Morgunblaðið - 10.06.1999, Page 64
64 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HEN GIPLÖNTUR -
RÆKTUN í KERUM
OG POTTUM
GLEÐILEGT sumar, góð-
ir garðyrkjuhálsar. Loksins
er kominn tími á sorgarrend-
umar undir nöglunum, skófór
eftir moldug stígvél í forstof-
unni, strengi í lærunum eftir
það að hafa stungið upp kart-
öflugarðinn og gömul, dauð
laufblöð í hárinu eftir vor-
hreingerninguna í garðinum.
Sumarið í ár verður auðvitað
litskrúðugt að vanda og að
sjálfsögðu reynum við að hola nið-
ur blómum hvar sem þess er nokk-
ur kostur. Sumarblóm eru álitlegur
kostur því þau vinna fyrir kaupinu
sínu með blómskrúði, blómstra út í
eitt allt sumarið. Þegar við höfum
sett sumarblóm í allar mögulegar
og ómögulegar eyður í blómabeð-
unum er alveg tilvalið að skella
þeim í ker og potta. Þá er í raun-
inni ekkert eftir nema að skreyta
veggi húsanna með blómahafi og
þar koma hengiplönt-
urnar til sögunnar.
Á undanförnum ár-
um hefur orðið
sprenging í framboði
á alls kyns hengi-
plöntum. Þeir sem
hafa framleiðslu
nýrra sumarblóma-
tegunda að atvinnu
hafa þarna uppgötvað
nýjan markað með
óþrjótandi möguleika,
því mikill hluti fólks
býr í þannig húsnæði
að það hefur ekki að-
gang að garði. Islend-
ingar hafa enn frem-
ur verið iðnir við það
að smíða sólpalla í
görðum sínum og þar skapast heil-
mildð veggjapláss á skjólveggjun-
um. Þegar plöntur eru ræktaðar í
pottum og kerum þarf að hugsa
ívið meira um þær en þegar þær
eru settar beint niður í blómabeð.
Aðgangur pottaplantnanna að
næringu og vatni takmarkast oftar
en ekki við það sem mannfólkinu
þóknast að láta af hendi rakna.
Pottar og ker standa yfirleitt í
skjóli upp við húsveggi og þar gæt-
ir rigningar lítið sem ekki neitt.
Það er því nauðsynlegt að gæta
þess að vökva plöntumar og gefa
þeim áburð reglulega, sérstaklega
þegar líður á sumarið og blóm-
skrúðið verður mikið. Einnig er
vert að hafa í huga að plöntur
blómstra til þess að mynda fræ.
Með því að klípa dauð blóm af
plöntunum jafnskjótt og þau fólna
má koma í veg fyrir fræmyndunina
og halda blómguninni þannig við
mun lengur en ella. Engin sérstök
vandamál fylgja pottaræktuninni
umfram ræktun í blómabeðum,
blaðlús gerir vart við sig eftir sem
áður og er gott að hafa það í huga
að nota ekki eiturefni nema maður
sjái kvikindin með berum augum,
fyrirbyggjandi úðun hefur ekkert
upp á sig. Hér á eftir íylgir svo ör-
stutt umfjöllun um nokkrar hengi-
plöntur sem nota má í hvemig ker
og potta sem er.
Hengi-brúðarauga (hengi-ló-
belía) er landsmönnum að góðu
kunn. Blómin eru fremur smá og
fást í mörgum bláum litum en
einnig eru þessar plöntur til í
bleiku eða hvítu. Lóbelíumar
blómstra gríðarlega mikið en þær
þurfa mikla vökvun þegar líður á
sumarið. Þær má jafnvel rækta í
nokkmm skugga. Hengi-tóbaks-
horn (surfinia) em uppmnnin í
Japan en þar í landi era menn
einkar duglegir við það að finna
spennandi afbrigði til ræktunar
enda búa þeir við langa ræktunar-
hefð. Surfiníumar
era mun stórvaxnari
en venjuleg tóbaks-
horn og blómstra von
úr viti. Blómlitimir
era hefðbundnir tó-
bakshomalitir, bleikir
og bláir, en enn sem
komið er hefur engin
hárauð surfinía litið
dagsins ljós. Surfiní-
umar era fljót-
sprottnar og frekar
til plássins þannig að
það er best að rækta
þær einar sér í keram
eða pottum, aðrar
smávaxnari tegundir
verða undir í sam-
keppninni um vaxtar-
staðinn. Blómgunin verður mest
og best á björtum stað en þær geta
þó komið ágætlega út á skuggsælli
stöðum. Gæta þarf að áburðargjöf-
inni handa surfiníunum þegar líður
á sumarið og er ágætt að vökva
þær með venjulegum blómaáburði
eins og einu sinni í viku til að halda
þeim fallega grænum og sprækum.
Olíkt venjulegum tóbakshornum
hefur borið nokkuð á blaðlús á
hengi-tóbakshomunum en þó ekki
þannig að þær hafi beðið mikinn
skaða af.
Hengi-jámurt (Verbena
„Tapien“ og Verbena „Temari") er
þriðja og síðasta tegundin sem
minnst verður á hér. Hún er frek-
ar ný af nálinni hér á landi. Blómin
era fremur smá en mörg saman í
kollum og eru ýmist bleik eða
fjólublá að lit. Jámurtin er blóm-
viljug en þolir illa kulda þannig að
ef hitastigið fer niður fyrir 6°C
verða blöð plöntunnar bláleit og
hún hættir að vaxa. Á skjólgóðum
og hlýjum vaxtarstöðum hefur hún
þó komið afar vel út, vaxið vel og
blómstrað mikið. Engin sérstök
vandamál era fylgjandi ræktun á
hengi-járnurt og hún er ekki vand-
meðfarin umfram það sem áður
hefur verið minnst á. Nú er því
ekkert annað að gera en að tína
fram kerin, körfurnar og pottana
og hefja útplöntun hið snarasta.
Guðríður Helgadóttir
garðyrkjufræðingur.
BLOM
VIKUMAR
409. þáttur
(Imsjón Ágnsta
B j örnsdóttir
Tilboðfyrir 17. júní.
Stuttar og síðar kápur
Jakkar
Heilsársúlpur
Regnkápur
Opið laugardaga kl 10-16.
N#HH5IÐ
Mörkinni-6, sími 588 5518
í DAG
VELVAKAJVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þögn fjöl-
miðlanna
ÉG vil þakka Ríkissjón-
varpinu fyrir góða þætti,
Any Day Now, sem taka á
kynþáttafordómum og
vandræðum í sambandi við
þá frá ýmsum hliðum.
Hins vegar finnst mér að
forráðamenn RÚV mættu
líta í eigin barm. Þeir gætu
til dæmis byrjað á því að
skoða þáttinn sem var á
dagskrá strax á eftir þeim
fyrrnefnda miðvikudags-
kvöldið 2. júní. Þátturinn
er auglýstur sem svo að
hann fjalli um karla- og
kvennaknattspyrnu, en
kvennadeildin virðist hafa
týnst einhvers staðar á
leiðinni á skjáinn. Kvenna-
íþróttir era stundaðar af
minnihlutahópi sem hefur
mátt þola mikið harðræði í
gegnum íþróttasöguna.
Þetta harðræði hefin- kom-
ið fram í ýmsum myndum
en sú sem er mest áber-
andi er þögn fjölmiðlanna.
Þessi endalausa og háværa
þögn sem umlykur konur
og íþróttaiðkun þeirra.
Kannski ætti að hafa karla
sér og konur sér, meðan
svo erfitt virðist að setja
þau saman i einn þátt.
Meðan sýnt er að konur
geta ekki staðist keppni
við karlana er aðskilnaðar-
stefnan kannski eina
lausnin.
Um leið og ég óska öllum
þeim körlum til hamingju,
sem vora á listanum yfir þá
sem skoruðu 10 bestu
mörk vikunnar, bið ég þá
um að spá í það hvort ekki
sé smuga að eitt af mörg-
um mörkum sem skoruð
voru í kvennaknattspyrn-
unni hefði átt erindi á
þennan lista. Fyrir þá sem
hafa áhuga á að vita hvaða
leikir eru í næstu umferð í
kvennadeildinni bendi ég
þeim á... já, hvað er hægt
að benda á? Ríkissjónvarp
allra landsmanna? Lands-
símavefinn? Ekki sá ég
minnst á konur þar í þess-
umumrædda þætti.
Ég sendi baráttukveðjur
til alfra kvenna í íþróttum.
Þögnin mun síður en svo
ná að drepa niður áhuga
þeirra, gengi íslenska
kvennalandsliðsins hefur
til dæmis margsannað það
þótt fjölmiðlar hafi ekki
blásið það upp.
Kveðja til allra liða í
kvennadeildinni. Og strák-
ar, til hamingju með nýja
þáttinn ykkar.
Kristín.
Fljótandi Aroraa?
HVAR fæst Aroma í fljót-
andi formi frá Maggi, hvar
fæst ný sfld og hvar fást
langar makkarónur? Þeir
sem geta gefið þessar upp-
lýsingar hafi samband í
síma 553 1025.
Tapað/fundið
Svartur jakki
tekinn í misgripum
SÁ sem tók í misgripum
svartan jakka með hvítum
tölum um borð í skólaskip-
inu Sæbjörgu á sjómanna-
daginn frá kl. 13-17 vin-
samlega hafi samband í
síma 697 5405. Jakkans er
sárt saknað. Lyklakippa
með einum lykli var í vasa.
Kvenjakki tekinn
í misgripum
TEKINN var í misgripum
29. maí'sL svartm- hnésíður
kvenjakki með tveimur vös-
um framan á, aðsniðinn með
áfostum loðkraga. Það voru
leðurhanskar í vösunum.
Vinsamlegast hafið sam-
band við Kristjönu á
Skuggabar í síma 551 1247
eða 561 7842.
Blár GSM-sími
týndist
BLÁR GSM-sími, Pana-
sonic, týndist sl. laugardag
annaðhvort á Glaumbar
eða í Hafnarfirði. Fundar-
laun. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 555 2276.
Kvenmannsúr
í óskilum
KVENMANNSÚR fannst
í Blómavali mánudaginn 7.
júní. Upplýsingar í síma
557 2726.
Kvengleraugu
týndust
SVARGRÁRRA kvengler-
augna sem týndust í vik-
unni 8.-12. mars sl. er sárt
saknað. Styrkleiki glerj-
anna er um +3. Þau gætu
hafa týnst í Reykjavík eða
á Seltjarnarnesi. Allar
upplýsingar eru vel þegnar
í síma 588 0092.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
U.Þ.B. 12 vikna kettlingur,
högni með bláa ól, ekki
eyrnamerktur, svartur
með hvítar loppur, fannst
við Vesturlandsveg 4. júní,
í iðnaðarhverfinu þar. Far-
ið var með hann í Kattholt.
Upplýsingar í Kattholti.
Kettir óska
eftir heimili
VIÐ erum innikattarhjón,
Bugsy 2ja ára og Tallulah 1
og hálfs árs, sem af óviðráð-
anlegum orsökum vantar
gott framtíðarheimili. Upp-
lýsingar í síma 565 5257.
SKAK
Pmsjón Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp á hol-
lenska meistaramótinu sem
nú stendur yfir. Erik
Van den Doel (2.535)
hafði hvitt og átti leik
gegn Ruud Janssen
(2.445).
Hvíta drottningin
stendur í uppnámi en
hvítur lét sig það engu
skipta: 27. Bxg7! -
gxh5 28. Be5+ - Kf8
29. Bxd6+ - He7 30.
fxe6 og svartur gafst
upp, þvi hann er óverj-
andi mát í öðrum leik.
Staða efstu manna á
mótinu þegar þrjár
umferðir eru til loka er
þessi: 1. Predrag Nikolic 6V2
v. af 8 mögulegum, 2.-3.
Reindermann og Piket 5!4
v., 4. Van Wely 5 v., 5. Van
der Wiel ÓV2 v., 6. Van der
Sterren 4 v., 7.-9. Ivan
Sokolov, Van den Doel og
Cifuentes 3Vz v. o.s.frv.
HVÍTUR leikur og vinnur.
HOGNI HREKKVISI
1 1 1—1 1—I—1
n- SKRIÐDXF?
1 r -1 1 1 > 1 1 |
þ il • 53)1 M lí
■ éo þércxh þa£yréej eng '/r íög .
/rae<5ingar þdmczr cnnC.
Víkverji skrifar...
KUNNINGI Víkverja þurfti að
endurnýja bæði ökuskírteini og
vegabréf á dögunum, en hvort
tveggja var útrannið. Eftir að hafa
kannað afgreiðslufrest á þessum
sjálfsögðu skilríkjum hjá sýslu-
manninum í Hafnarfirði kom í ljós
að fresturinn hafði lengst úr tveim-
ur til þremur virkum dögum í a.m.k.
tíu vinnudaga, með tilkomu nýju
rafrænu vegabréfanna. Það finnst
Víkverja raunar dálítið langt og enn
verra að við flýtimeðferð skuli ríkis-
valdið taka hærri upphæð fyrir
vegabréfið en ella. Okuskírteinið
var hins vegar afgreitt með hefð-
bundnum hætti. Frá og með 1. júní
var hætt að afgreiða vegabréf hjá
sýslumanninum í Hafnarfirði og öll
afgreiðslan komin til embættis
ríkslögreglustjóra. Til að spara sér
sporin hringdi kunningi Víkverja
því til embættis ríkislögreglustjóra
til að fá nánari upplýsingar um af-
greiðslu vegabréfanna og spurðist
jafnframt fyrir um hvort hann gæti
ekki komið með passamynd í tölvu-
tæku formi. Hann fékk þau svör að
það væri ekki mögulegt, pappír
væri það eina sem gilti, og ekki væri
heldur hægt að nýta mynd sem
liggur fyrir hjá Reiknistofu bank-
anna, eins og í ökuskírteininu. Svör-
in vora þau að það væri eingöngu
ökuskírteinadeild sem hefði aðgang
að þeim myndum. Víkverji hefur þó
heyrt að myndirnar hjá Reiknistof-
unni séu ekki í nógu góðri upplausn
svo hægt sé að stækka nógu mikið í
vegabréf, án þess að myndgæðin
rýrni.
xxx
RAUNAR sat Víkverji framan
við sjónvarpið sitt á dögunum
og var að horfa á fréttir á Sky-
fréttastöðinni. Þar var heillöng
frétt um nýju vegabréfin, sem verið
er að gefa út í Bretlandi, með raf-
rænum upplýsingum um hand-
hafann rétt eins og verið er að gera
hér. Sjónvarpsstöðin sýndi gífur-
legar biðraðir, sem mynduðust um-
hverfis afgreiðslustaðinn, og náði
hún fyrir mörg horn. Greinilega
ætluðu margir Bretar að fara í
ferðalag og þulurinn sagði að af-
greiðslufrestur nýju vegabréfanna
væri 45 dagar, þ.e.a.s. hálfur annar
mánuður frá því er umsókn væri
send inn og þar til menn gætu feng-
ið vegabréfið. Það er sem sé víðar
pottur brotinn og enn verra ástand
í útgáfu vegabréfa en hér á Fróni,
þar sem aðeins hálfur mánuður fer
í útgáfu hvers vegabréfs. Aidrei fór
það svo að skrifræðið væri mest á
Islandi.
xxx
VÍKVERJI er með tiltölulega
nýtt vegabréf. Enn lifa af því níu
gildisár. Þó er það þegar orðið úrelt,
þar eð komið er nýtt, þetta rafræna
með rafsegulrönd, sem á að vera ör-
yggisatriði þannig að eigi sé unnt að
falsa það eða breyta. Til að fá fullgilt
vegabréf þyrfti Víkveiji sem sé að fá
sér enn nýtt vegabréf og greiða fyrir
4.000 krónur, þótt hann sé nýbúinn
til þess að gera að greiða slíka upp-
hæð fyrir vegabréf, sem er ekki full-
gilt, eins og krafizt er víða eftir að
þau nýju komu á markað.
Það er því vart imnt að ætlazt til
þess að vegabréfshafar fari að skipta
út gildum og nýlegum bréfum fyrir
það nýja og væri sanngjarnt að lög-
reglustjóraembættin veittu slíkum
aðilum afslátt, t.d. maður með vega-
bréf, sem enn lifðu níu ár af gildis-
tíma bréfsins, ætti aðeins að þurfa að
greiða 1/10 af því sem vegabréfið
kostar. En kannski er til of mikils
mælzt að fara fram á slíkt sanngirn-
ismál, þegar skrifræðið er annars
vegar. Menn verða þá bara að hætta
á að gilt vegabréf verði ekki tekið
gilt af því að á það vantar segulrönd.