Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Blaðsíða 41
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987. 53 i~ Nýjar bækur Jón Pál í jólapakkann Jón Páll, sterkasti maður í heimi, 140 bls. Jón Óskar Sólnes skráði. Útgefandi: Reykholt, 1987. Jón Páll Sigmarsson aflraunamað- ur er óumdeilanlega einn litríkasti persónuleikinn í íslensku íþróttalífi og hefur verið það í mörg ár. Það hlaut því að koma að því að út yrði gefm bók um kappann og nú hefur hún litið dagsins ljós. í bókinni er ferill Jóns Páls rakinn í stórum dráttum og kemur þar margt fram sem ekki hefur birst á prenti áður. Jón Páll fer á kostum í bókinni en því verður ekki á móti mælt að hann hefði að ósekju mátt fá að leggja meira til málanna, alltof htið er gert að því að ræða beint við Jón Pál og eftir að hafa lesið bókina er maður lítið kunnugri Jóni Páli en fyrir lestur hennar. Einhvern veginn hefur maður á tilfmningunni aö hægt hefði verið að gera mun líflegri bók um þennan skemmtilega og líf- lega íþróttamann. Stór hluti hennar fer í að lýsa einstökum kraftamótum á liðnum árum. Jóni Óskari Sólnes tekst þokkalega upp í þessari bók en þó hefði verið hægt að gera hana mun skemmtilegri. Nokkur íljót- fæmisbragur er á skrifuðu máli bókarinnar og er greinilegt að hér er á ferð jólavara fyrst og fremst en ekki bók sem verður ofarlega í hug- um manna að loknum lestri og jólahátíð. Bill Cosby Vasaútgáfan hefur gefið út bókina Við feður eftir Bill Cosby. Hún er í líkum anda og hinir vinsælu sjón- varpsþættir um Huxtable-fjölskyld- una - í gamansömum tón en undir niðri snertir hún alvarlegri hluti. Bók Bills Cosbys er þó ekki skáld- skapur eins og sjónvarpsþættimir heldur er hann þar að lýsa raun- veruleikanum, sínu eigin hlutverki sem fjölskyldufóöur. Við feður, eftir Bill Cosby, er 192 bls. og skiptist í 14 kafla. Guðni Kol- beinsson og Þorsteinn Thorarensen íslenskuðu. Verð kr. 488. Heimsmynd á hverfanda hveli - síðara bindi Út er komið síðara bindi af verki Þorsteins Vilhjálmssonar eðhsfræð- ings, Heimsmynd á hverfanda hveli, en fyrra bindið kom út á síðastliðnu ári. í fyrra bindinu var fjallað um héimsmynd vísinda frá öndverðu til Kópernikusar en hér er haldið áfram þar sem frá var horfið og þróuninni fylgt fram yfir daga Newtons. Sagt er frá trúvillingnum Gíordanó Brúnó sem predikaði sólmiðj ukenninguna á ofanverðri 16. öld og fjallað um danska stjömufræðinginn Týchó Brahe og Þjóðveijann Jóhannes Kepler og kenningar þeirra. ítarleg- ast er sagt frá merkilegum æviferli Galíleó Galíleis, vísindaafrekum hans og útistöðum viö Páfagarð en loks víkur sögunni að Isaac Newton sem fullkomnaði byltingu Kópernik- usar með aflfræði sinni. Þetta síðara bindi Heimsmyndar á hverfanda hveh er 419 þls. að stærð, prýtt fjölda mynda og -skýringar- teikninga. Verð kr. 3.480. VW TRYOOJUM MROAMSIM OUYMAST SIINT Ekta byrjandavél, sjálfvirk og hand- virk. Frábært verð. Alsjáltvirk 35 mm myndavél. Algjört frelsi frá öllum stillingum. Ódýr myndavél fyrir alla „Toppurinn" Algjörlega sjálfvirk kveikir meira að sec á flassi ef með þarf Myndavél fyrir alla fjölskylduna Alsjálfvirk mvndavól sjálfvirkur fálcus, sjálfvirk filmufærsla, ýálfvirk filmuþræðing Gæða unglingavél á góðu verði. 6 GÓDAR ÁSTÆÐUR TIL AD LÁTA DRAUMINN RÆTAST. Einnig mikið úrval af sjónaukum, flössum, myndavélatöskum, þrífótum, myndrömmum, myndaalbúmum, Ijósmælum, efni og pappír til framköllunar, Ijósstöndum, Ijóshlífum, og öllum hlutum til notkunar í myrkvaherbergi. •— ..........— LJÓSMYNDABÚÐIN Laugavegi 118 (vio Hlemm) s. 27744 VILDARK/ÖR VÍSA Hefur meira en helmingur spádóma hans þegar ræst? Vísindamenn geta ekki útskýrt þá, þjóðar- leiðtogar líta ekki framhjá þeim, almenningur um allan heim les þá og við ættum alls ekki að láta undir höfuð leggjast að líta í þá, því í spádómum um nánustu framtíð mannkyns kemur lítil eyja í Norður- höfum og merkur leiðtogi þaðan mjög við sögu. Framtíðarsýnir sjáenda Franska stjórnarbyltingin, Adolf Hitler og nasisminn, kjarnorkuárásir á Japan, morðið á Olof Palme, útbreiðsla alnæmis. Nostradamus sagði fyrir um þessa atburði. Og hann spáir að lítil eyja í Norðurhöfum muni gegna veigamiklu hlutverki á erfiðum tímum mannkynsins og lýsir merkum leið- toga sem þaðan kemur. Jafnframt ségir frá ævafornum spádóm- um Hópi-indíána, spádómum Gamla testa- mentisins um Eldeyjuna í vestri, kínversk- um spádómi um íslendinga og hvernig spá- dómar Pýramídans mikla vísa á ísland. IÐUNN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.