Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Síða 3
LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1988. 3 Fréttir Gerð jarðganga um Ólafsíjarðarmúla miðar vel: „Komnir 100 metra inn“ Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þaö hefur allt gengið hér sam- kvæmt áætlun og viö erum nú komnir um 100 metra inn í fjallið,“ sagöi Björn A. Harðarson, staöar- verkfræðingur Vegageröar ríkisins viö jarðgangageröina í Ólafsfjarð- armúla, er DV ræddi við hann fyr- ir helgina. Björn sagði aö reiknað hefði verið með að byrjunin yrði róleg á meðan menn væru aö venjast aðstæðum. „Við erum með þrjár fimm manna vaktir og ein vakt er ávallt í fríi. Hinar tvær vinna 10 tíma hvor á sólarhring og ég tel gott aö við höf- um sprengt um 30 metra á viku, það er eins og við reiknuðum með áður en við byrjuöum,“ sagði Björn. Hann sagöi að góðar upplýsingar hefðu legið fyrir um jarðlög í íjall- inu fyrstu 200 metrana og því hefði ekkert komið þeim á óvart til þessa. Hins vegar væri meiri óvissa um hvað tæki við þegar lengra kemur inn í fjallið. Alls vinna um 25 manns á vegum Krafttaks sf. við þetta verk, um 10 manns við aðra vinnu en jarð- gangagerðina sjálfa, en flestir þeirra sem vinna í göngunum eru „norskir fjallahundar" eins og Björn orðaði það, þaulvanir menn, og með þeim starfa íslendingar sem hafa m.a. unnið við jarðgangagerð við Blönduvirkjun. Valtýr Pétursson. Minningarsýning um Valtý Pétursson Sýningin Septem 88 verður opnuð á Kjarvalsstöðum í dag kl. 15. Fyrsta septembersýningin var haldin í Listamannaskálanum árið 1947 og urðu þá vatnaskil í íslenskri mynd- list. í septemhópnum eru nú Guð- munda Andrésdóttir, Karl Kvaran, Steinþór Sigurðsson, Guðmundur Benediktsson, Kristján Davíðsson, Jóhannes Jóhannesson og Hafsteinn Austmann. Þau tileinka sýninguna Valtý Péturssyni sem var í hópnum frá upphafi en lést á þessu ári. _jhh Sonur og ekkja skáldsins, Ólafur Johann og Anna Jónsdóttir. DV-mynd KAE Síðustu Ijóð Ólafs Jóhanns Þegar Ólafur Jóhann Sigurðsson lést síðla sumars var handrit að nýrri ljóðabók hans nærri fullfrágengið. Sonur hans, Ólafur Jóhann, bjó það til prentunar og gaf því nafnið Að lokum. Sú bók kom út hjá Máli og menningu í fyrradag, prýdd mynd- um eftir Jón Reykdal. -ihh Akureyri: Þrírásamahominu er gjalddagi húsnæðislána ÞU HAGNAST / / A EIGIN SKILVISI Það er þér í hag að greiða af lánum á réttum tíma og forðast óþarfa aukakostnað af dráttarvöxtum, svo ekki sé minnst á innheimtukostnað. Þú getur notað peningana þína til mun gagnlegri hluta, til dæmis í að: Auka vió skíóabúnaó fjölskyldunnar endurbæta lýsinguna á heimilinu eóa fá þér áskriftarkort í leikhúsió. á Eindagi lána með lánskjaravísitölu. Eindagi lána með byggingarvísitölu. nov Gjalddagar húsnæðislána eru 1. ágúst, 1. nóvember, 1. febrúar og 1. maí (sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn). Merktu gjalddaga þíns láns inn á dagatalið þitt, þá gleymir þú síður að gera tímanlega ráð fyrir næstu greiðslu. SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn: Þrír árekstrar urðu á sama götu- horninu í hálkunni á Akureyri. Þetta var á mótum Glerárgötu og Gránufé- lagsgötu. Enginn slasaðist í þessum árekstrum en talsverðar skemmdir urðu á farartækjunum og í einu til- fellinu þurfti að fjarlægja bifreiðarn- ar með kranabíl. Veturinn hefur haldið innreiö sína á Norðurlandi og t.d. var 6 stiga frost á Akureyri í gærmorgun. Greiðsluseðlar fyrir 1. nóvember hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. cS] HÚSNÆDISSTOFNUN RIKISINS Li LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK S: 69 69 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.