Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Síða 21
LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1988. 21 dv Veiðivon Stjórn Landssambands stangaveiði- félaga nokkrum mínútum eftir að fundinum lauk í Munaðarnesi. En hana skipa Grettir Gunnlaugsson, Hjörleifur Gunnarsson, Rósar Egg- ertsson, Rafn Hafnfjörð formaður, Jón Bjarnason, Sigurður Sveinsson og Sigurður Bjarnason. DV-mynd G. Bender Veiðieyrað Um síðustu helgi íjölmenntu veiði- menn af öllu landinu til Munaðar- ness í Borgarfirði til að ræða málin en þar var haldinn aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga og var góð þátttaka. Aðalefni fundarins var „Fjölskyld- an og stangaveiðin" og fluttu þær Soffla Stefánsdóttir og Guðrún Guð- jónsdóttir framsöguræður. Var gerð- ur góður rómur að ræðum þeirra beggja. Arni ísaksson veiðimálastjóri sagði frá veiðinni 1988 meðal annars og fluttar voru fréttir frá aðildarfélög- unum. Eins og við vorum búnir að segja frá og spá var Rafn Hafnfjörö áfram formaður og litlar breytingar á stjórninni enda eru veiðimenn án- ægðir með störf hennar á síðasfliðnu starfsári. Fjórar íslenskar veiðiár kvikmyndaðar íslenski myndabandaklúbburinn hefur ekki setiö auðum höndum í sumar. Á vegum klúbbsins hafa ver- ið teknar kvikmyndir við nokkrar veiöiár og leika laxveiðimenn og lax- ar þar að sjálfsögöu stór hlutverk. Þetta verkefni nefnist „íslenskar lax- veiðiár“ innan klúbbsins. Veiðiám- ar, sem um ræðir, em Laxá í Kjós, Laxá í Dölum, Vatnsdalsá og Mið- íjarðará. Það er enginn annar en Friðrik Þór Friðriksson sem stjómar verkinu en hann er einn þeirra sem fengið hafa veiðidellu. Vanur maður í upptökunni þar. Við höfum frétt að myndirnar komi út um miðjan nóvember. Þetta eru fyrstu myndirnar sem íslenski myndabandaklúbburinn gerir um okkar stórkostlegu veiðiár en stefnt er að því að gera fleiri slíkar. Vetrarstarfið hafið „Við höfum aldrei byrjað svo snemma með fluguhnýtingarnám- skeiöin og það er strax fullt,“ sagöi Aðalsteinn Pétursson í Veiöivon er við spurðum um námskeiðin. „Við munum hafa þessi námskeið í allan vetur. Ég og Órn Hjálmarsson kenn- um fluguhnýtingarnar,“ sagði Aðal- steinn. Vetrarstarfið er aö heíjast hjá veiöifélögunum þessa dagana og verður boðið upp á ýmislegt hjá þeim. -G.Bender Þungur blll veldur ^ þunglyndi ökumanns. Veljum og höfhum hvað nauðsynlega þarf að vera með í ferðalaéinu! valdi hagkvæmustu tækln Atvinnutæki . , þurfa að skila vel því hlutverki sem þeim er ætlað til þess að fjárfesting í þeim borgi sig. Þess vegna skiptir megin máli að velja bestu tækin, jafnvel þó að þau séu dýrust. Erfið- leikar við fjármögnun tækja leiðir hins vegar oft til þess að ódýrari tæki verða fýrir valinu, sem standa síðan ekki undir þeim kröfum sem til þeirraeru gerðar. Slíkljárfesting mis- heppnast því að meira eða minna leyti. Fjármögnunarþjónusta Glitnis gefur fyrirtækjum möguleika á að velja þau tæki sem hagkvæmust eru. í boði er allt að 100% Ijármögnun kaupverðs. Kaup á ódýrum, vanbúnum tækjum ern því ekki lengur nauðsynleg. Fullfjármögnun tækja og þar með staðgreiðsla hjá seljend- um veitir venjulega rétt á staðgreiðslu- afslætti sem kemur leigutakanum að fullu til góða í lægri samningsupphæð og þess vegna lægri leigu. Glitnir býður sveigjanlegar fjármögnunariausnir í formi fjármögnunarieigu, kaupleigu eða lána. Leigu- eða lánstíminn getur verið allt frá 2 árum til 7 ára. Endurgreiðslur geta verið breytilegar á samningstímanum. Hagkvæmustu tækin samfara sveigjanlegri fjármögnun, sem er aðlöguð þörfum fyrirtækisins, er vel heppn- uð fjárfesting. Láttu ekki tækifærin framhjá þérfara. Okkar peningar vínna fjrir pig Glítnirhí Ármúla 7,108 Reykjavík, sími: 91 *6810 40

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.