Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1985, Side 40
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUA.
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Ferðagleði
um páskana
Talsverð hreyfing hefur veriö á
landsmönnum yfir páskana. Flug gekk
vel og hjá Flugleiðum voru áætlaðar 26
flugferðir á áætlunarstaði og þrjár
þotuferðir til Akureyrar í gær.
Flugið hjá Arnarflugi gekk einnig
mjög vel yfir páskana. Meðal þess sem
seiddi úr Reykjavík var skíðalandsmót
áSiglufirði.
Hjá Bifreiðastöð Islands var
umferðin hins vegar meiri í ár en í
fyrra. Mest til Akureyrar en líka mikil
áHöfn.
Góð þátttaka var í útivistarferðir
Ferðafélagsins og tJtivistar um
páskana og var farið í Þórsmörk og
Landmannalaugar. -SGV.
Kari efstur
áSkákþingi
Karl Þorsteins er efstur í lands-
liösflokki á Skákþingi Islands. Karl
hefur hlotið sjö og hálfan vinning þeg-
ar níu umferðum af þrettán er lokið.
Þröstur Þórhallsson er annar með
sex vinninga, og Lárus Jóhannesson er
þriðji með fimm og hálfan vinning.
Næstir með fimm vinninga eru Andri
Áss Grétarsson og Davíð Ölafsson.
-KMU.
Kollafjarðarstöðin:
Ákvöróun
ívikunni
„Ákvöröun mun liggja fyrir síðar í
vikunni,” sagði Jón Helgason land-
búnaðarráðherra í viðtali við DV í
morgun „Eg vil kynna máliö fleirum,
áður en ákvörðun verður tekin. . . ”
Landbúnaöarráðherra hefur úr-
skurðarvald um til hvaða aögerða
verður gripið í Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafirði. Fisksjúkdómanefnd hefur
lagt fram tillögur um niðurskurð seiða
og að stöðin verði sótthreinsuð vegna
nýmaveiki sem kom upp þar í vetur.
-ÞG.
mm
blómaáburður
frá hollensku
blómaþjóðinni.
Skyldi Denni stefna á
gondóla-útgerð?
Fjármálaráðherra um „bílastyrki” ríkisbankastjóranna:
„ÞETTA VERÐUR
AÐ STÖÐVA”
„Þetta verður að stöðva, það er
mín skoðun,” segir Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra um
þá ákvörðun bankaráða ríkisbanka
og stjórnar Framkvsndastofnunar,
að greiöa yfirmönnum 450 þúsund
hverjum í bílastyrk á ári. Matthías
Á. Mathiesen viðskiptaráöherra vill
fá greinargerö aðila áður en hann
tekurafstööu.
Ákvarðanir um þessa nýju bfla-
styrki em nýjar af nálinni. Þær ieysa
af hólmi þau kjör að viðkomandi
yfirmenn fái niðurfelld aðflutnings-
gjöld af einkabifreiðum sínum þriðja
hvert ár. Alþingi samþykkti í maí í
vor þingsályktun um að fela rflcis-
stjóminni aö fella þessi hlunnindi
niöur.
Um helgina ályktaði þingflokkur
Alþýðuflokksins á þá lund að ríkis-
stjórnin heföi bmgðist og nýju bíla-
styrkimir brytu í bága við samþykkt
Alþingis. Einnig að vísitölutrygging
slíks kaupauka sé lögbrot, en hún á
aö gflda um aðra en bankastjóra
Búnaðarbankans. Alþýðuflokkurinn
átti frumkvæði að þingsályktuninni i
maí.
Þá skorar þingflokkur Alþýðu-
flokksins á ríkisstjórnina að fram-
fylgja ályktun Alþingis, á viðkom-
andi bankaráðsmenn að segja þegar
af sér og á Alþingi að samþykkja nú
þegar lagafrumvarp tveggja alþýðu-
flokksmanna um afnám bifreiða-
hlunninda ráöherra.
Þeir stjórnendur sem njóta eiga
umræddra bflastyrkja munu hafa
70—100 þúsund krónur í mánaðar-
laun, utan bflastyrkjanna.
HERB
Lögreglan færlr hinn granaða að lögreglublfreiðinnl. DV-mynd S.
Réðst inn á sofandi stúlku
Á fimmtudagsmorgun var ungur
maður handtekinn eftir aö hann hafði
fariö inn í hús á Tómasarhaga.
Aö sögn Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins barst tilkynning um að maður hefði
ráðist inn til ungrar stúlku snemma á
fimmtudaginn. Stúlkan, sem var sof-
andi í svefnherbergi sínu, vaknaði er
hann var kominn inn í herbergi hennar
og hófust á milli þeirra átök sem stóðu
í 15 til 20 mínútur.
Stúlkunni tókst aö koma manninum
út og gera lögreglu aðvart. Kom hún á
staðinn og var maðurinn handtekinn
skammt frá húsinu þar sem hann
braust inn.
Að sögh lögreglunnar er ekki ljóst
hve mikla áverka maöurinn veitti
stúlkunni.
ÁE.
Verslunarstríð á Hellu
á fóstudaginn langa:
Kaupfélags-
mennkærðu
en opnuðu
svosjálfir
Eg taldi skynsamlegast, eftir að
hafa athugað viðbrögð ánnare
staöar, að senda lögreglumenn með
tilmæli um lokun. Síöan fylgir
skýrslutaka og málið verður afgreitt
eins og önnur, eftir páska,” sagði
Böðvar Bragason, sýslumaður í
Rangárvallasýslu, um verelunar-
stríð sem geisaði á Hellu á föstu-
daginn langa.
Þann dag voru allar búðir lokaðar
fyrri hlutann utan veitingasalan
Hrafninn. Þegar forráðamenn kaup-
félagsins komust að því kærðu þeir
eigendur Hrafnsins.
Eigendurveitingasölunnar höfðu
opið-áfram þrátt fyrir tilmæli sýslu-
manns. I kjölfar þess var kaup-
félagið þá opnað siðar um daginn og
haft opið frá 14 til 20. Einhverjir
framtakssamir íbúar á Hellu töku
sig þá til og kæröu kaupfélagið. Sitja
því báöar verelanimar eftir með
kæru.
„Með þessum aðgeröum fékk
maður á hreint hvort lögunum yrði
fylgt bókstaflega eða ekki,” sagði
Jón Bergþór Hrafnsson, fjármála-
stjóri Kaupfélagsins á Hellu, um
kæruna.
Svo virðist sem frávik séu algeng
frá lokunarlögum víðsvegar um land
yfir hátíðamar.
Lögreglan á Selfossi gat til dæmis
upplýst aö opið heföi verið i Eden
allan föstudaginn langa og í Foss-
nesti og Ambergi eftir hádegi. -SGV.
Steingrímur
íFeneyjum
Foraætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, er nú í Feneyjum á
Italíu. Þar situr hann ráðstefnu leið-
toga Vestur-Evrópuríkja umnýsköp-
un atvinnulífsins, í boði Craxis, for-
sætisráðherra ltalíu. Þórður
Friðjónsson, efnahagsráöunautur
ríkisstjórnarinnar, er í för með
Steingrímí. Þeir eru væntanlegir
aftur heim á laugardag. HERB
Landsf undur Sjálf stæðisf lokksins hefst á f immtudaginn:
ENGIN ATÖK UM
FORMENNSKUNA
Formennska í Sjálfstæðisflokkn-
um verður ekki átakamál á lands-
fundi flokksins sem hefst á fimmtu-
daginn, fari svo semnú horfir. Mikill
einhugur ríkir um að endurkjósa
Þoretein Pálsson formann, sam-
kvæmt víðtækum heimildum DV.
Hugsanlega dreifast atkvæði í vara-
formannskjöri eitthvað en Friörik
Sophusson er talinn hljóta öruggt
endurkjör.
Aðalmál landsfundarins, sem
haldinn verður í Laugardalshöllinni,
verða húsnæðismál og framtíð at-
vinnulifsins, nýsköpun þess og efl-
ing. Einnig má búast við talsverðum
umræðum um ríkisstjórnina. Lífslík-
ur hennar munu ekki ráðast á
þessum fundi. Þær velta umfram
annað á kjarasamningum í sumar og
haust, ekki síst eftir að fram-
sóknarmenn hafa nánast beðið sjálf-
stæðismenn um gott veður enn um
sinn.
Landsfundurinn stendur í fjóra
daga og endar á kosningu formanna
og miðstjómar. -HERB.