Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987. 19 ' ' Merming Svart á hvrtu 1987 Trúbadorar, gotneskar tumspír- ur, galdrabrennur, siöspilltir munkar og frómir koma mörgum í hug þegar minnst er á miðaldir. í bók Bjama Guðnasonar, Sólstöf- um, frumraun hans í skáldsagna- gerð, koma þessi atriði öll við sögu svo enginn sem ann fyrri tímum ætti að verða fyrir vonbrigðum við lestur hennar. Þessi saga ber yfir- bragð sögulegrar skáldsögu. Erfitt er að tímasetja hana nákvæmlega en líklega á hún að gerast á seinni hluta miðalda og umhverfið er ka- þólskt land einhvers staðar í Evrópu. Sagan fjallar um ofur hversdags- legan pilt - svona meðalskussa - sem finnst fátt leiðinlegra en að hanga yfir skræðum i röku, ryk- mettuðu andrúmslofti klaustursins þar sem hann dvelst í upphafi sög- unnar. Piltur er kallaður heim vegna dauðastríðs móður sinnar og á ekki afturkvæmt í klaustrið. Eftir dauða móðurinnar lærir ungi maðurinn iön fóður síns og sölu- mennsku henni lútandi og hleypir síðan heimdraganum í leit að ást- inni. Bókmenntir Sigríður Tómasdóttir Undir hælnum Frásögnin spannar rúmlega eitt og hálft ár í ævi hans og sagan er sögð á hlutlægan hátt. Tíðarandi og aldarfar birtist í sögum sem ungi pilturinn, Pétur, heyrir, bæði á meðan hann er í námi og á ferð sinni. Hann er oftast áhorfandi eða áheyrandi þeirra atburða er sagan greinir frá. Sjaldnast er hann þátt- takandi. Á ferð sinni hittir hann margs konar fólk sem á það sam- eiginlegt að vera undir hælnum á valdastéttinni. Það á sér sína menningu og hugmyndir sem birt- ast í sögum þess, orðum og athöfn- um. Sögumar segja ýmist frá valdhöfum, grimmum og miskunn- arlausum, sem svífast einskis til að ná fram vilja sínum, eða gert er grín að þeim. Grín, háð og spé í garð ráðamanna er andsvar undir- okaðra manna við kúgun. Af þeim toga eru sögurnar þrjár af Róberti rannsóknardómara sem haldinn er ákaflegri fýsn til hugarfósturs síns, júngfrúar Blánkiflúrs. Júngfrúin varð auðvitað holdtekja djöfulsins í meðfórum munksins svo hennar vegna komst hann til vegs og virð- ingar innan kirkjunnar. Sögusamúðin Skáldsagan Sólstafir á það sam- eiginlegt skálkasögunum spænsku að sögusamúðin er yfirleitt með þeim sem minna mega sín. Annað sem Sólstafir eiga sameiginlegt með skálkasögunum eru persónu- gerðir sögunnar, þær eru hvorki margslungnar né þróaðar heldur eru þær fulltrúar ákveðinna stétta eða manngerða. T.d. eru þær nefndar eftir störfum sínum, svo sem oStagerðarmaðurinn, harpar- inn, heimspekingurinn og fleiri. Sama gildir um kvenpersónurnar, ef þær heita eitthvað eru nöfnin gegnsæ, þ.e. fela hlutverk þeirra í sér. Kvenpersónur sögunnar, þær lægst settu, eru sýndar í grótesku ijósi. Það er flett upp um þjónustu- meyjar, fætur þeirra eru digrir og loðnir, peningmn kastað í mark í bert skaut söngmeyjar sem er fáguð stundu áður og fleira slijít. í írónísku Ijósi Flestar persónur sögunnar eiga það sameiginlegt að vera að leita einhvers. Sumar leita þess jákvæða - ástarinnar eða horfmna ástvina. Aðrar leita að völdum eða viður- kenningu og enn aðrar leita einungis að næsta viðkomustað þar sem hægt er að höndla með eitt- hvað, hvort sem það er góss eða eigin líkami. Gangur lífsins virðist vera sá sami hvar sem er á jarð- kringlunni, hvort sem um er að ræða 20. öldina eða einhveija aðra. Mannlegt eðli heldur áfram að vera samt við sig og mannskepnan er enn áfjáð í það sem er handan seil- ingar. Hvort hún nær að höndla það sem hún þráir fer eftir því hvað það er. Ef það er eitthvað jákvætt og göfugt er það líklega torfengið, a.m.k. nær söguhetja Bjarna Guðnasonar ekki að finna ástina sína í bókarlok. - Engin ný sann- indi sem höfundur miðlar okkur en sagan er ákaflega skemmtileg aflestrar og sérstaklega tekst höf- undi vel að gera mannlífinu skil með því að sýna það í írónísku ljósi. S.T. Lækjartorgi og Laugavegi 8 HN^R Bjarni Guðnason. Ivazer Tag er keppnisíþrótt ársins 3010, sem byggist á hraða, mildlli nákvæmni og einbeitni. Iæilvurinn byggist til dæmis á því að gefa ljós- sendingar á tölvuna, sem skráir allt að 99 móttölcur. lölvan getur eimiig sent til baka og lukið um sig ósýnilegum hlííðarskildi. Æsispennandi keppni jafiit fyrir stelpur, sem stráka. lAizer Tag, gjöfin, sem hittir örugglega í mark !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.