Morgunblaðið - 10.06.1999, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AUGLÝSING
SÁÁ FRÉTTIR
Birtar í Morgunblaðinu
5. tbl. júní 1999
Ábm: Theódór S. Halldórsson
AUGLÝSING
SÁÁ, Samtök áhugafólks um
áfengis- og vimuefnavandann
Sími: 581-2399 • Fax: 568-1552
Vefsetur SÁÁ er á slóðinni:
www.saa.is
Aðalfundur SÁÁ var haldinn fimmtudaginn 27. maí
Næg verkefni framundan
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, var endurkjörinn formaður SÁÁ á aðalfundi samtakanna. í skýrslu sinni lýsti hann
starfsemi SÁÁ árið 1998 og framtíðaráformum.
Aðalfundur SÁÁ var haldinn þann
27. maí. Fjölmenni var á fundinum
sem einkenndist af sátt og sam-
kennd.
Þórarinn Tyrfingsson, formaður
SÁÁ, flutti skýrslu sína um starfsemi
samtakanna á síðasta ári. Fram kom
að erfiðlega gengur að láta enda ná
saman í rekstrinum. Kemur þar, að
mati Þórarins, að mestu til sú ráð-
stöfun ríkisvaldsins árið 1992 að
lækka mjög framlög til sjúkrarekstrar
samtakanna. Það gerir það að verkum
að hlutur samtakanna sjálfra í rekstri
sjúkrastofnana, sem í raun er á
ábyrgð ríkis, hefur stækkað mjög og
er nú um þriðjungur af rekstrar-
kostnaði. Þórarinn sagði fyrirsjáan-
legt að taka yrði fjármuni til
sjúkrarekstrarins frá öðrum rekstrar-
liðum.
Mikilvægi forvarnarstarfs
Umfang rekstrarins hefur breyst lítið
undanfarin ár. Innlagnir hjá samtök-
unum voru í heild tæplega 2800 á
síðasta ári. Það sem helst veldur
áhyggjum er vaxandi hlutfaO ungs
fólks í hópi sjúklinga. Á tíu ára tíma-
bili ffá árinu 1988-1998 fór hlutfall
ungra sjúklinga úr 4% í 14%.
Þórarinn minntist sérstaklega á
mikilvægi forvarnastarfs og sagði að
mikið starf væri óunnið varðandi
upplýsingagjöf og rannsóknastarf.
Benti hann á að mikilvægt væri að
finna og sinna áhættuhópum.
Stjórnarkjör
Formaðurinn þakkaði stjórnar-
mönnum og þá sérstaklega Oddi
Hjaltasyni, formanni byggingar-
nefndar, fyrir góð störf.
Á fundinum var kjörin ný stjórn,
varastjórn, endurskoðendur og vara-
endurskoðendur.
í 36 manna aðalstjórn voru kjörin
til þriggja ára: Anna Ólafsdóttir
Björnsson, Björn J. Guðmundsson,
Friðrik Theodórsson, Guðmundur Á.
Kristinsson, Heiður Gunnarsdóttir,
Jakob Ó. Jónsson, Pétur Sigurðsson,
Tómas Agnar Tómasson, Tryggvi
Sigurbjarnarson, Valur Júlíusson,
Þorleifur Gunnarsson og Þráinn
Bertelsson. Varamenn til eins árs voru
kjörnir: Axel Rúnar Guðmundsson,
Flosi Ólafsson, Tómas Jónsson, Sig-
urður Rafn Bjarnason og Sigmundur
Sigfússon.
Endurskoðendur voru kosnir
Gunnar Ólafsson og Þór Fannar og
til vara Gísli S. Loftsson og Sigurður
H. Þorsteinsson.
Ný framkvæmdastjórn var kjörin og
í henni sitja: Arnþór Jónsson, Heiður
Gunnarsdóttir, Oddur Hjaltason og
Þráinn Bertelsson. Varamenn eru
Atli F. Guðmundsson og Jakob Ó.
Jónsson. Þórarinn Tyrfingsson var
endurkjörinn formaður SÁÁ með
lófataki. Þórarinn þakkaði traustið
sem honum var sýnt og sleit fundi
með þeim orðum að næg verkefni
væru ffamundan.
Fjölskylduhátíð
SÁÁ 9.-11. júlí
Úlfaldinn '99
Sumarhátíð SÁÁ, Úlfaldinn ‘99,
verður haldin í sjötta sinn helgina
9 - 11. júlí í Galtalækjarskógi.
Hátíðin hefur notið mikilla vin-
sælda og hefur aðsókn aukist
jafht og þétt. Síðustu ár hafa gest-
ir verið á annað þúsund. Nánari
upplýsingar fást hjá Göngudeild
SÁÁ í Síðumúla 3-5, s. 581 2399.
Sifej.lt fleiri leita til SAÁ fyrir tvítugt
4,5-r
Ognvænlegt
Hlutfall (%) drengja I hverjury
árgangi sem komiö rf-ýf
hafaímeSeröhjá /
SÁÁ fvrir tvítuat r
í umræðum um ársskýrslu SÁÁ benti
Þórarinn Tyrfingsson meðal annars á
þá uggvænlegu staðreynd að 4,4%
drengja sem fæddir eru árið 1978
komu í meðferð á sjúkrahúsið Vog
fyrir tvítugt. Það þýðir að einn
drengur af hveijum 23 sem fæddir
eru 1978 hefur lagst inn á Vog. Aukn-
ingin ffá því sem gerist hjá árgangn-
um sem fæddur er árið 1977 er um
23%.
Neysla kannabisefna fer stigvaxandi og
er hún mest áberandi hjá ungu fólki.
Alls leituðu 227 einstaklingar yngri en
19 ára til SÁÁ á síðasta ári af þeim sök-
um. Þar af notuðu 106 eða 47%
kannabisefni daglega á meðan 6,5%
neyttu áfengis daglega.
Amfetamínneysla hefur að sama
skapi aukist og sprautufíklum fjölgað. 3 5
Flestir þeirra eru á aldrinum 20-40
ára. Á síðustu átta árum hafa 860
sprautufíklar komið til SÁÁ.
Áhyggjur af framhaldinu
Auk þess sem neysla ólöglegra fíkni-
efna hefúr aukist hefur áfengisneysla
aukist stig af stigi. Áfengissýld á unga
aldri er langvinnur sjúkdómur og er
líklegt að stór hluti þeirra sem þegar
hafa leitað til SÁÁ muni áfram þarfn-
ast hjálpar samtakanna síðar. Af þessu
má ráða að kostnaður vegna sjúldinga
á aldrinum 20-30 ára muni aukast um
helming á næstu árum. Frekari
upplýsingar er að finna á vefsetri SÁÁ:
www.saa.is
1971 1972 1973 19741975 19761977197«
Hlutfail drengja sem komið hafa í
meðferð hjá SÁÁ fyrir tvítugt
hækkar verulega með hverju ári.
Göngudeildarþjónusta
AKUREYRI
GLERÁRGÖTU 20 • Sími 462-7611
Göngudeild SÁÁ á Akureyri er
opin fyrir viðtöl og ráðgjöf alla
virka daga frá kl. 9-17.
Mánudagur 7. júní, kl. 20
Kynningarfundur fyrir aðstand-
endur um starfsemi SÁÁ.
Fundurinn er opinn öllum og
ókeypis aðgangur.
Nánari upplýsingar um
starfsemi SÁÁ er að finna á
www.saa.is
Sjálfspróf SÁÁ á www.saa.is
Ert þú á hálum ís?
SÁÁ hefur opnað vefsetur sitt á
slóðinni www.saa.is. Þar er að fmna
margt fróðlegt um samtökin, starfsemi
þeirra og rannsóknir. Meðal annars
getur fólk athugað með einföldum
hætti hvort það er á hálum ís hvað
varðar áfengisneyslu.
Um er að ræða tvo spurningalista sem
nefnast CAGE og SMAST (Short
Michigan Alcoholism Screening Test).
Fyrri listinn er settur saman úr fjórum
spurningum og sá síðari úr þrettán.
Margprófaðir listar
Spurningalistar þessir hafa margoft
verið prófaðir með vísindalegum rann-
sóknum og hafa reynst ótrúlega ná-
kvæmir. Ef fólk vill fá svör við því hvort
áfengisneysla þess, eða einhvers sem það
þekkir, sé eðlileg ætti það að fá nokkuð
nákvæmt svar ef svarað er samvisku-
samlega. Spurningalistar geta þó aldrei
orðið jafn nákvæmir og viðtal við fag-
fólk með sérþelckingu og er fólki því
ráðlagt að leita til slíkra aðila.
Álfurinn þakkar
góðar mottökur
maí og tókst með miklum
ágætum. Álfur og Unglings-
álfur senda öllum lands-
mönnum kveðju með inni-
legu þakklæti fýrir hlýjar
móttökur. Þeir dvelja nú hjá
Álfhildi ömmu í Álfholti.
Göngudeildarþjónusta
REYKJAVÍK
SÍÐUMÚLA 3-5 • Simi 581-2399
Fundir og ffæðsla á vegum SÁÁ:
Kynningarfundir SÁÁ eru haldnir
í Síðumúla 3-5 alla fimmtudaga.
Kynningin hefst kl. 19 og stendur í
45 mín. Á eftir eru leyfðar fyrir-
spurnir. Á fundunum er fjallað um
starfsemi SÁÁ, áfengissýki og aðra
fíkn og meðvirkni.
Meðferðarhópur (M-hópur):
Móttöku- og kynningarfundir eru
á fimmtudögum kl. 16.15. Fundir
M-hóps eru fyrir þá sem geta nýtt
sér áfengismeðferð á göngudeild.
Meðferðin fer ffam á hópfundum,
fyrirlestrum og með viðtölum.
Fyrstu 4 vikurnar er mætt 4 kvöld í
viku en síðan vikulega í 3 mánuði.
Víkingahópur: Fundir eru á
mánudögum og fimmtudögum ffá
kl. 16-17. Móttaka og skráning er á
sömu dögum kl. 15.30. Eftir Vík-
ingameðferð á Staðarfelli er stuðn-
ingur göngudeildar í eitt ár. Fyrstu
8 vikurnar er mætt tvisvar í viku en
síðan vikulega í 44 vikur.
Kvennahópur: Móttaka og skrán-
ing er mánud. kl. 15.30 og fimmtu-
daga kl. 17. Effir „Kvennameðferð“
á Vík er veittur göngudeildar-
stuðningur í 1 ár. Fundir eru 2svar
í viku fyrstu 12 vikur síðan einu
sinni í viku. Fjölskyldumeðferð er
liður í stuðningi við hópinn.
Spilafíklar: Fundir eru á þriðju-
dögum frá kl. 18-19. Móttaka og
skráning er sömu daga kl. 17.30.
Eftir viðtal geta spilafíklar fengið
ótímabundinn stuðning. Þessum
hópi og aðstandendum standa til
boða fræðsluerindi, viðtöl og
hópstarf. Ef nauðsyn krefur býðst
spilafíklum meðferð um helgar.
Helgarnámskeið fyrir spilafíkla
verður haldið 18. - 20. júní.
Unglingahópur: Vikulega eru
haldnir stuðningsfundir fyrir ungt
fólk, 14-22 ára, með vímuefha-
vandamál. Móttaka og skráning er
mánud. kl. 17.20. Fólk kemst inn í
hópinn að lokinni meðferð á Vogi
eða á eftirmeðferðarstöðum SÁÁ.
Stuðningshópur fyrir alkóhóhsta
hittist daglega kl. 11 árdegis. Inn-
ritanir eru hjá læknum á Vogi.
Einnig geta ráðgjafar á göngudeild
komið fólki í hópinn.
Stuðningshópur fyrir aðstandendur:
Fundir aðstandenda alkóhólista
eru á þriðjud. kl. 16. í þann hóp fer
fólk eftir viðtöl við ráðgjafa eða
fjölskyldunámskeið á göngudeild.
Foreldrahópur er stuðningshópur
fyrir foreldra ungra vímuefnaneyt-
enda. Hópurinn er jafnt fyrir
foreldra sem eiga börn í meðferð
og barna sem hafa lokið meðferð.
Jafnframt er hópurinn fyrir þá for-
eldra sem leita sér upplýsinga
vegna gruns um fíkniefnaneyslu.
Fræðslunámskeið lyrir alkóhólista:
Helgarnámskeið um bata og ófull-
kominn bata verður haldið helgina
4.- 6. júní. Á því er fjallað um ýmsa
þætti sem koma í veg fýrir bata
fyrstu mánuði eftir meðferð.
Námskeiðið hentar einnig þeim
sem eru að ná sér efitir önnur áföll.
Fjölskyldunámskeið SÁÁ. Helgar-
námskeið verður 12.-13. júní. Á
því er leitast við að auka þekkingu
aðstandenda alkóhólista á vímu-
efnasjúkdómnum, einkennum,
birtingarformi og áhrif á fólk sem
er í nábýli við sjúkdóminn.
Þriðjudagsfyrirlestrar: SÁÁ stend-
ur fyrir fyrirlestrum alla þriðju-
daga kl. 17. Þeir eru öllum opnir en
aðgangseyrir er kr. 500. Á næst-
unni verða eftirfarandi námskeið:
15. júní: Tilfinningar: Reiði, gremja.
22. júnf: Tilfinningar: Þáttur viðhorfa
og hugsunar.
29. júní: Vandi aðstandenda.
6. júlí: Bati við alkóhólisma.
13. júlí: Streita og síðhvörf.
G.A. fundir eru haldnir á fimmtu-
dögum kl. 20.30 og kl. 18 sömu
daga eru haldnir Gam-anon fúndir.