Morgunblaðið - 23.05.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 51
I
1
I
<
:
<
<
<
<
<
<
<
<
i
BRÉF TIL BLAÐSINS
Tenms, íþrótt
fyrir alla
Sumaropnun
tennismiðstöðvar
í Kópavogi
Frá Jónasi Páli Björnssyni:
í TILEFNI af sumaropnun Tennis-
miðstöðvar í Kópavogi þann 24. maí
er ástæða til að eftirfarandi upplýs-
ingar um tennisíþróttina á Islandi
komi fram. í hinum stóra heimi er
tennisíþróttin ein sú stærsta og er
bæði stunduð sem almenningsíþrótt
og keppnisíþrótt. Hún er tiltölulega
ung íþróttagreir. á íslandi. Spilaður
var tennis um 1925 og var fyrsta
íslandsmótið haldið árið 1927. Árið
1941 lagðist íþróttin hins vegar nið-
ur og hófst tennisleikur hér ekki
aftur fyrr en upp úr 1980. í dag eru
a.m.k sex tennisfélög starfandi,
Tennisklúbbur Víkings í Fossvogi,
Tennisdeild Þróttar við Holtaveg,
Tennisdeild Fjölnis í Grafarvogi,
Tennisfélag Kópavogs í Kópavogi,
Tennisdeild BH í Hafnarfirði, og
Tennisdeild Umfb á Álftanesi.
ÖIl þessi félög bjóða upp á ýmis
námskeið fyrir fólk á öllum aldri
hvort sem það eru tennisskóli eða
kynningarnámskeið fyrir fullorðna.
Á veturna æfa þau í Tennishöllinni
í Kópavogi. Vel hefur verið staðið
að fræðslustarfi hjá Tennissamband-
inu og eigum við íslendingar nú
nokkra ágætis þjálfara auk þess sem
starfandi eru reyndir þjálfarar frá
nokkrum öðrum þjóðum. Tennishöll-
in hóf starfsemi sína fyrir um það
bil þremur árum og hefur verið mik-
il lyftistöng fyrir íþróttina hér á
landi. í henni eru alls sex innivellir
og er hún ein sú glæsilegasta í Evr-
ópu. Við íslendingar höfum hingað
til ekki náð miklum árangri í keppn-
um í tennis erlendis en nú má segja
að breyting hafi orðið á. Ungir og
efnilegir tennisspilarar eru nýkomnir
úr keppnisferðum til Wales annars
vegar og hins vegar til Rúmeníu og
Moldavíu á vegum Tennissambands
íslands. Stendur upp úr þessum ferð-
um stórgóður árangur Arnars Sig-
urðssonar úr Tennisfélagi Kópavogs
en hann náði að vinna bestu menn
margra annarra þjóða í sínum ald-
ursflokki og kom mjög á óvart með
því að lenda í sjötta sæti af 38 kepp-
endum frá 18 þjóðum í mótunum í
Rúmeníu og Moldavíu. Þessi mót eru
með íjórum sterkustu mótum í þess-
um aldursflokki í Evrópu.
Talsmenn Alþjóða tennissam-
bandssins urðu svo hrifnir af ár-
angri hans að þeir veittu Arnari
styrk til keppnisferðalaga í sumar.
Árangur Arnars er sérstaklega at-
hyglisverður ef haft er í huga hversu
ung íþróttin er á íslandi og hversu
gífulega hörð samkeppni er á milli
manna í tennis erlendis.
Tennis er íþrótt fyrir fóik á öllum
aldri. Kosturinn við hana er sá að
þátttakendur geta ráðið sínum hraða
nokkuð sjálfir og allir geta spilað
og haft gaman af ef spilað er við
einhvern í svipuðum fiokki. I sumar
verður um að ræða samstarf á milli
Tennishallarinnar í Kópav^g’ 'g
Tennisfélag Kópavogs og geta
klúbbfélagar spilað annað hvort úti
í góðu veðri eða inni í vondu veðri
á sex innivöllum og þremur útivöll-
um. Til kynningar á glæsilegri að-
stöðu verður haldin fjölskylduhátið
næstkomandi laugardag þann 24.
maí í Tennishöllinni. Þar verður
margt til gamans gert m.a verður í
fyrsta sinn á íslandi mældur hraði
á uppgjöfum tennisspilara. Allan
daginn geta allir sem vilja komið og
spilað endurgjaldslaust og eru spað-
ar og boltar lánaðir. Þetta er tæki-
færi sem enginn íþróttaáhugamaður
ætti að láta fram hjá sér fara.
JÓNAS PÁLL BJÖRNSSON,
viðskiptafræðingur og tennisþjálfari.
Þegar foreldrar
eru ráðþrota
Frá Árna Sigfússyni:
FLESTIR foreldrar hafa eðlislæga
tilfinningu fyrir uppeldi barna sinna.
Þeir finna hvenær rétt er að gefa
eftir og hvenær rétt er að veita að-
hald. En þegar kemur að áfengis-
eða fíkniefnaneyslu unglinga standa
margir foreldrar ráðþrota.
Slíkar aðstæður kalla á fræðslu
um forvarnir. Sá aðili hér á landi sem
hefur mesta reynslu af því að fást
við afengis- og vímuefnavandann er
SÁÁ. Það er því við hæfí að SÁÁ
hafi stofnað sérstaka forvamadeild.
Hjá forvarnadeild SÁÁ eru þrír
starfsmenn, sálfræðingar og ráð-
gjafar. Undanfarin misseri hafa þeir
verið að miðla þekkingu sinni til
starfsfólks í grunnskólum, til þjálf-
ara og forráðamanna íþróttafélaga
og beint til foreldra. Einnig hefur
staðið yfir metnaðarfullt verkefni
með fimm sveitarfélögum. Þar taka
þátt allir sem koma að málefnum
unglinga í viðkomandi sveitarfélagi.
Þetta forvarnastarf SÁÁ er skipu-
lagt og öflugt. Það byggir alfarið á
íjárframlögum frá almenningi. Þar
skipta tekjumar af Álfasölu SÁÁ
mestu. Álfasalan verður um næstu
helgi. Ég vona að sem flestir styðji
þetta virka forvarnastarf með því
að kaupa Álfinn.
ÁRNI SIGFÚSSON,
framkvæmdastjóri og borgarfulltrúi.
Staðreyndirnar tala
Frá Jóni Birgi Valssyni:
SÍÐUSTU vikur hefur orðið nokkur
umræða um glímu á síðum Morgun-
blaðsins þar sem tekist hafa á ólík
sjónarmið nokkurra kunnra keppn-
ismanna og tveggja stjórnarmanna
GLÍ sem naumlega naðu kjöri á nýaf-
stöðnu glímuþingi. Ýmsir hafa talið
að umræða þessi hafí ekki verið
nægilega málefnaleg, ég vil því bæta
úr því með því að spyija hina tvo
umræddu stjórnarmenn, Hjálm þjálf-
ara Sigurðsson og Jón nýstúdent
ívarsson um eftirfarandi atriði úr
reikningum GLÍ síðustu níu ár. Þar
kemur fram að á þessu árabili hefur
stjórn GLÍ fengið á fjárlögum ríkis-
ins 12.750.000 krónurtil glímukynn-
ingar í skólum Jandsins. Á þessum
árum hefur GLÍ hins vegar aðeins
varið 9.543.434 krónum til þessara
kynninga. Því spyr ég hvað varð um
mismuninn 3.206.566 krónur því
eðlilegast hefði verið að skila þessum
íjármunum aftur í ríkissjóð, en ekk-
ert í reikningum GLÍ bendir til að
það hafi verið gert.
Einnig væri fróðlegt að vita hvað
orðið hefur um þær 2.143.529 krón-
ur sem varið hefur verið til útgáfu
á glímusögu síðustu níu ár því lítið
bólar á útgáfunni enn sem komið
er og samkvæmt höfundi verksins
gætu enn verið mörg ár í útgáfuna.
Það væri í framhaldi af þessu fróð-
legt að vita hversu mikið er áætlað
að kosti að gefa þetta verk út þ.e.
hversu margar milljónir í viðbót af
takmörkuðum fjárráðum GLÍ munu
renna til útgáfu á verkinu áður en
yfir lýkur. Með bestu kveðjum og
von um svar hið skjótasta.
JÓN BIRGIR VALSSON,
glímuþjálfari hjá KR.
Amsterdat
Arnhem
Brussels
Chieago
Dublln
Edmonton
Eindhover
Glasgow
Gronlngeri
Istanbul
Lisbon 1
London jj
Luaano ^
25. aprfl 1
18. septe
27. júní 'S
8. septert
april
Mon
HEIMSKYNNING
Forbo kynnir nýja linoleum línu
sem gildir næstu 5 árin,
til ársins 2002.
Laugardaginn 24.maí n.k.
kl. 14.00 að Síðumúla 14.
VERIÐ VELKOMIN!
1 £ mK
GÓLFBÚNAÐUR
SÍÐUMÚU 14.108 REYKJAVÍK, SlMI 5813022
iber '97
jst '97
'september '97
12. september '97
30. september '97
Umhverfisvæn byggingarlist“
Jón Kristinsson,
Arkitekt og
prófessor flytur
erindi um
umhverfisvæna
byggingarlist.
;\
Talllnn
Tokyo
Toronto
Vancouver
2. október '97
5. september '97
10. september '97
4. september '97
(feflb©
KROMMENIE
http://www.marmoleunn.com
Kr. MH9
wr — ' 'T\ t»í« fiöPioiveen m • mt m* .ns m... »■ ',"j 9 c' Pííjjlu «9» ts» f*r^**r! * h mm /bbInr m ,...J mm mjl z
DEH 435/útvarp og geislaspilari
■ 4x35w magnari • RDS • Stafrænt útvarp • 18 stöðva mlnni
• BSM • Loudness • Framhlið er hægt að taka úr tækinu
• Aðskilin bassi/diskant • RCA útgangur • Klukka
KEH 1500/útvarp og segulbandstækl
• 4x22w magnarl • Stafrænt útvarp • 24 stöðva minni
• BSM • Loudness • Framhlið er hægt að taka úr tækinu
• Aðskiiin bassi/diskant
KBI 2500/útvarp og segulbandstæki
• 4x35w magnari • Stafrænt útvarp • 18 stöðva minni • RDS
• BSM • Loudness • Framhiið er hægt að taka úr tækinu
• Aðskilin bassi/diskant • RCA útgangur • Klukka
Umbobsmenn um lond allt
Reykjavík: Byggt og Búiö Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö Búöardal Vestflröir: Geirseyrarbúöin, Patreksfirði. Rafverk, BolungarvíkTstraumur, ísafirði.
Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Hóraðsbúa, Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupstað. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi.
Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn.KeflavíK- Rafborg, Grindávlk. ,,,
PIOIVIEe
The Art of Entertainment
PIOIMEEJR
The Art of Entertainment