Morgunblaðið - 28.12.1997, Page 50
50 SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
I DAG
Landvinnsla eða
sjóvinnsla
Frá Guðvarði Jónssyni:
ÞEGAR verið er að ræða um fisk-
veiðar og vinnslu er eins og menn
séu að tala um tvö þjóðfélög. Ann-
ars vegar það lýðræðisþjóðfélag sem
stjómað er af þjóðkjörnum þingfull-
trúum. Og hins vegar einræðis-auð-
lindarþjóðfélag útgerðarmanna.
Sumir telja útgerðarmenn hæfasta
til þess að stjórna auðlindinni og
ákveða hve miklu af arði auðlindar-
innar skuli skilað tii þjóðfélagsins,
og einnig hvernig þeir ij'ármunir séu
nýttir í þágu þjóðfélagsins.
Þeir sem aðhyilast slíkt einræðis-
þjóðskipulag hafa sennilega gleymt
því að stjórnarskrá landsins hentar
ekki einræði.
Sjóvinnsla
Sumir telja að sjóvinnsla sé mun
hagkvæmari en landvinnsla. Þá held
ég að menn séu ekki að tala um
hagsmuni heildarinnar, heldur út-
gerðarmanna.
í sjóvinnslu vinna örfáir menn um
borð í togara að vinnslunni, það
hækkar löndunarverðið. Siglt er með
aflann og erlendir aðilar borga
hærra löndunarverð. Þetta er hag-
stætt fyrir útgerðarmanninn. En
með þessu móti skapa veiðar og
vinnsla nánast ekkert fjármagns-
streymi í gegnum atvinnu- og við-
skiptalífið í landinu.
Rétt er að hafa í huga þegar tal-
að er um sjóvinnslu atriði sem lítið
er minnst á, en það er að togarar
fleygja meira af rotnandi úrgangi í
hafið en þeir koma með að landi af
flökum. Þetta er nýtanlegt hráefni
frá landvinnslu.
Landvinnsla
í landi er fiskurinn unninn í mun
verðmeiri og fjölbreyttari pakkning-
ar. í frystihúsi starfa allt upp í
300-400 manns, einnig starfa mörg
fyrirtæki í tengslum við vinnsluna,
t.d. vélvirkjar, rafvirkjar, trésmiðir,
málarar o.fl. Einnig þurfa togarar
þjónustu þegar þeir landa heima.
Þeir þurfa vélsmiði, rafvirkja, mál-
ara, trésmiði, olíu, kost og veiðar-
færi, svo eitthvað sé nefnt af þeim
fjölmörgu atvinnuskapandi þáttum
sem fylgja landvinnslunni. Þetta
skapar miklar tolltekjur, virðisauka-
skattstekjur og launaskattstekjur til
ríkisins. Einnig miklar launatekjur,
sem fara beint úr launaumslaginu
sem fjármagnsstreymi í gegnum at-
vinnu- og viðskiptalíf landsins. Sé
siglt með aflann beint út er erlendum
þjóðum færður á gullbakka stærsti
hlutinn af atvinnu- og tekjusköpun
auðlindarinnar. Það þarf því engan
að undra þótt erlendir aðilar greiði
hærra löndunarverð en gert er hér
heima.
Veiðileyfagjald verður aldrei ann-
að en mínus á atvinnulífíð í landinu.
Beinir skattar á fyrirtæki valda verð-
þenslu, því þarf að lækka skatta á
fyrirtækjum og fjölga atvinnutæki-
færum á móti skattalækuninni. Og
okurskatta kvótasala á þá sem veiða
fiskinn þarf að afnema.
GUÐVARÐURJÓNSSON,
Hamrabergi 5, Reykjavík.
Glíma karatemenn?
Frá Jóni M. ívarssyni:
„OGINGÓLFUR vann þessa glímu.“
Þessi orð bárust af vörum íþrótta-
fréttamanns Ríkissjónvarpsins sem
var að lýsa frá móti í karate í þætt-
inum Helgarsportið sunnudags-
kvöldið 14. desember. Ég sperrti
eyrun, líklega hafði maðurinn mis-
mælt sig. Nei, nei, hann endurtók
þetta tvisvar meðan sagt var frá
karatemótinu.
Glíma er sérheiti fangbragða sem
eru þjóðaríþrótt íslendinga. Glíma
er heiti á mótum íþróttarinnar, sbr.
Islandsglíman. Glíma er einnig notuð
yfír viðureign glímumanna og sagt
er að þessi eða hinn hafi unnið þessa
glímu í mótinu. Glímumenn sjálfir
hafa lagt sig fram um að spara orð-
ið glíma í þessu samhengi og nota
heldur orðið viðufeign og er það t.d.
hvarvetna notað í þessu skyni í leik-
reglum íþróttarinnar.
Mörgum sem þekkja til glímu
fínnst óneitanlega hallærislegt að
heyra talað um glímu þegar átt er
við erlent fang af ýmsum toga, svo
sem júdó, ólympísk fangbrögð eða
hina amerísku látbragðsleiki sem eru
sýndir í sjónvarpi undir nafninu
„wrestling". „Wrestling" hefur
stundum ranglega verið þýtt sem
„glíma" en táknar réttilega fang eða
fangbrögð. Þó tekur steininn úr þeg-
ar fréttamenn eru farnir að nefna
r viðureignir karatemanna „glímu“.
Karate flokkast einna helst sem
bardagaíþrótt en telst ekki til fang-
bragða sem öll eiga það sameigin-
legt að andstæðingurinn er tekinn
tökum. Með fullri virðingu fyrir kar-
atemönnum sem á síðustu árum
hafa vakið verðskuldaða athygli fyr-
ir að - eigast við - berjast - keppa
- fást hvor við annan - og beita
höggum handa og fóta - með prýði-
legum árangri, þá glíma þeir vissu-
lega ekki.
Ekki má rugla þessu saman við
hugtakið að glíma við e-ð sem oft
er notað í yfírfærðri merkingu s.s.
„glíma við vanda" ... „glíma við ofur-
efli“ o.s. frv. Slíkt getur farið vel í
almennri orðræðu en kemur ann-
kannalega út þegar það er fært yfír
á aðrar íþróttir. Orðið „súmóglíma“
er t.d. klúðurslegt og óþarft. Hví
ekki að segja súmó og súmómaður,
rétt eins og júdó og júdómaður? Oft
er það einfalda best.
Til er a.m.k. hálft annað hundrað
fangbragða í heiminum og fjöl-
breytni þeirra er mikil. En það er
bara til ein glíma. Og hún er ís-
lensk. Því er óþarft að tala um ís-
lenska glímu.
íþróttafréttamenn hafa mikil áhrif
með málfari sínu. Til fyrirmyndar er
aldursforseti þeirra, Bjami Felixson.
Hann talar um glímu þegar glímt er
og viðureign þegar um er að ræða
annars konar fang. Hafí hann þökk
fyrir. Þeim sem fjalla um íþróttir er
ekki hægt að segja fyrir verkum og
síst er það ætlunin. Hitt má hugleiða
hvort ekki sé rétt að nota orðið viður-
eign um íþróttir þegar tveir eigast
við, hvort sem um fang eða aðrar
íþróttir er að ræða.
JÓN M. ÍVARSSON,
Blikahólum 4, Reykjavík.
„Jarðaður
til eilífs lífs“
Frá Guðna Björgólfssyni:
SVO ritar Esra Pétursson, læknir
og sálkönnuður, í lesendabréfi til
Morgunblaðsins 21. 12. 1997. Ef til
vill er hátíð ljóss og friðar, fæðing-
arhátíð frelsarans, sá vettvangur
sem hæfír orðum þessum bezt og
gefur þeim þá áherzlu sem þau
vissulega verðskulda.
Þau eru í samræmi við þá heim-
speki að ekkert verði til úr engu;
að allt var til staðar sem til staðar
þurfti að vera, hringrásin eilífa, líf
og dauði, eru spegilmyndir sem ekki
verða aðskildar, hliðar á sama pen-
ingi. Þessi skoðun er mun útbreidd-
ari og almennari en menn gera sér
grein fyrir.
En hún er að mörgu leyti í mót-
sögn við það sem ritað er í heilagri
ritningu þar sem t.d. er að finna
mörg hlið helvítis auk annarra ger-
sema.
Það er svo umhugsunarefni hvort
mannskepnan nái því ekki yfirleitt
á ævi sinni að gera sjálfri sér það
nóg að hún þurfi hvorki á sérstökum
trakteringum af himni ofan að halda
eða helvíti frekar.
GUÐNI BJÖRGÓLFSSON,
Reykhólaskóla, Króksfjarðarnesi.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Hverjir eru á myndinni?
FÓLKIÐ sem er á þessari mynd bað um að teknar
væru af sér myndir fyrir framan Víkartind. Fólkið get-
ur vitjað þessara mynda hjá Velvakanda.
Fyrirspurn
til ráðamanna
þjóðarinnar
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi: „Ég er með fyr-
irspurn til ráðamanna þjóð-
arinnar og verkalýðsfor-
ystunnar. Hvers vegna er
verið að tala um skatta-
lækkun upp á 1,9% þegar
að það skilar sér ekki nema
1,2% í vasa skattgreið-
enda? Af hveiju segja for-
ystumenn verkalýðsins
ekkert við þessu? Barna-
bætur eiga að breytast um
áramót, sagt að þær eigi
að hækka, en þær hækka
ekki neitt. Barnabætur og
bamabótaauki verða sett
saman í einn pakka og
verða samsvarandi og var
fyrir árið 1995. Barnabæt-
ur munu ekki hækka um
krónu."
Iris.
Enn um Leifsstöð
VIL taka undir það sem
sagt var í Velvakanda 23.
desember um slæma þjón-
ustu í Leifsstöð. Ég kom í
Leifsstöð til að ná í komu-
farþega. Þegar ég kem á
staðinn er á skjánum upp-
lýsingar um lendingartíma.
Sá ég þá að ég hafði næg-
an tíma til þess að fara á
kaffistofuna og fá mér
kaffi meðan ég væri að
bíða. En vélin var á undan
áætlunartíma, lenti 20
mínútum fyrr en stóð á
skjánum og missti ég af
komufarþeganum sem fór
í bæinn með rútunni. Það
er mjög slæmt ef komutími
er ekki leiðréttur á skjám
flugstöðvarinnar og það
mætti hafa skjá og kall-
kerfi á kaffistofunni.
Annar óánægður.
Herbalife
HELGA var að spyijast
fyrir um í Velvakanda hvar
hægt væri að nálgast
Herbalife. Hægt er að fá
upplýsingar í síma
554 4301.
Tapað/fundið
Skór týndust
LÍTILL herramaður sakn-
ar skó, sem hann týndi á
Veghúsastíg (við Sparisjóð
Reykjavíkur) eða á Lauga-
vegi - frá Veghúsastíg að
verslunni Drangey og til-
baka á Þorláksmessukvöld.
Um er að ræða skó á hægri
fót, blár Bopy nr. 20, með
rauðri tungu. Sá sem fann
skóinn er beðinn að láta
vita í síma 5626297 eða
5532406.
Sjóngleraugu
í óskilum
SJÓNGLERAUGU, líklega
kvenmanns, fundust á bíla-
stæðinu við Hagkaup í
Skeifunni, að kvöldi 22.
desember. Glerin eru í
brúnni málmumgjörð og á
hulstrinu er áletrunin „Le
Club Actif“. Uppl. í síma
568 6248.
Jólapakkar
gleymdust
3 JÓLAPAKKAR gleymd-
ust á Hótel Óðinsvéum fyr-
ir jól. Pakkamir eru merkt-
ir frá Dagbjarti. Uppl. í
gestamóttöku á Hótel Óð-
insvéum.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á heims-
meistaramótinu í Groning-
en. Heimamaðurinn Jeroen
Piket (2.630) hafði hvítt
og átti leik í stöðunni. Búlg-
arinn Veselin Topalov,
I , 1
A
á i. á k m
4 1 1
p mm
a m&B AB
íé fi s
HVÍTUR leikur og vinnur.
næststigahæsti keppand-
inn á mótinu, var með
svart.
19. Rxe6! - De5 (Viður-
kennir að staðan er töpuð.
19. - fxe6 er svarað með
20. Dg7+ og 19. - Kxe6
20. Bg4+ - Ke7 21. e5!
er einnig vonlaust) 20. Rd4
- Hcg8 21. f4 - Dc5 22.
Khl - Hg6 23. Dh3 -
Bxe4 24. Bf3 - Bxf3 25.
Hxf3 - Dc7 26. Rf5+ -
Kf8 27. Hfd3 - Rc6 28.
Hd7 og Topalov varð að
bíta í það súra epli og fara
heim strax eftir fyrstu
viðureign sína í Groningen.
Undanúrslitunum er nú
að Ijúka. Þar mætast Eng-
lendingamir Michael Ad-
ams og Nigel Short og einn-
ig Vyswanathan Anand og
Boris Gelfand.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA barst á Þorláks-
messu bréf frá framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins, Kjart-
ani Gunnarssyni, sem er svohljóð-
andi:
„Ágæti Víkveiji.
Undanfama tvo föstudaga 12.
og 19. desember hafa birst í dálki
þínum furðusögur af flokksráðs- og
formannafundi Sjálfstæðiflokksins
sem haldinn var í Reykjavík 29.
nóvember. Sögurnar ganga annars
vegar út á að fundurinn hafí verið
„lokaður" fréttamönnum og hins
vegar að umræður hafí verið mjög
takmarkaðar og álytanir fundarins
fyrirfram samdar og óumbreytan-
legar. Ekki verður komist hjá að
leiðrétta þessar slæmu og vonandi
óviljandi missagnir.
í fyrsta lagi varðandi fréttamenn.
Landsfundir Sjálfstæðisflokksins
hafa frá 1981 verið opnir að öllu
leyti fyrir fréttamenn og oft verið
meira og minna í beinum útvarps-
og sjónvarpsútsendingum. Lands-
fundirnir eru mikilvægustu atburðir
í starfi Sjálfstæðisflokksins og
stjórnmálastarfi landsins. Flokks-
ráðfundir sem eru miklu fámennari
fundir trúnaðarmanna í flokknum
hafa ávallt verið trúnaðarvettvang-
ur flokksmanna þar sem þeir skipt-
ast á skoðunum og rökræða sín á
milli hvaðeina sem þeim býr í
bijósti. Fréttamönnum hefur aldrei
verið heimill aðgangur að þessum
fundum. En á síðasta flokksráð-
fundi sem Víkveiji hefur verið að
Qalla um var fréttamönnum boðið
að hlýða á yfírlitsræðu formanns
flokksins eins og gert hefur verið
frá 1984. Um það var sent skriflegt
boð til allra fjölmiðla þar sem þessu
fyrirkomulagi var nákvæmlega lýst.
Flestir fjölmiðlar þar á meðal Morg-
unblaðið þáðu þetta vandræðalaust.
Fundurinn fór því fram hvað þetta
varðar með nákvæmlega sama
hætti og undanfama áratugi.
Opnir og lokaðir fundir em afar
eðlilegir í starfí stjórnmálaflokka.
Flokksmenn í stjórnmálaflokkum
hafa allan rétt á að ræða saman
án þess að sitja í kastljósi fjölmiðla.
Sama á við um fyrirtæki eins og
Árvakur hf. sem gefur út Morgun-
blaðið. Árvakur hf. er hlutafélag í
eign fárra einstaklinga og fyrir-
tækja og engum dettur í hug, sjálf-
sagt ekki einu sinni starfsmönnum
Morgunblaðsins, að aðrir en hlut-
hafar mæti á hluthafafundum eða
stjórnarmenn á stjómarfundum
Árvakurs hf.
Kunningi Víkveija sem segist
hafa tekið til máls á fundinum hlýt-
ur að vera sammála því að heppi-
legt sé að á fundum fái sem flest-
ir að tjá sig. Til þess að svo megi
verða er oft beint þeim tilmælum
til ræðumanna að þeir stytti mál
sitt og meitli rétt eins og Morgun-
blaðið setur höfundum aðsendra
greina til blaðsins lengdamörk.
Slíkum tilmælum var beint til fund-
armanna á Flokksráðsfundinum en
enginn var hindraður í að ljúka
máli sínu eða tala eins oft og hann
vildi, enda fór það svo að fjölmarg-
ir tóku til máls en þrátt fyrir það
lauk fundinum þó nokkru fyrir
áætluð fundarlok. Og á fundinum
var verulegum hluta fundartímans
varið til almennra umræðna eins
og ávallt er gert í Sjálfstæðis-
flokknum. Sú spurning vaknar hins
vegar hvort „kunninginn" sem Vík-
veiji vitnar svo mikið til hafir yfir-
leitt verið á fundinum eða sé til.
Þannig var nefnilega mál með vexti
að engar tillögur eða ályktanir
voru lagðar fyrir fundinn hvorki
af hálfu miðstjórnar eða fundar-
manna. Þær fyrirfram gerðu álykt-
anir sem „kunningi" Víkveija
hneykslast svo mjög á og Víkveiji
tekur undir eru því í besta falli
hreinn hugarburður en í versta
falli tilraun til að dreifa ómerkileg-
um ósannindum alveg ósamboðn-
um Árvakri hf.
í von um að Víkveiji komi þess-
um athugasemdum á framfæri með
myndalegum hætti óska ég honum
og öðrum starfsmönnum Árvakurs
hf. gleðilegra jóla, árs og friðar."
XXX
VÍKVERJI þakkar Kjartani
Gunnarssyni bréfið. Hins veg-
ar getur Víkveiji vart sætt sig við
þá staðhæfingu Kjartans að við-
mælandi Víkveija, sem allt það, sem
fram kemur í umræddum Vík-
veijapistli, er haft eftir, sé tilbúinn
af Víkveija. Þannig vinnur Víkveiji
ekki. Þessi flokksráðsmaður hefur
setið slíka fundi í áratugi og hefur
þá tilfinningu, að þar sé ekki allt
eins opið og áður var. Eins og fram
kom kvaddi hann sér hljóðs var
minntur á takmörkun ræðutíma,
sagðist þurfa fímm mínútur, en
svar fundarstjóra var að hann fengi
þijár mínútur.
Einning finnst Víkveija Kjartan
Gunnarssson meta fjöldahreyfíngu
á lýðræðisgrundvelli, sem Sjálf-
stæðisflokkinn, harla lítils, þegar
hann líkir honum við hlutafélag,
einkafyrirtæki nokkurra aðila, sem
gefa út Morgunblaðið.
Staðhæfíng Kjartans um að Vík-
veiji sé að dreifa ómerkilegum ós-
annindum er vart svaraverð, en
minna má á orðtakið „vinur er sá
er til vamms segir“.