Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Blaðsíða 38
50 Merming FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987. BLAÐAMAÐUR - MATREIÐSLA DV auglýsir eftir blaðamanni sem getur annast um- sagnir og frásagnir af matreiðslu, matargerð, matar- innkaupum og hliðstæðu efni á neytendasíðu. Um fullt starf er að ræða. Kjör skv. samkomulagi. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist fyrir áramót, merkt: Ritstjórn DV, umsókn um blaða- mannsstarf. Ritstjórar KÍMA' -PANNA FYRIR RAFMAGNSHELLUR „Kína"pannan er notuð til að snöggsteikja. Snöggsteiking er aðal- eldunaraðferð í kínverskri matargerðarlist. Pannan er hituð með olíu, t.d. sojaolíu. Þegar pannan er orðin vel heit er smáskorinn maturinn settur í og snöggsteiktur með þvi að snúa og velta hon- um hratt. Leiðbeiningar um notkun og nokkrar uppskriftir fylgja. Þessi panna er steypt með sérstakri fargsteypuaðferð sem gefur bestu hugsanlegu hitaleiðni. Þess vegna hentar hún mjög vel fyrir snöggsteikingu á rafmagnshellum. Kínapönnuna má nnta til að djúpsteikja og gufusjóða, einnig til að brúna og krauma (hæg- sjóða). Fæst í um 80 búsáhaldaverslunum um allt land. Framleldd af Alpan hf., Eyrarbakka. Heildsöludreifing Amaro - heildverslun, Akureyri, sími 96-22831 VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, Hverfisgötu 26 NÝKOMIÐ PILOT LEÐURJAKKAR Vefarinn mikli var sprenging rætt við Halldór Guðmundsson bókmenntafræðing DV-mynd GVA Vefarinn mikli frá Kasmír eftir Haildór Laxness er viðfangsefni Halldórs Guðmtmdssonar bók- menntafræðings í bókinni Loksins, loksins, Vefarinn mikii og upphaf íslenskra nútímabókmennta. I bók- inni útskýrir Halldór hvers vegna hann telur Vefarann mikla vera tímamótaverk í íslenskum bók- menntum, - segir frá íslensku þjóðfélagi á þriðja áratugnum, þeim höfundum og menningarpáf- um sem létu hvað mest að sér kveða og hugmyndum manna um þjóðfélagið og þróun þess. Halldór tekur fyrir áhrif Vefarans í því amdrúmslofö sem þá ríkti í ís- lenskum menningarmálum, skoð- ar hann í ljósi þeirra atburða sem voru að gerast á íslandi annars vegar og hins vegar þess sem var að gerast í Evrópu á sama tíma. - Hvers vegna þetta viðfangsefni, Halldór? - Ég skrifaði þetta upphaflega 1984 sem lokaritgerð í bókmennta- fræði við Hafnarháskóla og þá fannst mér fyrst og fremst forvitni- legt að skoðá Vefarann í alþjóðlegu ljósi. En ég var ekki bara að semja þetta fyrir sjáífan mig og kennar- ann, svo ég ákvað að gefa þetta út, reyndar í breyttu formi. Ég hef dregið úr fræðastagli og eins hef ég bætt við ýmsu sem hefur komið fram um efnið síðan ég lauk rit- gerðinni, - þar má nefna bréf og dagbækur Þórbergs Þórðarsonar, greinasafn Halldórs og bók Áma Sigurjónssonar, Laxness og þjóðlíf- ið. Það sem fyrir mér vakti var að útskýra þá sprengingu sem Vefar- inn var í íslenskri bókmenntasögu og til að gera það verður að reyna að skilja þær oft á tíðum frum- stæðu tilraunir sem hér voru gerðar á bókmenntasviðinu. Þegar Vefarinn kom út 1927 átti hann sér enga hhðstæðu hér á landi nema að nokkru leyti Bréf til Lára sem kom út þremur árum áður, og þess vegna finnst mér hann marka upp- haf íslenskra nútímabókmennta. - Nú virðast þessar bókmenntir sem hér voru skrifaðar hafa verið heldur ömurlegar og viðhorf manna til hins nýja tíma oft á tíð- um fáránleg. - Ég held að það sem sé merkilegt við þessar bókmenntir sem hér voru skrifaðar að höfundamir vildu skilja hvað hér væri að ger- ast. Þeir voru að reyna að ná utan um nýjan raunveruleika borgarlífs sem var þeim í rauninni mjög fram- andi. Reykjavík var allt í einu orðin borg „með football og hómósexúal- isma“ eins og Halldór segir í einni greina sinna, en höfundamir flestir nýfluttir úr sveitinni. Og á sama tíma áttu menn í vandræðum með formið. Breyting þjóðfélagsins kall- aði á breytingu tungumálsins, þessir höfundar voru oft mjög óör- uggir í sínum stíl, það þurfti að hleypa að nýjum efnistökum og nýjum orðum og þeir vissu ekki almennilega hvernig þeir ættu að fara að því. Mikið af róttækni Halldórs og Þórbergs hggur einmitt í því líkingamáli og þeirri óvenju- legu orðnotkun sem þeir grípa til við samsetningu sinna verka. Þeir leyfðu sér að skrifa um hluti sem menn töldu ekki að ættu heima í ritmáli, til að mynda ýmsar sál- arpælingar eða lýsingu á líkams- starfseminni sem Þórbergur var skammaður hvað mest fyrir. Ég held að þetta hafi mönnum þótt mun óheyrilegra en yfirlýsingar hans um sósíalisma. En ein af Halldór Guömundsson. ástæðunum fyrir því að menn gátu ekki lýst þessum nýja raunveru- leika var að þeir voru andsnúnir honum. Þeir voru sem rithöfundar börn borgarinnar, Reykjavík var forsenda þess að þeir gætu verið til Bókmenntaviðtalið Lilja Gunnarsdóttir sem menntamenn, en þeir voru ekki fyrr komnir úr sveitinni á mölina en þeir fóru að sjá sveitina i rómantísku ljósi og tala um borg- ina í siðferðilegum vandlætingar- tón. Þjóðernishyggjan var á þessiun árum líka mjög sterk og reyndar skiljanieg svona fyrst eftir fullveldið. Héma var skemmtilegt andrúmsloft að mögu leyti. Það ríkti barnsleg bjartsýni og menn voru að velta fyrir sér málum eins og nafnaskiptum á landinu, kalla það Sól-ey svona til aö gera það meira aðlaðandi, og svo voru uppi raddir um að við ættum að gera kröfu til Grænlands. Og svo vora menn að deila um hvort við ættum yfirleitt að taka við erlendri nú- tímamenningu eða hvort við ættum að lifa áfram í sælli einangr- un. Ég held að þetta hafi verið í síðasta skipti sem menn gátu hugs- að sér það í alvörunni að við stæðum utan við heiminn. Halldór Laxness boðar allt sem heitir nú- tímamenning, hvort þaö eru kaffi- hús, krár eða drengjakollur á konum, hann er fyrst og fremst á móti einangrunarstefnunni hvem- ig sem hún birtist. - Hvað frnnst þér mest til marks um að Vefarinn sé tímamótaverk? Er það orðnotkun og stíll eins og þú varst að benda á eða er það þessi sjálfhverfi nútímamaður sem birt- ist í Steini Elliða? - Með Vefaranum heldur nútím- inn innreið sína í íslenskar bókmenntir. Halldór er eiginlega bæði að gera uppreisn gegn ein- angrunarstefnunni og að glíma við að lýsa þessu kameleóni sem hon- um finnst nútímamaðurinn vera, hann langar til að planta honum niöur á íslandi og takast á viö hann. Hann kemur þarna fyrstur manna fram með strauma úr evrópskri menningu sem hann hefur kynnst og getur þess vegna talað um af eigin raun, hann er eiginlega eins og Sigurður Nordal segir „á grenj- andi túr í Evrópumenningu". Pyrirmyndin að Steini Elliða er sótt í evrópskar bókmenntir og hann túlkar þessa eirðarlausu leit að gildum sem var einkennandi fyrir þessa tíma. Kannski má segja að hinn sjálfhverfi nútímamaður sé að vissu leyti til staðar í Bréfi til Láru en það er samt ekki fyrr en með Vefaranum að hann birtist í íslenskum bókmenntum svo ekki verður um villst. Samt er Halldór um leið aðgera upp við þessa sjálf- hverfu höfunda sem voru fýrir- myndir hans þó það komi ekki í ljós fyrr en í lok bókarinnar. Fjar- lægðin frá Steini fer vaxandi þegar líður á verkið og sjónarhomið fæ- rist frá honum til Diljáar. Það sem hefur gerst í lok bókarinnar er að þessi sæla einangrun munklífsins er oröin vafasöm, faðir Alban, læri- meistari Steins, er kominn í klaust- ur þar sem má hvorki tala né vera og Steinn er sjálfur á leiðinni í svip- að lífemi. Þegar bökinni lýkur er Steinn horfinn en Diljá stendur eft- ir og á framtíðina fyrir sér, hún horflr á borgina vakna og hefur jafnframt síðasta orðið, og hennar dómur um veröld munkanna er að hún sé ómennsk. - Vefarinn er merkilegt brautryðjandaverk og með honum hefur Halldór losað um höft ritmálsins, nú er ekki lengur til sá hlutur sem ekki er hægt að skrifa um og hann markar líka upphafið á höfundarferli hans, hann hefur þama búið sér til þema sem hann kemur oft að seinna, en það eru einmana skáldið og stúlk- an. L.G.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.