Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1988.
Sæl nú!... Safnplötur hafa
mjög rutt sértilrúmsá
undanförnum árum einsog
lesendur þekkja gjörla. Er
nú svo komið að samtökum
breskra hljómplötufram-
leiðenda finnst nóg komið
og vilja banna fleiri safn-
plötusyrpur en þegar eru
komnar á markaðinn. Til-
efnið er fyrirhuguð útgáfa á
nýjum safnplötum sem eiga
að heita Multi og eru i ætt
við Now og Hits plöturnar
sem hafa komið út undan-
farin ár. En trauðla gengur
þetta hávaðalaust fyrir sig
því þau hljómplötufyrir-
tæki, sem standa að Multi
plötunum, hafa hótað mál-
sókn fái þau ekki að halda
sínu útgáfustriki einsog þau
hafa áætlað... Við sögðum
síðast frá tónleikum sem
Eddy Grant hugðist halda
til styrktar þeim sem urðu
illa.úti af völdum fellibyls-
ins Gilberts á dögunum. Nú
hefurþetta fyrirtæki Grants
undið heldur betur uppá sig
og hann ekki lengur einn
um hituna. Auk hans ætla
að troða upp á þessum tón-
leikum The Christians, Boy
George, Robert Palmer, Five
Star, Joan Armatrading og
hugsanlega U2... Ný plata
frá Sheenu Easton fær mjög
lofsamlega dóma vestan
hafs og er einu laga plöt-
unnar spáð miklum vin-
sældum. Lagið heitir 101
ogereftir Joey nokkurn
Coco en bakvið það nafn er
enginn annar en Prince,
hinneini og sanni.Hann
hefur áður samið lag fyrir
Sheenu og þá undir nafninu
Alexander Nevermind eða
Alexander Skiptuþérekkiaf-
þvison... Don Henley, gamli
Eagles-liðsmaðurinn er nú
með þríðju sólóplötu sina i
smíðum. Löginsemur Hen-
ley sjálfur fyrir utan eitt
sem Bruce Hornsby semur
meðhonum... Átónleikum
sem gamli Cream-bassa-
leikarinn Jack Bruce hélt i
New York fyrir skömmu
gerðist það að einn tón-
leikagesturinn vatt sér uppá
sviðið, setti gítar i sam-
band og hóf að leika af full-
um móð. Bruce hafði iitið
við þetta að athuga þvi hér
var á ferðinni enginn annar
en gamli Cream-félagi hans
Eric Clapton... Allt búið...
Popp
Defunkt
á íslandi
- einkaviðtal DV við Joe Bowie
Næstkomandi fimmtudagskvöld
stígur á sviö í Tunglinu í Reykjavík
sex manna djazz-fónk sveit frá New
York sem kallar sig Defunkt. Nafniö
Defunkt hljómar líklega ekki kunn-
uglega í eyrum íslendinga og ér því
poppsíöa dagsins undirlögö kynn-
ingu á hljómsveitinni.
Defunkt var stofnuö í New York
áriö 1978 af þremur bræðrum, Joe,
Byron og Lester Bowie (þeim hinum
fræga). Þeir bræöur settu saman
„Jazzpönkfónk“bræöing sem þótti
byltingarkenndur og léku í nokkra
mánuöi. Þá skildu leiðir en Joe hélt
merkinu á lofti, smalaöi saman hljóö-
færaleikurum og áriö 1980 kom
frumburður Defunkt á markaö. Plat-
an vakti almenna ánægju meðal
skríbenta og bar hróöur Defunkt upp
á yfirborð New York-borgar og út
fyrir eplið.
Áriö 1982 kom Thermonuclear
Sweat út og þótti enn frekari stað-
festing á gæðum hljómsveitarinnar.
Áriö eftir leystist Defunkt svo
skyndilega upp. Joe Bowie söngvari,
básúnuleikari og aðalforsprakki De-
funkt var djúpt sokkinn. Heróín og
önnur eiturlyf tóku sinn toll og voru
á góöri leið meö aö leggja Joe aö
velli. Hann tók sig þó saman í andlit-
inu og þurrkaði sig upp. Defunkt
skreið út híði fyrir fáum misserum
og fyrir stuttu var þriðja plata sveit-
arinnar, In America, gefin út og gefur
hún fyrri verkum Defunkt ekkert
eftir.
Tónlist
í fleirtölu
Þaö er harla erfitt að ætla sér að
teyma Defunkt á ákveðinn bás hvað
tónlistarstefnur varðar. í tónlist De-
funkt mætast nefnilega flestar þær
stefnur og straumar sem rúmast inn-
an ramma alþýðutónlistar.
Jazz, rokk, fónk, soul og blús: allar
þessar stefnur renna saman í einn
punkt - í viðfangsefni Defunkt. Út-
koman er kraftmikil danstónhst,
aggressíf en ekki á sama hátt og hip
hop. Tónhstinni á nýju plötunni má
á stundum líkja við jazzað aíbrigði
af Big Audio Dynamite, svo einhver
samlíking sé gefm.
En sjón (og heyrn) er sögu ríkari
og sjálfsagt að hvetja tónlistaráhuga-
menn th að fjölmenna á tónleika
Defunkt sem eftir evrópskum blaða-
umsögnum að dæma eru almagnað-
ir.
Brennum yfir
í Reykjavík
Til að Kynnast Defunkt nánar
hringdi umsjónarmaður poppsíð-
unnar í forsprakka sveitarinnar, Joe
Bowie, þar sem hann var staddur í
Manchester ásamt Defunkt sem var
þar á hljómleikaferðalagi nú á dög-
unum. Bowie var í byrjun spurður
út í hugmyndafræði Defunkt.
„Lífsmynstur Defunkt var í upp-
hafi tilraun til að búa til farveg sem
hægt væri að veita í ólíkum tónlistar-
stefnum, jazzi, rokki, soul og b’ús,
og láta þeim lynda sem heild. Þessi
heild (Defunkt er hugtak yfir sam-
blöndun áöurnefndra tónlistar-
stefna. Innskot SMS) skyldi ekki ein-
ungis skapa góða hrynjandi heldur
umfram allt vera danshæf. Tónlistin
á að vera í senn létt-grípandi og skap-
andi.
Textamynstur Defunkt hljóðar upp
á pólitískar breytingar minnihluta-
hópum í hag - textar um lífið og til-
veruna, sannleikann og það sem er.
Defunkt er þó ekki fantasía heldur
hljómsveit sem hefur lífið sjálft að
viðfangsefni."
- Fehur hugmyndafræði Defunkt að
þínum eigin lífsstil?
„Já, vitanlega. Til að vera mínu
daglega viðfangsefni trúr verð ég að
lifa eftir því og ég reyni að vera trúr
þeirri lífssýn sem Defunkt endur-
speglar. Ég reyni að vera vakandi
fyrir því sem er að gerast í kringum
mig á hverjum tíma og reyni að hafa
skoðun á hlutunum. Defunkt hefur
breyst óhemjumikið á síðustu árum,
orðin raunsærri á allan hátt.“
Líf í fókus
„Ég var langt leiddur af notkun
fíknilyfja fyrir nokkrum árum. Eftir
því sem ég eltist varð mér ljósara að
ég æddi stjórnlaust um í fjandsam-
legum blekkingaheimi."
- Hefur þér tekist að vinna búg á
eiturlyfjafikninni?
„Ég er óvirkur í dag. Það tók mig
hins vegar langan tíma að skilja að
ég gæti ekki notað áfengi eða önnur
vímuefni. Lengi vel blekkti ég sjálfan
mig á því að áfengi væri í lagi og
agnarögn af hinum „veikari“ fikni-
lyfjum. Þetta var sá blekkingaheim-
ur sem mér tókst að stökkva út -úr
og nú líður mér vel.“
- Er ákveðið texta-þema í gangi á
nýju plötunni, In America?
Helgarpopp
Snorri Már Skúlason
„í stuttu máli má segja að textarnir
fjalli um tilvistarvandamál Defunkt
i Bandaríkjunum. Annars eru text-
arnir margbreytilegir. Selfdisclosure
(sjálfsrýni) íjallar t.d. um mitt per-
sónulega helvíti, fíknilyfin, og hvern-
ig mér tókst að losna úr klóm þeirra.
Trúarlegur texti er þarna einn, lagið
Peace of Mind, sem fjallar um guðs-
leit, þaö að meðtaka æðri mátt og þá
hugarró sem shkri uppljómun fylgir.
Af þessu sést að enginn mannlegur
þáttur er Defunkt óðviðkomandi en
flestir eiga textarnir þaö sammerkt
að fjalla um þann anchega og hkam-
lega kraft sem homo sapiens býr yfir
en aðeins fáir virkja til fuhnustu."
- Áhrifavaldar?
„Úr jazzinum er Miles Davis efstur
á blaði, Charlie Parker hefur gefið
mér mikið og saxófónleikarinn John
Coletrain hefur löngum verið í miklu
uppáhaldi. Úr rokkgeiranum heilla
mig Jimi Hendrix og Led Zeppelin
því þeirra er mátturinn og dýrðin.
Það er einmitt botnlaus kraftur
þungarokksins sem mér fellur vel í
geð og sömuleiöis letileg hrynjandi
blústónlistarinnar.
Afrísk tónhst er brunnur sem lengi
má sæKja í og Fela er mér t.d. mjög
að skapi. Temptation og James
Brown hlustaði ég mikið á sem ungl-
ingur og hefur það á vissan hátt
mótað tónlistarsmekkinn. Svo er hip
hop-ið auðvitað enn ferskt."
- Nú er Defunkt á leiðinni hingað til
lands og heldur tónleika hér þann
3. nóvember. Er hljómsveitin betri á
tónleikum en á hljómplötu?
„Hiklaust að mínu mati. Hljóm-
sveitin er miklum mun kraftmeiri á
sviði, þar er það augnablikið sem
ræður, danstakturinn rífur áheyr-
endur með sér og það að fá bein við-
brögð er uppörvandi. Á tónleikum
næst upp stemning sem er afar sjald-
gæf í hljóðveri."
- Hvernig líst Joe Bowie á að koma
upp á klakann til tónleikahalds?
„Mér líst ákaflega vel á það og
hlakka til að koma. Ég hef reyndar
lent einu sinni eða tvisvar í Keflavík
á leiðinni yfir Atlantshafiö en htið
séð annað en flugvöllinn. Sérstaklega
hlakka ég til að stíga fæti á eldfjalla-
eyju - það er mér ákaflega spennandi
tilhugsun."
- Ætlar Defunkt aö gjósa eins og eld-
fjall í Tunghnu, íslenskum áheyr-
endum til ánægju og yndisauka?
„Engin spurning um það. „We’U
be on fire.“ Þetta eru síðustu tónleik-
ar okkar í þessari Evrópureisu og
hljómsveitin mun gefa aUt sem hún
á í þessa tónleika. Æth við brennum
ekki yfir í Reykjavík."