Þjóðviljinn - 01.04.1979, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. aprn 1979
Mikið hefur verið ritað
og rætt um nýbylgjuna
svokölluðu upp á síðkast-
ið. Má vera Ijóst af þessu
öllum saman að hræring-
ar eru núna nokkrar í
heimi dægurtónlistar-
innar.
Ægifjöldi nýrra nafna
hafa komið fram sam-
fara þessu og ógerningur
að átta sig á þeim öllum.
Klárt er að þessi ára-
tugur hef ur hingað til þótt
með þeim daufari og
ófrumlegri íheimi popps-
ins. Sjötti áratugurinn
bar með sér rokkið/ sá
sjöundi beatið og þessi
tugur innleiddi diskóið
öðru fremur
Er pönkiö og nýbylgjan hafa
hrundiö rokkskriöunni af staö á
nýjan leik.
Ekki er vanþörf á aö kynna
nokkrar nýjar hljómsveitir og
listamenn sem eru i óöa önn aö
hasla sér völl um þessar mund-
ir. Nöfn eins og Nick Lowe,
Elvis Costello, Ian Dury, Tom
Robinson, Patty Smith, Blondie,
Bram Tchaikowski, Rumour,
Clash, XTC, Graham Parker,
Ramones, Boo.mtown Rats o.fl.
segja ekki mikiö en vekja ef-
laust forvitni.
1 Fingrarimi veröur reynt aö
gera nokkrum þessara lista-
manna litilega skil á næstunni
sem og fjallaö um ýmsa mark-
veröa atburöi hérlendis og er-
lendis i poppinu.
Sérstœður náungi
óhætt er aö segja aö Ian Dury
sé einn sérstæöasti og furöu-
leeasti rokkari seinni ára.
Útlit hans er ólikt þvi sem
maöur á aö venjast af popp-
stjörnu og tónlistin er afurö
pönks og nýbylgju.
Ian Dury er aö veröa 37 ára
gamall. Hann er fæddur og upp-
alinn I Lundúnum, sonur
strætisvagaabilstjóra og læknis.
Sjö ára átí áldri fékk hann
lömunarveiki sem olli lömun á
vinstra hluta llkamans. Er þvi
annar fótur hans styttri og
vinstri höndin rýr og hálflömuö.
Var hann sendur i skóla fyrir
vansköpuö börn af þessum sök-
um. Jafnar Dury þvi viö
fangelsisvist þar eöfariö var
meö hann sem eitthvert viöund-
ur.
Engu aö siöur harönaöi hann
viö vistina og telur sig búa vel
aö þessari lifsreynslu I dag.
Myndlist og tónlist
Hugur Ians Dury stóö
snemma til lista og innritaöist
hann i Royal College of Art 17
ára aö aldri. ,,Ég fór I lista-
skóla”, segir hann, ,,þvl aö þar
voru öll viöundrin saman komin
Ekki þaö aö ég teldi mig vera
viöundur. Ég taldi bara aö and-
legra væri ég allt ööruvísi. Um
leiö og ég var kominn I skólann
leiö mér vel. A annarri viku
eignaöist ég kærustu. Þaö var
þaö.”
Ian Dury starfaöi sem mynd-
listamaöur til 29 ára aldurs.
Hann málaöi og seldi nokkrar
myndir. Myndskreytti fyrir
Sunday Times og London Life.
,,Ég haföi oft dottiö niöur á
aö skrifa Ijóö, en í hvert skipti
sem ég leit á þau fannst mér þau
ferleg og setti þau til hliöar.
Mér finnst ljóölist ekkert sér-
stök. Ég fæ hluti aöeins til aö
rima svo ég haldi áhuganum
vakandi. Ég byrjaði eiginlega
að reyna viö rokkið 1968. Alltaf
þegar ég reyndi var ég meö gæj-
um sem sögöu aö ég syngi I vit-
lausri tóntegund. „Hættu þessu
Ian”, voru þeir vanir aö öskra. I
rauninni var þaö ekki fyrr en
núna nýlega aö Chaz Jankel út-
skýröi fyrir mér, hversu ein-
kennilega ég syngi I rauninni.”
Þöngulhausarnir
Chaz Jankel er gltar- og
hljómborösleikari hljóm-
sveitarinnar Blockheads. Ian
Dury og Chaz semja nokkuð
saman og hefur Dury miklar
mætur á honum. Aðrir I hljóm-
sveitinni eru Charley Charles,
trommur, Norman Watt-Roy,
jh^ssi, Davey Payne, saxófdnar,
Edward Speight, gitar, og Geo,'f
Castle, „moog”.
Hljómsveitin er skipuö mjög
færum tónlistarmönnum sem
leika þétt og gott rokk. Nafniö
draga þeir af einu laga Ian
Dury.
Ian Dury hefur veriö lýst á
ýmsa vegu,en einna vinsælast er
aö likja honum viö smækkaöa
útgáfu af bækluöum Franken-
stein, eöa sem sérkennilegri
blöndu Johnny Rotten og
Charlie Chaplin.
Samfara þessari lýsingu,
hefur hann veriö kallaður fyrsti
pönk-grinistinn og fleira I þeim
dúr.
Þaö er mikiö Kosmo Vinyl,
blaöafulltrúa og umboösmanni,
sem Dury á aö þakka framann.
Kosmo Vinyl hefur veriö drjúg-
ur við að koma Dury á fram-
færi, i samvinnu viö Stiff-ut-
gáfuna. Sem „Upminster Kid”
varö Dury þekktur i upphafi
meöal pönkara, en vinsældir
hans hafa aukist jafnt og þétt
undanfariö.
Bæklun eykur
áhrifin
Þaö er greinilegt á öllu aö
bæklun Ians Dury vekur tölu-
veröa athygli. Staöreyndin er sú
að fólk er alltaf viökvæmt fyrir
bæklun. Flestir verða vand-
ræöalegir og ruglaðir gagnvart
bækluöum einstaklingum og
kunna ekki aö koma rétt fram
gagnvart þeim. Vissrar
þröngsýni gætir einnig ávallt i
garö fólks meö einhver
áberandi likamslýti eöa alvar-
lega bæklun.
Ian Dury hefur oröiö alvar-
lega var viö þetta. Hann staul-
ast áfram og getur sig lftiö
hreyft án stafsins. En þegar
hann er kominn á sviöiö er ekk-
ert sem bindur hann. Tónlist-
in leýsiröll höft. „Ég öfunda
ekki iþróttamenn á neinn hátt. I
söngnum hleyp ég min sprett-
hlaup.”
Bæklun Ians Dury hefur
áunnið honum vinsældir og
stuöning ólikustu hópa. Hann á
sér aðdáendur á öllum aldri og
er árangur hans mikil uppörvun
fyrir bæklaö og bælt fólk viöa
um neim.
Vinsœldir og
ferðalög
Aö visu er ekki hægt aö neita
þvi aö bæklunin háir Ian Dury.
1976 varð hann aö hætta ferða-
lögum meö Kilburn and the
Highroads aö læknisráöi.
Ekki hafa ferðalögin og streit-
aú minnkaö viö vinsældirnar.
ööru nær. A siöasta ári voru
Dury og Þöngulhausarnir á
hljómleikaferö i 40 vikur alls.
Feröuöust þeim um Bandarikin
ásamt Lou Reed og héldu sjálf-
stæöa tónleika viöa i Evrópu.
Þó er þaö annaö en bæklunin
sem háir Dury jafnvel meira.
„Ég get ekki samið nema 6 ný
lög á ári. Ég þarf minnst 12 tima
friö og rólegheit til að fá hug-
myndirnar I kollinn. Ég er ekki
einn þeirra sem geta skrifað lög
meöan á hljómleikaferö stend-
ur. Og þar sem viö vorum á
feröinni i 40 vikur á siöasta ári,
ætti vandamál mitt aö liggja
ljóst fyrir.”
Eitt af aöaleinkennum Ians
Dury er textagerð hans. Málið
sem Dury talar er svo kölluð
Cockney mállýska upprunnin i
Soho i Lundúnum. Er hún sam-
band irskrar tungu og enskrar
alþýöumállýsku i Lundúnum aö
sögn Dury. „Cockney er eina
máliö sem variö er i. Þaö breyt-
ist sifellt. T.d. er nýtt orö yfir
sima tekiö i notkun á um þaö bil
10 ára fresti.”
Ian eyöir stundum allt að 3
sólarhringum i að sjóöa saman
og rima texta sina. Þar sem þeir
eru á alþýöumáli, er oft erfitt
fyrir aöra en innfædda alþýöu
Breta aö skilja kappann, en
sviösframkoma Durys og sam-
hljómun Þöngulhausanna falla
þaö vel saman aö lögin geta vel
staöið ein uppi.
Ekki tilbúinn
fyrir
nýja plötu
Ian Dury og Þöngulhausarnir
hafa litiö spilaö fyrir Eng-
lendinga undanfarið. Astæöan
er sú aö Dury telur þá ekki hafa
upp á neitt nýtt aö bjóða. „Ég er
myndlistamaður og vinn sem
slikur. Ég spila ekki sömu lögin
fyrir sama fólkiö aftur og aftur.
Ég gef heldur ekki út stóra plötu
fyrr en ég á nógu mikiö efni á
hana. Sama er meö mynd-
listina. Ég held ekki sýningu á
einhverju gömlu drasli. Ég verö
aö eiga myndir sem ég sætti mig
viö aö sýna til aö opna sýningu.
Ég sýni ekki sama fólkinu aftur
sömu gömlu myndirnar.
Samningurinn sem ég geröi
viö Stiff Records var á þá leiö aö
þaö yröi enginn þrýstingur af
þeirra hálfu aö gefa út
breiöskifu. Annars heföi ég ekki
gert samning. Þetta þýöir aö ég
get gert plötu án þess aö þurfa
aö miöa við einhverja asnalega
timapressu. En ég hætti ekki aö
gefa útlög. Ég gef þau bara út á
litlum plötum þar til nægjanlegt
efni er til á stóra plötu.”
Af hverju Ian Dury
Þaö má kannski leggja fram
spurninguna: Af hverju hafa
Ian Dury og þöngulhausarnir
hans náö slikum vinsældum?
Ekki er hann hár, myndarlegur
gæi sem kjörinn er sem imynd
ungs fólks um allan heim. Ekki
syngur hann sykursæta „I love
You” texta. Ekki klæðist hann
nýjustu tiskufötunum. Ekki er
hann... Þessi „ekki” eru ef til
vill ástæöurnar fyrir vinsæld-
unum. Eöa er þaö jafnvel skipu-
lögö auglýsingarherferö sem
gerir muninn? Þaö er erfitt aö
svara spurningu sem þessari
nema á einn veg. Þaö eru
ýmisleg smáatvik sem fléttast
saman og vinna á einn veg. En
Lily nokkur, ung og fögur stúlka
sem ekur leigubil i Detroit-borg
eins og Dury segir frá, gaf þessa
skýringu: „Þegar Bitlarnir
komu hingaö til Bandarikjanna
voru þeir „cool” af þvi aö þeir
hljómuöu eins og hópur af „hill-
billy” gæjum. Þiö ættuö aö vera
„okay” af þvi þiö gætuö allt eins
verið hópur svertingja”.
Og kenndi i smá-tima viö
Canterbury School of Art.
1972 —3 stofnaöi Ian Dury
hljómsveitina Kilburn and the
Highroads. Léku þeir mest-
megnis gamalt rokk eftir Fats
Domino o.fl.
FINGRARÍM
—jg
Umsjón: Jónatan Garðarsson