Morgunblaðið - 10.06.1999, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999 35
LISTIR
Kammertónlist í háum klassa
TOfVIJST
Hljómdiskar
LEIFUR ÞÓRARINSSON/
CAPUT ENSEMBLE
Icelandic Chamber Music, kammer-
verk eftir Leif Þórarinsson. Tríó fyr-
ir fiðlu, selló og píanó (1960), Mosaik
(fiðla og pianó) (1961), Tríó fyrir
flautu, selló og píanó (1974), Pente X
(flauta, harpsikord, selló og slagverk
(2) (1994), Preludio - Intermezzo -
Finale (piano solo) (1995), Serena by
the Sea (fiðla og harpa) (1995). Caput
ensemble: Kolbeinn Bjarnason
(flauta), Guðrún Óskarsdóttir (semb-
al), Eggert Pálsson (slagverk), Steef
van Oosterhout (slagverk), Bryndís
Halla Gylfadóttir (selló), Auður Haf-
steinsdóttir (fiðla), Snorri Sigfús
Birgisson (píanó), Elisabet Waage
(harpa). Utgáfustjóri: Gunther
Schuller. Stjórn upptöku og eftir-
vinnsla: Bjarni Rúnar Bjarnason.
Upptökur fóru fram í Víðistaðakirkju
(1-7), Fella- og Ilólakirkju (8-10) og
Garðakirkju (11). Heildartími: 60:01.
Utlitshönnun: Alda Lóa Leifsdóttir.
Kápumynd á bæklingi er eftir mál-
verki Kristjáns Davíðssonar. GM
Recordings 1999 GM2065CD Hljóm-
diskurinn er helgaður minningu Leifs
Þórarinssonar.
Á ÞESSUM fallega hljómdiski
eru sex kammerverk eftir Leif
Þórarinsson, sem lést
fyrir rúmu ári, aðeins
63 ára. Verkin spanna
tímabil frá 1960-1995
og vitna um ákveðna
þróun, sem er bæði
áhugaverð og merki-
leg. Öll eru verkin
ákaflega fínar tón-
smíðar, þau fyrri í
senn knöpp og marg-
slungin í sínu atonala
tónmáli, þau seinni
(einkum verkin tvö frá
‘95) í „upphöfnum ein-
faldleika" og hrein-
leika sem hefur yfir
sér ákveðna helgi, og
er aðeins á valdi þeirra
tónskálda að miðla sem þroskast
hafa að að andlegri reynslu og
haldið trúfestu við ósvikna náðar-
gáfu. (í hugann koma lögin sem
flutt voru við útfór tónskáldsins,
svo sem Dæm svo mildan dauða við
ljóð Matthíasar Jochumssonar.)
Gott dæmi um þetta er Serena, síð-
asta verkið á diskinum (einnig flutt
við útfórina), sem vitnar um blíðu -
líkt og til að sefa harm
og innri togstreitu.
Preludio-Inter-
mezzo-Finale er sér-
lega vönduð tónsmíð
fyrir píanó solo, eink-
um er fyrsti þátturinn
hrífandi fallegur og
leiðir hugann að Bach
í sínum „flókna“ og
íhugula einfaldleika.
Hreint út sagt frábær-
lega vel leikinn af
Snorra Sigfúsi Birgis-
syni. Verkið var samið
í minningu vinar, er
lést af slysförum;
reyndar líka fyrir Sig-
fús Birgi skv. pöntun.
Allur flutningur á hljómdiskinum
er frábær, sannir listamenn í
hverju rúmi, og ég vona að enginn
verði sár þó að ég nefni þau Kol-
bein Bjarnason og Auði Hafsteins-
dóttur sérstaklega. Málið er að allir
flytjendur eru í fremstu röð, enda
Caput-hópurinn heimsfrægur.
Pente X fyrir flautu,
harpsikord og slagverk (2) frá ‘94
höfðaði mjög til undirritaðs, þó að
það standi einhversstaðar milli
fyrnefndra „heima“. Geysifínt
verk og vel flutt! Allstaðar skína í
gegn þekking og gáfur
Svo er um upptökur og hljóðrit-
un alla. Mjög ánægjulegt er að
kennari Leifs frá námsárunum í
Ameríku og síðan náinn vinur,
tónskáldið Gunther Schuller, stóð
að þessari fallegu útgáfu og á hér
stutta grein í bæklingi (Prod-
ucer’s Note) um vin sinn Leif, ís-
lensk tónskáld og tónlistarlíf í nú-
tímanum. Einnig á Atli Heimir
ágæta grein um kollega sinn og
náinn vin. Hér er og stutt umfjöll-
un Leifs um tilurð verkanna.
Einnig grein um tónskáldið og
Caput-hópinn. Allt á ensku.
Oddur Björnsson
Andrés
Magnússon
sýnir á
Akranesi
NÚ stendur yfir málverka-
sýning Andrésar Magnússon-
ar í Listahorninu, Kirkju-
braut 3,
Akranesi.
Andrés
Magnússon
sótti nám-
skeið í mál-
aralist hjá
Finni Jóns-
syni og Jó-
hanni
Briem, auk
þess sem
hann nam í Myndlistarskóla
Reykjavíkur hjá Jóhannesi
Jóhannessyni.
Andrés hefur haldið sýning-
ar í Reykjavík, Vestmanna-
eyjum og á Akranesi.
Sýningunni lýkur 17. júní.
Leifur Þórarinsson
Uthlutað
úr sjóði
Hagþenkis
HAGÞENKIR, félag höfunda
fræðirita og kennslugagna, hefur
úthlutað 29 rithöfundum starfsstyrk
til ritstarfa, samtals 3,3 milljónum
króna og hlut Jón Karl Helgason
hæsta styrkinn, 300 þúsund krónur,
til að ljúka fræðiriti sem hann nefn-
ir Höfundar Njálu.
Ennfremur voru veittir styrkir til
að vinna að handritum fræðslu- og
heimildarmynda. Til úthlutunar var
ein milljón króna. Fimm styrkir
voru veittir og rann sá hæsti, 300
þús. kr., til Sonju B. Jónsdóttur
vegna heimildarmyndar um sögu ís-
Ienskrar kvennahreyfingar.
Þóknanir vegna höfundarréttar á
fræðslu- og heimildarmyndum, sem
sýndar hafa verið í sjónvarpi voru
greiddar sex umsækjendum, sam-
tals 300 þús. kr. Þá hefur félagið
greitt 32 höfundum fræðirita og
kennslugagna þóknun vegna Ijósrit-
unar úr verkum þeirra í skólum og
öðrum opinberum stofnunum. í ár
voru hverjum umsækjanda, sem
ekki fékk þóknun síðasta ár, greidd-
ar 30-35 þús. kr.
Ferða- og
menntunarstyrkir
Þær tekjur, sem Hagþenkir notar
til þess að greiða höfundum þókn-
anir og veita þeim styrki, fær félag-
ið vegna aðildar sinnar að samning-
um um vissa heimild skóla og ann-
arra stofnana hins opinbera til ljós-
ritunar úr útgefnum verkum. Fé-
lagið á einnig aðild að Innheimtu-
miðstöð gjalda, sem hefur tekjur
samkvæmt höfundalögum af gjaldi
sem lagt er á myndbönd, mynd-
bandstæki og hljóðbönd. Tekjum
vegna þeirrar aðildar er varið til
þóknana og starfsstyrkja til hand-
ritshöfunda fræðslu- og heimildar-
mynda.
Hluta af greiðslum, sem renna til
Hagþenkis, er varið til ferða- og
menntunarstyrkja. Fyrri úthlutun
þeirra styrkja í ár er lokið og hlutu
19 höfundar slíkan styrk, samtals
655 þús. kr. Þessum styrkjum er
einkum ætlað að standa undir
kostnaði vegna fargjalda.
Sérstakar úthlutunarnefndir
skipaðar félögum í Hagþenki fjálla
um starfsstyrkina, en stjórn félags-
ins úthlutar þóknunum og ferða- og
menntunarstyrkjum. Óllum er
heimilt að sækja um starfsstyrki og
þóknanir en réttur til að sækja um
ferða- og menntunarstyrki er bund-
inn félagsaðild, samkvæmt því sem
fram kemur í fréttatilkynningu.
MYNDIRNAR eru af 10. bekkingum í Valhúsaskóla og í Víðistaðaskóla sem völdu sögur í þjóðsagnabókina.
Allir fengu bók
ALLIR nemendur sem luku
námi við grunnskóla landsins í
vor, um 4.300 talsins, voru
heiðraðir með bókagjöf frá
Prentsmiðjunni Odda og Félagi
íslenskra bókaútgefenda. Bókin
var afhent við útskrift nemend-
anna úr skólunum um mánaða-
mótin. „Bókin sem nemendur
fengu og gefín var út sérstak-
lega handa þeim er Nú skyldi
ég hlæja ..., úrval þjóðsagna og
ævintýra, sem tveir 10. bekkir,
annar í Valhúsaskóla og hinn í
Atvinnuleikhús ungs fólks
Annað starfs-
árið hafíð
Morgunblaðið/Halldór
HÓPURINN sem stendur að atvinnuleikhúsi
ungs fólks í Isafjarðarbæ. Þetta er hæfileg
blanda af þaulreyndum og minna reyndum
ungmennum. Leikstjórinn, Elvar Logi Hann-
esson frá Bíldudal, sem á að baki langt leik
listarnám erlendis, er fremst til vinstri.
ísafirði. Morgunblaðið.
ATVINNULEIKHÚS
ungs fólks í ísafjarðar-
bæ hóf starf sitt sl.
mánudag, annað sum-
arið í röð. Fyrstu vik-
urnar verður leiklistar-
skóli þar sem farið
verður í látbragð, trúð-
alistir og aðrar listir.
Einnig verður umsvifa-
laust byrjað að sýna og
verður fyrsta verkið
sýnt á kirkjulistahátíð á
Patreksfirði á sunnu-
daginn. Leikhúsið ætlar
að taka á móti erlendu
skemmtiferðaskipunum
sem koma til Isafjarðar
í sumar, en þau verða
alls ellefu, með þjóð-
legri dagskrá, leik, söng
og dansi.
Yngsta kynslóðin
verður ekki skilin útundan því
leikhúsið hyggst setja upp barna-
leikrit og sýna það í leikskólum
bæjarins. I byrjun júlí verður
ferðamönnum sem og heimafólki
boðið í óvenjulega skoðunarferð
með listrænu ívafí. Farið verður á
sögulegar slóðir í bænum og á
hverjum stað verður óvænt uppá-
koma sem tengist staðnum sjálf-
um. Um miðjan júlí mun leikhúsið
bjóða upp á leiklistarnámskeið fyr-
ir yngstu kynslóðina og verður það
auglýst nánar þegar nær dregur.
við útskriftina
Víðistaðaskóla, völdu. Þetta er í
þriðja sinn sem Prentsmiðjan
Oddi og bókaútgefndur samein-
ast um að gefa 10. bekkingum
bók við skólalok. Tilgangurinn
er að hvetja nemendur til
áframhaldandi bóklestrar og
afreka í framtíðinni og minna á
að öflug lestrar- og ritfærni er
lykill að velgengni, ekki síst á
tímum tölvutækni og nýsköpun-
ar,“ segir í fréttatilkynningu
frá Félagi íslenskra bókaútgef-
enda.
BODYSLIMMERS
NANCY GANZ
QD
VALENTINO
INTIMO
WARiNERS'
Aubade
UNDIRFATAVERSLUN,
I. hæð Kringlunni, simi 553 7355
Glæsilegur undirfatnaður
rð Skálastærðir
m I AA-A-B-C-D-DD-E