Morgunblaðið - 10.06.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999 33
ERLENT
Ahtisaari Finnlandsforseti leikur stórt hlutverk
í samningum um laiisn Kosovo-deilunnar
Þykir fastur fyrir og
snjall samningamaður
MARTTI Ahtisaari, forseti Finn-
lands, hefur leikið stórt hlutverk í
samningaviðræðum um lausn
Kosovo-deilunnar sem sérstakur
sendimaður Evrópusambandsins.
Þykir val Ahtisaaris vera vel til
fundið, og hafa erlend dagblöð farið
lofsamlegum orðum um hann síð-
ustu daga. Hann þykir hafa þá
reynslu af samningaumleitunum
sem þurfi til viðræðna við Milosevic
Júgóslavíuforseta, og vera ákveðinn
og fastur fyrir.
Ljóst er að staða Finnlands í al-
þjóðastjómmálum hafi beint sjón-
um manna að Ahtisaari, er veija
þurfti fulltrúa Evrópusambandsins.
Finnar hafa sennilega átt betri sam-
skipti við Rússa en nokkurt annað
ríki á Vesturlöndum undanfarna
áratugi. Þeir eru auk þess aðilar að
ESB og taka við formennsku í sam-
bandinu í júlí, en hafa ekki viljað
ganga í NATO, og það fellur Rúss-
um vel í geð.
En jafnvíst er að reynsla Ahtisa-
aris af því að leysa deilur er virtust í
algjörum hnút hafi átt stóran þátt í
því að til hans var leitað. Auk þátt-
töku hans í friðarviðræðum í Bosní-
ustríðinu starfaði hann um árabil
fyrir Sameinuðu þjóðirnar að ýms-
um verkefnum. Hann var meðal
annars sendur til Namibíu árið
1977, en þar virtist spenna milli
sjálfstæðishreyfingar Namibíu og
hersveita frá Suður-Afríku, Kúbu
og Angóla um það bil að leiða til
styrjaldar. Margir vilja þakka hon-
um að Namibía hlaut á endanum
sjálfstæði. Ahtisaari starfaði í nokk-
ur ár eftir þetta í suðurhluta Afríku,
en var skipaður í yfirmannsstöðu
hjá stjómunar-
og þróunarsviði
Sameinuðu þjóð-
anna árið 1987.
Varð honum og
Kofi Annan, nú-
verandi fram-
kvæmdastjóra
SÞ, vel til vina.
Ahtisaari var
kennari í
menntaskóla áð-
ur en hann hóf
störf hjá finnska utanríkisráðuneyt-
inu árið 1965. Að sögn erlendra dag-
blaða voru Finnar ekki hissa á skip-
un hans sem sáttasemjara í Kosovo,
því þeir hafi löngum litið á hann
sem mann er gæti mætt nánast
hvaða áskorun sem er.
„Frábær sáttasemjari“
Athisaari sýndi fram á það þegar
hann sneri heim til Finnlands árið
1994 frá störfum við friðarumleitan-
ir í Bosníustríðinu, en þá tilkynnti
hann um framboð sitt til embættis
forseta landsins. Þrátt fyrir að hann
hefði enga reynslu af stjórnmálum
hlaut hann útnefningu sem fram-
bjóðandi jafnaðarmanna, mörgum
að óvörum, og hlaut glæsilega kosn-
ingu.
„Hann byrjaði stjórnmálaferil
sinn á toppnum - og vann sigur,“
sagði Jakko Iloniemi, fyrrum
stjórnarerindreki sem verið hefur
náinn vinur Athisaaris í yfir 30 ár.
„Hann er stórkostlegur maður, og
honum tekst yfirleitt að ná þeim
markmiðum sem hann setur sér ...
Hann er frábær sáttasemjari."
Kjörtímabili Ahtisaaris lýkur á
næsta ári, og finnsk lög kveða á um
að forsetar landsins geti ekki sóst
eftir endurkjöri. Ýmsir hafa leitt
getum að því að Ahtisaari verði þá
fengin fóst staða sem samninga-
maður hjá Sameinuðu þjóðunum.
Sterka, þögla týpan
í dagblöðum vestanhafs hefur
Ahtisaari jafnvel verið líkt við hina
sígildu sterku og þöglu týpu sem sjá
má í kvikmyndum frá Hollywood.
The Washington Post segir þessa
eiginleika hafa komið vel í ljós fyrir
þremur vikum, þegar Strobe Tal-
bott, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Viktor Tsjem-
omyrdín, sendimaður Rússa í
Kosovo-viðræðunum, komu til fund-
ar við hann í forsetahöllinni í
Helsinki. Tsjernomyrdín hafði þá
tilkynnt fréttamönnum að Ahtisaari
myndi halda rakleiðis til Belgrad að
fundinum loknum.
En finnski forsetinn hafði aðrar
hugmyndir. Hann gerði tvímenn-
ingunum Ijóst að hann myndi ekki
taka þátt í samningaviðræðum fyrr
en Bandaríkjamenn og Rússar
kæmu sér saman um áætlun um að
binda enda á loftárásir NATO og
leysa deiluna í Kosovo. Eftir tíu
klukkustunda þref hélt Tsjem-
omyrdín einn til Belgrad, en ekki
hafði verið orðið við skilmálum Aht-
isaaris.
Hann féllst þó að lokum á að taka
þátt í friðarumleitunum og hélt til
Belgrad 2. júní til viðræðna við
Slobodan Milosevic Júgóslavíufor-
seta. Næstu daga mun væntanlega
koma í ljós hvort þær beri varanleg-
an árangur.
Reuters
LÖGREGLUMAÐUR stendur vörð um kjörkassa í Jakarta í gær en
talning atkvæða gekk afar hægt, sem vakti grunsemdir um að ekki
væri allt með felldu.
Kosningarnar 1 Indónesíu
Talmng atkvæða
veldur áhyggjum
Jakarta. Reuters.
ALÞJOÐLEGIR eftirlitsmenn lýstu
í gær áhyggjum sínum vegna þess
hversu hægt gekk að telja atkvæði í
Indónesíu, en þingkosningar fóru
fram í landinu á mánudag, þær
fyrstu um margra áratuga skeið sem
telja mátti lýðræðislegar. Ýmsir
stjómarandstæðingar höfðu áður
sakað stjómvöld um að reyna hag-
ræða úrslitunum.
Einungis var búið að telja um
fjögur prósent allra atkvæða í gær,
þrátt fyrir að tveir sólarhringar
væm þá liðnir síðan kosningamar
fóm fram. Sagði John Morgan, yfir-
maður eftirlitssveita Evrópusam-
bandsins, að þessi seinagangur ylli
því að „miklar efasemdir vöknuðu
um alla umgjörð kosninganna", og
hvort staðið væri heiðarlega að þeim
þegar til kastanna kæmi.
Helsti stjómarandstöðuflokkur-
inn, PDI-P flokkur Megawatis
Sukarnoputris, hafði örugga forystu
skv. þeim tölum sem lágu fyrir, með
um 38 prósent. Samtök mú-
hameðstrúarmanna, stjómarand-
stöðuflokkurinn Þjóðamppvakning,
vora í öðm sæti með 22 prósent og
stjómarflokkurinn, Golkar-flokkur
B.J. Habibies forseta, hafði 16 pró-
sent.
Jimmy Carter, íyrrverandi
Bandaríkjaforseti, sem fór fyrir al-
þjóðlegri eftirlitsnefnd, lét þess í
gær getið að of snemmt væri að
meta hvort lýðræði væri komið á í
Indónesíu, en landið yrði þar með
þriðja stærsta lýðræðisríki í heimin-
um, en um 130 milljónir manna vom
á kjörskrá á mánudag.
„Eg held ekki að við munum fá
svarið við þeirri spurningu hvort lýð-
ræði er í raun komið á í Indónesíu
fyrr en í nóvember, þegar forsetaval
fer fram,“ sagði Carter í gær.
Hjálp, afhendið mér aftur líf mitt
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Sænsk söngkona sker upp herör
geg-n kjaftablöðunum
„HJALPAÐU mér að halda áfram að vera
listamaður, að syngja fyrir þig. Stattu með
mér. Keyptu ekki lygarnar í kjaftablöðun-
um,“ skrifaði sænska poppsöngkonan Eva
Dahlgren í Dagens Nyheter í síðustu viku.
Hún rekur hvernig blöðin hundelti sig og
sambýliskonu sína, leikkonuna Efvu Ett-
ling með lygum og ágengnum myndum.
Engin lög verndi þær og því snúi hún sér
til almennings. Ákall Dahlgren hefur vakið
mikla athygli í Svíþjóð. Umboðsmaður fjöl-
miðla viðurkennir að ágangur fjölmiðla við
frægt fólk harðni, en í lagasetningu verði
að flýta sér hægt.
„Mér var nauðgað í sumarfríinu. Nei,
mér voru ekki gefin eiturlyf á bar og ég
dregin inn í runna. Það var engin sem reif
utan af mér fötin, misþyrmdi mér, þvingaði
mig með valdi til að þegja og nauðgaði lík-
ama mínum. Eg slapp við líkamleg mein, en
andlegu meinin eru hliðstæð. Eg græt og á
erfitt með að fara út og sýna mig meðal
fólks. Eg skelf öll og mér finnst eins og það
sé bara húðin, sem haldi mér saman.
Það var kona, sem nauðgaði mér. Hún
heitir Tua Lundström og er aðalritstjóri Se
och Hör. Hún tók myndir af mér í leyni og
negldi síðan myndir af hálfnöktum líkama
mínum upp á húsveggi um alla Svíþjóð.
Hún gerði þetta og það er ég sem skamm-
ast mín. Það hlýtur að vera þannig, ná-
kvæmlega þannig, sem fórnarlömbum
nauðgana líður. Það er engin rökvísi í til-
finningum, ekki frekar en í lögum um
prentfrelsi."
Rakalausar lygar og myndir
teknar úr leyni
Dahlgren segir að þegar þær stöllur hófu
sambúð hafi þær hafnað því að segja ástar-
sögu sína í fjölmiðlum, en vonuðust til að
geta haldið áfram vinnu sinni eins sem fyrr
og venjulegu sambandi við fjölmiðla, en
„það var mikil einfeldni." A brúðkaupsferð-
inni máttu þær flýja fjölmiðlaágang, en
voru sannfærðar um að þetta gengi yfir á
hálfu ári eða svo. Nú séu hins vegar liðin 3
Á ár með fleiri lygum en hægt sé að telja
saman.
Ferð til Bangkok vegna upptökuvinnu
varð í blöðunum að ættleiðingarferð, rifrildi
þeirra við ágenga blaðamenn, sem eltu þær
heilt kvöld á skemmtun varð að mynd tek-
inni í laumi með frétt um að þær væru að
skilja. Eftir að þær og börn þeirra voru
mynduð í fríi klöguðu þær til umboðsmanns
fjölmiðla, sem áður hefur tekið margar
fyrri kærur þeirra greina. Kærunni var vís-
að frá og þær fengu að vita að frægt fólk,
sem fari í frí með ófrægu fólki á venjuleg-
um sumarleyfisstöðum verði að sætta sig
við að þá séu teknar af þeim myndir.
Að þessum leikreglum aðlöguðu þær sig
og fóru í sumarfrí í griðlandi. „Við skráum
okkur á hótelið undir fölskum nöfnum og
hótelið fullvissar okkur um að við verðum í
friði frá Ijósmyndurum meðan á dvölinni
stendur. Það heldur þó ekki aftur af Tuu
Lundström. Hún felur sig upp á fjallstoppi
hinumegin við víkina og festir á filmu með
aðdráttarlinsu nánar einkastundir mínar
með Efvu. Ég kem heim og við mér blasa
nakin brjóst mín á 7-Eleven með fullyrðing-
um um að við séum að lappa upp á ástina
eftir allan orðróminn um skilnað. Eftir
þetta á ég erfitt með að fara út. Svona er líf
mitt.“
Frægt fólk lögleg bráð fyrir
„paparazzi“-Ijósmyndara
Dahlgren rekur að eftir rúm tuttugu ár
sem söngkona hafi frægðin ekki truflað sig.
Kjaftablöðin hafi ekki sýnt henni áhuga þar
til hún fór að búa með konu. Lygum kjafta-
blaðanna eigi hún þó erfitt með að kyngja,
þó hún reyni að leiða þær hjá sér eins og
vinir hennar segi henni að gera.
Nú þegar hafi keyrt um þverbak og hún
geti ekki lengur látið eins og ekkert sé, „þá
velti ég fyrir mér: Hvert get ég snúið mér?
Umboðsmaður fjölmiðla er tannlaus. Lög-
reglan er ekki til fyrir mig. Lög um prent-
frelsi eru skrifuð á öðrum tíma. Ég er lög-
leg bráð fyrir paparazzi-ljósmyndara um
allan heim og mér finnst að ég megni ekki
að lifa við að þurfa alltaf að vera að líta um
öxl.“
Söngkonan segir að gleðin sem fylgi
starfinu yfirgnæfi ekki að einkalífið sé
saurgað, svo spurningin sé hvort hún verði
að hætta að vinna. Hún spyr síðan hvort al-
varlegir blaðamenn séu ekki þreyttir á að
vera flokkaðir með tveimur kjaftablaða-
mönnum, sem hún nafngreinir og hvort
fólk sé ekki orðið þreytt á að lesa fréttir án
sannleikskorns. „Eða er það svo að lögin
um prentfrelsi eru aðeins fyrir Aller-fjöl-
skylduna dönsku, sem á þessi kjaftablöð og
græðir peninga á nöktum brjóstum mínum,
að lögin séu fyrir hana og ekki fyi’ir lýð-
ræði og málfrelsi? Ég vil svar við þessu. Ég
vil svar við því hvort ég sem listamaður,
þekkt og opinber persóna eigi nokkurn
minnsta rétt á friðuðu einkalífi.“
Þessu geti aðeins lesendur svarað, segir
Dahlgren. „Ég afhjúpa mig nú. Ég legg allt
undir. Hjálpaðu mér að fá líf mitt aftur.
Hjálpaðu mér að geta haldið áfram að vera
listamaður. Stattu með mér. Keyptu ekki
þessi blöð. Ég bíð eftir svari þínu.“
Pár-Arne Jigenius umboðsmaður fjöl-
miðla hefur tekið undir sjónarmið Dahl-
gren og segir kjaftablöðin ófyrirleitnari en
áður, þó lagabreytingar verði að gera af
varúð. Þekkt fólk verði að átta sig á að það
hafi oft slæm áhrif að ýta undir forvitni
með því að hafa samband við blöðin. Se och
Hör fékk tvær áminningar í fyrra og tvær í
ár frá umboðsmanninum, en það hefur eng-
in áhrif. Jigenius segir að það eina sem
dugi sé að eigendur blaðanna grípi í
taumana.
Daðrið við kjaftablöðin
Tua Lundström ritstjóri vildi í fyrstu
ekki svara spurningum um ákall Dahlgren,
en í viðtali við Expressen nokkrum dögum
síðar segist hún harma myndbirtinguna, en
sér hafi þótt myndirnar sætar. Blaðið muni
láta sambýliskonurnar í friði, en reyndar
séu flestar fréttir blaðsins birtar með sam-
þykki fræga fólksins.
Se & Hör-blaðamaðurinn Arne Sund-
berg, sem Dahlgren nafngreinir í grein
sinni, segist standa við sumarfrísgrein sína.
Dahlgren eigi bara að hylja brjóst sín.
Bengt Aller forstjóri Aller í Svíþjóð óttast
að umræðan skaði blaðið og segist persónu-
lega ósáttur við myndir teknar í laumi, en
blaðið kaupi myndir utan að og viti ekki
alltaf hvernig þær séu teknar.
í Svenska Dagbladet í gær gagnrýnir
Jan Söderqvist blaðamaður Dahlgren fyrir
að tala um myndbirtinguna sem nauðgun
og sé það lítilsvirðing við konur, sem í raun
hafi verið verið nauðgað, en orðanotkunin
sé auðvitað grípandi.
Hliðstæðan við Díönu prinsessu og elt-
ingarleik kjaftablaðanna hefur komið upp,
en Söderqvist segir að ekki megi gleyma að
Díana hafi iðulega notfært sér blöðin. Sama
geri Dahlgren þegar hún í sambandi við
plötuúgáfur viðri einkalífið í fjölmiðlum.
Sama fólkið kaupi plötur hennar og lesi um
hana og Söderqvist hefur ekki mikla samúð
með „krókódílatárum fjölmiðlaleikandans“.