Morgunblaðið - 10.06.1999, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðinn til að und-
irbúa Kristnihátíð
FORINGINN verður mikið hrifínn af þessari smásögxi, Bernharður minn, ekki svo mikið
sem smáhundaþúfa seld úr landi.
rð
sem er komlð
ti| að vera!
Þú þarf ekki að bíða eftlr næsta tilboði.
Þú færð okkar lága INDESIT - verð alla daga
Kæliskápur RG 1145
- Kælir 114 Itr.
• Klakahólf 14 Itr.
• Mál hxbxd: 85x50x56
inDesu
Kæliskápur RG 2190
• Kælir 134 Itr.
• Frystir 40 Itr.
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Mál hxbxd: 117x50x60
Kæliskápur RG 2250
• Kælir 184 Itr
• Frystir 46 Itr
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Mál hxbxd: 139x55x59
• Kælir 211 Itr.
• Frystir 63 Itr. PFmI
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
. Mái hxbxd: 164x55x60
Kælfskápur RG 1300
• Kælir 298 Itr.
• Sjálfvirk afþýðing
• Mál hxbxd: 150x60x60
Kæliskápur CG 1275
• Kælir 172 Itr.
• Frystir 56 Itr. H««*l
• Tvær grindur
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Mál hxbxd: 150x55x60
TÖLSK HÖNNUN- ÍTÖLSK GÆÐI
Morgunblaðið/Golli
INGVELDUR Viggósdóttir með
22 punda 103 cm hæng sem hún
veiddi á Vaðinu í Kjarrá.
Dofnar yfir
Norðurá
ALLS voru komnir 94 laxar á land úr
Norðurá í gærdag, en þá var þriðja
holl sumarsins að ljúka veiðum. Afl-
inn varð aðeins 12 laxar og því óhætt
að segja að dregið hafi verulega úr
veiðiskapnum eftir firnagóða byrjun.
Af þessum 94 löxum voru 12 dregnir
á land á Munaðarnessvæðinu og einn
á Flóðatanga, að sögn Gunnars Jóns-
sonar veiðivarðar.
Eins og fram hefur komið landaði
stjórnarholl SVFR 43 löxum í byrjun
og hópurinn sem tók við veiddi 26
laxa. Priðja hollið fékk svo 12 stykki
eins og að framan var getið. Gunnar
sagði Flóðatangalaxinn hafa veiðst
fyrsta dag júní og þar hefðu auk þess
veiðst milli 30 og 40 vænir silungar,
bæði urriðar og bleikjur, flestir í
Hlöðutúnskvísl og Kastalahyl.
Að sögn Gunnars er nær allur lax-
inn stór og fallegur, en þó hefur eng-
inn enn komið á land sem slær út
hinn áætlaða 16 punda lax Kristjáns
Guðjónssonar frá fyrsta morgninum.
Einn og einn smálax er farinn að
slæðast með í aflanum.
Norræn samtök náms- og sfarfsráðgjafa
Islendingar
taka við stjórn
samtakanna
Anna Sigurðardóttir
NÝLEGA tóku ís-
lendingar við
stjórn NSNS,
sem eru samtök náms-
og starfsráðgjafa á Norð-
urlöndum. Anna Sigurð-
ardóttir námsráðgjafi í
Kennaraháskóla Islands
er varaformaður samtak-
anna.
„Samtökin voru stofn-
uð fyrir tæplega fimmtíu
árum og eru samstarfs-
vettvangur náms- og
starfsráðgjafa frá Finn-
landi, DanmörkUj Nor-
egi, Svíþjóð og Islandi,
en aukaaðild að samtök-
unum eiga Álandseyjar,
Færeyjar og Grænland."
Anna segir að Island
hafi orðið fullgildur aðili
árið 1997. „í samtökun-
um eru 14 aðildarfélög og 6500
félagsmenn. NSNS er einnig
aðili að alþjóðlegum samtökum
náms- og starfsráðgjafa
IAVEG/AIOPS í gegnum nor-
rænu samtökin. Þau hafa frá ár-
inu 1991 átt fulltrúa í stjórn
þeirra samtaka og er fulltrúi
okkar Peter Plant frá Dan-
mörku og starfar hann sem rit-
stjóri málgagns samtakanna.“
Anna segir að auk sín séu í
nýkjörinni stjórn samtakanna
Guðrún A. Stefánsdóttir, for-
maður, námsráðgjafi í Fram-
haldsskóla Vestfjarða á ísafirði,
Anna Kristín Halldórsdóttir,
ritari, fræðslufulltrúi hjá Sam-
skipum og Marín B. Jónasdótt-
ir, gjaldkeri, náms- og starfs-
ráðgjafi hjá Hringsjá, starfs-
þjálfun fatlaðra.
- Hvað er framundan hjá ný-
kjörinni stjórn norrænu sam-
takanna?
„Stjórn norrænu samtakanna
er skipuð til þriggja ára og við
höfum þegar gert fram-
kvæmdaáætlun fyrir þann tíma.
Við munum leggja áherslu á
að kynna samtökin og auka
samskipti og upplýsingaflæði á
milli félagsmanna." Anna segir
að unnið verði markvisst að því
að koma upp samskiptaneti
náms- og starfsráðgjafa á Net-
inu og búa til heimasíðu sam-
takanna.
„Stjórnin mun auk þess
leggja áherslu á umræðu um
menntun og þjálfun náms- og
starfsráðgjafa með það að
markmiði að þeir verði hæfari
til að leiðbeina þeim sem leita
eftir ráðgjöf, hvort sem er um
nám eða störf. Þær starfsstéttir
sem heyra undir samtökin hafa
mjög mismunandi menntun að
baki, allt frá viku námskeiði til
þriggja ára háskóla-
náms.“
- Standa samtökin
fyi-ir endurmenntun-
arnámskeiðum eða
ráðstefnum?
„Já, það er eitt af
hlutverkum samtakanna.
ágúst síðastliðnum var haldin
stór ráðsþefna á vegum samtak-
anna á íslandi. Efni ráðstefn-
unnar var hvernig bregðast
skuli við brottfalli úr skólum og
á vinnumarkaði. Alls sóttu 127
náms- og starfsráðgjafar frá öll-
um Norðurlöndunum ráðstefn-
una og þótti hún takast mjög
vel. Akveðið hefur verið að
næsta ráðstefna NSNS verði í
►Anna Sigurðardóttir er fædd
í Reykjavík árið 1956. Hún lauk
kennaraprófi frá Kennarahá-
skóla íslands árið 1980 og
starfaði við kennslu í Æfinga-
skóla Kennaraháskóla íslands
til ársins 1991. Anna nam
námsráðgjöf við Háskóla ís-
lands og stundaði framhalds-
nám í hússljórnarfræðum í
Kennaraháskólanum.
Hún hefur síðan starfað sem
námsráðgjafi við Menntaskól-
ann í Hamrahlíð en hóf störf
við Kennarahskóiann sem
náms- og starfsráðgjafi árið
1998. Anna hefur einnig starf-
að sem kennari á vegum MFA
frá árinu 1998.
Eiginmaður hennar er
Sveinn Karlsson kennari og
eiga þau fjögur börn.
Vesterás í Svíþjóð árið 2000.
Yfirskrift þeirrar ráðstefnu
verður: Náms- og staifsráðgjöf
til ungs fólks á nýrri öld.
Eru margir náms- og starfsráð-
gjafar starfandi á íslandi?
„í Félagi náms- og starfsráð-
gjafa eru nú um 130 félagsmenn
en það er skortur á náms- og
starfsráðgjöfum hér á landi því
eftirspumin eftir starfskröftum
þeirra er mikil.“ Anna segir að
aukin áhersla sé lögð á náms- og
starfsráðgjöf í nýjum aðal-
námskrám. Einnig er eftirspum
á almennum vinnumarkaði.
-í hverju er starí náms- og
starfsráðgjafa fólgið?
„Markmiðið er að veita þjón-
ustu í málum sem tengjast námi
og starfi og aðstoða nemendur í
persónulegum málum sem hafa
áhrif á nám þeirra. „
Anna segir að í framhalds-
skólum sé bundið í
lögum að þar skuli
starfa námsráðgjafi
og einnig starfa þeir í
háskólum. Þá hefur
Reykjavíkurborg
einnig ráðið námsráð-
gjafa í sína gmnnskóla og mark-
mið framtíðarinnar er að allir
nemendur grannskóla á íslandi
eigi aðgang að náms- og starfs-
ráðgjöfum.
Anna segir að í framtíðinni
muni kröfur um náms- og starfs-
ráðgjöf aukast því fólk er að
læra allt lífið til að standast
kröfumar í nútímasamfélagi. Til
þess þarf góða leiðsögn í námi
og starfi.
Skortur
á náms-
og starfs-
ráðgjöfum
f