Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Blaðsíða 46
, 58 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987. Fólk í fréttum \ Halldór Jónatansson Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur verið í frétt- um DV vegna umræðna um sölu á rafmagni. Halldór er fæddur 21. janúar 1932 í Reykjavík. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla íslands 1956 og MA prófl frá Fletcher School of Law and Diplomacy í Bandaríkjunum 1957. Halldór var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu 1. júlí til 1. september 1957 og fulltrúi í viðskiptaráðuneytinu 1. september 1957 til 1. júní 1962 er hann var skipaður deildarstjóri í ráðuneytinu. Hann var ráðinn skrifstofustjóri Landsvirkjunar 26. október 1965 og aðstoðarfram- kvæmdastjóri Landsvirkjunar 16. desember 1971. Halldór var ráðinn forstjóri Landsvirkjunar 1. maí 1983 og hefur verið í stjórn Sam- bands íslenskra rafveitna síðan 1983. Hann hefur verið einn af full- trúum íslands í stjórn NORDEL, samtaka raforkufyrirtækja á Norð- urlöndum, síðan 1984 og hefur ennfremur setið í stjórn lands- nefndar Alþjóða verslunarráðsins á íslandi síðan 1983. Kona Halldórs er Guðrún Dag- bjartsdóttir, f. 18. janúar 1935. Foreldrar hennar eru Dagbjartur Lýðsson, kaupmaður í Rvík, og kona hans, Jórunn Ingimundar- dóttir. Jórunn er f. 29. janúar 1911, dótt- ir Ingimundar Benediktssonar, b. í Kaldárholti í Holtum, og konu hans, Ingveldar Einarsdóttur, frá Hæh, systur, Eiríks Einarssonar, fyrrum alþingismanns. Jórunn er systir Einars, f.v. bæjarfógeta, og Helgu, konu Sveins Benediktsson- ar forstjóra. Dagbjartur er f. 10. febrúar 1906, sonur Lýðs Árnasonar, b. á Hjalla- nesi í Landsveit, og konu hans, Sigríðar Sigurðardóttur. Einn bræöra Dagbjarts var Sigurður, faðir Kristínar, konu Friðjóns Þórðarsonar alþingismanns. Börn Guðrúnar og Halldórs eru Dagný, f. 22. október 1958, raf- magnsverkfræðingur, gift Finni Sveinbjörnssyni hagfræðingi og eiga þau eina dóttur; Rósa, f. 25. ágúst 1961, tölvunarfræðingur, sambýlismaður Vilhjálmur Þor- valdsson rafmagnsverkfræðingur; Jórunn, f. 8. október 1962, bygging- arverkfræðingur, og Steinunn, f. 24. nóvember 1973, grunnskóla- nemi. Systur Halldórs eru Bergljót, f. 11. apríl 1935, gift Jóni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra íslenska járn- blendifélagsins hf., og Sigríður, f. 18. apríl 1937, gift Þórði Þ. Þor- bjarnarsyni borgarverkfræðingi. Foreldrar Halldórs eru Jónatan Hallvarðsson hæstaréttardómari og kona hans, Sigurrós Gísladóttir. Föðurbræður Halldórs eru Jón, sýslumaður, faðir Bjarna Braga, aðstoðarbankastjóra Seðlabank- ans. Föðurbróðir Halldórs er einnig Einvarður, starfsmanna- stjóri Landsbankans og Seðlabank- ans, faðir Hallvarðs, saksóknara ríksins, og Jóhanns alþingismanns. Þriðji fóðurbróðir Halldórs er Sig- uijón skrifstofustjóri, faðir Birgis yflrdeildarstjóra og Hallvarðs bif- reiöarstjóra. Faðir Jónatans var Hallvarður, b. í Skutulsey á Mýrum, Einvarðs- son, b. í Skutulsey, Einarsson. Kona Hallvarðs var Sigríður Jóns- dóttir, b. í Skiphyl á Mýrum, Jónssonar. Faðir Sigurrósar var Gísli, sjó- maður í Reykjavík, Kristjánsson, tómthúsmanns í Rvik, Gíslasonar, bróðir Guðmundar, afa Sverris Kristjánssonar sagnfræðings og langafa Þorsteins Pálssonar for- Halldór Jónatansson. sætisráðherra. Bróðir Kristjáns var Pétur, bæjarfulltrúi í Ána- naustum, afi Jakobs, fyrrverandi orkumálastjóra.. Móðir Sigurrósar var Halldóra Sigurðardóttir, sjó- manns í Sýruparti á Akranesi, Sigurðssonar og konu hans, Guð- rúnar Ásbjömsdóttur, b. í Mels- húsum á Akranesi, Erlendssonar, sem Melshúsaættin er kennd við. Aímæli________________ Sigvaldi Arason Sigvaldi Arason framkvæmda- stjóri, BÖðvarsgötu 15, Borgamesi, er fimmtugur í dag. Sigvaldi fædd- ist í Borgarnesi og hefur ávallt átt þar heima. Eftir skólagöngu fór hann að vinna fyrir sér og var þá m.a. á kaupskipum. Sigvaldi var sautján ára þegar hann keypti sér vörubíl og gerðist vörubílstjóri en jafnframt gerði hann út vinnuvélar um árabil. Hann stofnsetti svo verktakafyrirtækið Borgarverk hf. sem hann hefur síðan verið eigandi að og framkvæmdastjóri fyrir. Kona Sigvalda er Halldís hús- stjórnarkennari, f. 11.8.1943, dóttir Elínar Frímannsdóttur og Gunnars Guðjónssonar sem nú er látinn. Sigvaldi og Halldís eiga þrjú börn: Ari, f. 4.10. 1966, er nemi viö HÍ, Oskar, f. 27.9.1971, er nemi við ML og Ólöf Dögg, f. 26.2.1973, er nemi við Grannskóla Borgarness. Systkini Sigvalda era: Guðbjörg, f. 1936, rannsóknarmaður á Raun- vísindastofnun HÍ, gift Sigurði Eyjólfssyni; Guðmundur, f. 1940, fiilltrúi hjá VR í Borgamesi, kvæntur Lilju Ólafsdóttur, Hólm- steinn, f. 1941, rafvirkjameistari í Reykjavík, Unnsteinn, tvíbura- bróðir Hólmsteins, er trésmíða- meistari í Borgarnesi, kvæntur Hólmfríði Héðinsdóttur, Ómar, f. 1944, flugstjóri í Reykjavík, kvænt- ur Önnu Kristófersdóttur, Jón, f. 1946, radíóvirki í Reykjavík, kvæntur Þóru Einarsdóttur. Foreldrar Sigvalda: Ólöf Sig- valdadóttir, f. 11.9. 1906, og Ari Guðmundsson, vegavinnuverk- stjóri í Borgarnesi, f. 18.11.1895, d. 21.5.1959. Móðurforeldrar Sigvalda vora Sigvaldi, skipstjóri í Stykkis- hólmi, Valintínusarson, og kona hans, Guðlaug Halldóra, dóttir Jó- hanns, b. í ÓJafsey, Guðmundsson- ar og konu hans, Þorbjargar Ólafsdóttur Guðmundssonar Ól- afssonar Snóksdalín. Faðir Sig- valda skipstjóra var Valintínus Olifer í Stykkishólmi, Oddsson, í Einarsbúð í Ólafsvík, Sigmundar- sonar, b. í Tungu í Önundafirði, Erlingssonar Þorgilssonar. Móðir Sigvalda var Gróa María, dóttir Davíðs í Rimabæ í Setbergssókn, Hnausa-Bjarnasonar Jónssonar. Kona Davíðs var Margrét Þor- steinsdóttir. Sigvaldi Arason. Föðurforeldrar Sigvalda voru Guðmundur, b. á Skálpastöðum, Auðunsson frá Grund í Skorradal Vigfússonar og Guðbjörg Aradóttir frá Syðstu-Fossum, Jónssonar. Sigvaldi tekur á móti gestum í fundarsal MSB að Engjaási 1, Borg- amesi, í dag milli klukkan 20 og 23. Bjöm Svenisson Björn Sverrisson varaslökkviliðs- stjóri, Skagflrðingabraut 39, Sauðárkróki, er fimintugur í dag. Björn fæddist að Viðvík í Skaga- flrði og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Átján ára fór Bjöm aö heiman og lagði þá fyrir sig ýmis störf. Hann lærði bílamálun og starfaði m.a. í íjórtán ár við bílavið- gerðir hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Björn hóf síðan störf hjá Brana- vömum Skagafjarðar en hann er nú varaslökkviliðsstjóri og eld- vamareftirlitsmaður. Kona Bjöms er Helga, f. 1943, dóttir Sigurbjörns, b. á Völlum í Suður-Múlasýslu, Péturssonar og Kristínar Þorkelsdóttur en þau, tengdaforeldrar Björns, eru bæöi látin. Bjöm og Helga eiga þrjá syni: Sigurbjörn er starfsmaður Kaup- félags Skagfirðinga og sambýlis- kona hans er Bára Jónsdóttir; Sverrir Björn er starfsmaður Kaupfélags Skagfiröinga og vél- virkjanemí og er í foreldrahúsum; Pétur Ingi er verslunarmaður og býr í foreldrahúsum. Björn á fimm systkini. Foreldrar Björns eru Sverrir, b. í Viðvík, Bjömsson, og kona hans, Sigríður Hjálmarsdóttir, Jónsson- ar. Föðurforeldrar Bjöms voru Björn Sverrisson. Björn, b. í Viðvík, Bjömsson og kona hans, Sigríður Pálsdóttir. Orðsending um afmælisgreinar Upplýsingar og greinar um afmælisbörn dagana 23. til 28. desember þurfa að berast blaðinu í síðasta lagi mánudaginn 21. desember. Upplýsingar og greinar um afmælisbörn dagana 30. desember til 4. janúar þurfa að berast blaðinu í síðasta lagi mánudaginn 28. desember. Munið að senda myndir með greinum og upplýsingum. 80 ára_______________________ Jósefina Þorleifsdóttir, Norður- götu 43, Akureyri, er áttræð í dag. 75 ára Helena M. Líndal, Garðarsbraut 15, Húsavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Guðrún Gísladóttir, Sund- laugavegi 24, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Elísabet Jakobsdóttir, Víðilundi 12 I, Akureyri, er sjötíu og fimm ára ÍÍS£__________________________ 70 ára________________________ Guðný Bjarnadóttir, Asparfelli 8, Reykjavík, er sjötug í dag. Leifur Lárusson, Baldursgötu 6, Reykjavík, er sjötugur í dag. Bogi Guðmundsson, Laugarásvegi 26, Reykjavík, er sjötugur í dag. 60 ára________________________ Bjarndís Friðriksdóttir, Bugðulæk 20, Reykjavík, er sextug í dag. 50 ára_________________________ Finnur Sæmundur Bjarnason, Vík- urbraut 4, Mýrdalshreppi, Vestur- Skaftafellssýslu, er fimmtugur í dag. 40 ára Birgir Davíð Kornelíusson, Kleifar- vegi 14, Reykjavík, er fertugur í dag. Guðlaugur V. Eyjólfsson, Breiðvangi 12, Hafnarfirði, er fer- tugur í dag. Þorleifur Sigurðsson, Kleifarási 8, Reykjavík, er fertugur í dag. Gísli Kristinn Björnsson, Fífuseli 9, Reykjavík, er fertugur í dag. Hólmar A. Pálsson, Erpsstöðum , Miðdalahreppi, Dalasýslu, er fer- tugur í dag. Albert Hallgrimsson, Krókatúni 8, Akranesi, er fertugur í dag. Guðrún Arngrímsdóttir, Höfðahlíð 13, Akureyri, er fertug í dag. Jóhanna Arnbergsdóttir, Bjarkar- grund 37, Akranesi, er fertug í dag. Andlát Ingibjörg Ihorarensen Frú Ingibjörg Thorarensen lést 12. desember sl. Hún var fæddist 14. janúar 1899 á Reyðarfirði. Foreldr- ar hennar voru Sigrún Einarsdóttir frá Kappeyri og Markús Gissurar- son frá Flugustöðum í Álftafirði. Ingibjörg var bam að aldri þegar hún missti móður sína og var hún þá tekin í fóstur að Hólmum í Reyð- arfirði til Guðrúnar Torfadóttur og séra Jóhanns Lúthers Sveinbjarn- arsonar. Ingibjörg giftist Ragnari Thorar- ensen, kaupmanni á Flateyri, og Ingibjörg Thorarensen. eignuðust þau fimm böm. EftiraðþaufluttutilReykjavíkur Jarðsett verður frá Fossvogs- var Ragnar umsjónarmaður í húsi kirkju föstudaginn 18. desember Frímúraraámeðanheilsanleyfði. klukkan 15.00. Skarphéðinn Guðmundsson, Eg- ilsbraut 9, Neskaupstað, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu Nes- kaupstað 15. desember. Dýrunn Ölafsdóttir, Kárdals- tungu, andaðist 16. desember. Ásgeir Bjarnþórsson listmálari lést á heimili sínu, Droplaugar- stöðum, miðvikudaginn 16. desember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.