Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Page 7
LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1988. 7 Fréttir Herbjörg Wassmo. DV-mynd KAE Herbjörg Wassmo: Þykir vænt um les- endur sem reiðast Herbjörg Wassmo, norska skáldkonan sem hlaut bók- menntaverðlaun Norðurlandar- áðs árið á undan Thor, var hér á snöggriferð. Herbjörg hlaut verð- launín fyrir þriggja binda sagna- bálk um telpuna Þóru, ástands- bam frá stríðs- árunum, dóttur þýsks hermanns. Fyrsta bindið kom út í íslenskri þýðingu í vik- unni sem leiö, Húsið með blindu glersvölunum. Útgefandi er Mál og menning. í tengslum við útkomu bókar- innar hélt skáldkonan fyrirlestur í Norræna húsinu og sagði nokk- uð frá sjálfri sér. Hún er fædd 1942 í smábæ í Norður-Noregi og hefur alla ævi búið norðan við heimskautsbauginn. í æsku dreymdi hana um að verða myndlistarkona, en jarðbundinn faöir hennar, endurskoðandi að atvinnu, taldi hana á að gerast kennari. Hún eignaöist mann og börn, skrifaði í frístundum, eink- um á næturnar, og árið 1976 kom ljóðabók eftir hana og vakti at- hygh. Upp úr 1980 kom fýrsta bókin um Þóru. Nú fæst hún ein- göngu við ritstörf. Viðfangsefni sem lengi var hjúpað þögn: sifjaspell „Persónur mínar lifa eigin llfl og ég get ekki stjórnað þeim,“ sagði Herbjörg í fyrirlestri sínum. Þar lýsti hún því hvernig fyrsta kveikjan að persónunni Þóru var ekki mynd heldur hljóð: marr undan skó sem stígur á krap á bráðnandi hafís. Aðalpersónan Þóra er kynferð- islega misnotuð af stjúpfóður sín- um, drykkfelldum ólánsraanni, Þetta viðfangsefni hefur, eftir langa þögn, verið nokkuð áber- andi i bókmenntum þessa áratug- ar, og má minna á Celie í Purp- uralit Ahce Walker, bók sem kom út síðar en Húsið með blindu glersvölunum. Herbjörg hefur hlotið bæði lof og last fyrir efni- sval og efnistök en sagðist ekki láta andstöðu á sig bíta. „Mér þykir vænt um lesendur sem reiðast,“ sagöi hún, „það hræði- legasta sem ég gæti hugsað mér væri að bækur mínar vektu engin viðbrögð." „Ég hef sjaldan átt eins yndis- legar stundir við skrifborðið og við þýðingu þessarar bókar,“ sagði Hannes Sigfússon, þýöandi sögunnar. -ihh Sauðárkrókur - Keflavlk: Sambandið hrókar langt - flytur tvo togara frá Keflavlk til Sauðárkróks og einn til baka Segja má aö Sambandið hafi hrók- að langt í útgerðarstöðunni hjá sér að undanfornu. Fyrir dyrum stendur að selja togarana Bergvík GK og Aðalvík GK, sem Hraöfrystihús Keflavíkur á, til Sauöárkróks. Sam- bandið er aöaleigandi þessa fyrir- tækis. Kaupandinn á Sauðárkróki er Sambandsfyrirtæki, sem lætur á móti til Keflavíkur togarann Drang- ey, sem er aö hálfu leyti frystitogari, sem Keflvíkingar ætla að breyta al- veg í frystitogara. Astæðan fyrir þessari hrókeringu Sambandsfyrirtækjanna er meðal annars sú að eftir aö togarinn Drang- ey var lengdur er hann orðinn of stór fyrir höfnina á Sauðárkróki. En þar fyrir utan eykst þorskkvóti hvors Keflavíkurtogarans um 200 lestir við það að vera seldir yfir norður/suð- urlínuna svokölluðu. Hrókeringin kemur sér vel fyrir stöðuna á Sauðárkróki ög styrkir atvinnuástandið þar verulega. Aftur á móti hefur þetta mjög alvarlegar afleiðingar fyrir Keflavík því Hraö- frystihúsi Keflavíkur verður lokað ef af hrókeringunni verður en það telja menn að sé næsta víst. -S.dór UMTALAÐA NORSKA HEIMIIDARMYNDIN STÖÐ 2 SUNNUDAGSKVÖLD KL 22:15 Þetta er heimsfræg,- norsk heimildarmynd um eina hræðilegustu niðurlægingu mannkyns: Kynferðislega misnotkun á börnum. Hún er gerð fyrir norska dómsmálaráðuneytið og kostuð af því, ásamt Rauða krossinum og einkaaðilum. Myndin hefur vakið fádæma athygli og viðbrögð í öllum löndum þar sem hún hefur verið sýnd. Hún þykir gefa skýra mynd af þessum hryllingi víðsvegar í heiminum. Myndinni er ekki ætlað að veita nein svör, - heldur fræða og sanna að þessi glæpur er bláköld staðreynd. Athugið að myndin er alls ekki við hæfi barna og að í myndinni eru atriði sem viðkvæmt fólk ætti ekki að sjá. Eftir útsendingu myndarinnar verður bein útsending frá umræðum í sjónvarpssal Stöðvar 2. Þar er þetta vandamál til umfjöllunar og rætt um á hvem hátt það tengist íslensku samfélagi. r •• r KYNFERÐISLEGT OFBELDIA BORNUM ER MAL SEM EKKIÁ AD ÞEGJA YFIR. Sérstök neyðarl ína Rauöa kross íslands fyrir fórnarlömb og þolendur er opin á meðan útsendingu myndarinnar stendur ogtil kl. 02 ásunnudagsnótt. Síminn er 26722. Almenn neyðarlína Rauða krossins er í síma 62 22 20.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.