við biðjum algóð-
an Guð að gæta þín, eisku afi okkar.
Árni, Haukur Ingi og
Ragnheiður Hulda.
Hratt flýgur stund. í dag kveðj-
um við kæran vin og mikinn fjöl-
skylduföður. Þetta er bara allt of
fljótt. Það er svo stutt síðan, en
samt eru bráðum þijátíu og átta
ár síðan ég var boðin velkomin í
þessa stóru fjölskyldu. Það er sárt
að kveðja þá sem manni þykir vænt
um. Ekki síst þegar kveðjukallið
kemur jafn óvænt og núna.
Elsku Árni minn, ég sagði þér
ef till vill aldrei hvað ég mæti þig
mikils og þætti vænt um þig. Þú
varst ekki maður stórra orða. En
betri fjölskylduföður gátum við ekki
fengið. Þú lifðir fyrir stóru fjöl-
skylduna þína og yndislegu konuna
þína hana Huldu. Ekkert var of
gott fyrir okkur. Bestu stundirnar
voru þegar allir hittust í Holtinu,
þessu glæsilega heimili þar sem
allir voru svo hjartanlega velkomn-
ir. Jafnt á hátíðarstundum sem og
í annríki hversdagsins. Ungir og
gamlir fundu sér eitthvað að gera.
Inni í kompu var alltaf dót fyrir
alla litlu krakkana, keyptur dýrind-
is brunabíll fyrir strákana og stelp-
urnar höfðu allar dúkkurnar í friði,
fullorðna fólkið spjallaði og spilaði.
Það kom líka fyrir að þú og Gústi
laumuðust inn í herbergi til að taka
nokkrar skákir. Það er margs að
minnast. Ég man hve stolt ég var
þegar þú hélst Árnýju Huldu undir
skírn í Hafnarfjarðarkirkju og hún
fékk nöfnin ykkar Huldu. Og ég
man þegar þú bauðst okkur með
þér í jeppanum yfir Sprengisand
og spennan var mikil á miðjum
Mývatnsöræfum, hvort við hefðum
nóg bensín til næstu bensínstöðvar.
Bensínið dugði með því að þú lést
bílinn renna niður alla brekkuna
alla leið að Skjöldólfsstöðum. Ég
man allar ferðirnar með börn og
barnabörn til útlanda og gjafirnar
við heimkomuna, sem veittar voru
af heilurn hug. Alltaf gefandi. Þú
varst fullur metnaðar fyrir þína
hönd og okkar allra. Og þú gerðir
líka kröfur til okkar. Ég man þegar
ég ung og alger nýgræðingur kom
inn í fjölskylduna og var að byija
að spila brids. Við sátum fjögur og
vorum að spila niðri í Miðstræti og
þið Hulda komuð í heimsókn. Þú
horfðir þegjandi á okkur spila og
skammaðir mig svo á eftir fyrir
kæruleysið í leiknum. Ég fékk þá
yfírhalningu sem ég gleymi aldrei
og reyndi að vanda mig meira, fyrst
á eftir að minnsta kosti. En hlýjan
og velvildin þegar eitthvað amaði
að er ógleymanleg.
Guðmundur Viðar átti góða daga
hjá ykkur þegar hann vildi ekki
skipta um skóla og var að Ijúka
Flensborg. Og húsaskjól var okkur
öllum veitt þegar við þurftum á að
halda og aldrei um það haft, þó að
okkur fylgdi álag á ykkur vegna
smábarnanna sem með okkur voru.
Þetta er ótímabær kveðja og við
söknum þín mikið. En við reynum
að halda merkinu uppi og styðja
okkar börn eins og þú studdir við
okkur. Hjartans þakkir fyrir allt.
Þín tengdadóttir,
Margrét.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Árni Þorvaldsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Tryggingar hf.,
er látinn, sléttra sjötíu og tveggja
ára. Banamein hans var heilablóð-
fall. Með Árna er genginn sá mað-
urinn sem lengst og best dugði
Tryggingu hf. Hann var fyrsti
starfsmaðurinn, sem ráðinn var til
félagsins 17. september 1951, en
félagið var stofnað 17. maí þá um
vorið. Það féll í hans hlut að ráða
fólk til hinna ýmsu starfa, eftir því
sem félaginu óx fiskur um hrygg.
Ævinlega gekk hann á undan fólki
sínu í flekknum, leiðbeinandi og
skipuleggjandi eftir því sem störfin
urðu fjölbreyttari,_ en allir urðu að
sækja í smiðju Árna, enda hafði
hann vaxið með félaginu og reynd-
ar innt af hendi öll störf sem til
féllu. Hann byrjaði sem vélritari og
vélritaði fyrstu skírteinin, var jafn-
framt gjaldkeri, innheimtumaður,
tjónaskoðunarmaður, bókari og
hvaðeina, sem með þurfti. Seinna
varð hann skrifstofustjóri, aðstoð-
arframkvæmdastjóri og aðalfram-
kvæmdastjóri í nítján ár til ársins
1990 er hann tók sæti í aðalstjórn
félagsins og sat þar til dauðadags.
Af upptalningu þessari má sjá,
að það var félaginu ómetanlegt
happ þegar þessi ungi maður, að-
eins 26 ára, útskrifaður frá Verzl-
unarskóla íslands, réðst í þjónustu
þess.
Árni var góðum gáfum gæddur
og hæfileikaríkur. Hann var mikið
náttúrubarn, sem hafði yndi af
útiveru hverskonar, bráðfiskinn
laxveiðimaður og stundaði ferðalög
bæði innanlands og utan svo sem
kostur var. Hann hafði mikið yndi
af spilamennsku, þá einkum brids
og taflmennsku, þar sem hann
keppti oft og einatt. Þeir eru marg-
ir ferðafélagar Árna sem minnast
hans á ferðalögum bæði utan og
heima, en allir munu þeir geta lok-
ið upp einum munni um ágæti
hans og hjálpsemi, ef einhvers
þurfti með.
Eftir fjörutíu ára samstarf á sá
sem hér stýrir penna Áma mikið
upp að unna og reyndar fjölskyldu
hans allri. Að líkum lætur, að margt
hefur á dagana drifið öll þessi ár,
en efst í huga er þakklæti til hans
fyrir umburðarlyndi og gæsku mér
og mínum sýnda, öll þessi ár.
Þá eru minningar hugþekkar frá
ferðalögum okkar hjóna með þeim
hjónum bæði innan lands og utan.
Árni stóð ekki einn, hans góða kona,
Hulda Ágústdóttir, stóð með honum
sem klettur alla tíð.
Árni var góður faðir og þá ekki
síður afi, sem best kemur fram í
ást og umhyggju barna og barna-
barna til hans, allt til hinstu stund-
ar.
Um leið og ég bið fyrir Árna vini
mínum bið ég Guð að varðveita
Huldu og ástvini hans alla.
Hvíl í friði.
Ágúst Karlsson.
Eik hefur fallið. Sterkur, traust-
ur, rótfastur stofn, hár og sveigjan-
legur.
Leiðir okkar Árna Þorvaldssonar
lágu fyrst saman á árinu 1973.
Breytingar voru í aðsigi á umboði
Tryggingar hf. á Suðurlandi. Úr
varð stofnun fyrirtækisins Suður-
garður hf., með aðsetur á Selfossi
og var Árni stjórnarformaður þess
í nær tuttugu ár. Ákvörðunin var
ekki óumdeild og fæstir höfðu í
raun trú á að þetta tækist. En
Árni var bæði framsýnn og áræð-
inn og eftir stendur blómlegt fyrir-
tæki á sviði trygginga- og ferða-
mála.
Ég vil að leiðarlokum þakka Árna
fyrir framúrskarandi gott samstarf.
Ég þakka allt það sem ég hef af
honum lært og þann tilstyrk er
hann veitti mér við að ná árangri
í rekstri. Ég þakka þær góðu stund-
ir er við áttum saman á bökkum
laxveiðiáa. Þær stundir verða mér
sterkar í minningunni. Þær voru
sérstakar.
Ég sendi Huldu og fjölskyldu
innilegusu samúðarkveðjur og bið
þess að eikin haldi áfram að blómg-
ast og dafna á æðri tilverustigum.
Þorsteinn S. Ásmundsson.